Þjóðviljinn - 03.12.1977, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 3. desember 1977.
Vidskotaillur
vélsmiðjueigandi
i Hafnarfirði
Réöist
á starfs-
mann
stéttar-
félags
i fyrradag gerðist sá fá-
heyrfti atburður að atvinnu-
rekandi einn i Hafnarfirði
lagöi hendur á slarfsmann
verkalýösfélags, sem var að
sinna skyldustörfum á vcg-
um félags sins á vinnustað.
Málavextir voru þessir:
Guðmundur S.M. Jónasson
starfsmaður Félags Járniðn-
aðarmanna, kom i Vélsmiðju
Péturs Auðunssonar i Hafn-
arfirði um 11-leytið i fyrra-
dag til þess að freista þess
enn einu sinni að innheimta
gjöld til félagsins, sem eig-
andinn, Pétur Auðunsson,
hefur ekki greitt siðan 1974.
Eigandinn hefur áður hótað
að berja starfsmann Félags
járniðnaðarmanna með
sleggju og fleiru lauslegu tlr
smiðjunni, þegar hann hefur
komið i árangurslausar inn-
heimtuferðir. Að þessu sinni
lét Pétur Auðunsson ekki
sitja við orðin tóm heldur
réðistá Guðmund og brá fyr-
ir hann fæti og reyndi að
hrinda honum i gólfið. Ekki
ergottað segja hvernigfarið
hefði fyrirGuðmundi ef hann
hefði ekki getað varist fall-
inu með þvi að ná taki á járn-
piötu, sem þarna var. 1 átök-
unum sleit atvinnurekandinn
tölur af fatnaði Guðmundar,
bæði af yfirhöfn og skyrtu.
Ýmislegt annað en van-
goldin gjöld eru Vélsmiðju
Pétri Auðunssonar til
skammar.svo sem aðbúnað-
ur starfsfólks. Og framkoma
hansvið starfsmann verka-
lýðsfélags er að sjálfsögðu
fullkomlega óafsakanieg.
Atburður þessi hefur verið
kærður til lögreglunnar i
Hafnarfirði.
—ekh.
Síldveiðum lokið:
28 þúsund
lestir
veiddust
Sildveiöum lauk um miðnætti
I fyrrinótt. Bráöabirgöaskýrslur
herma, að aflinn hafi verið um 28
þús. lestir. Þar af veiddu 77 skip
15.300 lestir i hringnót en 35 skip
12.500 lestir i reknet.
Mestur hluti aflans var saltaður
eða um 22 þúsund lestir. 3.600
lestir voru frystar til útflutnings
og um 1500 til beitu.
' - -• - . .
Alvarlegt ástand
á slysadeild
Borgarspítalans
Nýja slysadeildin langt á eftir áætlun
230 miijónir vantar
230 miljónir króna vant-
ar til þess að hægt verði að
flytja slysavarðstofuna
yfir í nýja þjónustubygg-
ingu Borgarspítalans á
næsta ári. Haustíö 1976 var
gert ráð fyrir að 180
miljónir króna myndu
nægja til að Ijúka bygging-
unni og þá var gert ráð
fyrir að slysadeildin gæti
flutt í nýtt húsnæði i ágúst
á þessu ári.
Byggingin gekk vel framan af
árinu, en á siðustu mánuðum hef-
ur henni miðað mjög hægt. Borg-
in veitti 100 miljónum á þessu ári
til byggingarinnar og rikið 30
miljónum. Ný áætlun og fram-
kvæmdaskýrsla ber með sér að
þrátt fyrir að 130 miljónum hafi
verið veitt i bygginguna á þessu
ári vantar enn 230 miljónir ef unnt
á að vera að ljúka byggingunni á
árinu 1978.
Þessi mál komu til umræðu á
borgarstjórnarfundi 1. des. s.l.
þegar Adda Bára Sigfúsdóttir
vakti athygli borgarfulltrúa á
neyðarkalli frá stjórn sjúkra-
stofnana Reykjavikur, en stjórnin
samþykkti á fundi sinum 25. nóv.
s.l. ,, — að vekja athyglL borgar-
ráðs og borgarstjórnar a þvi, að
undir engum kringumstæðum má
dragst lengur að lokið verði á
næsta ári framkvæmdum a.m.k.
við þann hluta þjónustuálmu, sem
hýsa á móttöku slysa- og bráða-
sjúkdómstilfella.
,,Með hliðsjón af hinni ört vax-
andi tiðni alvarlegra slysa verður
þessu verkefni ekki sinnt sem
skyídi við óbreyttar aðstæður”
segir ennfremur i fundargerð
stjórnar sjúkrastofnana Reykja-
vikur.
