Þjóðviljinn - 12.10.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.10.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 12. október 1977. þjóÐVILJINN — SÍÐA 3 ‘iÓS tf Þessi starfsmaður Reykjavlkurborgar sagðist vera félagi f Dagsbrún og þvi ekki I verkfalli er blaðamenn Þjóðviljans komu að honum á Grensás- vegi I gærmorgun (Ljósm.: —eik) Borgarstarfsmenn felldu samkomulagiö Dyravörður Simstöðvarinnar við Austurvöll vildi ekki hleypa okkur inn enda lá þar nær öll starfsemi niðri (Ljósm.:—eik) F r áleitt ad ganga að þessu sagði Kristján Thorlacius formaður BSRB Þjóðviljinn hafði samband við Kristján Thorlacius formann BSRB I gær og spurði hann álits á úrslitum atkvæðagreiðslunnar I fyrrakvöld, þegar borgarstarfs- menn i Reykjavik felldu sam- komulag það sem stjórn Starfs- mannafélags Reykjavikurborgar hafði gert við launamálaráð borgarinnar. „Ég fagna þvi mjög að sam- komulagið var fellt”, sagði Krist- ján Thorlacius. „Samkomulag þetta var nánast samhljóða til- boði rikisins, sem samninganefnd BSRB hafnaði um helgina. Ég tel að það hefði verið fráleitt að ganga að þessu samkomulagi, það gengur svo stutt til móts við kröfur samtaka okkar. Aðeins var um að ræða örlitlar breyt- ingar frá tilboði rikisins, en þær breytingar varða ekki nema hluta borgarstarfsmanna.” Kristján var einnig inntur eftir þvi hvernig verkfall BSRB hefði gengið fyrir sig. „Verkfallsbrot vitum við ekki um,” sagði hann.- „Það litla sem verið hefur um mistök, sem ég vil kalla svo, er nú komið i lag. Samstaðan er mikil og verkfallið er algert.” --eös Opnir vinnustaðir: Ekki meiri forföll Þar sem Strætisvagnar Reykjavikur gengu ekki I gær, og þar sem öll dagheim- ili borgarinnar voru lokuð, lék okkur forvitni á að vita hvort meiri forföll hefðu orð- ið i starfsliði stórra vinnu- staða en eðlilegt mætti telj- ast. t ljós kom, að svo var ekki i gær, á fyrsta degi verkfalls BSRB. A Borgarsjúkrahúsinu i Reykjavik, sagði Haukur Benediktsson, sem fyrir svörum varð, að þar hefði alls ekki verið um nein óeðli- leg forföll að ræða. Að visu hefði sjúkrahúsið hjálpað þvi fólki sem algerlega er háð SVR tilað komast i vinnu, og eins hitt aö dagheimili starfsfólks Borgarsjúkra- hússins, væri starfrækt; til þess hefði fengist undan- þága. Hjá Landsbankanum var ekki um nein óeðlileg forföll að ræða og virtist stöðvun SVR og lokun dagheimila ekki hafa haft nein veruleg áhrif á mætingu starfsfólks. —S.dór Mennta- skólarnir og HáskóGnn lokaðir 1 gærdag höfðu radarmæl- ingar lögreglunnar, sem sagt er frá hér i greininni, og ýmis önnur störf sem tæp- lega teljast til nauðsynlegr- ar öryggisþjónustu svo sem venjulegt eftirlit og fleira verið stöðvað skv. upplýs- ingum sem Þjóðviljinn fékk á skrifstofu BSRB. Búið var að loka öllum menntaskólunum á Reykja- vikursvæðinu um miðjan morgun i gær og ennfremur Háskólanum. Kennsla mun hafa byrjað i flestum þeirra en siðan bárust tilmæli frá BSRB að þeim yrði lokað vegna þess að ella yrði farið inn á starfssvið húsvarða. Var orðið við þeim tilmæl- LEIGUBIL ASTÖÐ V ARN AR: Ivid meira að gera Við höfðum i gær samband við tvær af stærstu leigubilastöðvum borgarinnar, Hreyfil og Bæjar- leiðir, og spurðumst fyrir það hvort meira hefði verið að gera hjá leigubilum borgarinnar i gær vegna stöðvunar strætisvagna borgarinnar, en venjulega. Alda Jónsdóttir, yfirmaður simaþjónustu Hreyfils, sagði að um kl. 7 i gærmorgun hefði verið aðeins meira að gera en vana- lega, en þegar á daginn leið hefði allt fallið i eðlilegan farveg aftur ogekkihefðiveriðmeiraaðgera i gærdag en á venjulegum þriðju- degi. Sagði hún það álit leigubif- reiðastjóra, að fólk væri orðið svo litið háð leigubilum, vegna al- mennrar einkabilaeignar, nema þá helst um helgar, að jafnvel stöðvun SVR hefði ekki afgerandi áhrif. Mjög svipað svar fengum við hjá Bæjarleiðum. Þó sagði sima- maðurinn þar, að ivið meira hefði verið að gera hjá leigubilum stöðvarinnar en vanalega á þriðjudögum, einkum I gærmorg- un um vinnumál og svo aftur sið- degis þegar vinnu lauk. Annars væri langt frá þvi að um nokkur læti væri að ræða. Það mun hafa verið algengt i gær, að fólk, sem annars notar strætisvagna til að komast i og úr vinnu, hafi fengið að „fljóta með” nágrannanum, sem á einkabil og siðan kannski vinnufélaga heim. —S.dór. A afgreiðsluborði Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins stóð: Lokað vegna verkfalla. mikið úrval af austurrískum kvenkápum Laugaveg66 llhœð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.