Þjóðviljinn - 12.08.1977, Page 13
Föstudagur 12. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Finnskt efni í útvarpi
Kalevala og
finnsk tónlist
Nú er Finnlandsforseti i
heimsókn og útvarpiö gerir
finnsku efni hátt undir höföi i
kvöid, sem vel fer á, lesiö
veröur úrhinum fornu söguljóö-
um Finna, Kalevaia, og leikin
veröur „Finiandia” Sibeliusar
og Pianókonsert nr. 2, eftir
Selim Palmgren, en bæöi þessi
tónskáld eru þekkt aö mikilli
þjóörækni i tónverkum sinum.
Það er Andrés Björnsson, út-
varpsstjóri, sem les úr Kalevala
i þýðingu Karls tsfelds, en
þýðandanum entist aldrei aldur
til að ljúka þessu verki og kom i
annars manns hlut að fullgera
þýðinguna, sem kom út í tveim
bindum fyrir mörgum árum.
Jean Sibelius
Jean Sibelius sótti kveikju að
mörgum tónsmiða sinna i
finnskar sagnir og fortið og bera
nöfn verka eins og Kalevala,
Saga, Svanurinn frá Tuonelaog
Lemminkainen vott um það.
Hann fæddist i Tavestehus i
Finnlandi 1865 og dó i Jar-
venpaa 1957, niutiu og eins árs
gamall. Hann stundaði nám i
utvarp
Helsinki og þá i Berlin og Vin.
Þegar hann var þrjátiu og
tveggja ára gamall, veitti rikið
honum ævilöng starfslaun, svo
hann mætti helga sig
tónsmiðum sinum og um 1930
stóð hið opinbera og aö þvi að
mörg verka hans voru gefin út á
hljómplötum.
Sibelius samdi sjö sinfóniur,
átta eða niu tónaljóð og önnur
hljómsveitarverk, fiðlukonsert,
söngva og fleira. Þessar
tónsmiðar þykja bera sterk ein-
staklingseinkenni og kveður þar
við einlægan tón rómantikur og
ástar á landi og þjóð.
Selim Palmgren
Palmgren var fæddur i
Björneborg 1878 og dó i Helsinki
1951. Hann lærði i Helsinki og
siðar i Þýskalandi, þar sem
hann starfaði með Busoni og
fleirum mektarmönnum. Er
hann hélt til Finnlands að nýju
fékkst hann lengi við kórstjórn
og samdi mörg kórverk og vann
að fyrstu óperu sinni, Daniel
Hjort. Á fjórða áratugnum gaf
hann sig þó allan aö tónsmiöum
Jean Sibelius
sinum, hélt pianótónleika og
ferðaðist um með konu sinni,
sem var frábær söngkona.
Á árum fyrri heimsstyrjaldar
bjóPalmgren i Kaupmannahöfn
og siðar um tima i Rochester i
New York, þar sem hann kenndi
tónsmiðar við Eastman tónskól-
ann.
Mikill hluti tónverka
Palmgrens ber vott um áhuga
hans á pianóleik og að sjálfur
var höfundur afbragðs pianó-
leikari. Likt og hjá Sibeliusi eru
verk hans með sterkum þjóðleg-
um lit gjarna stutt og knöpp að
formi.
Það er Halle hljómsveitin
undir stjórn John Barbirolli,
sem leikur Finlandiu, en pianó-
konsert Palmgrens leikur Izumi
Taeni og Filharmóniuhljóm-
sveitin i Helsinki, Jorma Panula
stjórnar.
Finlandia-húsiö i Helsinkii er helgaö minningu Sibeliusar og er
einn nýtiskulegasti hljómleika og samkomusalur heims.
Selim Palmgren
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund banranna kl.
8.00: Helga Þ. Stephensen
les söguna „Hvita selinn”
eftir Rudyard Kipling i þýð-
ingu Helga Pjeturss (3). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Spjallaö við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25. Morguntón-
leikarkl. 11.00: Konunglega
filharmóniusveitin i Lund-
únum leikur „The Perfect
Fool”, ballettmúsik eftir
Gustav Holst: Sir Malcolm
Sargent stjórnar, Ida
Haendel og Sinfóniuhljóm-
sveitin i Prag leika Konsert i
a-moll fyrir fiðlu og hljóm-
sveit op. 82 eftir Alexander
Glazunoff: Vaclav Smet-
acek stjórnar, Hljómsveit
Tónlistarháskólans i Paris
leikur Sinfóniu nr. 2 eftir
Darius Milhaud, Georges
Tzipine stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
14.30 Miðdegissagan „Föndr-
arnir” eftir Leif Panduro.
örn Ólafsson les þýöingu
sina (5).
15.00 Miödegistónleikar.
Josef Kodousek og félagar
úr Dvorak-kvartettinum
leika „Kýprusviðartréð”,
strengja kvartett eftir
Antonin Dvorák. Melos
hljóðfæraflokkurinn leikur
Sextett fyrir klarinettu,
horn og strengi eftir John
Ireland.
