Þjóðviljinn - 12.10.1977, Síða 11
BJARNARFLAG
Enn eykst gufa
„Það má segja að
ástandið i Bjamarflagi
breytist næstum dag frá
degi og gufa eykst sifellt
á svæðinu”, sagði
Valgarður Stefánsson,
jarðeðlisfræðingur hjá
Orkustofnun, en hann
var fyrir norðan i
siðustu viku og fylgdist
þá með því sem er að
gerast á svæðinu.
Skemmdir hafa orðiö miklar á
borholum I Bjarnarflagi, sem
orsakast fyrst og fremst af þvi að
sprungur hafa myndast sem guf-
an á greiða leið um uppá yfirborf
ið. Þegar hafa tvær borholur i
Bjarnarflagi eyðilagst alveg og
Segja má að ástandið
þar breytist næstum
dag frá degi, segir
Valgarður Stefánsson
jarðeðlisfræðingur
aðrar tvær til viðbótar eru mjög
illa farnar. Þá standa eftir tvær
holur sem gufuaflsrafstöðin og
Kisiliðjan geta notað, og enginn
veit hvaö gerist með þær, ef þetta
heldur áfram, sem er að gerast á
svæðinu núna, að sögn Valgarðs.
Kisiliðjan notar gufu frá þess-
um holum til þess að þurrka kisil-
inn. Eyðileggist þessar tvær
heilu borholur lika, stöðvast
vinnsla i kisiliðjunni og gufuafls-
rafstöðin i Bjarnarflagi stöðvast.
Það verður þviekki annað sagt en
að ástand þarna sé mjög alvar-
legt.
Aðspurður sagði Valgarður
Stefánsson að ekki væri hægt að
spá neinu með vissu um það hvort
Bjarnarflag yrði aðalvettvangur
næstu umbrota, sem spáð hefur
verið að eigi sér stað um næstu
mánaðamót eða i byrjun nóvem-
ber, en hann benti á að svæðið
hefði verið aðal vettvangurinn i
tveimur sfðustu umbrotum og þvi
bentiflesttilþess að svoyrðienn i
næstu umbrotum, en tók skýrt
fram að um það gæti engin spáð.
Landris á Kröflusvæðinu heldur
áfram jafnt og þétt og ekkert það
hefur enn gerst, sem bendir til
þess, að spár jarðvisindamanna
um umbrot um næstu mánaða-
mót, sé röng. — S.dór.
Agnar Bragi
Aðalsteinsson
F. 21.1. 1928 — D. 5.10. 1977
Enn hefur sláttumaður dauðans
reittljá sinn til höggs. t þetta sinn
varð Agnar Bragi Aðalsteinsson
fyrir ljá hans, góður drengur i
fullu fjöri, kvaddur frá konu og
þremur börnum i ómegð. Er
svona váleg tiðindi berast manni
verður maður að vonum þrumu-
lostinn. Mörgum minningum frá
liðnum tima skýtur upp á yfir-
borðið, þá gleymist það sem
verra er, en góðar og bjartar
minningar fljóta ofan á eins og
rjómi á mjólk.
Þær eru margar skemmtilegu
minningarnar kæri Bragi, sem við
Forstjóra-
skipti hjá
Samvinnu-
ferðum
Böðvar Valgeirsson, sem verið
hefur framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða frá þvi fyrirtækið tók
til starfa vorið 1976, lætur af
starfi sinu um þessar mundir að
eigin ósk.
1 starf framkvæmdastjóra
hefur verið ráðinn Eysteinn
Helgason, viðskiptafræðingur,
sem undanfarin tvö ár hefur verið
framkvæmdastjóri Sölustofnunar
lagmetis. Eysteinn Helgason er
29 ára, fæddur 24.9. 1948. Hann
lauk stúdentsprófi 1969 og útskrif-
aðist úr Viðskiptadeild Háskóla
Islands 1973. A námsárunum
starfaði hann að ferðamálum
fimm sumur.
Eiginkona hans er Kristin
Rútsdóttir, ög eiga þau tvö börn.
tengdafólkið þitt eigum um þig
frá samverustundum fjölskyld-
unnar, er þú hreifst okkur með
þér af þinni alkunnu frásagnar-
gleði, svo fullur af lifsorku, sem
mannigengursvo illa að sætta sig
við að sé öll.
Hjálpsemi þin var einstök, eins
og allir vita er kynntust þér,
aldrei neitt talið eftir fyrir aðra,
þær voru ekki fáar ferðirnar þin-
ar um borgina þvera og endi-
langa, fyrir okkur hér suður meö
sjó.
Verkalýðshreyfingin átti mik-
inn þátt i lifi þinu, þú varst ekki,
eins og alltof margir, sem ætlast
til að aðrir vinni að baráttumál-
um verkalýðsins. Þú lagðir þitt
pund á þá vogarskál. Það er mik-
ili skaði fyrir hreyfinguna að
njóta þin ekki lengur við. Þótt
skaði þjóðfélagsins i heild sé
einnig mikill að missa ósérhlifinn
þegn sinn, þá er sorg og skaði eig-
inkonu og barna mestur. Það er
ósk okkar, er þessar fátæku linur
hripum,að algóður guð megi lina
sorg þeirra með tið og tima.
