Þjóðviljinn - 29.11.1977, Síða 11

Þjóðviljinn - 29.11.1977, Síða 11
Þribjudagur 29. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Strax þegar nálgast er má heyra margvíslega tóna streyma út um glugga. Pianó, flauta, fiöla og seiló ásamt mannsröddinni. Og þegar inn er komið er ys og þys. Börn á fleygiferö út og inn, en sum biöa i biöstofu eftir aö röö- in komi aö þeim. Blaöamaöur og ljósmyndari Þjóöviljans ákveöa aö ryöjast inn i kennslustofur og vita hvaö hér fer fram. Tónmenntaskóii Reykjavikur er greinilega ekki dauð stofnun. Viö förum hálf-héralegir upp á loft og bönkum fyrst upp á hjá Sigriði Pálmadóttur þar sem hún er aö kenna nemendum á 3ja ári i hópkennslu. Hún heldur á nótum fyrirframan þau og lætur þau slá með blýanti i boröin i takt viö þær. Börnin eru áhugasöm og örugg. Stefán minn, segir hún. Komdu hérna og stjórnaöu þessu. Þiö hin veröiö aö horfa hingaö. Aö þessu loknu fara þau aö syngja, fyrst einraddaö, svo tviraddaö, svo þriraddaö o.s.frv. Þetta er gaman. Þegar viö erum komnir út frá Sigriði heyrum við fiölutóna ber- ast út á ganginn og þar ákveöum viö lika að trufla. Þar er Gigja Jóhannsdóttir aö kenna litilli telpu á fiölu, Elisabet Ragnarsdóttur. „Faröu aö skammta mamma min” heitir lagið sem Eh'sabet spilar og gerir það með sóma þó aö hún hafi ver- iö aö byrja í haust. Gigja segir aö það sé góö aðsókn i fiðluna i vet- ur, 16 nýir nemendur. Að lokum förum viö ihinn end- ann þarna uppi á lofti og þar er Jóhanna Lövdahl með sex ára börn i hópkennslu. Þau eru meö húla hopp hringi sem þau hreyfa upp og niður eftir tónfalli. Ég er aö þjálfa upp tónhæöarmun og rytma i gegnum svona leiki, segir Jóhanna. Hlustiðiö v-el. Variö ykkur. Nei, Jóhann. Nú ætla ég aö plata ykk- ur. Takiö eftir. Hvar eruö þiö með hringinn. Svona i miðjuna. Þannig gengur þaö hjá Jóhönnu. Ein móöir situr og fylg- ist með. 1 þessum sköla eiga foreldrar rétt á þvi_ Nú eru þau kölluö aö pianöinu til aö syngja. Hvaöa lag er þetta? Hvernig ætlum viö aö syngja þaö? Svo byrja þau: Þei, þei... Reyniö að klippa allt loft i burtu, segir Jóhanna. Munið þiö: Titt i titt i ta ta... —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.