Þjóðviljinn - 12.10.1977, Side 1
Miðvikudagur 12. október 1977 —42. árg. 226. tbl.
Urslit atkvæöagreiðslu á
Akureyri, Akranesi og i Eyjum
Bæjarstarfsmenn á Akureyri og Akranesi greiddu i gærkvöldi at-
kvæði um sáttatillögur hverjir á sinum stað, og urðu úrslit þau að á
Akureyri var tillaga felld meö 92 atkv. gegn 49, en á Akranesi, þar
sem sáttatillagan mun hafa verið allhagstæð, var hún samþykkt
með 81 atkv. gegn 1. Loks var sáttatillaga samþykkt i Vestmanna-
eyjum, með öllum þorra atkvæða. Nánar verður skýrt frá atkvæða-
greiðslum þessum i fimmtudagsblaðinu.
VERKFALL OPINBERRA STARFSMANNA:
Hiklaus þátttaka
Það kom strax i ljös i gær að á-
hrif verkfalls opinberra starfs-
manna eru mjög viðtæk, og ein-
hugur var hvarvetna rikjandi. Sú
samstaða sem birtist i atkvæða-
greiðslunum innan BSItB birtist i
gærdag í hiklausri þátttöku allra
opinberra starfsmanna i verkfall-
inu.
Engin ný tiðindi höfðu borist i
gærkvöld um nýjan sáttafund
með fikisstarfsmönnum. Hins
vegar voru málin á einhverri
hreyfingu i einstaka bæjarfélög-
um, þó að Reykjavikurborg léti
ekki á sér bæra eftir þá niðurlæg-
ingu sem útsendarar hennar urðu
að sæta á fundi i félagi sinu i
fyrrakvöld.
Hér á siðunni birtast nokkrar
fréttir um verkfallsmálin, en á
siðum 2 og 3 er að finna fleiri og
ýtarlegri frásagnir af gangi
mála.
Fáar tilraunir til verk-
fallsbrota
Mjög fáar tilraunir voru gerðar
til verkfallsbrota.
t gærmorgun kvörtuðu lög-
reglumenn yfir þvi til verkfalls-
nefndar BSRB, að þeir væru látn-
ir sinna venjulegum skyldustörf-
um, sem ekki heyra undir nauð-
Framhald á 14. siðu
Tillaga þingmanna
Alþýðubandalagsins
Áhrif
kjósenda
verði
aukin
t gær var lögð fram tillaga til
þingsályktunar frá þingmönnum
Alþýðubandalagsins um breyt-
ingu á kosningalögum. Tillagan
er eftirfarandi:
Alþingi ályktar að kjösa fimm
manna nefnd, er skipuð sé einum
fulltrúa frá hverjum þingflokki,
til að semja frumvarp til laga um
breytingu á lögum nr. 52 1959, um
kosningar til Alþingis, er miði að
þvi að gera kjósendum auðveld-
ara en nú er að velja milli fram-
bjóðenda á þeim lista sem þeir
kjósa.
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögunni benda flutnings-
menn á að raunveruleg áhrif
kjósenda á röð frambjóðenda séu
litil samkvæmt núgildandi kosn-
ingalögum, þrátt fyrir heimild til
Utstrikana eða breytinga á at-
kvæðaseðli, enda er samkvæmt
kosningalögunum aðeins tekið til-
lit til þriðja hluta þeirra breyt-
inga sem gerðar eru á röð fram-
bjóðenda. Tilgangurinn með
þessari tillögu er að fram komi
frá Alþingi viljayfirlýsing þess
efnis að kjósendum verði gert
auðveldara en nú er að velja milli
frambjóðenda á þeim lista sem
þeir kjósa. Nánar er greint frá
þessari þingsályktunartillögu á 6.
siðu bjóðviljans i dag.
Bæjarstjórar úti
um land:
Skila
nafna-
listum
alltof seint
Baldur Kristjánsson fulltrúi hjá
BSRB sagði i gær, að bæjarstjór-
ar úti á landi hafi ekki farið að
samkvæmt reglugcrð um kjara-
samninga starfsmanna sveitar-
félaga i BSRB, en þar segir að
þeir skuli birta nöfn og störf
þeirra manna sem starfa eigi
áfram i verkfalli BSRB fyrir 15.
janúar á hverju ári, svo hægt sé
að athuga skrána og kæra til
Félagsdóms ef þurfa þykir.
