Þjóðviljinn - 02.12.1977, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. desember 1977.
Þekkt danskt jazztríó
í Norræna húsinu
Þrir danskir jazzleikarar eru
væntanlegir til landsins i boöi
Norræna hússins og halda þar
hljómleika'um næstu helgi.
Jazzleikararnir eru allir þekkt-
ir og vinsælir i Danmörku, hafa
verið i fremstu röð þar i landi um
árabil, hafa allir getið sér orðs á
hljómleikaferðum erlendis, og
hafa leikið á fjöldann allan af
plötum.
Niels-Henning örsted Peder-
sen, bassaleikari, er sennilega
frægastur þremenninganna, 31
árs, og fæddur i östed á Sjálandi.
Hann byrjaði i barnæsku að læra
á pianó, en sneri sér brátt aö
kontrabassa. Hann stundaði nám
i tónlistarháskólanum i Kaup-
mannahöfn, og lék jazz i fristund-
um með slikum árangri að 18 ára
gamall var hann valinn,,Árets
danske jazzmusiker”. Um svipaö
leyti var N.H.Ö. Pedersen ráðinn
bassaleikari Danmarks Radios
Big Band, og hefur starfað þar
siðan, en þar að auki leikið með
öllum fremstu jazzleikurum i
Skandinaviu á skemmtistöðum og
jazzhátiðum, með bandariskum
meisturum, sem eru tiðir gestir á
Norðurlöndum, stjórnað eigin
hljómsveitum og hljóðritað
nokkra tugi af plötum. Um nokk-
urra ára skeið hefur Niels-
Henning örsted Pedersen verið
aðalbassaleikari i hljómsveitum
Oscars Petersons, og ætla þeir
félagar að leggja leið sina á
Listahátið i Reykjavik að vori.
Ole Kock Hansen, pianóleikari,
er 32 ára, fæddur i Osager á Sjá-
landi. Hann stundaði nám hjá
Finn Savery i nokkur ár, og lauk
prófi i tónfræði við tónlistarhá-
skólann i Kaupmannahöfn 1967.
Allt frá unglingsárum hefur Ole
Nieis-Henning.
Kock Hansen verið i fremstu röð
jazzpianista á Norðurlöndum, og
var valinn i fyrsta Nordjazzkvint
ettinn árið 1974. Kvintettinn kom
hingað til lands i hljómleikaferð
þá um haustið eins og kunnugt er.
1 hittifyrra var O.K. Hansen kjör-
inn „Árets danske jazzmusiker”,
og þótti mörgum að ekki mætti
seinna vera. Hann var þá búinn
að gefa út margar plötur með eig-
in hljómsveit, hljóðrita mikið
með fremstu jazzleikurum heima
og erlendis og hafði verið pianó-
leikari i Radioens Big Band um
árabil.
Axel Riel er elstur þremenn-
inganna, fæddur 1940 i Kaup-
mannahöfn. Hann hefur verið að
spila á trommur siðan i barn-
æsku, og verið hljóðfæraleikari að
atvinnu siðan hann var 17 ára.
Alex Riel hafði verið fremsti jazz-
trommari Danmerkur i mörg ár,
þegar hann var kjötinn „Arets
danske jazzmusiker” 1965, 25 ára
gamall. Siðan hefur vegur hans
aukist, hann er tiðum fulltrúi
Dana á jazzfestivölum i Evrópu,
spilaði á Jazzhátiðinni i New Port
i Bandarikjunum 1968 með eigin
hljómsveit, og hefur hljóðritaö
ótal plötur með ýmsum jazzistum
Evrópu og Ameriku. Álex Riel
var nokkur ár i Radiojazzgruppen
iKaupmannahöfn og þykir þar að
auki einn snjallasti popp-tromm-
ari, sem völ er á; hefur t.d. hljóð-
ritað mikið með Savage Rose -
flokknum.
Niels-Henning örsted Peder-
sen, Ole Kock Hansen og Alex Ri-
el hafa á undanförnum árum
starfað mikið saman, leikið á
plötur, — i hljómsveitum hvers
annars og á hljómleikum og
skemmtistöðum.
Trióið, sem leikur i Norræna
húsinu i Reykjavik, hefur þvi að
baki töluverða reynslu i samleik.
og hljómleikahaldi.
Fyrstu tónleikar danska jazz-
triósins verða i Norræna húsinu
laugardaginn 3. desembcr kl.
