Þjóðviljinn - 12.08.1977, Blaðsíða 5
Föstudagur 12. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Reykj avíkurb or gar
Gunnlaugur Scheving á nokkrar myndir á sýningunni að
Kjarvalsstöðum. Hér eru tvær, sú stærri nefnist Gamla-
búðin i Grindavík en sú minni Sjómaður. (Ljósm. Þjv. eik)
! dag verður opnuð að Kjarvalsstöðum sýning á 56
listaverkum sem eru i eigu Reykjavíkurborgar. Er þar
að finna myndir frá því upp úr 1910 og allt fram tíl þessa
árs.
Alls eiga 36 myndlistarmenn ana en sumar koma úr geymslum
verk á þessari sýningu sem Aðal- og hafa sjaldan sést.
steinn Ingólfsson listfræðingur Um tilgang sýningarinnar segir
hefur sett upp i félagi við þá Guð- Aðalsteinn i sýningarskrá: — A
mund Benediktsson og Gunnar þessari sýningu höfum við reynt,
örn Gunnarsson. Myndirnar eru eftir þvi sem efni og aðstæður
flestir teknar af veggjum hinna leyfðu, að setja nokkur þau mál-
ýmsu borgarskrifstofa og stofn- verk sem Reykjavikurborg á i
lauslegt sögulegt samhendi, eink-
um til þess að gefa erlendum
gestum einhverja mynd af þróun
islenskrar málaralistar siðustu 60
árin...
Sýningin er opin á venjulegum
opnunartima Kjarvalstaða fram
til 23. ágúst. —ÞH
Uppákomur á norrænni
menningarviku nyrdra
I lok þessarar viku hefst
i fimm kaupstöðum
norðanlands norræn menn-
ingarvika þar sem heima-
mönnum og ferðafólki
gefst kostur á að sjá og
njóta margvísiegrar list-
menningar frá flestum
norðurlandanna.
Það eru norrænu félögin á
Akureyri, Dalvik, Húsavik,
Ólafsfirði og Siglufirði ásamt
bæjarfélögunum sjálfum, sem að
þessari viku standa og leggja
bæjarsjóðirnir fram helming
fjárframlags á móti framlagi frá
norræna menningarmálasjóðn-
um, en styrkur hlaust úr þeim
sjóði til þessa framtaks, að jafn-
virði 50.000 króna danskra.
Menningarvikan, sem sett
verður i iþróttaskemmunni á
Akureyri á laugardaginn, verður
með nokkuð léttari blæ en tiðkast
hefur, ekki sist með tilliti til þess
að i vor var haldin tónlistarhátið
á Akureyri með klassiskri tónlist
að uppistöðu.
Einhver viðburður verður á
hverjum degi á Akureyri þessa
viku, en á hverjum hinna stað-
anna verða slikir viðburðir þrjú
kvöld. Að auki má svo gera ráð
fyrir að breytingar verði á dag-
skrá gefist listafólki kostur á að
bæta við, — einkum má gera ráð
fyrir siðdegisuppákomum án
fyrirvara, og er ráðgert að slikar
uppákomur kunni að verða dag-
legt brauð á Ráðhústorginu á
Akureyri. Þannig mega Norð-
lendingar eiga von á þvi að heyra
visnasöng á götum úti eða vera
fyrirvaralaust staddir á jazztón-
leikum utan dyra alla næstu viku.
Eins og fyrr segir tekur lista-
fólk frá flestum norðurlandanna
þátt i þessari menningarviku.
Hingað kemur danski leikflokk-
urinn Smedjen, Olli Ahvenlahti og
jazzkvartett hans koma frá Finn-
landi, visnasöngvarar koma frá
Sviþjóð svo nokkuð sé nefnt. Þá
verður opnuð á Akureyri á
laugardaginn finnsk myndlistar-
sýning, en jafnframt sýning á
málverkum ýmissa norðlenskra
listmálara. Brúðuleikhús Jóns
Guðmundssonar sýnir, og eins
Alþýðuleikhúsið. Philiph Jenkins
pianóleikari og Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari leika
norræn lög og Kristján Jóhanns-
son óperusöngvari mun koma
fram.
