Þjóðviljinn - 12.08.1977, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 12.08.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 íslandsmótið í golfi 1 Grafarholti: Hafrarnir farnir að skilja sig frá sauðunum Björgvin Þorsteinsson.Hann ætlar greinilega ekkert aö gefa eftir I vörn sinni á tslandsmeistaratitlinum f golfi. Björgvin Þorsteinsson, islandsmeistari allt frá árinu 1973, ætlar greini- lega ekki að gefa titil sinn eftir baráttulaust. Hann var f gífurlegum ham á islandsmótinu í golfi í gær. Það var þó einkum á seinni hringnum sem Björgvin fór á kostum. Eftir fyrstu 9 holurnar hafði hann spilað á 41 höggi. Ragnar ólafsson, sem flestir telja me'sta keppinaut Björgvins, var búinn að fara þann hluta á 39 höggum, þannig að Björgvin var 4 höggum á eftir þessum erfiða Íþróttahátíð í Leipzig Dr. lngimar Jónsson er löngu landsþekktur fyrir störf sin i þágu iþróttahreyf- ingarinnar. Hann hcfur m.a. þjálfað FH-inga i handbolta á leið þeirra til íslands- meistaratitils. Grein sú sem hér birtist er byggð á rabbi sem tiðindamaður blaðsins átti við hann um íþróttafesti- valið i Leipzig f júlfmánuði. sovétmönnum í stigakeppninni. gömul stúlka sem vann þetta A siðari árum hafa A-Þjóðverjar haft sig æ meira I frammi á iþróttasviðinu. Hver iþróttamaðurinn á fætur öðrum hefur skotist upp á sjónarsviðið og skákað bestu iþróttamönnum þjóða eins og Sovétrikjanna og Bandarikjanna. Þáð er engin tilviljun hversu frami þessa iþróttafólks er orðinn mikill. A-þjóðverjar leggja geysilega mikið upp úr iþróttum meðal landsmanna og ekkert er til sparað svo að hæfileikar einstaklingsins fái að njóta sin. Árangur A-þjóðverja i stórmót- um hefur verið geysigóður. Það sýna t.d. úrslit siðustu Olympiu- leika mætavel, en þar urðu Dagana 25,—31. júli var hald- in i Leipzig hin svokallaða Spartakiaða, en það er keppni unglinga, allt til 17 ára aldurs. Tveimur islendingum, þeim Gisla Halldórssyni formanni 1S1 og dr. Ingimari Jónssyni, var sérstaklega boðið fyrir Islands hönd til að fylgjast með móti þessu og reyndar fleirum, þvi mikill fjöldi annarra iþróttavið- burða fór fram i Leipzig á þess- um tima, alþjóðleg frjáls- iþróttamót, list- og iþróttasýn- ingar, ljósmyndasýningar, og svo mætti lengi telja. Spartakiöðuleikarnir voru þó sá viðburður sem mesta athygli vakti. Þarna voru saman komin skólabörn i úrslitakeppnina sem haldin er á tveggja ára fresti. 1 A-Þýskalandi nær mótið raunar út fyrir allt landið, þ.e. undan- keppnirnar eru haldnar i svo að segja hverjum smábæ sem merktur er inn á landabréfið. Ýmis ágæt afrek voru unnin á aðalleikunum i Leipzig i siðustu viku. Þar má til dæmis nefna langstökk stúlkna sem vannst á 6.25 metrum, en heimsmetið er ágæta afrek. Hástökkið vannst af 16 ára gömlum pilti á 2.13 metrum. 800 metrarnir á 1:56,7 min o.s.frv. Talið er að meira en 60% allra barna i A-Þýskalandi taki þátt i Spartaklöðuleikunum ár hvert. Geysilega athygli vöktu þau alþjóðlegu iþróttamót sem i gangi voru þessa viku. Leik- vangurinn I Leipzig sem tekur u.