Þjóðviljinn - 26.07.1977, Side 10
ÍO SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriOjudagur 26. juli 1977.
a
a
O
0
Nýbakaöir islandsmeistarar Breiöabliks I kvennaknattspyrnu aö loknum leiknum í Garöi sl. sunnudag.
Efst sitja forráöamcnn liösins, Svanfrföur Guöjónsdóttir, Haraldur Erlendsson þjálfari og Gissur Guö-
mundsson „lukkutröll” meö meiru. Mynd: — gsp.
Breiðablik Islands-
meistari í kvennafl.
Meistaramót islands I sundi fór
fram I Laugardalslaug um helg-
ina. Tvö íslandsmet kvenna litu
þar dagsins ljós, en aö ööru leyti
var mótiö afar dauft og bar þess
etv. merki aö 8-landa keppnin fór
fram fyrir hálfum mánuöi og var
sundfólkiö okkar þá i toppæfingu,
sem siöan hefur e.t.v. eitthvaö
fjaraö út. A.m.k. náöu karlarnir
ekki aö sýna neina sérstaka hluti
á þessu móti, og hafa þeir þó ekki
legiö á liöi sinu hingaö tii þegar i
alvörumótin er komiö.
A laugardeginum setti boö-
sundssveit Ægis nýtt íslandsmet i
4x100 metra skriösundi kvenna.
Timi Ægis var 4.36.6, en gamla
metið átti sama sveit, en þaö var
4.38.7 minútur.
A sunnudeginum kom Þórunn
Alfreðsdóttir skemmtilega á
óvart er hún setti nýtt Islandsmet
i baksundi, en hingað til hefur það
sund ekki verið svo mjög á henn-
ar áhugasviði. En Þórunn synti
stórglæsilega og sló sex ára gam-
alt Islandsmet Salome Þórisdótt-
ur. Gamla metið var 2.39.6 minút-
ur, en Þórunn synti á rúmlega
einni sekúndu betri tima, eða
2.38.3.
— gsp
/
Meistaramót Islands 1 sundi:
veröi sagt aö þeir séu algjörlega
úr leik enn sem komiö er.
Snemma i fyrri hálfleik áttu
Skagamenn sitt besta færi. Auka-
spyrna var dæmd rétt inn á
vallarhelmingi FH og spyrnti
Guðjón Þórðarson. Hann sendi
boltann vel inn i vitateiginn og
þar var Jón Gunnlaugsson vel
staðsettur og skallaöi hann aö
marki en rétt framhjá. Um miðj-
an hálfleikinn áttu FH-ingar svo
sitt besta færi. Viðar Halldórsson
tók hornspyrnu og barst boltinn
til Gunnars Bjarnasonar, sem
skaut föstu skoti að marki, en
hárfint yfir.
I siðari hálfleik var einnig fátt
um tækifæri, en eins og i þeim
fyrri voru það FH-ingarnir, sem
voru öllu meira ógnandi. Einu
sinni áttu þeir að fá vitaspyrnu,
en dómarinn sá ekkert athuga-
vert gerast innan vitateigsins, en
það var ekki i eina skiptið sem
hann sá ekki brot, sem augsýni-
lega voru þess verð að dæma á, og
jafnvel að lyfta spjöldum.
Þegar um þaö bil 15 min. voru
til leiksloka, komst Kristinn
Björnsson einn innfyrir vörn FH,
en hann datt um boltann, sem er
ekki vanalegt fyrir hann, og
varnarmennirnir bægöu hættunni
frá. Fátt var það i þessum leik
sem gladdi áhorfendur, nema
frammistaða Arna Sveinss. og
Guðjóns Þórðarsonar hjá
Skagamönnum sem var besti
maður vallarins og siðan Ólafs
Danivalssonar, FH, sem átti
mjög góða spretti af og til og var
ógnandi allan leikinn. Viðar
Halldórsson og Janus Guðlaugs-
son komu einnig vel frá leiknum.
Dómari i leiknum var Hreiðar
Jónsson og var framistaða hans
fyrir neðan allar hellur. Hann sá
nánast ekki neitt, og það fáa sem
hann dæmdi var umdeilanlegt.
G.Jóh.
