Þjóðviljinn - 12.08.1977, Síða 6

Þjóðviljinn - 12.08.1977, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. ágúst 1977 DAGVISTUNARMÁL Séö yfir hluta af útileiksvæöinu viö Hólaborg. Útileiktækin sem viö sjáum eru öll sérsmföuö, en þeir Guömundur Kr. Guömundsson og ólafur Sigurösson teiknuöu leikskólann. „Viö vitum ekki nákvæmlega hversu mörg börn eru á biölistum núna, þar sem litiö álag er yfir sumariö og einnig hefur létt mjög á einu erfiöasta hverfinu, Breiö- holti, meö tilkomu tveggja nýrra leikskóla. Ljóst er þó aö þaö vant- ar enn mikið á aö hægt sé aö koma öllum börnum inn á leik- skóla, og dagheimilin nægja hvergi fyrir forgangshópana, hvaö þá aðra’j sagöi fram- kvæmdastjóri Sumargjafar, Bergur Felixson er viö ræddum viö hann, en dagvistarmál hafa veriö ofarlega á baugi aö undan- förnu eftir að þau voru tekin fyrir i nýafstöönum kjarasamningum og lofaöi rikisstjórnin þá aö gera verulegt átak i þessum málum. Ekki kunnugt um breyt- ingu „Rikisstjórnin hefur fyrir nokkrum árum komið frumkvæð- inu i byggingu dagvistarstofnana yfir á sveitarfélögin og mér er ekki kunnugt um að þrátt fyrir þá áherslu sem lögð var á þessi mál Kanntu að skrifa snjó- kast? Við brugðum okkur i heimsókn á annan nýja leikskólann i Breið- holtshverfinu, Hólaborg, og þar tók forstöðukonan, Lilja Torp, á móti okkur og sýndi okkur hús- næðið. Verður ekki annað sagt en hér sé um mjög skemmtilegt og þægilegt húsnæði aö ræða, enda undu börnin sér vel. Garðurinn er einnig mjög skemmtilegur, og benti Lilja okkur á gangstéttir og brýr á leiksvæðinu, sem hvetja börnin til meiri hreyfingar úti við. Við spjölluðum dálitið við nokkra krakka, sem voru að blaða i Barbapapa á meðan þau biðu eftir aö verða sótt. „Jú, það er gaman hérna, en oft rigning” sagði Jón Ingi 5 ára. „begar snjórinn kemur, fer ég i snjókast úti,” bætti hann við. „Það er mest gaman úti”, sagði Nina, 3ja ára. „Kanntu að skrifa „snjókast”?" spurði hún blaða- mann. „Ekkert heimili getur búið börnum svona öruggt umhverfi” Lilja Torp forstööukona og Ragnheiöur Halldórsdóttir fóstra hjálpa krökkunum aö taka saman leik föngin. Þetta eru þau Nfna, Guðmundur, Jón Ingiog Magnús Orrisem öll ætluöu að bursta tennurnar þegar þau kæmu heim. i siðustu samningum, hafi verið rætt um breytta stefnu I dag- vistarmálum hér i Reykjavík. Dagheimilin eru ekki ætluö öðr- um en forgangshópum, og við höfum ekki einu sinni nægileg pláss fyrir þá, en flestir sem við þessi mál starfa telja óeðlilegt að flokka börn á dagvistarstofnan- ir eftir hjúskaparstétt foreldra o.s.frv., eins og nú er gert. Það sem hins vegar hefur verið rætt um að gera er að ljúka við könnun á vegum Félagsmálaráðs á þörfinni fyrirdagvistarheimili i Reykjavik og á ég von á að það veröi gert i haust,” sagði Bergur. Nýtt og gamalt húsnæði „Hefur verið rætt um aörar úr- bætur i dagvistarmálum, sem taka skemmri tima en bygging nýrra heimila, t.d. nýtingu eldra húsnæðis?” „Já, en yfirleitt þarf svo mikiö að gera fyrir eldra húsnæöi, ef það á að verða hengtugt fyrir svona starfsemi, að það verður jafnvel enn dýrara en að reisa nýtt. Nýju heimilin tvö I Breiö- holti eru