„Þeir eru að skila þessum
skrám nUna i byrjun verkfalls-
ins”, sagði Baldur, ,,og margir
virðast hreinlega búa til ný
starfsheiti og að öðru leyti tUlka
lögin mjög rUmt. Ákvörðun hefur
ekki veriö tekin um gagnaðgerðir
af okkar hálfu, en það verður ef-
laust brugðið hart við þessu,”
sagði Baldur. —eOS
Auglýsing frá
Starfsmannafélagi
ríkisstofnana
_________Sjá bls. 14
A Iþýöubandalagið
Reykjavík:
Félagsfundurinn
er í kvöld
— Sjá 14. síðu.
Verkfallsverðir ræða ástand og horfur i bækistöðvum BSRB I gær. (Ljósm. Þjv. — eik).
hliövöröum
segja
verkum!
Löggæslumenn í hliöum
Keflavikurflugvallar
sinntu ,/öryggisgæslu"
sinni til hins itrasta í gær
og fóru nákvæmlega að
lögum um vegabréfa-
skoöun, en slíkt mun ekki
hafa tíökast undanfarin
15 til 20 ár.
Við hliðin myndaðist þvi mik-
ið öngþveiti og löng biðröð bila.
Margir sem áttu að mæta til
vinnu á Keflavikurflugvelli urðu
Páll Asgeir
gefur út
„vegabréf9 fyrir
hermangara
frá að hverfa. En þarna sannað-
ist hið fornkveðna, að sitt er
hvað Jón og séra Jón.
Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjöri hermangsfyrir-
tækisins „íslenskir aðalverk-
takar” var einn þeirra sem snU-
ið var frá vallarhliði vegna
skorts á vegabréfi. Gunnar
gerði sér þá litið fyrir og fékk
bréf upp á það, að löggæslu-
menn mættu ekki hindra ferðir
hans, og með það var honum
hleypt inn i sæluna. Bréfið var
undirritað af Páli Asgeiri
Tryggvasyni, formanni varnar-
máiadeildar utanrikisráðuneyt-
isins.
Siðdegis i gær gaf Kjaradeilu-
nefnd Ut tilskipun um það, að
lögreglumenn i hliðum Vallar-
ins skyldu hætta hinni ströngu
vegabréfaskoöun (sem þó er
fullkomlega samkvæmt regl-
um) og taka upp fyrri starfs-
háttu. Það mun hafa verið lög-
reglustjórinn á Keflavikurflug-
velli, Þorgeir Þorgeirsson, sem
óskaði eftir Urskurði nefndar-
innar um þetta atriði.
BSRB-menn brugöust hart við
er þessi tiðindi spurðust i gær og
telja aö nefndin hafi farið þarna
algerlega Ut fyrir sitt verksvið.
Lögfræðingur bandalagsins var
kvaddur til ráða um aðgerðir i
þessu máli i gær. —eös
Fjárlagafrumvarpið lagtfram i gæn
125 miljarðar
Hækkun f járiagafrum-
varpsins fyrir árið 1978 frá
fjárlagafrumvarpi ársins
1977 er tæplega 50%.
Frumvarp til fjárlaga fyrir árið
1978 var lagt fram á alþingi i gær.
Niðurstöðutölur þess eru tæpar
125 miljarðar króna, en niður-
stöðutölur frumvarpsins sem lagt
var fram fyrir ári yfir árið 1977
voru 84 miljarðar. Hækkun þvi
tæp 50%.
1 athugasemdum með frum-
varpinu er gert ráð fyrir 5% sam-
drætti verklegra framkvæmda
rikisins á næsta ári.
1 athugasemdunum segir að
gert sé ráð fyrir þvi að verja lið-
lega 3 miljörðum króna til þess að
bæta greiðslustöðu rikissjóðs við
Seðlabankann, en stefnt er að um
300 milj. kr. greiðsluafgangi, sem
er ekki há upphæð þegar þess er
gætt að frumvarpið gerir ráð fyr-
ir um 125 miljarða veltu.
Ein meginforsenda frumvarps-
ins er aukning einkaneyslu um
6%, en að samneysla standi i stað.
1 frumvarpinu hefur ekki verið
gert ráð fyrir neinni launahækkun
opinberra starfsmanna. Gert er
ráð fyrir 1600-1800 milj. kr. lækk-
un tolltekna, áframhaldandi inn-
heimtu sjUkratryggingagjalds og
18% vörugjalds.