þ.b. 100 þús. manns var troð- fylltur i fimm skipti, og urðu margir frá að hverfa. Þar kepptu svo til allir bestu frjáls- iþróttamenn A-Þýskalands svo og iþróttamenn frá Sovétrikjun- um og flestum A-Evrópuþjóðun- um. Einnig fór fram landsleikur i knattspyrnu milli A-Þýska- lands og Sovétrikjanna. Lauk leiknum með sigri A-Þjóðverja, 2:1. A-Þjóðverjar leggja sérlega mikið uppúr iþróttum sem kynningu á landi og þjóð. Spartakiöðuleikarnir eru til- valdir til að finna ungt hæfi- leikafólk sem siðan er þjálfað upp I að verða toppiþróttamenn. Iþróttaleikvangurinn i Leipzig. Þar rúmast 100 þús. manns. Myndin er tekin á setningu Spartakiöðu- leikanna. fjanda. En seinni hring- inn spilaði Björgvin eins og sá sem völdin hef ur. 33 högg notaði hann! Frá- bært afrek, tvö högg undirpari. Og þetta dugði í efsta sætið þvi Ragnar spilaði á 39 höggum. Alls hefur Björgvin því notað 150 högg á fyrstu 36 hol- urnar. Ragnar er annar með 152 högg. Já, bestu golfleikararnir eru farnir að koma upp á yfirborðið. Sigurður Thorarensen, einn af sigurstranglegri keppendum mótsins,lék mjög vel i gær og er nú einn i þriðja sætinu með 155 högg. 1 4.—5.sæti kemur svo Atli Arason frá Neskaupstað og Sveinn Sigurbergsson Golf- klúbbnnum Keili. Atli, sem var I efsta sæti eftir fyrsta dag keppninnar ásamt Geir Svans- syni, lék holurnar 18 I gær á 84 höggum. Annars voru aðstæður til að spila golf mjög slæmar i gær, úrhellisrigning allan dag- inn og hvassviðri I þokkabót. Þetta náði greinilega meginþorra keppenda þvi meðalskorið var mun hærra en á fyrsta degi. Kvennaf lokkur: Jóhanna Ingólfsdóttir Golfklúbbi Reykjavikur jók heldur betur við forskot sitt. Hún hefur nú leikið á 168 högg- um en i öðru sæti kemur Kristin Pálsdóttir Golfklúbbi Akureyr- ar með 175 högg. Jakobina Framhald á bls. 14. Björgvin kom- inn í efsta sætið. Ragnar Olafs- son fylgir hon- um sem skugginn Sigurður Thorarenssen.ibygginná svip, ætlar sér greinilega stóra hiuti á islandsmótinu. Enn við það sama í útihandboltanum Tveir leikir fóru fram i Islands- mótinu i útiknattleik i gærkvöld. Fyrst léku Fram og Vikingur i B- riðli mótsins. Var þar um mjög harðan og spennandi leik að ræða. Vikingar hófu leikinn með mikl- um látum og áður en varði var staðan orðið 5:0 þeim i hag. Með miklum krafti tókst Frömurum að rétta sinn hlut þannig að staðan I hléi var 8:7, þeim i hag. I seinni hálfleik hélst leikurinn mjög jafn og lauk með jafntefli 14:14. Þurfa nú Vikingar að vinna HK með a.m.k. 6 marka mun til að komast i úrslitaleikinn gegn Val, að öllum likindum. Mark- hæstur hjá Fram var Pálmi Pálmason, skoraði 7 mörk. Hjá Viking var Páll Björgvinsson drýgstur með 5 mörk. Seinni leikur kvöldsins var leik- ur FH og 1R. Var það léttur róður hjá FH-ingum sem unnu 23:17. Staðan i hálfleik var 12:9. Mark- hæstir FH-inga voru þeir Viðar og Ami með 4 mörk hvor. Hjá 1R- ingum v oru Sigurður Svavarsson og Vilhjálmur Sigurgeirsson markhæstir með 5 mörk hvor. Staðan i riðlunum tveim er nú þessi: B-riðill: Fram Vikingur KR HK A-riðill: Valur FH Haukar Ármann 1R Ali að draga sig í hlé Heimsmeistarinn i hnefa- lcikum, Muhamed Ali lét i veðrivakaá blaðamannafundi i Lundúnum, að hann hyggðist nú yfirgefa hringinn fyrir fullt og allt. Ali á að keppa um heimsmeistaratitilinn við landa sinn Earnie Shavers i septembermánuði. ,,Ég er að hugsa um að bjóða Joe Frazier i bardaga um titilinn að þeim leik loknum,” sagði Ali. „Frazier hefur sagst vilja berjast við mig, og ég held að hann sé einmitt rétti maöurinn til að berjast við I síðasta skipti á ferlinum. Ali gaf litið út á andstæðing sinn á Madison Square Garden, „Þetta er nú hálfgildings hneta,” sagði hann. „Hnetur munu falla til jarðar i garðin- um i september,” bætti hann við.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.