Þjóðviljinn - 12.08.1977, Page 3

Þjóðviljinn - 12.08.1977, Page 3
Föstudagur 12. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Samið um Pan- amaskurðinn Panama City 11/8 reuter — Samninganef ndir Banda- rikjanna og Panama hafa komist aö samkomulagi um að bandarikjamenn láti Pana maskurðinn og svæðið beggja megin hans af hendi við stjórnvöld í Panama. Bandarikin hafa haft yfirráð yfir skurðinum sem er 80 km á lengd og tengir saman Atlantshaf og Kyrrahaf siðan hann var opn- aður árið 1903. Einnig hafa þau haft öll völd á 16 km breiðu belti meðfram skurðinum þar sem þau hafa haft herstöövar. 37.500 bandarikjamenn búa á þessu svæöi. 1 samningnum sem gerður var árið 1903, rétt eftir að Miðausturlönd Vance snýr heim á leið Alexandriu 11/8 reuter — Cyrus Vance utanrikisráðherra Banda- rikjanna lauk idág fcrðalagi sinu um Mið-austurlönd meö skottúr milli þriggja höfuðborga næstu nágranna israels, Sýrlands, Egyptalands og Jórdaniu. Ferð Vance hófst meö heimsókn til fimm arabarikja en i gær og fyrradag var hann i Israel þar sem hann ræddi ma. við Menachem Begin forsætisráð- herra. Eftir þær viðræður sagði Vance á blaðamannafundi i Jerúsalem að honum hefði ekki tekist að minnka bilið milli deilu- aðila. Bandariskir embættismenn i fylgdarliði Vance sögðu að Begin hefði verið óhagganlegur i þvi að leita öllum umræðum um brottflutning frá hernumdu svæð- unum áöur en friðarviðræður hefjast. Einnig hefði hann visað staðfastlega á bug öllum hug- myndum um stofnun sérstaks Palestinurikis á vesturbakka Jórdanár. Samt sem áður létu þeir Sadat forseti Egyptalands og Hússein konungur i Jórdaniu i ljós bjart- sýni eftir viðræðurnar við Vance i dag þar sem hann skýröi þeim frá viðræðum sinum við Begin. Sadat sagðist vona að israelar „kæmust að þeirri niðurstöðu að einstrengingsleg stefna þeirra gagnar þeim alls ekki”. Hússein sagði hins vegar aö arabar ættu að leggja kapp á að bæta lifskjör i löndum sinum svo þeir ættu hæg- ara með að mæta israelum þvi „það er ekki nóg að koma sér upp hersveitum”. 1 Damaskus, höfuðborg Sýrlands, var aðeins birt stuttorð tilkynning um að Vance hefði komið og gefið skýrslu um ferð sina en ekkert frekar sagt um hana. Slðasta fónarlamb Sonar Sáms á Hkbörunum: tvltug stúlka ao nafni Stacy Moskowitz. „Sonur Sáms” Fjöldamorðingi handtekinn í N.Y. New York 11/8 reuter — Lögreglan I New York hefur handtekið ungan póstmann sem hún telur vist að sé „Sonur Sáms” en glæpamaður sem svo er nefndur hefur myrt 6 manns og valdiö 7 manns örkumlum á rúmu ári. Moröingi þessi réðist einkum á ungar stúlkur að næturþeii eða unga elskendur sem höfðu brugðið sér afsiðis. Birtist hann skyndilega og skaut á fólkið af stuttu færi með 44 kalibera skammbyssu. Athæfi mannsins sló miklum óhug á ibúa borgarinnar og var ungt fólk hætt að þora að fara á stefnumót undir beru lofti. Einnig hafði aðsókn að diskó- tekum dregist saman. Morðingi þessi ritaði lögregl- unni bréf i tilefni af einu morðinu og vitnaði þar til anda nokkurs sem hann nefndi „Sám”. Fékk hann þá viður- nefnið Sonur Sáms sem honum virtist lika vel þvi hann notaði það sjálfur i bréfi sem hann sendi blaöamanni einum i tilefni af þvi að ár var liðiö frá fyrsta morðinu, það var 29. júll. Þegar lögreglan handtók póstmanninn David Berkowitz i Brooklyn og þaö kvisaðist út safnaðist þegar saman hópur reiðra borgarbúa fyrir utan lög- reglustöðina þar sem hann var i haldi. Hafði fólkiö uppi kröfur um að Sonur Sáms yrði tekinn af lifi þegar i staö. Lögreglan segir að Berkowitz hafi verið að skipuleggja árás á diskótek þegar