íslandsmótið 1. deild: FH- ÍA 0:0
Pétur ekki með
/
og lA-framlínan
var máttvana
a
a
a
a
o
o
D
D
A
/
Meö öruggum sigri, 6-0, gegn
Viði i Garði sl. sunnudag tryggöu
'Stúlkurnar i Breiðabliki sér ís
landsmeistaratignina i kvenna-
knattspyrnu. Liöiö hefur nú lokiö
öllum leikjum sfnum og fékk
Breiöablik 16 stig úr 10 leikjum.
Fjögur stig töpuðust, og fóru þau
öll forgörðum i fyrstu þremur
leikjunum. Eftir þá slæmu byrjun
hcfur Breiöablik unniö hvern ein-
asta leik og fögnuöu stúlkirnar
innilega þessum árangri á sunnu-
daginn.
Leikurinn við Viði var leikur
kattarins að músinni. Fyrri leik
liöanna lauk með sigri Breiða-
bliks 9-1 og var þvi búist við auð-
veldri viðureign um helgina. Sú
varð enda raunin. Kópavogs-
stúlkurnar höföu öll völd i sinum
höndum og ef þær hefðu ekki
staðið ofboðlitiö ráðþrota þegar
upp að marki andstæðingsins
kom, hefðu mörkin getað orðið
mun fleiri.
En markat. 6-0 sýnir vissulega
næga yfirburði og er liðið vel að
Islandsmeistaratitlinum komið,
ekki sist eftir aö hafa oft verið svo
nærri honum. Þetta er i fyrsta
sinn sem Breiðablik vinnur þenn-
an titil utanhúss, en tvo sl. vetur
hefur liðið sigrað af öryggi i
landsmótinu innanhúss.
Mörk Breiðabliks á sunnudag-
inn skoruðu þær Asta B. Gunn-
laugsdóttir 2, Rósa Valdimars-
dóttir 2, Arndis Sigurgeirsdóttir 1
og Bryndis Einarsdóttir 1. Asta
mun vera langmarkahæsta stúlk-
an i Islandsmótinu i sumar, en
hún hefur gert 19 mörk alls.
Þjálfari Breiðabliksstúlknanna
siðustu þrjú árin hefur verið Har-
aldur Erlendsson. Með honum
hafa unnið þau Svanfriður Guð-
jónsdóttir og Gissur Guðmunds-
son, sem ýmist er titlaður aðstoð-
arþjálfari eða „lukkutröll”!
— gsp
Akurnesingar náöu aldrei
neinni ógnun I leik sinum gegn FH
i Kaplakrikanum um helgina.
Skýringin er i sjálfu sér einföld:
Pétur Pétursson lék ekki með,
vegna meiðsla, og án hans var
framlinan gjörsamlega bitlaus.
Kristinn Björnsson var nú einn á
miöjunni og hann mátti sins litils,
enda vanur aö hafa mann meö
sér.... og hann ekki af lakara tag-
inu. Meö þessu markalausa jafn-
tefli hafa Skagamenn fjarlægst
enn frekar baráttuna um
Islandsmeistaratitilinn, þótt ekki
60 lítra kókverðlaun
á fámennu en vel heppnuðu stigamóti í Grafarholtinu
Hörkuskemmtileg keppni
varö i Kóka-kóla-mótinu i golfi
sem fór fram i Grafarholti um
helgina. Keppt var meö og án
forgjafar og var þetta opið mót,
sem samtals gaf 145 stig til
landsliös. Þátttakendur voru 77,
sem er fremur litiö, og dró
heljarmikiö innanfélagsmót hjá
Golfklúbbi Ness áreiöanlega
mikiö úr þátttökunni. Er þaö
óneitanlega til baga þegar
innanfélagsmót eru látin rekast
á opin stigamót I golfi.
En keppnin i Grafarholtinu
varð engu að siður stór-
skemmtileg. Veðurguöir lögðu
enda sittaf mörkunum, ekki sist
á sunnudaginn, Sigurvegari án
forgjafar varö Jóhann Kjærbo
sem lék mjög vel siðari daginn,
enda þótt hann byrjaði á þvi aö
týna boltanum strax á fyrsta
tpig og varð hann að taka þar
viti. Tvö högg fóru þvi i súginn
strax i byrjun, en „fall er farar-
heill” segir máltækið og sannaði
sig enn einu sinni.
