Þjóðviljinn - 26.07.1977, Qupperneq 11
Þriöjudagur 26. júli 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Jóhann Kjærbo sigraði í opna stigamwinu í Grafarholti
um helgína, sem sagt er frá á siðunni hér til hliðar. Jó-
hann sést hér slá upphafshögg á 1. braut siðari keppnis-
daginn, en sitiandi á bekknum eru þeir þremenningar
sem röðuðu sér i þrjú næstu sæti. Lengst til hægri er
Björgvin Þorsteinsson, sem hafnaði í 2. sæti, í miðið er
Sigurður Hafsteinsson sem lenti í 3. sæti og lengst til
vinstri er Sveinn Sigbergsson sem náði 4. sæti. Þessir
f jórir efstu menn léku saman í hópi siðari daginn og röð-
uðu sér — alveg óvart — svona hárrétt upp fyrir Ijós-
myndarann.
Annars var sígurvegarinn, Jóhann K|ærbo, oheppinn i
þessu höggi sem var að riða af. Hann týndi boltanum og
varð að slá nýtt upphafshögg, en fyrir vikið reiknast á
hann vítiog tvöhögg tapast. (Mynd: —gsp)
o staðan
Staðan i l. deild að loknum
leikjum helgarinnar og viður-
eigninni i gærkvöld : Vikingur — ÍBV 2:2 Þór — Breiðablik 1:3 Fram — Keflavik 2:3 FH — Akranes 0:0 KR — Valur 0:3
Staðan:
Valur 13 9 2 2 24: 9 20
Akranes 14 9 2 9 23:17 20
Víkingur 14 6 6 2 18:13 18
IBK 14 6 4 4 20:19 16
IBV 14 6 3 5 18:14 15
GBK 13 6 2 5 19:17 14
Fran 14 4 4 6 17:23 12
FH 14 4 3 7 17:24 11
KR 14 22 10 18:27 6
Þór 14 2 2 10 15:32 6
o staðan V 'j
Staöan i 2. deild aö loknum
leikjum helgarinnar:
Þróttur N — Selfoss 2-0
Reynir A — Reynir S 1-1
1B1 — Armann 1-1
Föstudagskvöld:
Þrótur — Haukar 1-1
KA — Völsungur 4-1
ÞrótturR. 1 1 s 2 1 24: 10 18
KA 1 1 8 1 2 27: 15 17
11 a u kar 1 1 5 (> 0 1S: : 7 1(>
Armaun I 1 6 2 3 19: 11 14
Kcynir S. 11 4 3 4 16: 18 11
isalj ... 1 1 4 3 4 14: 16 1 1
Þróttur N . . .. ...11 3 3 5 13: : 17 9
Selfoss 11 2 2 7 7: : 17 6
Völsungur 11 •> 2 7 il: : 19 (>
Re\ uir \ ... 11 0 2 1) S: : 25 2
Valur fór létt
með KR-inga
— staða þeirra á toppnum er mjög góð, en KR-ingar eru fallnir
Valsmenn voru ekki í
vandræðum með KR-inga í
1. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. Þeir skoruðu
þrjú mörk, KR ekkert.
Staða Vals í deildinni er þvi
mjög góð, þeir hafa leikið
einum leik færra en IA og
eiga léttari leiki eftir.
Staða KR-inga er hins
vegar vonlaus á botninum
og geta þeir ekki bjargað
sér f.rá falli héðan af.
Fyrstu minúturnar var leik-
urinn nokkuð jafn og áttu KR-
ingar fyrsta góða færið i leiknum,
er örn Óskarsson skallaði rétt
framhjá. Valsmennirnir voru
hinsvegar aðeins lengur i gang,
en á 22. min. skoruðu þeir fyrsta
markið. Magnús Bergs tók inn-
kast, sem var að margra dómi
vitlaust, boltinn var sendur fyrir
markið, varnarmönnum KR mis-
tókst að hreinsa frá, og Ingi Björn
sendi boltann i hornið niðri, 0:1.
Atli Eðvaldsson skoraði siðan
mark númer tvö. Albert
Guðmundsson tók fráspark rétt
fyrir utan teig, KR vörnin var
sofandi og Atli var ekki i vand-
ræðum og afgreiddi boltann i
markið, 0:2 og þannig var staðan
i hálfleik.
