Þjóðviljinn - 12.10.1977, Síða 6

Þjóðviljinn - 12.10.1977, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. október 1977. jFrumvarp um ■ j Iðntæknistofnun II gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um Iðntæknistof nun I' íslands. Flutningsmaður er Magnús Kjartansson. Frumvarpið var upphaf- lega flutt á 94. löggjafar- þinginu fyrir 5 árum af iðnaðarnefnd neðri deild- ar, samkvæmt beiðni þá- verandi iðnaðarráðherra/ Magnúsar Kjartanssonar. Frumvarpið var endurflutt á siðasta þingi, en meirihluti iðn- aðarnefndar neðri deildar neit- aði að fjalla um frumvarpið þá. Rökin voru þau að núverandi iðnaðarráðherra hyggðist leggja fram frumvarp um Iðn- tæknistofnun og þvi rétt að ræða bæði frumvörpin saman. Hins vegar varð reyndin sú að frum- varp ráðherra var aldrei lagt fram. Um tilgang Iðntæknistofnun- ar segir i frumvarpi Magnúsar m.a. að hún eigi að vinna að tækniþróun islensks iðnaðar með þvi að veita iðnaðinum sem heild, einstökum greinum hans sem og iðnfyrirtækjum sér- hæfða þjónustu á sviði tækni- og stjórnunarmála og stuðla að hagkvæmri nýtingu islenskra auðlinda til iðnaðar. Nánar verður greint frá þessu frumvarpi á morgun og þá verð- ur jafnframt skýrt frá frum- varpi Magnúsar um vandamál fatlaðra. Þingsályktunartillaga þingmanna Alþýðubandalagsins Kjósendum auðveldað að velja milli frambjóðenda 1 gær var lögð fram þings- ályktunartillaga frá þingmönn- um Alþýðubandalagsins um breytingu á kosningalögum. Lagt er til að Alþingi kjósi fimm manna nefnd, sem skipuð sc ein- um fulltrúa frá hverjum þing- flokki. til að semja frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 52 frá 1959, um kosningar til Alþing- is, er miði að þvi að gera kjósend- um auðveldara en nú er að velja milli frambjóðenda á þeim lista Ragnar Arnalds Félagsfundur ABR í Lindarbæ í kvöld Atvinnu- stefnan rædd Á félagsfundi Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik, sem haldinn verður i kvöld i Lindarbæ, verða kjörnir full- trúar félagsins á landsfund Alþýðubandalagsins. Á fundinum hefur Ragnar Arnalds, formaður Alþýðu- bandalagsins, framsögu um islenska atvinnustefnu. Fundurinn i Lindarbæ hefst k!. 20.30 i kvöld. er þeir kjósa. i greinargerð með þingsályktunartillögunni segir: „Samkvæmt gildandi kosningalögum er stjórnmála- flokkunum áskilinn réttur til að leggja fram raðaðan framboðs- lista og ákveða þannig fyrir fram hvaða frambjóðendur hafi mesta möguleika til að náT kosningu. Kjósandinn hefur að visu rétt til að strika út frambjóðanda eða breyta röðinni, en raunveruleg á- hrif kjósenda á röð frambjóðenda hafa löngum reynst litil, og raun- ar engin eftir þær breytingar sem gerðar voru á kosningaiögum ár- ið 1959. í 110. gr. laga nr. 52 1959 er svo fyrir mæit, að þrátt fyrir út- strikun eða breytingu á atkvæða- seðli fái frambjóðendur listans 2/3 atkvæðisins, eins og engin breyting hafi verið gerð á listan- um. Með öðrum orðum má segja að aðeins sé tekið tillit til þriðja hluta þeirra breytinga sem gerð- ar eru á röð frambjóðenda. Sú skoðun hefur átt vaxandi fylgi að fagna, að réttur kjósenda til að hafa áhrif á röð frambjóð- enda þess lista, sem þeir kjósa, sé allt of takmarkaður. Hefur þetta m.a. leitt til þess, að prófkosn- ingar eða . skoðanakannanir til undirbúnings framboðslista hafa orðið tiðari og verið reyndar i ýmsum myndum. Þvi er þó ekki að leyna, að prófkosningar eru á ýmsan hátt gallaðar, enda al- mennt óæskilegt i stjórnmálum að kosningar snúist fyrst og fremst um persónulega verðleika einstaklinga. Með þessu er þó alls ekki sagt að hæfileikar og dugn- aður einstakra manna skipti litlu við skipan framboðslista, en gæfulegra er að pólitiskar kosn- ingar snúist fyrst og fremst um málefni, en ekki eingöngu um menn. Eðlilegast virðist að á kjördegi geti kjósandinn valið milli flokka á málefnalegum grundvelli og samtimis átt þess kost að velja milli frambjóðenda flokksins. Frumvarp um íslenska stafsetningu: Ahrif Alþingis verði tryggð I.agt hefur verið fram frum- varp til laga um setningu reglna um islenska stafsetningu. Frum- varp þetta er iagt fram af VII- hjálmi Hjálmarssyni mennta- málaráðherra. