Þjóðviljinn - 13.08.1977, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.08.1977, Blaðsíða 7
Laugardagur 13. ágúst 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Embættismannahroki, yfirbordslegt viskudaður og ónákvæmni landlæg eru helstu orsakir þess að lítið er gert af þvi að ræða um lagafrumvörp við þá aðila sem eiga siðan að framkvæma lögin Guörún Helgadóttir, deildarstjóri: UM SETNINGU LAGA OG REGLUGERÐA Flestum þegnum þjóðfélags- ins mur. vera Ijóst, að Alþingi setur lög i landi voru. Þó kemur það fyrir, að hinar ýmsu opin- beru stofnanir, sem siðan eiga að framkvæma lögin, fá skömm i hattinn fyrir lög, sem mönnum þykir bæði óréttlát og fávisleg. Er þar er Alþingi eitt endanlega ábyrgt. Það er hreint ekki smátt sem hið háa Alþingi tekst á hendur, þegar það setur lög um hina margvislegustu hluti, sem fyrir ber i mannanna lifi. Og það er næsta furðulegt, hvað menn takast það kotrosknir á hendur. Við, sem vinnum við fram- kvæmd eins lagabálks i hinu mikla lagakerfi, þykjumst eiga fullt i fangi með að kunna á hon- um nokkur skil. Hinir 60 alþing- ismenn verða hins vegar að kynna sér hin óliklegustu lög um hin óliklegustu efni. Og þeir eru ekki öfundsverðir af þvi. Það hvarflar þess vegna stundum að okkur, sem kunnum töluvert fyrir okkur i einum ákveðnum lagabálki, að þennan barning gætu þingmenn létt sér heilmikið með þvi að ráðfæra sig við okkur, þegar lagabreyt- ing er væntanleg. Þetta gera þeir hins vegar sárasjaldan. Og árangurinn er stundum i mesta máta óheppilegur. Lög geta litið prýðilega út á pappirnum, en verið illframkvæmanleg þegar á á að herða. Um þetta þekkjum við mörg dæmi. Skemmst er að minnast laga nr. 95/1975, sem var breyt- ing á lögum um almannatrygg- ingar. Þessi lög kváðu svo á, að sveitarfélög skyldu innheimta 1% álag á gjaldstofn útsvara og er þessi skattur nefndur sjúkra- tryggingagjald. Við fram- kvæmd kom i ljós að óeðlilegt þótti að leggja þetta gjald á elli- og örorkulifeyrisþega, er litlar sem engar tekjur höfðu. Þurfti þess vegna að breyta þvi, sem og var gert. En þá tókst ekki ■ betur til en svo, að vistmenn elliheimila sátu eftir með gjald- ið! Og enn varð að breyta-álagn- ingu. Vissulega hefði verið hægt að koma i veg fyrir þessa erfið- leika, hefði starfsfólk skatt- stofanna og Tryggingastofnun- ar fengið ráðrúm til að athuga frumvarpið. Það hefði sannar- lega verið skemmtilegra að gera eitthvað annað við þá pen- inga,' sem við skattborgarar uðrum að hrista úr vösunum til leiðréttinga á þessari fram- kvæmd laga. Annað dæmi um vandkvæði við framkvæmd annars ágætra laga er breyting, sem gerð var með lögum nr. 62/1974. Með þeirri breytingu er Trygginga- stofnun rikisins gert kleift að greiða meðlag til feðra, sem hafa börn sin á heimili sinu og móðirin óskar eftir að greiða meðlag með. Aður hafði einung- is staöið i lögunum ,,Mæður, sem fá úrskurð yfirvalds um meðlag með börnum sinum...” Þetta var sjálfsagt réttlætis- mál. Við framkvæmd kom i ljós, að þetta er engum vandkvæðum bundið við hjónaskilnað, þar sem yfirvald úrskuröar móður- ina meðlagsskylda. Þegar hins vegar fyrsta mál barst stofnun- inni, þar sem um óskilgetið barn var að ræða, kom annað i ljós. Til þess að Tryggingastofnun geti greitt meðlag, þarf með- lagsúrskurð yfirvalds. Og þegar beðið var um hann, reyndist ekki unnt að úrskurða móðurina meðlagsskylda. Lögin nr. 87/1947 um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna leyfa ekki að móðir sé gerð meðlagsskyld. Þeim lögum hefði þurft að breyta um leið og lögum um al- mannatryggingar. Jafnréttis- ráð hefur nú tekið að sér að koma þvi máli á rekspöl. Og svo mikið er búið að skrifa um lagabreytingu, sem gerð var á lögum um atvinnuleysistrygg- ingar, þegar atvinnuleysisbætur i fæðingarorlofi voru lögleiddar, að ekki er ástæða til að endur- taka það allt. En það væri af nógu að taka. Þessi þrjú dæmi, sem hér hef- ur veriðminnstá,sýna að allt of litið er gert af þvi að ræða laga- frumvörp við þá aðila, sem eiga siðan að framkvæma lögin. Vissulega leita þingnefndir iðu- lega umsagnar á frumvörpum, en oft vill brenna við að