Þjóðviljinn - 12.10.1977, Side 9

Þjóðviljinn - 12.10.1977, Side 9
Miövikudagur 12. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Brutu niður veggi, múrudu og máluðu Blaöamaöur Þjóöviljans þurft aö brjóta sér leiö gegnum friðan hóp æskumanna, til þess aö komast aö kennarastofu Reyk- hoitsskóla þann 4. október s.l. Nemendurnir, sem komiö höföu tilskóians daginn áöur, biöu þess aö ná taiiaf skólastjóra, en blaða- maöurinn slapp viö aö standa aft- ast I biörööinni, hann var meðhöndlaður á sama hátt og erlendir gestir I Moskvu sem sjá viija Lenfn smuröan, og var kippt hljóölega fram fyrir biörööina og boðið i kaffi á kennarastofunni. Þaö kom i ljós i samræöum viö kennara og skólastjóra aö i skól- anum eru starfandi 2 deildir, 9. bekkur grunnskóla og fram- haldsdeild, sem áætlað er að verði hluti af Fjöl brautaskóla Vesturlands. í 9. bekk eru 71 nemandi, en i fram- haldsdeild 61. Nemendur framhaldsdeildar eiga um aö velja almenna bóknámsbraut, viðskiptabraut,, heilsugæslu- braut og uppeldisbraut. Næsta ár er stefnt að þvi að koma á fót framhaldi i 1-2 greinum, en fyrr- nefndar brautir starfa nú i fyrsta sinn. t Reykholti var fyrir nokkru tekið i notkun nýtt heimavistar- húsnæði og losnaði við það nokkuð rými i' gamla skólahúsinu. /Ucveðið var að nota það til að fjölga kennslustofum, en þar sem ekki fékkst nein fjárveiting i þá framkvæmd, hafa kennarar og skólastjóri unnið i sjálfboðavinnu siðastliðin haust við að brjóta niður veggi, miira og mála og þannig leyst vandann að nokkru. Kennsluaðstaða hefur þannig batnað verulega og i vetur veröur hver einstök kennslustofa helguð einu fagi. Nemendur skólans eru alls staðar að af landinu, en að sjálf- sögðu flestir úr Borgarfirði eða u.þ.b. helmingur. Leyfi til heim- ferða eru gefin um jól og páska og tvisvar þar að auki, en stefnt er að því að heimferöir séu ekki mjög miklar þar sem þaö dregur úr félagslifi skólans. Kennarar starfa töluvert meö nemendum að félagslifi og sögðust þeir leggja áherslu á að það væri sem mestsamstarf.en fengiekki á sig blæ löggæslu. Vilhjálmur Einarsson, skólastjóri, á tali viö nemanda. Þegar blaðamaður hafði veriö fræddur á þvi helsta úr starfsemi skólans, leitaði hann álits manna á þáttunum um Skóladaga, sem oft hefur borið á góma að undan- förnu. Jókst þá fjör umræöunnar, en i henni tóku þátt auk Vilhjálms Einarssonar skóla- stjóra, þeir Kristófer Krist- insson, Sveinn V. Þór- arinsson og Sigurður Þór Jóns- son. Þeir voru sammála um að lítiö væri um þau vandamál I Reykholtsskóla, sem birtust mönnum i Skóladögum. Vil- hjálmur setti fram þá skoðun að skólaskyldan væri of löng, hana mættistytta um 1 til 2 ár, þar sem ekki væri rétt að neyða nemendur til að stunda nám þegar þeir hefðu takmarkaöan áhuga eöa getu tilþess.Opna þyrfti atvinnu- lifið meira fyrir unglingum, sem ekki hefðu áhuga á frekari skóla- setu. Þessu yrði þó aö fylgja að þessir nemendur gætu hafið nám að nýju ef þeir óskuðu þess. T.d. hefðu komið nemendur i Reyk- holtsskóla, sem ekki hefðu verið i skóla i nokkur ár, en siðan tekið ákvörðun um frekari menntun. Blaðamaður spurði þá um álit á viðhorfum Karinar Mannheimer sem gerði þættina um Skóladaga, en' hún lýsti þvi yfir eftir gerð þáttanna að hún vildi gjarna taka að sér kennslu ef að próf væru lögð niður. — Þetta hlaut dræmar undirtektir og kennarar og skóla- stjóri voru sammála um ágæti prófa, en töldu að alls ekki væri sama hvernig að þeim væri staðið. Þar kæmu til tvö atriði: hvernig próf væru samin og hvernig niðurstöður þeirra væru túlkaðar. Taka þyrftisterkt fram að með prófum væri þaö ákaflega takmarkaður hluti hæfileika nemandans sem væri kannaöur. Það væri fyrst og fremst um aö ræða iðni og samviskusemi sem fengist skorið úr með prófum. Þau virkuðu yfirleitt hvetjandi á nemendur og gætu einnig verið hagnýt þegar takmarka þyrfti aðgang að vissum deildum eöa ákveðnum skólum. maður i Munaöarnesi Munaðarnes Fullt um allar helgar