Fleiri atriði verða, en dagskrá-
in veröur nánar auglýst i norð-
lenskum blöðum og borin út i öll
hús á stöðunum fimm. Einnig
verða götuauglýsingar. Miðasala
hefst i miðri þessari viku, en að-
göngumiðaverð á einstaka við-
burði verður frá kr. 500 fyrir börn
og 1000 til 1500 fyrir fullorðna
Það er samstarfsnefnd norrænu
félaganna á Akureyri, Dalvik,
Húsavik, ólafsfirði og Siglufirði
og fulltrúa viðkomandi bæjar-
félaga, sem starfað hefur að
undirbúningi og skipulagningu
Á miðvikudaginn voru
haldnir hér í Reykjavík
ársfundir samtaka þeirra
aðila sem fást við bilaiðn-
að, —sölu og -þjónustu á
Norðurlöndunum öllum.
Var á fundum þessum
fjallað um helstu vanda-
mál sem þessar greinar
eiga við að etja og bornar
saman bækur um gang
bílasölu undanfarin ár.
Fram kom á fundinum að bila-
sala hefur gengið vel i fyrra og
það sem af er þessu ári alls staðar
nema i Finnlandi;þar hefur verið
stöðugur samdráttur. Hér á Is-
landi hefur salan aukist jafnt og
þétt frá þvi 1975 sem var óvenju-
slakt fyrir bilasala eftir metárið
1974. Kom ma. fram að bilum i
landinu f jöldaði ekki i heild nema
um 95 stykki milli áranna 1974 og
’75.
Einnig kom fram að meðalald-
ur bíla er hæstur i Finnlandi eða
11 ár. Hér á tslandi er hann rúm-
lega 9 ár , i Danmörku 8 ár en
liðlega 5 ár i Noregi og Sviþjóð.
Af öðrum málum sem rædd
voru á fundunum má nefna niður-
stöður kjarasamninga sem ný-
lega hafa verið gerðir á öllum
Norðurlöndum, lög um aðild
verkafólks að stjórnum fyrir-
tækja sem sett hafa veriö i Svi-
þessarar menningarviku, en
formaður nefndarinnar er Bárður
Halldórsson menntaskólakennari
á Akureyri. Framkvæmdastjóri
menningarvikunnar er Ólafur
Rafn Jónsson.
þjóð, lög um vinnuumhverfi sem
sett hafa verið i Noregi, Sviþjóð
og Danmörku og eru i undirbún-
ingi hér á landi og lög um jafn-
rétti kynja. —ÞH
Dýrasýning í
Laugardalshöll
Næstkomandi sunnudag, þann
14. ágúst, kl. 2-6, verður dýrasýn-
ing i Laugardalshöllinni, — og
kennir þar ýmissa grasa.
Þar veröa m.a. sýndir 20 kettir,
30-40 hundar, páfagaukar, mar-
svin, hamstrar, skjaldbökur, dúf-
ur (hojara), hláturdúfur, gull-
fiskar i búrum og dverghænur.
Sá, sem verður með gullfiskana
á sýningunni, mun veita þeim, er
þessóska, leiðbeiningar um með-
ferð og hirðingu slikra dýra. Þá
verða og veittar leiðbeiningar um
meðferð páfagauka.
Tilgangurinn með þessari
dýrasýningu er tvennskonar:
Annarsvegar aö afla fjár til dýra-
spitalans og hinsvegar að kenna
fólki að umgangast og fara með
þau dýr, sem þarna verða til sýnis.
Baldur Brjánsson, töframaður,
mun koma þarna fram og leika
listir sinar.
Kynnir á sýningunni verður
Gunnar Eyjólfsson, leikari.
Kaffiveitingar verða á staðn-
um.
Aðgangseyrir fyrir fullorðna
verður kr. 600,- en kr. 300,- fyrir
börn. —mhg
Herbergi óskast
Herbergi með eða án húsgagna óskast til
leigu i eitt ár eða lengur, helst i nágrenni
Landsspitalans. Upplýsingar veittar á
Rannsóknastofu Háskólans simi 29000
(lina 240).
iM' Vélritari óskast Óskum að ráða vélritara nú þegar eða um næstu mánaðamót. Góð tungu- málakunnátta (enska og danska) nauð- synleg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 20. þ.m. Vegagerð rikisins Borgartúni 1 Reykjavik.
/ Iþróttakennarar Að Grunnskóla Eskifjarðar vantar iþróttakennara pilta og stúlkna. Allar upplýsingar veitir Trausti Björnsson skólastj., simi 6182. SKÓLANEFNDIN.
NORRÆNIR BÍLA-
SALAR ÞINGA