þau eru einungis send æðstu mönnum stofnanna, sem af eölifegum ástæðum eru sjaldnast sjálfir i daglegri afgreiðslu. Og oftlega trúi ég að litið sé rætt um frum- vörpin við starfsfólkið, sem sið- an tekur við ónotum fyrir mis- tökin. Ég hygg aö sitthvaö komi hér til. Fyrst kynni manni að detta i hug embættismannahrokinn frægi, sem siður en svo er horf- inn. Allt of margir embættis- menn — og alþingismenn — hafa alveg gleymt til hvers þeir eru. Hvorir tveggja eru i þjón- ustu fólksins i landinu. Það kaus sér fulltrúa á Alþingi. Við sem vinnum i þjónustu rikisins, er- um þar fyrst og fremst til að þjóna samborgurum okkar, enda á launum hjá þeim. Og þetta gleymist hvort tveggja allt of oft. önnur orsök er nærtæk: Yfir- borðslegt viskudaður okkar. Það er engin skömm að þvi að vita ekki alla hluti, enda er það fólk ævinlega bert að kjána- skap, sem þykist gera það. Þess vegna fer maður stundum hjá sér, þegar þingmenn og fyrir- fólk ræðir um hluti, sem það veit augljóslega ekkert um. En eitt er alltaf hægt að gera, og það er býsna virðingarvert: Það er að kynna sér hlutina eftir bestu getu og spyrja þá, sem liklegir eru til að vita eitthvað um ákveðin málefni. Með þvi fæst mikilsverð samvinna allra að- ila, sem einfaldar alla hluti og sparar stórfé, sem árlega fer i hrein mistök. Þriðju orsök vil ég nefna, sem er ónákvæmni okkar tsleiid- inga, sem ég hika ekki við að segja að sé meiri á opinberum vettvangi, en þar sem ég hef dvalist erlendis. Hvað eftir ann- að kemur það fyrir, að opinberir starfsmenn svara ónákvæmt og rangt, fremur en að biðja um tima til athugunar, ef einhvers er spurt. Jafnvel i fjölmiðlum birtast menn illa undirbúnir og halda fjallræður um ekki neitt, vegna þess að þeir hafa ekki nokkra staðreynd handbæra. Þetta raus er engum til gagns og viðkomandi til skammar. Haldi menn, að þannig virðist þeir gáfulegir i framan, er það versti misskilningur. Margt fleira mætti telja. En þetta vérður að breytast. Háðu- neytin verða að hafa nánara samstarf við stofnanir sinar, og forstöðumenn stofnana þurfa ekki siður að halda fundi með starfsmönnum sinum. Með þvi öðluðust menn meiri þekkingu á verkefnum sinum og stofnanna sinna og ekki siður störfum Al- þingis og ráðuneyta. Og alþing- ismenn gætu aflað sér þekking- ar á ýmsum málum á skjótari hátt og skiljanlegri en með lestri doðranta sem þeir botna ekkert i. Og þá færum við kannski að nálgast hið marg- rómaða lýðræði, sem stundum er varla nema orðin ein. Opinberir starfsmenn eru nú verst launuðu menn þjóðfélags- ins. Þetta gleymist gjarnan i daglegri umræðu, og menn gera fáeina nefndakónga að sam- nefnara fyrir alla opinbera starfsmenn. Vonandi verður úr þessu bætt á komandi hausti. En laun eru þrátl fyrir allt ekki lausnarorð alls. Virðing fyrir starfi hvers einstaks starfs- manna hlýtur lika að skipta þá menn máli, sem taka starf sitt i þjónustu almennings alvarlega. Og það fólk er til i hverri rikis- stofnun þó að það ma'tti vera fleira. Fyrsla skilyrði til efling- ar á starfsvirðingu opinberra starfsmanna er, að Alþingi skilji og meti störf þeirra og vinni með þeim. Geri þeir það ekki, vinna opinberir starfs- menn eftir sömu uppskrift og þeir sem hærra eru settir: Þeir sitja i embættum sinum og gera sig merkilega við þá sem þeir eiga að þjóna. Hvað höfðingj- arnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það. 9.8. '77 Gll. Á að fyrirbyggja lögbrot með því að samræma lögin brotunum? A fundi borgarstjórnar Reykja- vikur s.l. þriðjudag flutti Þor- björn Broddason eftirfarandi til- lögu: „Borgarstjórn felur umferðar deild að gera tillögu um breytingu á 46. gr. lögreglusamþykktar Reykjavikur, sem feli i sér ákvæði um mismunandi hámarkshraða eftir flokkun gatna þannig, að minnstur hraöi verði leyfilegur á húsagötum, næstmestur á safnbrautum en mestur á tengibrautum. Jafnframt er umferðardeild fal ið að gera rækilega athugun á aksturshraða i borginni áður en núgildandi ákvæðum um hámarkshraöa er breytt og eftir þær breytingar, sem kunna að verða gerðar”. Tillaga þessi er flutt vegna ráðagerða um að auka leyfilegan aksturshraða