Þjóðviljinn - 11.12.1977, Side 5

Þjóðviljinn - 11.12.1977, Side 5
Sunnudagur 11. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Bók um dulræna hæfileika: Tveggja heima tengsl Bókaútgáfan Örn og örlygur hefur gefið út bók um Matthew Manning og nefnist hún „Tveggja heima tengsl.” Ævar Kvaran þýddi bókina og ritaði formála. Matthew Manning er maður sem er gæddur ótrúlegum sál- rænum hæfileikum, en bókin er ævisaga hans. í návist hans hafa ýmiss konar hlutir farið á kreik með óskiljan- legum hætti, flust til innan og milli herbergja. Hvers konar áletranir hafa birst á veggjum og lofti i herbergjum Matthew og á heimili foreldra hans. t ágústmánuði s.l. voru sálræn- ir Hæfileikar hans prófaðir i út- varpi i Lundúnum með þeim árangri að ströngustu sér- fræðingar telja tilviljun með öllu útilokaða. A þessum stundar- fjórðungi gerðust þar að auki furðulegustu fyrirbæri heima hjá hlustendum og streymdu bréf til dagblaðanna um þeu. Bókin er filmusett i prentstofu G. Benediktssonar, prentuð i Offsettækni hf og bundin i Arnar- felli hf. Mjólkurmál Nýtt tímarit mjólkur- tækni - félags íslands Mjólkurtæknifélag tslands hef- ur hafið útgáfu á timariti um mjólkurmál. Fyrsta tbl. kom út 26. nóv. og er gert ráð fyrir að út verði gefin 3-5 tbl. á ári. I þessu fyrsta tbl. eru þrjár greinar um stjórnun og skipulag mjólkuriðnaðarins, eftir þá Pétur Sigurðsson, Sævar Magnússon og Grétar Einarsson. I þessum greinum er gerð úttekt á stöðu mjólkuriðnaðarins i dag og hvernig mætti breyta skipulagi hans. Þá er i heftinu þýtt erindi sem prófessor P.E. Jacobsen við Landbúnaðarháskólann i Kaup- mannahöfn flutti á sl. sumri um næringargildi mjólkurafurða. 1 þessu erindi hélt Jacobsen þvi fram að það væri meira fitandi að neyta svokallaðs megrunar- smjörlikis i stað smjörs. Sam- kvæmt tilraunum sem hann stóð fyrir, telur hann að sá, eða sú sem neytir daglega 50 gr. af megrun- arsmjörliki i stað sama magns af smjöri, safni 2.5 kg. af likamsfitu umfram hina, á einu ári. Margvislegur annar fróðleikur er i þessu fyrsta tbl. Mjólkur- mála. Ritstjóri timaritsins er Sævar Magnússon mjólkurverk- fræðingur hjá Osta- og smjörsöl- unni. — mhg Vef skrifad. tóztatí t>8 boiíwft aj iesoodfon ttetnkf! s»f» fffi þogof ktemíkim GEORG6 J. HOUSEÍ? Siilmn,' Shelthm rniönœtti BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ■ AKUREYRI Franíiii hter g au hrirn Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar ÞJÓÐTRÚ OG ÞJÓÐSAGNIR kom fyrst út árið 1908 og hefur verið upp- selt og næsta torfengið um langt árabil. Síra Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safn- ið upphaflega til prentunar og skrifaði merkan formála um þjóðtrú og þjóðsagnir og menningarsögulegt gildi þeirra. í tilefni af 80 ára afmæli Bókaforlags Odds Björns- sonar kemur nú út ný og aukin útgáfa af þessu skemmtilega þjóðsagnasafni. Stein- dór Steindórsson frá Hlöðum annaðist út- gáfuna, en sagnamenn og skrásetjarar eru hátt á annað hundrað. GerSu góSum vini dagamun og gefSu honum ÞJÓÐTRÚ OG ÞJÓÐSAGNiR. — Verð kr. 9.600. ÍSLENZKAR DULSAGNIR Skrásett hefur Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi. Hér eru skráðar frásagnir af ýmsum dul- rænum atburðum, sem sannanlega hafa átt sér stað hér á landi, en erfitt mun að útskýra með vísindaaðferðum, fyrirbæri eins og framtíðarskyggni, hugsanaflutn- ingur, berdreymi, hugboð og huglækning- ar, svo nokkuð sé nefnt. Hór kemur Margrét frá Öxnafelli víða við sögu, en sem kunn- ugt er munu ófáir islendingar telja sig standa í ómetanlegri þakkarskuld við Mar- gréti fyrir veitta aðstoð á örlagastund. Frásögnin er öll fyrirhafnarlaus og blátt áfram. — Verð kr. 3.600. Sidney Sheldon: FRAM YFIR MIÐNÆTTI Þegar einn maður elskar tvær konur getur það orðið vandamál. En þegar tvær konur elska sama manninn — þá er voðinn vis. Ef þú vilt fá spennandi, hispurslausa og berorða ástarsögu sem verður á hvers manns vörum, þá lest þú Fram yfir miS- nætti, nýju metsölubókina eftir Sidney Sheldon. Lesandinn stendur þvi sem næst á öndinni þegar hámarkinu er náð ... — Verð kr. 4.920. Frank G. Slaughter: SPÍTALASKIP Þetta er 55. skáldsaga þessa mikilvirka metsölubókahöfundar, sem skrifaði m. a. „Eiginkonur læknanna" og „Hvítklæddar konur". Hér er hraði og spenna I hverju orði. Skemmdarverk, svik, hefnd, ást og hatur — allt tvinnast þetta saman um fólk- ið sem berst fyrir lífi sinu í þessari æsi- spennandi, nýju læknaskáldsögu. — Verð kr. 3.840. George J. Houser: SAGA HESTALÆKNINGA Á ÍSLANDI Stórmerkileg, þjóðleg og fróðleg bók, sem fjallar á sérstakan hátt um samskipti manns og hests á Islandi allt frá söguöld til vorra daga. Hér er m. a. dreginn fram merkur þáttur i menningarsögu íslands og gerð grein fyrir aðalástæðu þess, að sá þáttur er einstakur i sinni röð á Norður- löndum. Bókin skiptist [ 38 kafla auk heim- ildaskrár og nafnaskrár. Hér er kjörin bók handa islenzkum hestamönnum og unn- endum þjóðlegs fróðleiks. — Verð kr. 9.600. Guðmundur L. Friðfinnsson: MÁLAÐ Á GLER (Ijóð) Með þessari fyrstu Ijóðabók Guðmundar L. Friðfinnssonar birtist nýr flötur á skáldskap hins listfenga og vandvirka rithöfundar. Ljóðin í þessari bók eru hugþekkur skáld- skapur. — Verð kr. 3.840. Katrín Jósepsdóttir: ÞANKAGÆLUR (Ijóð) I þessari snotru Ijóðabók Katrínar Jóseps- dóttur eru rösklega 40 Ijóð. Hún fylgir gam- alli hefð í formi 'og er laus við allt tísku- tildur. Góðvild til allra og einlæg guðstrú er baksvið Ijóðanna. — Verð kr. 2.880 (ób.). r*

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.