Þjóðviljinn - 02.12.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. desember 1977.
Fjölmeimi á l.des. samkomu stúdenta
um kven-
frelsis-
mál
Mikiö fjölmenni var á baráttu-
samkomu stúdenta i Háskólabiói i
gær. Ctvarpaft var frá samkom-
unni. Þar fluttu stúdentar sam-
setta dagskrá og var kvenfrelsis-
baráttan málefni dagsins. Bjarn-
friður Leósdóttir og Silja Aðal-
steinsdóttir fluttu ræður dagsins.
Kór Alþýðumenningar söng,
Olga Guðrún söng lag við þýöingu
Halldórs Laxness á ljóðaflokki
eftir Brecht og hljómsveitin EIK
kom fram.
Margmenni var einnig i Félags-
stofnun stúdenta þar sem flutt
var létt dagskrá og drukkið kaffi
eftir samkomuna i Háskólabiói. t
gærkvöld hélt 1. desnefnd dans-
leik i Sigtúni, þar sem EIK lék
fyrir dansi og Megas kom fram.
Sjúkrahótel Rauöakross Islands:
Heilbrigdisráduneytid
vissi um málið í sumar
en viö vissum ekki ad máliö væri svona alvarlegt
segir Páll Sigurösson ráöuneytisstjóri
Heilbrigðisráöherra sagði i við-
tali við siðdegisblöðin i dyrradag
að hans embætti hefði ekki vitað
um erfiðleika þá, sem RKl var i
við rekstur sjúkrahótelsins að
Skipholti 21, sem loka verður um
næstu áramót. Björn Tryggva-
son, fyrrv. formaður RKl sagði
hinsvegar i viðtali við Þjóðviljann
i gær, að hann hefði tvisvar rætt
þessi vandamál við Pál Sigurðs-
son ráðuneytisstjóra.
Við inntum Pál eftir þessu i gær
og sagði hann það rétt að Björn
hefði rætt við sig sl. sumar og tjáð
sér þessa erfiðleika sem RKÍ ætti
i við rekstur sjúkrahótelsins.
,,En það er alvanalegt að til min
komi forstöðumenn ýmissa
sjúkrastofnanna og kvarti yfir þvi
að reksturinn gangi illa,og þannig
leitég á málið þegar Björn ræddi
við mig. Siðan varð 29% hækkun á
daggjöldum 1. okt. sl. og aftur
20% hækkun 1. nóv. sl. og við það
hélt maður að málin hefðu lag-
ast”, sagði Páll.
Hann sagðist ekki hafa vitað af
þvi fyrr en sl. mánudag að loka
ætti sjúkrahótelinu og að engin
formleg beiðni um aðstoð hefði
borist ráðuneytinu. Sagði Páll að
sér finndist aðferð þeirra RKl-
manna bera keim af tilraun til að
pressa á yfirvöld i þessu máli.
Páll tók fram að þegar sjúkra-
hótelið var opnað 1974 hefði nauð-
syn þess verið umdeild. En hann
tók fram að fyrirsig væri erfittað
dæma um nauðsyn þess. Ólafur
Sigurðsson læknir, sem mikil af-
skipti hefur haft af sjúkrahótelinu,
hefði aftur á mótitjáð sér að það
uppfyllti ákveðnar þarfir og
drægi hann það ekki i efa.
Þá sagði Páll að hann teldi ekki
óeðlilegt þótt gestir sjúkrahótels-
ins væru látnir greiða eitthvað
sjálfir fyrir gistingu, eins og gert
er á heilsuhæli Náttúrulækninga-
fél. i Hveragerði. Ef það væri
Páll Sigurðsson
gert, þyrfti enginn hallarekstur
að vera á hótelinu.
Nú hefur stjórn RKI óskað eftir
viðræðum við heilbrigðisyfirvöld
um þetta mál allt, og verður fróð-
legt að sjá hvað útúr þeim við-
ræðum kemur. — S.dór
Flotvörpustríöiö:
Menn ættu
aö staldra við
segir Kristján Ragnarsson
200 útlending-
ar í fiskvinnu
hér í vetur
Á aðalfundi LÍC á dögunum var
samþykkt, með naumum meiri-
hluta þó, tillaga um bann við
þorskveiðum með flotvörpu.
Samþykkt þessarar tillögu hefur
valdið miklum deilum og fremst-
ur i flokki aö hafna henni er
sjávarútvegsráðherrann. Siðan
hafa ýmsir útgerða rmenn,
einkum af V'estfjörðum og
Norðurlandi orðið til þess að mót-
mæla þessari tillögu um bann við
flotvörpuveiði, og telja hana
fáránlega.