hann var hand- tekinn og átti sú árás að eiga sér stað i kvöld, fimmtudag. Panama braust undan yfirráðum Kólumbiu, eru Bandarikjunum afhent þessi völd „til eiliföar”. Samningaviðræður rikjanna hafa staðið yfir i 13 ár. Nokkuö er umliðið siðan samkomulag náðist um að brottflutningi bandariskra hermanna frá Panama yrði lokið um aldamót. Það sem einkum hefur staðiö i samningamönnum undanfarið er krafa Panama um bætur fyrir notkun skurðarins frá upphafi og ákveðna upphæð árlega eftir afhendingu hans. Hljóöaöi krafa Panama upp á 1.2 miljarða dollara i bætur og 300 miljónir i gjald á ári héðan i frá. Talið er að þessar upphæöir hafi verið lækkaðar niður i 460 og 150 miljónir dollara. Þá er talið að samkomulagið feli i sér ákvæði sem heimili bandarikjamönnum vopnaða ihlutun ef hlutleysi skurðarins er ógnað. Einn af skipastigunum I Panamaskurði. Ekki hefur enn verið greint frá niðurstöðum samninganna. Þær verður að leggja fyrir bandariska þingið og undir þjóðaratkvæði i Panama áöur en samningurinn verður staðfestur. Talið er vist aö Carter forseti muni eiga i nokkrum erfiöleikum með að fá samþykki 2/3 hluta öldungadeildarinnar við samn- ingnum. Er einkum talið að andstaðan beinist gegn þeim fjár- hæðum sem samið er um. Einnig eru margir ihaldsmenn á þingi þeirrar skoðunar að Panama- skuröurinn sé lögmæt eign Bandarikjanna, rétt eins og Alaska. Þá er heldur ekki vist að Omari Torrijos hershöföingja og þjóöarleiðtoga Panama takist aö fá samþykki meirihluta þegna sinna viö samningnum. Margir vinstri- og miðflokkar eru sagðir óhressir meö það hve langur timi mun liða þar tii bandarikjamenn hafa sig á brott með allt sitt hafurtask. Mótmælum erlendri hersetu í Tékkóslóvakíu og á íslandi 9 ár liðln frá mnrásmni í Tékkóslóvakíu 21. ágúst n.k. Samtök herstöðvaandstæðinga halda útifund Samtök h e r s töö v a a nd - stæðinga hafa ákveðið að gangast fyrir útifundi 21. ágúst n.k., en þann dag eru iiðin 9 ár frá innrás herja Varsjárbanda- lagsins inn I Tékkóslóvakiu. Nánari staðsetning og fundar- timi veröur auglýstur slðar, en kjörorö fundarins eru: — Burt með heri Varsjárbanda- lagsins úr Tékkóslóvakiu. — Styöjum frelsisbaráttu Tékka og Slóvaka — Burt með hernaðarbandalög- in: Island úr Nató, herinn burt. 1 fréttatilkynningu frá sam- tökunum segir að miðnefnd þeirra sjái sér skylt að andmæla erlendri hersetu i Tékkóslóvakíu og lýsa stuðningi sinum við baráttu tékkneskrar alþýðu fyrir fullum mannrétt- indum, enda er I stefnuskrá Samtakanna, sem samþykkt var á siðasta hausti, lögð áhersla á alþjóðlegt samhengi herstöðvamálsins. Þar segir orörétt: „Barátta gegn her og herstöðvum, ásamt baráttunni gegn islenskri Nató-aöild, (er) liður i örlagarikri viðureign smáþjóða og alþýðu við áleitin stórveldi og voldugar auðstéttir. Samtök herstöðvaandstæðinga lita á störf sin og stefnu sem þátt i viðtækri baráttu gegn heimsvaldasinnuðum hernaðar- bandalögum, drottnunarstefnu og siauknum vigbúnaöi hervelda.” 1 fréttatilkynningunni segir ennfremur að Tékkóslóvakia sé enn hernumið land og að öll andstaða við innrásarlið Sovétrikjanna og fulltrúa þeirra i valdastööum i Tékkóslóvakiu sé miskunnarlaust brotin á bak aftur. Nú er þvi svo komið, að bæði tékknesk og islensk alþýða eru bundnar á klafa hernaðar- bandalaga, sem nota itök sin til að treysta arðrán og yfirráð i þessum löndum. Þvi hefur alþýða beggja landanna hliðstæðra hagsmuna aö gæta: Að losa sig úr greipum erlends hervalds. Irland Fjórtán daga ferð 17. til 31.ágúst VERÐ KR. 72.000

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.