16.00; aðrir tónleikar verða
sunnudag 4. des. kl. 16.00, Og
þriðju og siðustu tónleikarnir
verða inánudagskvöld 5. des. kl
20.30.
Eins og fyrr segir verða allir
tónleikarnir i Norræna húsinu.
Aðgöngumiðar verða seldir i
Norræna húsinu frá og með
fimmtudegi 1. des. frá kl. 9.00 til
19.00. Aðgangseyrir er 600 krónur.
Norræna húsið
!
Leikfélag Þorlákshafnar
Sýnir „Legunauta”
í Kópavogi í kvöld
Leikfélag Þorlákshafnar frum-
sýndi gamanleikinn
LEGUNAUTA eftir Þorstein
Marelsson i Félagsheimili
Þorlákshafnar 18. nóvember sl.
Siðan hefur verkið verið sýnt i
Þorlákshöfn og annarstaðar á
suðurlandi.
Verk þetta samdi Þorsteinn
sérstaklega fyrir Leikfélag Þor-
lákshafnar og var það sett upp i
hópvinnu undir verkstjórn Vern-
harðs Linnets.
Hlutverk eru 9 talsins og fara
Margrét Aðalsteinsdóttir og Ingis
Ingason með þau viðamestu.
1 kvöld föstudag, 2. desember,
sýnir L.Þ. Legunauta i Félags-
heimili Kópavogs og hefst sýning-
in kl. 21.00. Verður þetta eina sýn-
ingin á höfuðborgarsvæðinu.
Legunautar er þriðja íslenska
leikritið sem L.Þ. frumflytur. Hin
eru; Skirn eftir Guðmund Steins-
son, 1975, og Venjuleg fjölskylda
eftir Þorstein Marelsson, 1976.
Atriði úr „Legunautum” Þorsteins Marelssonar sem sýnt verður
f Kópavogi i kvöid.
Tímaritid Saga komið út
Út er komiö XV. bindi af Sögu,
timariti Sögufélags. Þetta timarit
hóf göngu sina við áramót
1949-50, og á þeim tima, sem
siðan er liðinn, hefur birst í þvi
mikill og margvislegur fróðleikur
um sagnfræðileg efni. Ritið kem-
ur nú út einu sinni á ári, og er
þetta hcfti ársins 1977.
Fremst i heftinu er að finna
afmælisgrein eftir Einar Laxness
vegna 75 ára afmælis Sögufélags-
ins i marz s.l.
Siðan skýrir Þórarinn
Þórarinsson frá Eiðum frá fundi
merkilegs bréfs ögmundar Páls-
sonar Skálholtsbiskups til páfans
árið 1524. Bréf þetta var áður
óþekkt, en fannst i Rómaborg i
fyrra, og er það hér prentað bæöi
á latinunni og i islenskri þýðingu.
Þá birtist i Sögu áður óþekkt
álitsgerð Skúla Magnússonar
landfógeta um brottflutning
Islendinga vegna Móðuharð-
indanna, og mun hún rituð haust-
ið 1784 i Kaupmannahöfn. Á siðari
árum hafa orðið ritdeilur meðal
fræðimanna um þessar brott-
flutningshugmyndir, en nú ætti
ekki lengur að þurfa að deila þar
um, þvi að fullljóst er m.a. af orð-
um Skúla, að til greina komu
flutriingar til Jótlandsheiða.
Aðalgeir Kristjánsson bjó þetta
stórmerka skjal til prentunar.
Peter Foote, prófessor i
norrænum fræðum við Lundúna-
háskóla, á hér allrækilega ritgerð
um þrælahald á Islandi til forna.
— Bergsteinn Jónsson birtir 2.
hluta af þáttum úr dagbók Jóns
Jónssonar frá Mjóadal i Bárðar-
dal, og segir hér m.a. af för Jóns
og fjölskyldú hans til
Vesturheims 1872. — Séra Sigur-
jón Einarsson á hér ritgerð um
þann forna og sérkennilega sið að
leiða konur i kirkju eftir barns-
burö.
Framhald á bls. 14.
Myndlistarsýning
í Keflavík
Laugardaginn 3. desember kl. 4
sildegis opnar Charles O. Phillips
rafmagnsfræðingur frá Okla-
homa myndlistarsýningu i Iðnað-
armannasalnum i Keflavik.