Adda Bára sagði að við undir-
búning fjárlagafrumvarpsins i
'sumar hefði borgarstjórn
Reykjavikur aðeins farið fram á
60 miljónir króna frá rikinu.
Ataldi hún þetta litillæti og einnig
að ekki hefur verið gerður skrif-
legur samningur um framkvæmd
byggingarinnar við rikið. Lögum
samkvæmt á rikið að greiða 85%
af stofnkostnaði sjúkrastofnana.
Þetta er mjög brýnt mál, sagði
Adda Bára eins og stjórn sjúkra-
stofnana hefur itrekað.
Borgarfulltrúar verða þvi að
leita allra ráða til þess að fá við-
bótarfjárveitingu af fjárlögum
fyrir næsta ár, þó seint sé, svo að
slysadeildin, sem þjónar öllu
landinu komist úr þeirri hús-
næðiskreppu sem hún býr við.
1 þessari kröfugerð höfum við
þó ákaflega litið til að standa á,
sagði Adda Bára, þvi engir
samningar liggja fyrir milli borg-
ar og rikis, og farið var fram á
alltof lága fjárupphæð i sumar
sem leið.
Hér dugir þvi ekki að fara
venjulega leið, sagði Adda, held-
ur verðum við að ræða við þing-
menn Reykjavfkur og treysta þvi
að þéir taki málið upp. -AI
Soðkjarnatæki smíðuð
hér á landi
Landssmiðjan getur nú séð um
allar viðgerðir á skilvindum
fyrir skip og í iðnaði
Landssmiðjan hefur fengiö um-
boð fyrir allar vélar frá sænska
fyrirtækinuAlfa Laval.nemavéiar
til mjólkurframleiðslu. Og vegna
þessa hefur veriö ákveðið að
Landssmiðjan hefji smiði á soð-
kjarnatækjum fyrir rnjölvinnslur
og eru þessi soðkjarnatæki hönn-
uð af Aifa l.avai-vcrksmiðjunum.
Auk þess hefur Landssmiðjan nú
bætt svo vélakost sinn og aðstöðu
að hún getur annast allar við-
gerðir á skilvindum, bæði fyrir
skip, mjöl og lýsisbræðslur og
annan iðnað.
Fram til þessa hefur orðið aö
senda allar skilvindur utan til
viðgerðar, vegna þess að jöfnun-
arvélar hafa ekki verið tií hér á
landi, fyrr en nú að Landssmiðjan
hefur eignast eina slika.
Vél þessi, sem kostaöi 12
miljónir kr. er til þess að rétta af,
eða jafna, hvort heldur sem menn
Agúst Þorsteinsson forstjóri Landssmiðjunnar t.v. og Böðvar
Eggertsson skrifstofustjóri.
vilja kalla það, kast, sem getur
komið i skilvindur, rafala, stór
vélsagarblöð, blásarahjól og
fleira. En tæki sem snúast fleiri
r
: Fyrirlestur Brynjólfs Bjarnasonar
Á morgun sunnudaginn 4.
desember gengst Félag áhuga-
manna um heimspeki fyrir fyr-
irlestri I Lögbcrgi, húsi Laga-
deildar Háskóla islands. Frum-
mælandi verður Brynjólfur
Bjarnason og nefnir hann erindi
sitt „Timinn og veruleikinn”.
Þess er vert að geta að þetta
,5 er i fyrsta skipti sem Brynjólfur
i$ heldur opinberan fyrirlestur um
heimspekileg efni hér á landi, ef
undan eru skilin erindi hans i út-
varpi á undanförnum árum. —
Fyrlesturinn hefst kl. 14,30 og er *
öllum opinn. —
Félaginu hafa nýlega borist
að gjöf nokkrar notaðar bækur
um heimspekileg efni, og verða
þær boðnar til sölu á fundinum
við vægu verði.
— Sala bókanna hefst kl.
14.00-.
þúsund snúninga á minútu eins og
þessi, eru stórhættuleg ef kast er
á þeim.
Varðandi skilvindur i mjöl og
lýsisverksmiðjum hefur til þessa
orðið að senda þær utan til við-
gerðar og hefur það verið mjög
dýrt, kostað allt frá 20 þúsund og
uppi 90 þúsund krónur danskar.
En eftir að þessi nýja vél Lands-
smiðjunnar kom, getur hún ann-
ast viðgerðir og stillingar á skil-
vindunum og verður sú viðgerð
mun ódýrari og tekur styttri tima
en að senda þær utan, auk þess
sem hún mun spara mikinn gjald-
eyri.
Þá hefur Landsmiðjan tekið
upp þá þjónustu að vera með
fyrirbyggjandi viðhald i mjöl-
verksmiðjunúm og eins hefur
Framhald á bls. 18.