Þjóðviljinn - 11.12.1977, Blaðsíða 9
Sunnudagur 11. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Æ,auma skammdegi
Vindurinn stynur þungt
við svef nherbergisglugg-
ann minn og augnalok mín
eru þung sem blý. Æ erf ið-
ara verður að opna augun
með hverjum morgni sem
liður. Skammdegis-
myrkrið verður þyngra og
þyngra.
Einn svartan morgun sit ég á
rúmstokk og nugga augun. Eftir
langa mæöu tekst mér að standa
upp. Svo hægt. Kófdrukkinn af
svefni gægist ég út á milli glugga-
tjalda eftir veðri. Hvað sé ég?
Tvö tungl á lofti. Skýran hálf-
mána og annan daufari fyrir
neðan.
Annars hugar sný ég frá glugg-
anum, silastútá ganginni átt að
eldhúsinu. Á miðri leið stoppa ég
eins og viðutan, geng til baka og
gægist aftur út um gluggann. Jú,
það ber ekki á öðru. Tvö tungl á
lofti.
Ég velti vöngum um hríð, aula-
legur og þrælkenndúr af svefni,
smeygi mér hægt i fötin, fer fram
i eldhús, hita kaffi og drekk. Svo
fer ég enn á ný inn i herbergið og
lit nú vandlega út um gluggann i
þriðja sinni og þar eru tvö tungl á
lofti.
Ég fer nú að reyna að hugsa. Er
ekki eitthvað til um mörg tungl á
lofti. Þrjár sólir á lofti. Þær eru
vist til. Ég fer inn i stofu og tek
Jónas á Hrafnagili út úr bóka-
skápnum, en ekkert er að finna
um mörg tungl á lofti i henni og
ekki heldur hjá Jóni Arnasyni.
Svo fer ég út og hugsa svo stift
að ég gleymi að gá eftir tungl-
unum minum. Sviplaus sit ég i
strætó og hugsa og hugsa. Þegar
ég kem á vinnustað er orðið svo
bjart að tunglskammirnar eru
horfnar. Þetta hlýtur að vera
stórfrétt — að sjá tvö tungl á lofti.
En enginn annar á ritstjórnar-
skrifstofunum hefur séð þessi tvö
tungl og fólk hallast jafnvel að þvi
að gera grin að mér. Ég verð bæði
sár og reiður. Ég hringi á Veður-
stofuna og þar hefur enginn séö
neitt. Veöurfræðingurinn sem ég
tala við er samt fullur samúðar
og reynir að finna skýringu á
þessu, kemur með alls konar
eðlisfræðilegar útskýringar, en
viðurkennir samt að hafa aldrei
séð eða heyrt talaö um fyrir-
bærið.
Að lokum hringi ég til Páls
Bergþórssonar. Jafn glöggur
maður og hann er hlýtur að hafa
séð þetta. Þegar ég er búinn að
segja honum sýn mina segir
hann:
„Heyrðu, hefur þetta ekki bara
verið speglun i rúðunni?”
Vindur stynur þungt við svefn-
herbergisgluggann minn. Næsta
svarta morgun lit ég blindauga-
fullur af svefni út um hann. Og
hvað sé ég? Tvö tungl á lofti sem
fyrr. Og enn lit ég út og i þriðja
sinn. Svo opna ég gluggann. Og
hvað sé ég?
Barasta einn hálfmána og karl-
inn i tunglinu glottir meinfýsinn
til min. Æ, auma skammdegi.
—GFr
Dömu- og herra-
skyrtur íalgjömm
sérflokki,
nýjar sendingar
--elfur
TIZKUVERZLUN
Laugavegi 38
Sími 10765
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Kveniélag sósíalista
Fundur verður haldinn mánudaginn 5. desem-
ber 1977 í Félagsheimili prentara, Flverf isqötu
21 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Minnst 60 ára afmaelis Sovétlýðveldanna:
Gestur f undarins, ræðir um nokkur atriði úr
hinni nýju stjórnarskrá Sovétlýðveldanna.
Upplestur.
2. Þrjár telpur flytja tónlist.
3. Bögglauppboð.
4. Hátíðaveitingar.
Félagskonum er velkomið að taka með sér
9esti- Stjórnin
C^UOTl ódýrar og einfaldar
Canon margbrotnar m/homaf.
Canon hraðvírkar prentandi
CaHOB sterkar og einfaldar
VERSLIÐ VIÐ FAGMENN við
ráðleggjum yður hentuga gerð
ATH: IAFNVEL í JÓLAÖSINNI
ERU NÆG BÍLASTÆÐI
HJÁ OKKUR
Shrifuélin hf