Þjóðviljinn - 03.12.1977, Síða 5

Þjóðviljinn - 03.12.1977, Síða 5
Laugardagur 3. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 FEF Jólamarkadur Félag einstæðra foreldra held- ur sinn árlega jólamarkað i Fé- lagsheimili Fáks, laugardaginn 3. desember klukkan 14. Þar verður á boðstólum margt góðra og fal- legra muna og er verðinu mjög i hóf stillt. Hafa félagskonur prjónað og saumað margt verulega fallegt, svo sem peysur og vesti, sokka og vettlinga, tuskudýr og dúkkur hafa þær búið til, bolta og teppi undir jólatré, einnig heklað mott- ur og prjónað húfur og trefla i lit- um l.deildar knattspyrnu. Einnig verður hægt að fá keyptar góðar bækur á sanngjörnu verði og margt annað hentugt til jóla- gjafa. Þá verða þar til sölu jóla- kort félagsins. Xp.n Er fólk hvatt til að koma, gera góð kaup og styrkja veröugt mál- efni, en allur ágóði af sölunni rennur til húsbyggingarsjóðs fé- lagsins. Nú liöur óðum að þvi, aö húseign félagsins verður tekin i notkun, en enn vantar peninga til innréttinga og siðustu viðgerða. Afmælissöngmót í Selfosskirkju á sunnudag Kirkjukórasamband Arnespró- fastsdæmis cr 30 ára á þessu ári. Stofnfundurinn var haldinn á Sel- fossi 29. jan., 1947. í upphafi voru 7 kórar i sambandinu. Nú eru þeir 14. Aðaihvatamaður að stofnun Sambandsins var Kjartan Jó- hannesson, orgelleikari, Fyrsti formaður var Annna Eiriksdóttir, Selfossi. Fyrsta söngmót Sambandsins var i Selfossbiói 22. nóv., 1947. Árið 1950 var svo annað söngmót- ið og á sama stað og hið fyrsta. Sv.o voru söngmót 1957 og 1971 og þá i Selfosskirkju. 1 tilefni af 30 ára afmælinu efnir Kirkjukórasambandið til afmæl- issöngmóts um þessar mundir. Fjórtán kirkjukórar sem telja um 25 félaga, taka þátt i þessu móti. Fyrri hluti þess fór fram i Skál- holtskirkju laugardaginn 26. nóv. Þar sungu kórarnir einir sér eða fleiri saman. Lauk söngskránni með þvi að kórarnir sungu sam- eiginlega 6 lög. Mikið fjölmenni var i Skálholtskirkju þennan dag. Sunnudaginn 4. des. verður söngskemmtunin endurtekin i Selfosskirkju kl. 4 siðdegis,—mhg TM-húsgögn S"S" OPIÐ TIL KL.6! Raunhæfasta kjarabótin er hagstætt vöruverð. Sé um að ræða vandaða íslenska I framleiðslu er hagnaðurinn tvöfaldur. Við bjóðum úrval vandaðra, íslenskra húsgagna. Gjörið svo vel og berið saman verð, gæði og greiðslukjör, Strax í dag

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.