Einnig biðjum við föður hans
allrar blessunar. x
Tengdafolk.
1 dag er til moldar borinn
Agnar Bragi Aðalsteinsson,
Rauðalæk 41, Reykjavik. Hann
lést af slysförum þann 5. okt. s.l.
Bragi, eins og hann var
kallaður, var sonur hjónanna
Ingibjargar Agnarsdóttur og
Aðalsteins Andréssonar, sem
lengi bjuggu á Haðarstig 18, Rvk.
Bragi var giftur Oldu Þórðar-
dóttur og áttu þau þrjú börn,
Helenu Ingibjörgu 16 ára, Sigur-
laugu 12 ára og Þórð 4 ára. Eitt
barn átti Bragi fyrir hjónaband,
Jóhann Gunnar.
Bragi var lengi af ævi sinni sjó-
maður bæði á togurum og frakt-
skipum, lengst af sem kyndari
eða vélstjóri. Hann var talinn
með þeim betri sem það starf
stunduðu. Þegar hann hætti
störfum til sjós var hann áfram
tengdur skipum og viðhaldi
þeirra. Hann stundaði köfun og
leysti marga þrautina i þvi starfi
við erfið skilyrði. Þá kom sér vel
kjarkur hans og dugnaður. Bragi
varstarfsmaður Hamars h/f. Þar
var hann i tengslum við athafna-
lifið, svo sem hugur hans stóð til.
Bragi lét félagsmál mikið til sin
taka. Hann var fastur i skoðunum
og fylginn sér, svo sem háttur er
félagslega þroskaðra manna.
Verkalýðsmál lét Bragi mikið til
sin taka, og vann á þeim vett-
vangi mikið starf og gott.
Eina systur átti Bragi, Ingi-
björgu, sem lést 1962. Móður sina
Ingibjörgu missti hann 23. mai
1968, eftir langvarandi veikindi.
Til hennar hefur hann nú horfið,
yfir hið mikla djúp skilningsleysis
okkar sem nú stöndum og
spyrjum: Hvers vegna einmitt
hann, sem vildi starfa i þágu
betra mannlifs.
Heimili þeirra Braga og öldu
að Rauðalæk 41, ber þess vott að
hugur fylgdi starfi, svo og börn
þeirra sem nú mega sjá á eftir
ástkærum föður. Alda hefur með
Framhald á 14. siðu
Miövikudagur 12. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
NORÐURLINAN
Mánuði
á undan
áætlun
Norðlendingar fá 50 mgw. af
rafmagni eftir
línunni um næstu mánaðarmót
Það er ekki oft, scm stór-
framkvæmdir hér á landi eru
á undan áætlun, en svo er þó
með Norðurlinuna svokölluðu.
Aætlað var að taka hana i
notkun 1. desember nk. en nú
þykir Ijóst að hægt verði að
taka hana i notkun um næstu
mánaðamót, eða heilum mán-
uði á undan áætlun. Og þá um
leið lcysist raforkuvandamál
Norðlendinga, um einhverja
ókomna tið, þvi að hægt verð-
ur að flytja 50 mgw. af raf-
magni norður eftir linunni, en
heildarraforka sú, sem Norð-
lcndingar hafa haft frá sam-
anlögðum vatnsafls og gufu-
aflsstöðvum er 30 mgw.
Þetta kom fram i viðtali,
sem Þjóðviljinn átti i gær við
Jón Má Mariusson, verkfræð-
ing hjá Landsvirkjun, en
Landsvirkjun er nú að ljúka
við sinn hlut að Norðurlínunni,
sem er lögn frá Geithálsi að
Brennimel við Grundartanga.
Þessi áfangi sem Lands-
virkjun er nú að ljúka við
kemur til með að kosta á milli
eitt þúsund og tólfhundruð
miljónir. Landsvirkjun byrj-
aði i mars á þessu ári við
framkvæmdir að sinum hluta
verksins, að sögn Jóns.
Það eru svo Rafmangsveit-
ur rikisins, sem taka við lögn
linunnar á Brennimel, að
Vatnshömrum i Andakil og
þaðan norður um til Akureyr-
ar.
RARIK byrjaði árið 1972 á
sinum hluta verksins, með
lögn linu frá Akureyri að
Varmahh'ð i Skagafirði og sið-
an hefur verið unnið við lögn
linunnar frá Varmahlið suður
að Vatnshömrum i Andakil, en
Andakilsárvirkjun i Borgar-
firði kemur inni þessa teng-
ingu.
Að sögn Kristjáns Jónssonar
forstjóra RARIK er kostnað-
urinn við linulögnina hjá
RARIK um 3,4 miljarðar,
þannig að kostnaðurinn við
linuna frá Geithálsi til Akur-
eyrar verður um 4,5 miljarðar
króna.
— S.dór.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7/ Garöabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
tiverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI 53468