Auk heföbundinna verðlauna
fyrir efstu sæti með og án for-
gjafar voru aö þessu sinni veitt
aukaverðlaun sem settu
skemmtilega stemmningu i
mótið. Tvenn verðlaun voru
veitt hvorn keppnisdaginn og
voru hver einstök verðlaun
hvorki meira né minna en fimm
kassar af „liters-kóki” eöa sex-
tiu litrar samtals.
Verölaunin voru veitt fyrir
besta upphafshögg á 2. braut,
sem mælt var eftir þvi hve ná-
lægt holunni kúlan fór, en einnig
voru veitt verðiaun fyrir lengsta
upphafshögg á 18. braut. A
laugardeginum féllu kókverð-
launin i hlut þeirra Helga Hóim
á 2. braut og Ragnars Olafs-
sonar á þeirri 18. A sunnudegin-
um vann Ómar Kristjánsson
hins vegar á 2. braut og Sigurð-
ur Hafsteinsson á 18. braut.
Þótti mönnum raunar dáiitib
fyndið að sjá Sigurð rogast meö
fimm kókkassa út i bil að mót-
inu loknu, þvi hann vinnur við
að keyra út kók fyrir Vffilfell, og
er nú farinn að keyra þaö heim
til sin lika i fritimanum!
En snúum okkur að þeirri
keppni sem eðlilega var mest i
sviðsljósinu, keppninni án for-
gjafar og baráttunni um lands-
liðsstigin eflirsóttu. Björgvin
Þorsteinsson hafði forystu eftir
fyrri daginn með 73 högg, en
Jóhann Kjærbo hafði 74, Sveinn
Sigbergsson 75 og Siguröur Ilaf-
steinsson 76. Sannarlega spenn-
andi keppni, en röð fjórmenn-
inganna átti eftir að vixlast
seinni daginn.
Þeir kappar voru ræstir út
saman i hópi klukkan rúmlega
tvö og Jóhann Kjærbo byrjaði
heldur en ekki illa eins og frá
var skýrt. En hann tók sig á og
tókst að lokum að koma Björg-
vini aftur fyrir sig og vinna þar
með mótið á samtals 154 högg-
um.
Annars vekur það athygli að
fjórmenningarnir léku allir
mjög illa á sunnudeginum mið-
að við frammistöðuna deginum
áður. Vera kann að steikjandi
hiti og mikið sólskin á sunnu-
deginum hafi haft þar áhrif, en
eitthvaðolliþviaðBjörgvin var
t.d. tiu höggum lakari á sunnu-
degi en laugardegi, Jóhann 6
höggum lakari seinni daginn,
Sigurður Hafsteinsson 8 högg-
um lakari og Sveinn Sigbergs-
son 9 höggum lakari. Það mun-
ar heilum 35 höggum á fyrri og
seinni degi hjá þessum fjórum
efstu mönnum.
Röð tiu efstu manna sem
hlutu landsliðsstigin 145 varð
þessi: .
1. Jóhann Kjærbo GS (74-80) 154
27.55 stig
2. Björgvin Þorsteinsson GA
(73-83) 24.65 stig.
3. Sigurður Hafsteinsson GR
(76-82) 158 21.75 stig.
4. Sveinn Sigbergsson GK (75 -
84) 159 18.85 stig
5. Atli Arason GN 15.95 stig
6. Ómar Kristjánsson GR 11.60
stig
7. Július Júliusson GK 11.60
8. Ólafur Skúlason GR 7.25 stig
9. Sigurður Albertsson GS 4.35
stig
10. Sigurjón Gislason 1.45 stig
1 keppninni með forgjöf varð
hörkuskemmtileg og spennandi
barátta um efstu sætin. Þeir
Helgi Hólm og Guðmundur Haf-
liðason urðu jafnir meö 139 högg
þegar forgjöfin hafði verið
dregin frá og urðu þeir að gjöra
svo vel að leika 18 holu úrslita
einvigi. Helgi hafði vinninginn
og urðu efstu menn þessir:
1. Helgi Hólm GS 139 (78-81
minus 20)
2. Guðmundur Hafliðas. GR 139
(92-89 minus 42)
3. Finnbjörn Finnbjörnsson GR
140 (88-88 minus 36)
Bestum árangri kvenna náöi
Jóhanna Ingólfsdóttir GR með
174 högg brúttó, og á þá eftir að
draga frá forgjöfina.
—gsp
Tvö Islandsmet hjá
stúlkunum en dauft
mót að öðru leyti