byggð eftir sömu teikn- ingu og virðast mjög hentug. Þar eru ýmis nýmæli, t.d. er auka herbergi á hverri deild, sem gefur fóstrunum tækifæri til aö skipta börnunum I hópa. Þessir leikskól- ar taka hvor um sig 114 börn, og Hólaborg er þegar yfirfull og kominn biðlisti, en i Seljaborg eru enn laus pláss, þar sem hverfið er hvergi nærri fullbyggt ennþá. Og jafnvel þótt þessir tveir leikskól- ar leysi mikinn vanda, gerum við ráð fyrir að allir biðlistar lengist strax og haustar.” „Hefur verið rætt um að hafa meiri sveigjanleika á opnunar- og lokunartimum leikskólanna, þar sem margir foreldrar eiga erfitt með að ná i börnin fyrir þann tima sem lokaö er?” „Já, það hafa verið geröar til- raunir með það og i Breiöholtinu virðist það óhjákvæmilegt vegna strætisvagnaferöa. Það hefur verið rætt um að hafa opið til kl. 1, ef fólk greiðir ákveðið auka- gjald, og einnig að opna fyrr á morgnanna.” „Hvaða dagvistarbyggingar eru nú á döfinni?” „Næst verður byggt dagheimili i Hólahverfi og annað i vestur- bænum, en einnig verður unnið að gerö skóladagheimila I tengslum við dagheimilin,” sagöi Bergur að lokum. Og þegar búið var að skrifa snjókast hélt Nlna áfram:„Þegar ég kem heim fer ég i bað og bursta tennurnar.” „Borðar þú nokkurn tima gotteri?” „Já , súkkulaði hjá Tótu i Ljós- heimunum” „Hvað ætlar þú að gera þegar þú kemur heim?” spyrjum við Jón Inga. „Horfa á þennan bleika — eitt- hvað, I sjónvarpinu. Hann er miklu skemmtilegri en frétta- mennirnir. Svona er lagið hans”: Og Jón Ingi syngur hárri raustu lagið úr Bleika pardusnum. Og nú er verið að sækja krakk- ana og við spyrjum þá þessarar sigildu spurningar um framtiðina og hvað þeir vilji verða. „Eitthvað”, svarar Jón Ingi snarlega og Nina bætir við: „Tiu ára”, og þar með eru þau farin. Skv. starfsáætiun Börnunum er skipt i deildir eft- ir aldri og eru 14-22 börn á deild. Lilja sagði að gerð væri starfs- áætlun fyrir vikuna, sem foreldr- arnir geta lesið, svo að þeir viti um hvað er verið aö fjalla. Opið er frá 8-12 og l-5,og þar sem hér er um leikskóla að ræða, eru börnin annað hvort fyrir eða eftir há- degi. „Viö opnum fyrir 8 og höfum opið i hádeginu, fyrir þá sem vinna niðri i bæ og ná ekki hingað kl. 12,” sagði Lilja og bætti viö að hún væri mjög ánægð með fyrir- komulagið á leikskólanum. „Það er enginn iburður i neinu, en öllu mjög þægilega fyrirkomið. Við höfum lika mjög góðan leik- fanga-og leiktækjakost. Að sjálf- sögðu ættu öll börn að eiga kost á að dvelja á leikskóla, þvi ekkert einkaheimili getur búiö börn- unum svona öruggt umhverfi. Börnin læra að umgangast hvort annað og leika sér og eru þvi miklu betur undir skólann sjálfan búin.” „Hvernig er samstarfið viö for- eldrana?”. „Við höfum nú aðeins starfað siðan i mai i vor, en við ætlum að halda foreldrafund áöur en langt um llöur. Þá fyrst getur maður vænst þess að foreldrarnir fari að spjalja við mann og aö um raun- verulegt samstarf verði að ræða,” sagði Lilja að lokum. ÞS Enn vantar mikiö á að þörfinni fyrir dagvistunarstofnanir sé fullnægt, þrátt fyrir tvo nýja leikskóla I Breiðholti

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.