Þjóðviljinn - 03.12.1977, Page 1

Þjóðviljinn - 03.12.1977, Page 1
Laugardagur 3. desember 1977 —42. árg. 271. tbl. Miðstj órnarfundur verður á mánudag Miðstjórn Alþýðubandalagsins kemur saman til fundar næst- komandi mánudag klukkan 17 að Grettisgötu 3. Dagskrá: 1. Kosning framkvæmdastjórnar og annarra starfsnefnda mið- stjórnar. 2. Önnur mál. Lúðvik Jósepsson. DÖNSK SKATTAYFIRVÖLD UPPLÝSA: r Islendingar eiga fúlgur í dönskum bönkum Skattayfirvöld í Danmörku standa nú fyrir umfangs- mikilli könnun á ínnistæðum í dönskum bönkum sem þeir nefna BANK 77. Fram til þessa hefur komið í Ijós í könnuninni að um 80 Islendingar eiga þar meira en 10 þúsund króna innistæður hver. Hér er um að ræða sam- tals4 miljónir danskra króna eða 138/2 miljónir íslenskar að sögn Garðars Valdimarssonar skattrannsóknar- stjóra, þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann f gær, en hann hefur fengið lista yfir þessa menn í hendur. Ljóst er að umræddir peningar hafa yfirleitt ekki verið taldir fram i skattframtölum og er málið nú í rannsókn. Happdrætti Þjóðviljans 1977 Geriö skil! Skrifstofa Happdrættisins að Grettisgötu 3 opin í dag kl. 9—16 og á morgun frá 13—16. Dregið 11. des. Könnun Dananna er gerö sam- kvæmt nýjum lögum sem gera ráð fyrir að bankayfirvöld sendi sjálfkrafa lista yfir innistæður einstakra aðila i bönkunum. Dönsk skattayfirvöld hafa siðan sent skattayfirvöldum annars staðar á Norðurlöndum lista yfir rikisborgara viðkomandi landa sem eiga yfir 10 þúsund krónur danskar á innistæðum. Ljóst er að öll kurl eru ekki komin til grafar þar sem hinni dönsku rannsókn er ekki lokið og ekki heldur sendur listi yfir þá sem eiga minni upp- hæðir en 10 þúsund krónur hver. Garðar Valdimarsson sagði að búið væri að senda bréf til viðkomandi aðila og færi fram- hald málsins eftir svörum þeirra. Þá hafði Þjóðviljinn samband við Björn Tryggvason aðstoðar- bankastjóra Seðlabankans og spurði hann hvort um löglegar innistæður gæti verið að ræða. Sagði hann að skv. lögum væri óheimilt að eiga innistæður á erlendum bönkum en þó gætu inn- flytjendur sótt um leyfi til gjald- eyrisyfirvalda til að eiga reikn- inga erlendis, sem þeir gætu sett erlend umboðslaun sin inn á, i þvi skyni að kaupa siðan nýjar vörur inn fyrir. Þeir væru hins vegar skyldugir til að gefa árs- fjórðungslega yfirlit um slikar innistæður. —GFr ÞING VERKAMANNASAMBANDS ÍSLANDS Þingfulltrúar á 8. þingi Verkamannasambands islands kanna fundargögn við þingsetninguna. 17 miljónir manna atvinnulausar 1978 sagði sœnski gesturinn um atvinnu- ástandið í hinum iðnvædda hluta heims Attunda þing Verkamanna- sambands islands var sett á Hótel Loftleiðum i gær. Aðalmál þingsins eru kjaramál og varnaraðgerðir gegn kjara- skerðingu. Fjölmörg önnur málefni eru á dagskrá. Eðvarð Sigurðsson var kjörin forseti þingsins, og varaforsetar eru Guðriður Eliasdóttir og Jón Helgason. 1 upphafi þingsins flutti Guð- mundur J. Guðmundsson for- maður VSl, ávarp og Þórir Danielsson, framkvæmdastjóri, flutti skýrslu stjórnar og skýrði reikninga. Gestur þingsins er formaður Nordiska fabriksarbetare- fedarationen, sem VSl er aðili að. Enar Agren er jafnframt einn af helstu forystumönnum sænskrar verkalýðshreyfingar og hefur verið það um árabil. I ávarpi sem hann flutti á þinginu lýsti hann meðal annars þung- um áhyggjum yfir vaxandi at- vinnuleysi i Finnlandi, Dan- mörku og Sviþjóð. Hann tók jafnfram fram að gert væri ráð fyrir þvi að á árinu 1978 yrðu 17 miljónir manna i hinum iðn- vædda heimi atvinnulausar. Þingi Verkamannasam- bandsins verður Tram haldið i dag og hefst það með þvi að Björn Björnsson, hagfræðingur, flytur yfirlit um þróun og horfur i kjaramálum. — ekh. Ofsahræðsla greip um sig GAUTABORG: vegna mikillar hœttu á áframhaldandi skriðuföllum GAUTABORG 2/12 frá frétta- ritara Þjóðviljans, Gunnari Elis- syni: I gærkvöldi klukkan niu voru birtar fyrstu opinberu tölurnar um afleiðingar -náttúruhamfaranna. Sam- kvæmt þeim er vitað með vissu að sex menn hafa farist, 80 slasast og eru 10 þeirra enn á sjúkrahúsi. Fjögurra er enn saknað og 65 hús eru talin gerónýt. Eignatjón er áætlað 30 miljónir sænskra króna, og er það miðað við einbýlis- húsaverð. Sjálftsvæðið, sem skriðan hafði mest áhrif á, er 800 sinnum 600 metrará stærð.að sögn yfirvalda. Tölur þessar eru allar frá lands- höfðingjanum i Gautlandi, Erik Huss. 1 morgun var gefin fyrirskipun um að fólk flytti úr mörgum húsum i viðbót nálægt hamfara- svæðinu, og var þá svæðið, þar sem öll hús voru tæmd, stækkað um rúman helming. Um 300 manns urðu þá að yfirgefa heimili sin, og greip um sig ofsahræðsla meðal nokkurs hluta fólksins, er það yfirgaf húsin i morgun. Var það vegna þess, að fundist höfðu nýjar sprungur i jörðinni i kringum skriðusvæðið. Sprung- urnar fundust að likindum vegna þess, að mjög dimmri isingar- þoku. sem undanfarið hefur legið yfir borginni, hefur nú létt, og Framhald á 18. siðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.