Við höfðum i gær samband við
Kristján Ragnarsson formann
LIC og spurðum hann álits á
þessum deilum.
„Þærkoma mér ekkert á óvart.
Tillagan var samþykkt með
naumum meirihluta á þingi Ltú
og það urðu miklar deilur um
hana á þinginu. En það var að
minu mati eðlilegtaö þessi tillaga
kæmi fram, þar sem engar áætl-
anir um friðunaraðgerðir lágu
fyrir og menn eru orðnir afar
uggandi. Þess vegna tel ég að
þarna hafi verið um nauðvörn aö
ræða”, sagði Kristján.
Hann bætti þvi við að æski-
legasta leiðin væri vitaskuld, að
takmarka sóknina i þorskinn með
þeim hætti sem hefði minnst
truflandi áhrif, en það virtist ekki
vera svo auðvelt.
Um deilurnar sem sprottið hafa
upp vegna þessarar samþykktar
Ltú-þingsins um flotvörpubannið
sagi Kristján.að þar deildu fyrst
og fremst útgerðarmenn frá
Vestfjörðum og Norðurlandi
annarsvegar; þeir vildu halda
flotvörpunni, enda hefðu þeirra
togarar náð bestum árangri með
henni; og hinsvegar útgerðar-
menn af Vestur.Suður og Austur-
landi, sem vildu banna hana.
Kristján Ragnarsson
„Hvað sem um þessar deilur
má segja, ættu menn að spyrja
sjálfa sig fyrst, — er þorskurinn
óþrjótandi — ef menn komast að
þeirri niðurstöðu að svo er ekki,
og ef ugg setur að mönnum, þá
hygg ég að þeir ættu að staldra
við þessa tillögu”, sagði Kristján
að lokum. —S.dór
aukakostnaður um
100 þúsund
krónur á mann
Fast að 200 útlendingar niunu
verða i fiskvinnu hér á landi i vet-
ur. Þegar eru komnir til landsins
143 og ákveðið er að 33 i viðbót
komi i janúar, og von um á milli
10 og 20 i viðbót. Það er Sölumið-
stöð Hraðfrystihúsanna, sem hef-
ur haft milligöngu fyrir frystihús-
in að útvega þetta fólk, sem er að
mestum hluta frá Astraliu og að
meirihluta til stúlkur.
En þetta vinnuafl er frystihús-
unum dýrt, þvi bara flugfargjöld,
sem greidd eru fyrir það frá Lon-
don til Keflavikur og til baka i vor
og siðan flugfargjöld fyrir við-
komandi á þá staði sem það ætlar
að vinna á útá landi, nemur um
100 þúsund krónum á hvern
mann. Auk þess hafa flestir út-
lendingarnir fritt húsnæði i ver-
búðum.
Þetta fólk hefur að sjálfsögðu
öll sömu kjör og tslendingar og
atvinnurekendur verða að greiða
venjuleg launatengd gjöld af
launum þessa fólks.
Það vaknar sú spurning, þegar
þetta mál er skoðað, hvort ekki
væri mögulegt að fá islenskt
vinnuafl til starfa út á landi i
frystihúsum, vinnuafl sem annars
vinnur að misjafnlega þörfum
milliliða og þjónustustörfum; það
fengi 100 þúsund krónur aukreit-
is fyrir vertiðina og fritt hús-
næðí. — S.dór
Vorster aldrei sterkari
.1 OIIA N N E S A R BO RG 1/12
Reuter — Þjóðernisflokkur
Johannesar Vorsters forsætis-
ráðherra vann stórsigur i þing-
kosningunum i gær, jók þing-
meirihluta sinn að miklurn mun
og fékk 134 þingmenn kjörna af
165 alls. Er þetta mesta þing-
fylgi flokksins á þremur ára-
tugum, scm hann hefur verið
við völd i Suður-Afriku.
Annar i röðinni varð Fram-
sækni sam bandsflokkurinn,
sem telur sig frjálshyggjuflokk.
Fékk hann 17 þingsæti, tapaði
einu og'er þá helsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn á þingi, þar eð
Nýi lýðveldisflokkurinn, sem
áður var stærstur stjórnarand-
stööuflokkanna, fékk aðeins 10
þíngsæti og tapaði 13. Suður-
Afrikuflokkurinn svokallaði
fékk þrjá þingmenn og tapaði
jafnmörgum. — VaiTa þarf að
taka fram að hvitir menn einir
höfðu kosningarétt.