16.00 Fréttir.Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp.
17.30 „Fjórtán ár i Kina”.
Helgi Eliasson bankaúti-
bússtjóri les kafla úr bók
Ólafs ólafssonar kristni-
boða.
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Úr atvinnulifinu.
Magnús Magnússon og Vil-
hjálmur Egilsson viðskipta-
fræðingar sjá um þáttinn.
20.00 islandsinótiö i knatt-
spyrnu, fyrsta deild. Her-
mann Gunnarsson lýsir frá
Akureyri siðari hálfleik
milli Þórs og KR.
20.45 „Kalevala”. Andrés
Björnsson útvarpsstjóri les
úr þýðingu Karls tsfelds
21.00 Finnsk tónlist. Hallé
hljómsveitin leikur „Fin-
landiu” sinfoniskt ljóð op. 26
eftir Jean Sibelius, John
Barbirolli stj.Izumi Tateno
og Filharmóniusveitin i
Helskinki leika Pianó-
konsert nr. 2. eftir Selim
Palmgren, Jorma Panula
stj.
21.30 Útvarpssagan: „Ditta
mannsbarn" eftir Martin
Andersen-Nexö Þýðandinn,
Einar Bragi les (19).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Sagan af San
Michele” eftir Axel Munthc. 1
Þórarinn Guðnason les (28).
22.40. Afangar. Tónlistar-
þáttur sem Ásmundur Jóns-
son og Guðni Rúnar Agnars-
son stjórna.
23.30 Fréttir.Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Prúöu leikararnir (L)
Gestur leikbrúðanna i þess-
um þætti er hinn fjölhæfi
skemmtikraftur Ben vereen
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
20.35 Rétturinn til samskipta.
Umræðuþáttur um hlutverk
og þýöingu esperantos sem
alþjóðamáls. Umræðum
stýrir óskar Ingimarsson,
og með honum eru þátttak-
endur frá fjórum heimsálf-
um. Umræðurnar fara fram
á esperanto og verða fluttar
með islenskum texta.
21.25 Þaö rignir á ást okkar
(Detregnar pa var karlek)
Sænsk biómynd frá árinu
1946. Leikstjóri Ingmar
Bergman. Aðalhlutverk
Barbro Kollberg og Birger
Malmsten. Tvö ungmenni,
Maggi og Daviö, hittast
rigningarkvöld eitt á járn-
brautarstöð.' Hann er ný-
kominn úr fangelsi, og þau
eru bæði einmana. Þau
dveljast á gistihúsi yfir
nóttina, og daginn eftir
ákveöa þau aö hefja nýtt lif
saman. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.00 Dagskrárlok.
Tollbátur til sölu
Kauptilboð óskast i tollbátinn örn, sem er
10 lestir að stærð með 70 ha. Mannheim
vél.
Báturinn verður til sýnis við Verbúða-
bryggju, austan Ægisgarðs, föstudaginn
12. ágúst kl. 4 - 6 e.h.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorri fyrir kl. 11:30 f.h. miðvikudaginn 17.
ágúst 1977.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELBX 2006
Frá Gagnfræðaskólan-
um á Sauðárkróki
Enn getur skólinn tekið við nemendum i
framhaldsnám næsta vetur, i eftirtöldum
brautum: almennt bóknám, iðnbraut, við-
skiptabraut, uppeldisbraut og fornám.
Heimavist er fyrir hendi. Umsóknir send-
ist sem fyrst til skólastjóra, Friðriks Mar-
geirssonar, Hólavegi 4, Sauðárkróki.
Styrkir til
háskólanáms í Japan
.lapönsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa tslendingi til
háskólanáms i Japan námsáriö 1978-79en til greina kemur
aö styrktimabil verði framlengt til 1980. Ætlast er til aö
styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eöa sé kominn nokkuö
áleiöis i haskólanámi. Þar sem kennsla viö japanska há-
skóla fer fram á japönsku er til þess ætlast aö styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaöa skeiö.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjár-
hæöin er 133.000 yen á mánuði og styrkþegi er undanþeg-
inn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000 yen viö
upphaf styrktimabilsins og allt af 42.000 yen til kaupa á
námsgögnum. Þá er og veittur ferðastyrkur.
úmsóknir um styrk þennan ásamt staöfestum afritum
prófskirteina, meöntælum og heilbrigðisvottoröi, skulu
sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vík, fyrir 3. september n.k. —Sérstök umsóknareyöublöö
fást i ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
8. ágúst 1977.
Útboð
Tilboð óskast i 15 þúsund fiskikassa fyrir
Bæjarútgerð Reykjavikur
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, R.
Tilboðin verða opnuð á sama stað,
miðvikudaginn 14. september n.k. kl. 11.00
f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Sími 2S800
Blaðberabíó
Laugardaginn 13. ágúst kl. 11. f.h.
„Einn gegn öllum”
Aðalhlutverk: Audie Murphy.
E
ODVIUINN