Þjóðviljinn - 12.10.1977, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 12. október 1977.
RÆTT VIÐ STEINUNNI INGIMUNDARDÓTTUR, SKÓLASTJÓRA
Auka þarf kennslu í hús-
stjórn í grunnskólum
34 nemendur stunda hér nám l
vetur, sagöi Steinunn Ingi-
m unda rdóttir, skólastjóri
Húsmæöraskólans á Varmalandi.
Fullskipaöur tekur skólinn 42
nemendur, en viö uröum aö taka
nokkuö af nemendahúsnæöi fyrir
kennara, en viö skólann kenna 3
fastir kennarar, auk skólastjóra
og stundakennara.
Enginn karlmaður hefur sótt
hér um ennþá, en nokkuö er um
aö þeir hafi sótt styttri námskeiö
sem haldin hafa veriö i
Reykjavlk, Akureyri og vlöar og
nemendur Bændaskólans á
Hvanneyri hafa sótt námskeið i
matreiðslu hingað. Enn sem
komið er fást engin réttindi fyrir
að stunda heilsvetrarnám, en
engu að slður er frekar sóst eftir
fólki með þetta nám og þvi greidd
hærri laun. Námiö kemur fólki að
gagni á ýmsum sviðum og
kannski er enn meiri þörf á þess-
ari kunnáttu en áður, þar sem lit-
ið erá heimilisstörf sem hjáverk,
og þau þurfa þvi að vinnast á
skemmri tima.
— Töluvert minni aösókn er nú
að húsmæðraskólum en áður var,
sérstaklega hefur úr því dregið á
slðustu 10 árum. Stúlkur hafa i
auknum mæli hafið nám I fleiri
skólum en áöur var, og leita
meira á önnur starfssvið. Einnig
má telja að of mikil áhersla hafi
verið lögð á byggingu húsmæöra-
skóla íkringum 1950,1 ljósi þeirra
breytinga sem átt hafa sér stað á
heimilishaldi siðustu áratugina.
Hússtjórnarkennsla I grunn-
skólunum er allt of litil og kemur
of seint, t.a.m. er f jallað um með-
ferð matar og hollustu hans á 2-3
siðustu árunum, en ætti að taka
fyrir i fyrstu bekkjunum. Rætt
hefur veriö um að gera hús-
mæðraskólana að framhalds-
skólum i hússtjórn, sérskólum
sem útskrifuðu fólk meö réttindi,
en eins og kennslu erhagað I hús-
stjórn i grunnskólum I dag, er
ekki grundvöllur fyrir þvl —
undirbúningurinn er of lltill.
— Ungt fólk I dag hefur alls
ekki eins mikla verkkunnáttu og
áður var. Það tekur minni þátt I
heimilisstörfum, timinn sem
þeim er helgaður er minni en
áður og verður aö vinnast hraðar
og þvl reynist lltill tími til að leið-
beina börnum og unglingum I
þeim efnum. Þetta hefur komið
greinilega fram hjá okkur hér i
skólanum, á kunnáttunni hefur
orðið veruleg breyting, sérstak-
lega á siðustu 5 árum og það á við
um alla hluti hvort sem það er
matreiðsla, saumar eða annað.
Reyndar þarf að láta sem mest af
þvi sem heimilishald varðar, t.d
hollustu fæðu og rétt matarræði,
tengjast námi I skyldum greinum
strax I fyrstu bekkjum grunn-
skólans. Þetta hefur verið gert
erlendis með góðum árangri,
sagði Steinunn að lokum.
Guðmundur félagsmálakennari og Haukur skólastjóri Nemendur á fundi.
Öflugt félagsmálastarf er
einkenni skólans
íWmmmam wi
Sigurvegarinn I mælskukeppni
nemenda á 1. ári
I Samvinnuskólanum er nú 81
nemandi, sem er sami fjöldi og I
fyrra. Um 60% nemenda eru strák
ar, en aðsókn stúlkna hefur aukist
jafnt og þétt og eru hlutföllin nú
jöfn i fyrsta bekk. Fyrir nokkrum
árum var komið á fót framhalds-
deild fyrir þá nemendur sem út-
skrifast frá Bifröst og er hún
staðsett i Reykjavik. Hún er i
tveimur deildum og útskrifar
stúdenta eftir tveggja ára nám.
Um það bil helmingur þeirra sem
útskrifast hafa á siðustu árum frá
Bifröst, hafa haldið áfram námi
við framhaldsdeildina.
Við inntum þá Hauk og Guð-
mund eftir áliti þeirra á þeirri
gagnrýni sem fram hefur komið á
samvinnuhreyfinguna, að hún
starfi sem auðhringur og að völd
innan hennar hafi safnast á fáar
hendur, en virkt lýðræði skorti.
Haukur svaraði þvl til að margt I
þessari gagnrýni væri pólitisk ill-
öflugt félagsmálastarf er höfuðeinkenni Sam-
vinnuskólans, var samdóma álit þeirra Hauks Ingi-
bergssonar skólastjóra i Bifröst og Guðmundar
Guðmundssonar félagsmálakennara, þegar blaða-
maður Þjóðviljans innti þá eftir starfi skólans. Fáir
skólar munu leggja meiri áherslu á félagsmála-
kennslu og félagsstörf en Samvinnuskólinn. Þar er
starfandi sérstakur kennari sem leiðbeinir nemend-
um i þeim efnum og felast þar i fundarstörf, ræðu-
mennska og samvinnusaga. Eru þrir timar á viku
helgaðir þessum þætti námsins, og eftir tveggja ára
nám i Bifröst öðlast nemendur réttindi til að kenna
á félagsmálanámskeiðum. Félagsmálakennslan
tengist allri félagsmálastarfsemi skólans, sem er
mjög öflug, en þar eru starfandi klúbbar ýmis kon-
ar sem tugum skipta.
kvittni sem stafaði af öfund yfir
velgengni samvinnuhreyfingar-
innar, annað bæri vitni vanþekk-
ingu á störfum hennar. Grund-
völlurinn sem allt byggðist á
væru félagsmennirnir, 41 þúsund
að tölu. Vissulega væri skortur á
þátttöku félagsmanna, en hann
væri ekkert eindæmi, heldur væri
hann að finna I öllum félagssam-
tökum á íslandi i dag. Lýðræði
væri hins vegar mjög virkt i flest-
um kaupfélögum i dag og kaup-
félagsstjórar i nánu samstarfi við
félagsmenn. Aftur á móti kynni
nokkuð á það að skorta i kaup-
félögum stærstu bæjanna.
— Þessari óvirkni reynum við
að mæta með aukinni félags-
málafræðslu, sagði Guðmundur.
Þar hefur Samvinnuskólinn geng-
ið á undan og nemendur sem út-
skrifast héðan geta i skjóli félags-
mála reynslu sinnar tekið þar for-
ystu.
— Og þvi má ekki gleyma i
þessu sambandi að kaupfélögin
eru staðbundin og eingöngu háð
sinum félagsmönnum, þau hverfa
ekki á braut þegar illa árar og
gróði er litill, .eins og oft hefur
viljað brenna við með gróssera og
spekúlanta, sagði Haukur að lok-
um.
Stjórn skólafélagsins: f.v. Bergþór Guðmundsson, Birna Jónasdóttir
og ólafur Helgason
Samvinnuskólinn að Bifröst