Hér er fullt um allar helgar, sagöi Þóröur Kristjánsson, um- sjónarmaöur I Munaöarnesi, þeg- ar blaöamaöur Þjóðviljans stakk þar inn nefiá haustreisu sinni um Borgarfjörð. Þóröur hefur um margra ára skeið haft umsjón með þeim 68 húsum sem félagar BSRB eiga í Munaöarnesi, en áö- ur var hann bóndi á Hreðavatni. Blaðamaðurinn var strax leidd- ur i eldhús veitingaskálans til að þiggja kaffiog þar hittihann fyrir smiöi tvo er sjá um viðhald á hús- um staöarins, Guðmund Jónsson frá Hóli I Norðurárdal og Pál Eggertsson, sem kynnti sig sem viðhaldsdyttara staðarins. Hér er allt fullt um helgar á veturna og einnig er mjög mikil aösókn um jól og páska, sagði Þórður. Núna eru hért.d. 90 nem- endur Menntaskólans á Akureyri og dvelja i nokkra daga við náttúruskoðun. — Annars getur verið varhuga- vert að tala við ykkur blaðamenn. Þaö kom hingað einn f sumar til að forvitnast og hafði flest rangt eftir, m.a. að fólk þyrfti að taka með sér sængurfatnað, en þess þarf ekki, og næstu daga á eftir að fréttin haföi verið birt þagnaði ekki siminn hjá mér, þar sem fólk hringdi og spurði hvort þetta væri rétt. 'f- m RÆTT VIÐ OT.AF ÞORMIINDSSON I BÆ Bætt nýting vélakosts fœst aðeins með samyrkju- eða samvinnubúum Ólafur Þórmundsson Þaö var fariö aö skyggja og vindstigum aö fjölga verulega þegar blaöamaöur Þjóöviljans knúöi loppnum lúkum á dyr hjá Ólafi Þórmundssyni, kirkjubónda á Bæ I Bæjarsveit, siöla dags snemma i október. Hendur hitn- uöu þó fljótt og öll liðan batnaöi þegar menn höföu setið um stund I stofu og hafiö spjall um búskap og landsmál almennt. — Ég er tæplega meöalbóndi á mælistiku visitölunnar, er með 10 kýr og 130ær,svo þaðskortir eina kú og 50 ær upp á vísitölubúið, sagði ólafur er við spurðum um fjölda fénaöarins. — Sumarið hefur verið gott i heyskap en vorið kom seint og varö þvi meira um fóðurbætis- kaup en ella. Haustið leggst vel i menn, fáar frostnætur voru i september þó að ekki sé hægt aö tala um hlýindi. Við inntum Ólaf álits á þeirri umræðu sem fram hefur f arið um islenskan landbúnað, tilverurétt hans og þær aðstæður sem hann býr við. Hann sagði mest af þvi rugl sem Dagblaðsritstjórinn Jónas Krist jánsson, og fylgifiskar hans hefðu haldið fram i þessum efnum, og einnig væri þar um aö ræða hreina vanþekkingu. Ýmsir virtust halda að allt það sem greitt er fyrir búvörur fari beint til bænda, en því væri ekki þannig háttað. Ærinn hluti kjötverös stafaði af háum sláturkosnaöi og væri iskyggilegthversu mikið það kostaðinúað ná gærunni af lamb- inu. — Þegar rætt er um Utflutn- ingsbætur og þvi haldið fram að aðeinseigi aðframleiða fyririnn- anlandsmarkað, gleymist að það er engan veginn auöveU að skipu- leggja landbúnaðarframleiösl- una. Þarna spila inn i þær miklu sveiflur sem eru i neyslu bUvara og einnig hlýtur jafnt kjöt- og mjólkurframleiðsla að ráðast mikið af árferði. Þannig var sam- dráttur i mjólkurframleiðslunni 1975-76, en á þessu ári eykst hún verulega. — Vélvæðingin er orðin gifur- lega dýr og t.d. geta minni bænd- ur vart keypt hin dýrari tæki. Bætt nýting véía fæst bara með samyrkju eða samvinnubUum. Vel má hugsa sér aö t.d. 4-5 bænd- ur sameinuöust um vélakost, amk. að mestu leyti, en þetta myndi reynast erfitt i fram- kvæmd þar sem flestir bændur vilja vera svo sjálfstæðir. Ég reiknaði Ut i vor hvað það myndi kosta i vélabUnaði að hefja bú- skap ísmáum stil, til að mynda á búi með 10 kýr og 130 ær, og minnsti mögulegur vélakostur myndi kosta 5,7 milljónir og ásamt fyrrnefndum f jölda kúa og kinda myndi þaö gera samtals 10 miljónir. Einyrkinn er alltaf bundinn. Erfitt er aö fá menn i skarðið ef aö um veikindi er að ræða, eða ef menn vildu taka sér eitthvað fri. A Búnaöarfélagsfundum hefur veriö rætt um ráðningu ákveðins hópsmanna er gætileyst af bænd- ur, svo þeir gætu átt sin frf eins og aðrir, en ekkert hefur orðið úr framkvæmdum enn, sagði ólafur að lokum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.