Þjóðviljinn - 03.12.1977, Side 13
Laugardagur 3. desember 1977. WóÐVILJINN — SIÐA 13
Þröstur ólafsson, hagfræðingur,
formaöur Félagsstofnunar
stúdenta setur athöfnina.
Brynjólfi Sigurössyni, lektor, framkvæmdastjóra bygginganefndar
Hjónagaröanna var sérstaklega þakkaö fyrir mikiö og gott starf en auk
hans voru i nefndinni dr. Ragnar Ingimarsson, prófessor, og Hilmar
Ólafsson, arkitekt.
t anddyri nýbyggingarinnar. Hér má sjá hluta þeirra sem voru viöstaddir athöfnina.
Hjónagaröar form-
lega teknir í notkun
A fullveldisdaginn, 1. desem-
ber, var formlega tekinn i notkun
fyrsti áfangi byggingar Hjóna-
garða stúdenta við Suðurgötu i
Reykjavik. Var það gert i hinum
nýju húsakynnum að viðstöddum
forsetahjónunum, ráðherrum,
rektor Háskóla Islands, öðrum
aðstandendum byggingarinnar
og fleirum. Þröstur Ólafsson,
hagfræðingur, formaður Félags-
stofnunar stúdenta, setti
athöfnina og rakti m.a. forsögu
þessarar byggingar.
Það var i október 1968 að
Félagsstofnun stúdenta hóf
markvissar aðgerðir til undir-
búnings byggingu nýrra
stúdentagarða. Þá hafði ekkert
veriðaðhafst i þeim efnum um 30
ára skeið eða frá þvi að byggingu
Nýja-Garðs lauk. Félagsstofnun
stúdenta við Háskóla Islands er
sjálfseignarstofnun með sjálf-
stæðri f járhagsábyrgð stofnuð
með lögum nr. 33, hinn 20. april
1968. Aðild að stofnuninni eiga
menntamálaráðuneytið, Háskóli
tslands og allir skrásettir
stúdentar innan hans og kjósa
þessir aðilar stjórn stofn-
unarinnar. Félagsstof nun
stúdenta tók formlega til starfa 1.
júni 1968 og er hlutverk hennar
skv. 2. gr. laganna, ,,að annast
rekstur og bera ábyrgð á fyrir-
tækjum i þágu stúdenta og beita
sér fyrir eflingu þeirra”.
1 undirbúningi Félagsstofnunar
aö byggingu nýrra garða var m.a.
fólgin könnun á þörf fyrir hjóna-
garða fyrir nema við Háskólann.
Niðurstaðan varð sú að þörf væri
fyrir 250 ibúðir á hjónagörðum
árið 1969 og má ætla að sú þörf
hafi töluvert aukist siðan.
t ársbyrjun 1971 efndi Félags-
stofnun siðan til samkeppni um
gerð hjónagarða fyrir stúdenta
við Háskóla tslands. t þeirri sam-
keppni hlaut Hrafnkell Thor-
lacius 1. verðlaun og voru teikn-
ingar hans lagðar til grundvallar
byggingunni. I tillögu Hrafnkels
er gert ráð fyrir að á svæðinu risi
þrjú 3ja hæða hús með 57-60
ibúðum hvert. Auk þess dag-
heimili fyrir 60 börn og gæslu-
völlur.
Framkvæmdir við byggingu
hjónagarðanna hófust árið 1973 og
vorið 1976 voru 32 ibúðir teknar i
notkun. t september s.l. var svo
flutt i siðustu ibúðir þessa fyrsta
áfanga sem alls telur 57 ibúðir,
þar af 53 tveggja herbergja 42
ferm hver og 4 þriggja herbergja
62 ferm hver. I húsinu eru einnig
geymslurými, sameiginleg setu-
stofa og leikherbergi fyrir börnin.
t hverri ibúð er litið eldhús, stofa,
svefnherbergi og baðherbergi. t
stærri ibúðunum er auk þessa eitt
barnaherbergi.
t þessum fyrsta áfanga bygg-
ingarinnar eru nú 150 ibúar viös
vegar að af landinu. Heildar-
kostnaður við þennan hluta er 312
miljónir. Fjármögnun bygg-
ingarinnar hefur verið erfið m.a.
vegna þeirrar staðreyndar að
rikisvaldið hefur ekki staðið við
þau fyrirheit sem gefin voru um
stuðning i upphafi, einnig hefur
verðbólgan gert erfitt fyrir. Aö
miklu leyti hefur fjármögnun
verið i formi gjafa frá ýmsum
aðilum, og enn vantar 35 miljónir
til byggingarinnar.
Það var Vilhjálmur Hjálm-
arsson, menntamálaráðherra
sem lýsti hjónagarðana formlega
tekna i notkun, en þess má geta
að heitiö Hjónagarðar er nokkuð
ónákvæmt þar sem hjónaband er
ekki skilyrði fyrir búsetu en hús-
næði þetta er einnig ætlaö ein-
stæðum feðrum og mæðrum.
Gestum var boöiö aö skoöa tvær Ibúöir og sést hér svefnherbergi ann
arar þeirra.
~>í£*cvht-
- Sjáöu hvað ég fann, þegar ég gekk gegnum hávaxiö grasiö og inn I
kúrinn, — falið undir gamla sófanum...
smáauglýsinga-
simi VÍSIS er
86611
V_______ J
Eyfirðingar
Alþýðuleikhúsið
Sýningur á Skollaleik
Dalvík: mánudags-
kvöld: kl. 21.00
Akureyri: þriðjudags
kvöld kl. 20.30
Ólafsfirði: miðviku-
dagskvöld kl. 21.00
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Þórsgötu Kvisthaga
Laufásveg Efri -
Lambastaðahverfi (Seltj.) Skúlagata
Efri-Laugavegur Miðtún
Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i
þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða-
birgða i nokkrar vikur.
PJÚÐV/Um
Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna
Siðumúla 6 — sími 81333.