Charles hefur teiknað mikið i
blöð og timarit erlendis og er
þekktastur fyrir skopmyndir sin-
ar, svo og skipa- og skútumyndir,
sem hann hefur sérhæft sig i að
teikna.
Einnig verða nokkrar ljós-
myndir á sýningunni.
Charles hefur verið búsettur
hér á Islandi tvö siðast liðin ár og
er kvæntur islenskri konu.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 17-22 fram til 11. desember
n.k.
A sýningunni verða 35 myndir
og eru allar til sölu.
Ballettdagskrá í
skólum
tökur.og er ætlunin þvi að halda
áfram og heimsækja fleiri skóla
fyrir jól.
Islenski dansflokkurinn hefur
að undanförnu, ásamt Þórhalli
Sigurðssyni leikara.kynnt og sýnt
i ýmsum skólum I Reykjavik dag-
skrá sem ballettmeistari Þjóö-
leikhússins hefur tekið saman.
Þessi dagskrá tekur 30 minútur
og sýnir helstu atriðin úr daglegri
þjálfun listdansarans, allt frá
byrjunarstöðum og þar til hann er
tilbúinn að dansa, og skýrir Þór-
hallur um leið frá tilgangi hverr-
ar æfingar. Einnig eru sýndir 3
dansar úr ballettinum Hnotu-
brjótnum, sem verður frumsýnd-
ur i Þjóðleikhúsinu á annan i jól-
um.
Nú þegar hafa verið heimsóttir
4 skólar; dansflokkurinn hefur
allsstaðar fengið mjög góðar viö-
Sigríður
Sigriöur EHa Magnúsdóttir
Ella gefur út plötu
með jólalögum
Hin ágæta söngkona Sigriður
Ella Magnúsdóttir hefur ráðist i
að gefa út hljómplötu með 13
klassiskum jólaiögum upp á eigin
spýtur. Þessi plata kemur út ein-
hvern næstu daga. Sigriður Ella
sagðist hafa gengið I fyrra inn i
búð og spurt eftir hljómplötu með
islenskum jólalögum, en þar hafi
ekki verið um auðugan garð að
gresja nema þá i poppbúningi.
Hafi hún þá ákveðið að ráðast i
þetta fyrirtæki.
Platan er tekin upp i Háteigs-
kirkju og syngur kór Langholts-
kirkju með undir stjórn Jóns
Stefánssonar organista þar. Mikil
áhersla var lögð á vandaöan
hljóðfæraflutning, og auk orgels
er t.d. blásarasveit og strengja-
sveit. Pétur Steingrim sson
stjómaði upptökunni.
Lögin eru ýmist islensk eða út-
lensk, en allir textar á islensku.
Þar á meðal eru tveir nýir textar,
annar eftir Daniel Danielsson við
Ave Maria eftir Schubert.en hinn
er Nóttin helga eftir Sigurð
Björnsson verkfræðing.
Sigriður Ella syngur flest lögin
en eiginmaður hennar, Simon
Vaughan, syngur lika nokkur lög.
A plötunni eru eftirfarandi tón-
verk:
1. Nóttin var sú ágæt ein, eftir
Sigvalda Kaldalóns og Einar
Sigurðsson.
2. Syngið Guði sæta dýrð, úr
Graduale 1594.
3. Jólanótt, þjóðlag við texta
Þorsteins Valdimarssonar.
4. Komið þið, hirðar; þjóðlag.
5. Kemur hvað mælt var, þjóð-
lag við texta Þorsteins Valdi-
marssonar.
6. Heims um ból, eftir Grllber
og Sveinbjörn Egilsson.
7. Betlehem hjá; þjóðlag og
texti Ingólfs Jónssonar.
8. Ave Maria, eftir Sigvalda
Kaldalóns og Indriða Einarsson.
9. Nóttin helga, eftir Adam og
Sigurð Björnsson.
10. Ave Maria, eftir Schubert og
•Daniel Danielsson.
11. Hljóða nótt, eftir Griiber og
Matthias Jochumsson.
12. Sofðu barnið bliða góða, eftir
Berlioz og Ingólf Jónsson.
13. Ave Maria, eftir Þórarin
Jónsson.
Útsetningar eru margar, eftir
þá Pál P. Pálsson, Árna Björns-
son, Sigurð Ingva Snorrason og
Róbert A. Ottósson.
—GFr