Siðasta markið i ieiknum
skoraði Atli einnig. Hann einlék
Framhald á bls. 14.
Víkiitgar náðu
jöfnu í Eyjum
Vikingar og Vestmannaeyingar
skildu jafnir i 1. deildinni i knatt-
spyrnu i Eyjum um helgina.
Skoruðu bæði liðin tvö mörk, IBV
strax á fyrstu min. siðari hálf-
leiks en Vikingarnir náöu að jafna
og kræktu sér i dýrmætt stig i
toppbaráttunni i deildinni.
Tvö íslandsmet í
Kalott-keppninni
ísland hafnaði 1 2. sæti
fyrir tilstilli kvenfólksins
lslenska frjálsiþróttaiands-
liðiö hafnaði I 2. sæli i Katott -
keppninni, sem fór frarn i
Finnlandi uin helgina. tsland
sendi utan 35 frjálsiþrótta-
menn sem samtals náðu i 302
stig, en finnska liöið sigraði
með 366 stig. Norðmenn urðu
hins vegar þriðju meö 293 stig
en sviar ráku leslina með 243
stig. Ilanir höfðu ekki rétt til
þátttöku og ekki heldur iþrótt-
amenn úr suðurhlutum Nor-
egs og Svíþjóðar.
Tvö Islandsmet voru sett.
Óskar Jakobsson bætti fyrra
met sitt i spjótkasti er hann
þeytti spjótinu 76.32 metra.
Sigrún Sveinsdóttir setti nýtt
met i 400 m. grindahlaupi er
hún hljóp á 65.1 sekúndu, en
„'það nægði henni til að ná
þriðja sæti. Eldra metið átti
Sigrún sjálf.
Þá setti Thelma Björns-
dóttir glæsilegt telpna- og
meyjamet i 3000 metra hlaupi.
llún er á fyrra ári i telpna-
flokki ennþá, en þessi korn-
unga stúlka hljóp á 10.33.2
min. og á hún áreiöanlega
eftir að láta dugiega aö sér
kveða i framtiðinni.
IVlilli karla og kvenna skipt-
ust stig þannig aö istensku
stúlkurnar urðu i 2. sæti
kvennakeppninnar og lagði
Ingunn Einarsdóttir þar
drjúga hönd á plóginn. Karl-
arnir urðu hins vcgar þriðju,
næstir á eftir finnum og norð-
mönnuni.
—gsp
Sumarliði Guðbjartsson skallar boltann i mark IBK , tryggir Fram
bæði stigin i leiknum og bjargar þeim úr fallbaráttunni i 1. deild.
Þorsteinn Bjarnason markmaður liggurog Gisli Torfason horfir stjarf-
ur á. Mynd: G.Jóh.
1. deild: Fram — IBK 3:2
Fram hirti
bæði stigin
— eftir að hafa verið 0:2 undir
Framarar gengu með sigur af
hólmi i viðureign við ÍBK I 1.
deildarkeppninni i knattspyrnu á
Laugardalsvellinum á sunnu-
dagskvöld. Keflvikingarnir kom-
ust i 2:0, en framararnir voru
ekki á þeim buxunum að tapa
leiknum og skoruðu þrivegis og
tryggðu sér bæði stigin. Má nú
telja öruggt, að það veröi Þór og
KR sem falla i 2. deild, þvi erfitt
verður fyrir þau aö ná sér i nægi-
lega mörg stig i þeim leikjum
sem þau eiga eftir i jafn fáum
ieikjum og ólokið er.
Keflvikingar byrjuðu leikinn af
miklum eldmóði, og strax á 3.
minútu áttu þeir gott marktæki-
færi. óskar Færseth byggði upp
góða sóknarlotu og endaði hún
með þvi, að hann átti hörku skot
að marki, en Arni Stefánsson i
Fram-markinu varði mjög vel.
En framarar áttu sin færi, t.d.
átti Sumarliöi Guðbjartsson
skalla að marki IBK, sem Gisli
Torfason bjargaöi á linu. Tvö
önnur tækifæri áttu framararnir
með stuttu millibili, en i bæði
Framhald á bls. 14.