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir þvi að mennta- rnálaráðuneytið setji reglur um islenska stafsetningu, en að áður en settar séu stafsetningareglur eða gerðar breytingar á þeim skuli aflað heimildar sameinaðs Alþingis i formi þingsályktunar. Með þessu á að reyna að tryggja hvort tveggja að sjónarmið sér- fræðinga njóti sin en verði þó ekki gerð gildandi án þess að Alþingi hafi kynnt sér þau og samþykkt. Þess háttar fyrirkomulag tiðkast i mismunandi myndum i öðrum löndum og koma ýmsir möguleik- ar til greina. Hér verður bent á nokkra val- kosti til skýringar: þingsjá Hugsanlegt er að kjósandinn fái að velja hvort hann greiðir flokknum atkvæði eða ákveðnum frambjóðanda flokksins, sbr. dönsku kosningalögin sem greina milli persónulegra atkvæða og flokksatkvæða. Einnig er hugsanlegt að flokkum sé i sjálfs- vald sett hvort þeir leggja fram raðaðan lista eða ekki. Flokksat- kvæði yrðu reiknuð frambjóðend- um á röðuðum lista, en á óröðuð- um lista skiptust atkvæðin milli frambjóðenda i hlutfalli við per- sónulegu atkvæðin. Álitamál er hvort réttara væri að kjósandi, sem greiðir persónu- bundið atkvæði, merki við eitt nafn eða fleiri á atkvæðaseðlin- um. Merking við eitt nafn er eðli- leg i kjördæmi sem ekki fær nema einn eða tvo þingmenn, en óeðli- leg i stórum kjördæmum. I Dan- mörku getur kjósandinn aðeins merktvið eitt nafn á seðlinum, en þar er kjördæmaskipan mjög ólik þvi sem er hér á landi. Til greina gæti komið að kjós- andi, sem greiðir persónubundið atkvæði, hafi rétt til að merkja við eitt eða tvö nöfn i kjördæmum þar sem 5—6 þingmenn eru kosn- ir, en megi merkja við allt að fjögur nöfn þar sem 12 þingmenn eru kjörnir. Flutningsmenn þessarar til- lögu hafa enn ekki tekið afstöðu til þess, hvaða leið yrði heppileg- ust i þessum efnum, enda eðlileg- ast að væntanleg þingnefnd kanni fyrst nánari framkvæmd máls- ins. Hins vegar er það aðalatriðið, að sú leið, sem valin er, sé sann- .gjörn og jafnframt verði kosn- ingaaðferðin einföld og auðskilin. Með þessari tillögu er lögð áhersla á að á þessu stigi málsins samþykki Alþingi viljayfirlýs- ingu þess efnis, að kjósendum verði gert auðveldara en nú er að velja milli frambjóðenda á þeim lista sem þeir kjósa.” Ásgeir Bjarnason Forsetakjör á Alþingi I gær fór fram forsetakjör á Alþingi. Forsetar sameinaðs Alþingis, efri og neðri deild- ar voru allir endurkjörnir. Forseti sameinaðs Alþingis er Asgeir Bjarnason, fyrsti þingmaður Vesturlands. Nánar verður greint frá kjöri embættismanna Alþingis i blaðinu á morgun. Lokað hjá lóni Baldvin en kennt hjá Trvggva t gær hringdi blaðið til isafjarð- ar og Akureyrar og spurðist fyrir um hvorl kennsla færi fram í menntaskólunum þar. Bryndís Schram, skóla- meistarafrú á Isafirði, varð þar fyrir svörum og sagði m.a.: — Ráðuneytið var búið að segja okkur að við mættum kenna og að skólameistari gæti bara opnað skólahúsið. En svo heyrð- um við það i fréttum i gærkvöldi að þær stofnanir yrðu lokaðar, sem hefðu sérstaka húsverði, en þeireruiBSRB. Viðvildum þvi fá úr þessu skorið og Jón Baldvin var að hringja fram undir mið- nætti i Birgi Thorlacius og þá ráðuneytismenn en þeir gátu eng- in svör gefið okkur fyrr en kl. 10 minútur fyrir 8 i morgun. Þá hringdi Birgir Thorlacius og sagði að húsið yrði ekki opnað. Hér er þvi ekki kennt i dag og verður sjálfsagt ekki á meðan þetta ástand varir. Kennarar hjá okkur, sagði Brindis Schram, eru allir i BHM nema einn stundakennari,en hús- vörður og ritari eru i BSRB. Árni Friðgeirsson i Mennta- skólanum á Akureyri sagði að kennt væri i skólanum þar. Kennsla fer þar fram i fleiri en einu húsi, og Arni sagði, að yfir- leitt opnuðu kennarar sjálfir, nema gamla skólahúsið; það kvaðst Árni opna oftast nær, en hinsvegar gætu kennarar og skólameistari opnað það ef þeim svo sýndist. Árni kvaðst ekki vita til þess að kennt væri i öðrum skólum á Akureyri en Menntaskólanum. —mhg Fiskverð óbreytt fram til áramóta Yfirnefnd um almcnnt fisk- verð ákvað á fundi sínum i gær að fiskverð það sem gilti til 30. september sl. skyldi haldast óbreytt til 31. desember. Akvörðun þessi var tckin með 'atkvæðum oddamanns og fuli- trúa kaupenda, gegn atkvæð- um seljenda. i yfirnefndinni áttu sæti Jón Sigurðsson for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, af hálfu rikisins, Árni Benedikts- son og Eyjólfur isfeld Eyjólfs- son af hálfu kaupenda, og Kristján Ragnarsson og Ingólfur Ingólfsson af hálfu seljenda. A borðinu var krafa um 4% hækkun fiskverðs frá seljend- um. Á hana var ekki fallist og er greinilegt að ætlunin er að bæta stöðu fiskvinnslustöðv- anna með þvi að halda fisk- verðinu óbreyttu til áramóta. Það verð sem hefur verið i gildi á loðnu rennur út um miðjan þennan mánuð og að sögn Sveins Tryggvasonar, framkvæmdastjóra Verðlags- ráðs sjávarútvegsins, er yfir- nefnd um loðnuverð nú að taka til starfa. — ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.