bifreiða á götum Reykjavikur um 5 km. á klst. Þorbjörn Broddason kvað forsenduna fyrir þessari hraða- breytingu talda vera þá, að ekið væri hraðara en reglur mæltu fyrir um. Mætti sú afsökun raun- ar teljast harla hláleg. Þróunin mundi þá verða sú, að ökuhraðinn smá-ykist umfram það, sem leyfi- legt væri,og svo kæmu samþykkt- ir eftir á um að elta lögbrjótana. Þetta minnti sig á söguna af manninum, sem sagöi við son sinn: „Sittu, strákur”. „Nei”, sagði stráksi. „Stattu þá”, sagði faðirinn, „ég vil að mér sé hlýtt”. Hafi á annað borö verið skyn- samleg ástæða til þess að tak- marka ökuhraðann, þá yrði einn- ig að vera frambærileg ástæða fyrir þvi, að fella þá ákvörðun úr gildi. Það væri ótviræð rök fyrir þvi að halda niðri ökuhraðanum, að aukinn hraði leiddi af sér aukna slysahættu. Þorbjörn Broddason taldi, að sumar götur þyldu þann um- ferðarhraða sem nú á að leyfa mestan, en langt væri frá þvi, aö Davið Oddsson. aðrar gerðu það, enda væri lög- reglan hikandi við þessa breyt- ingu. Þvi væri nauðsyn á að flokka göturnar mun meira en gert væri, með tilliti til leyfilegs ökuhraða og að þvi lyti sin till. Ilavið Oddsson sagði þaö algengtað lögum væri breytt eftir hátterni manna og væri það sjálf- sagt. Óhætt væri að auka öku- hraðann, þvi lýsing gatna hefði batnað, bilar batnað o.s.frv. Taldi borgarfulltrúinn öll tormerki á að flokka götur eins og tillaga Þorbjörns gerði ráð fyrir. Þó væri ekkert við það að athuga að borgarfulltrúar samþykktu að leyfa aðeins ákveðinn hraöa á ákveðnum götum — (hvernig, sem það má nú svo gerast án þess að flokka þær). Þorbjörn Brodda- son heföi veriö að tala um að lög- reglan væri hikandi. — Hvaða Þorbjörn Broddason. lögregla er það? spurði Davíð. - Ég veit ekki betur en lögreglu- stjóri og yfirmenn umferðar- mála séu hraðabreytingunni fylgjandi. (Og hvað er þá svo sem eftir af lögreglunni?). Þorbjörn Broddason vildi telja það dálitið vafasama kenningu, að koma ætti i veg fyrir lögbrot með þvi að breyta bara lögunum i samræmi við brotin. Sér heföi alltaf skilist, að lögin ættu að móta veruleikann. Það afsakaði ekki aukinn hraða að bilar væru betri en áður. Það kynni að vísu að auka öryggi þeirra, sem i bilun- um væru, en ekki fótgangandi vegfarenda. Þorbjörn Broddason sagði til- lögu sina tviþætta: Hún væri ann- arsvegar um að lögreglu- Heildarflutningar með flugvél- um Flugleiða voru svipaðir fyrstu sex mánuði yfirstandandi árs og á sama timabili i fyrra. Farþegum i millilandaflugi hefur fækkað lit- ilsháttar en vöruflutningar aukist verulega, svo og póstflutningar. 1 innanlandsflugi hafa farþega- flutningar stóraukist, en vöru- flutningar dregist litillega sam- an. Þá hafa póstflutningar innan- lands aukist. Fyrstu sex mánuði yfirstand- andi árs flugu 152.580 farþegar með millilandaflugvélum Flugfé- lags tslands og Loftleiða og er þaö 2% færri farþegar en á sama timabili árið áður. Vöruflutning- ar milli landa hafa hinsvegar aukist verulega. Þeir námu á samþykktin hefði að þessu leyti ákveðinn sveigjanleika og að hinu leytinu um athugun á ökuhraða. Davið Oddsson sté aftur i stól og lýsti þvi yfir, að hann mundi greiða atkvæði gegn tillögu Þorbjörns. Var sú yfirlýsing raunar óþörf, nema þá fyrir Davið sjálfan, þvi eftir fyrri ræöu hans duldist ekki öðrum hvernig hann mundi greiða atkvæði. Atkvæðagreiðslan fór þannig, að tillaga Þorbjörns Broddasonar var felld með atkv. Sjálfstæðis- manna gegn atkvæðum minni- hlutafulltrúanna. —mhg. fyrra helmingi þessa árs 16.5 milj. tonn-km og jukust um 48.5%. Póstflutningar milli landa jukust um 12.4% miðað við sama timabil i fyrra. Sem fyrr segir hafa farþeg- aflutningar innanlands aukist verulega á fyrstu sex mánuðum þessa árs, miðað við sama tima- bil 1976. Frá 1. jan til 30. júni voru fluttir á innanlandsleiðum 110.000 farþegar, sem er 19.2% aukning miðað við sama timabil árið áður. Vöruflutningar innanlands námu á þessu timabili 573 þús. tonn-km og minnkúðu um 4.2%. Póstflutn- ingar jukust á hinn bóginn um 14.2%. mhg. Flutningar Flugleiða svipaðir og í fyrra

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.