Þjóðviljinn - 11.12.1977, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. desember 1977
af eriendum vettvangi
Lát Knud Jespersens:
Litríkur garpur horfínn
af sjónarsYÍðinu
Nýlátinn er Knud Jesp-
e r s e n / formaöur
Kommúnistaflokks Dan-
merkur. Með honum er
genginn einn aðsópsmesti
og svipsterkasti persónu-
leikinn í stjórnmálum þess
lands og að margra áliti
beinskeyttasti og mein-
fyndnasti kappræðumaður
danska þingsins. Jesp-
ersen varð aðeins 51 árs að
aldri.
Hann haföi marga hildi háö um
dagana, og ekki einungis með
orðsins brandi. 1 heimsstyrj-
öldinni siðari urðu kommúnistar
lifið og sálin i andspyrnu-
hreyfingunni i Danmörku, eins og
i mörgum öðrum Evrópulöndum,
sem Þjóðverjar hernámu. Þá
gerðist það að kommúnistar, sem
að margra áliti voru fjandmenn
vestræns þingræðis, urðu ein-
dregnastirverjendurþess á sama
tima og margir þeir, sem sam-
kvæmt eigin orðum voru sann-
astir og bestir lýðræðissinnar,
héldu að sér höndum eða jafnvel
unnu með hernámsyfirvöldum
nasista.
Pyndaður
af Gestapo
Faðir Knuds var virkur i
Kommúnistaflokknum i Álaborg,
og hann var myrtur af Þjóð-
verjum. Móðir Knuds sat i þýsku
fangelsi á striðsárunum. Sjálfur
varð Knud aðeins 17 eða 18 ára að
aldri einn helsti leiðtogi and-
spyrnuhreyfingarinnar i Norður-
Jótlandi. Gestapo handtók hann
um siðir og pyndaði hann svo
hroðalega, að i nokkra mánuði
eftir striðið lá hann milli heims og
helju á sjúkrahúsi. Vera kann að
afleiðingar þeirrar meðferðar
hafi dregið hann til dauða fyrir
aldur fram.
Eftir striðið hófst Knud Jesp-
ersen skjótt til áhrifa i flokki
sinum, sem fyrst eftir striðið
hafði mikið fjöldafylgi, enda var
framganga kommúnista i and-
spyrnuhreyfingunni mönnum þá i
fersku minni. En það fór fljótt af
þegar æsingar kalda striðsins
hófust, sumpart trúlega vegna
þess, að kommúnistar gáfu högg-
stað á sér með fylgispekt sinni við
Sovétrikin á sviði alþjóðamála.
Eftir uppreisnina i Ungverjalandi
og hernaðarihlutun Sovétrikj-
anna þar klofnaði flokkurinn og
Aksel Larsen, leiðtogi hans til
þessa, stofnaði Sósialiska þjóðar-
flokkinn. Larsen naut mikillar
lýðhylli og tókst honum að hafa á
burt með sér obbann af fylgi
flokksins, en mistókst hinsvegar
að ná til sin neinu sem heitið gæti
af hinum haröa kjarna hans, sem
stóð föstum fótum i verkalýðs-
hreyfingunni. Þá tók Knud
Jespersen við forustunni i
Kommúnistaflokknum. Hann
lærði af mistökum, hætti smám-
saman að flagga miður vinsælum
og þurrpumpulegum slagorðum
og rétti flokkinn við, hægt og bit-
andi.. Nú hefur flokkurinn, sem
um skeið þurrkaðist út af danska
þinginu, haft þar nokkuð örugga
fótfestu um hrið, sem og i verka-
lýöshreyfingunni, enda þótt
sósialdemókratar séu þær vissu-
lega drottnandi.
Knútur svarti
og hinn rauði
Svo til allir, jafnt samherjar
Knuds Jespersen og andstæð-
erlendar
bækur
MuSÍOnS. The Adventures
of a Reiuctant Messiah. Richard
Bach. Heinemann 1977.
Jonathan Livingsone Seagull,
fjórða bók þessa höfundar, hlaut
mikið lof, þegar hún kom út.
Þessi bók „Illusions” er nokkurs
konar hliðstæða eða framhald
hennar. Seagull var af ýmsum
talin mikil opinberun og stór-
merkileg. Inntak þessarar bókar
er: maðurinn er guð. Forsendan
að þeirri skoðun eru ýmsar rugl-
kenndar kenningar, sem upp hafa
komið undanfarin ár, sem mein-
laust andóf við rikjandi kerfi iðn-
væddra samfélaga og þá einkum
amrisks samfélags. Inntak þessa
andófs eru kenningar gervijóga
og ýmissra indverskra og ekki
indverskra gutiara blandað mis-
skilinni lágkristni. Blómabörnin
og Jesúbörnin flæktust um og
liföu aö þvi er þau álitu sam-
kvæmt háleitustu kenningum um
kærleikann og töldu sig feta i fót-
spor Krists, þessu blandaðist
indversk falsspeki guöspeki-
braskara og fals-jóga, sem töld-
ust vera hinir mestu leiðbeinend-
ur og mannkynsfræðarar, en sú
tegund manna var og er ósvifnir
prakkarar sem draga einfeld-
inga á asnaeyrunum. Oft var
svo, að þegar sá misliti hóp-
ur, sem var orðinn þreyttur
á afþreyingarvarningi markaðs-
samfélagsins og var fyrir
tengslalaus við arfleifð og
umhverfi, gein við hliðstæðu
þess varnings I gervi þess,
sem þeir álitu andlegan þroska og
innlifun i eilif sannindi. Þessi
andlega gervifæöa hentaði vel
þeim einstaklingum, sem ekki
áttu sér né eiga nein tengsl við
þjóðdjúpið, land, þjóö og s'ögu,
voru og eru einhverskonar andleg
og menningarleg reköld og
hlaupa eftir útsöluvarningi þeim
og þeim tilbreytingum, sem gutl-
ararnir bjóða. Gurú-gutlið átti
upphaf sitt i Bandarikjunum, og
var það eðlilegt aö slíkt fyrir-
brigði hæfist þar, meðal sögu-
lausrar þjóðar. Siðan flæddi þetta
yfir þau lönd sem voru efnahags-
lega tengd þvi riki. Þetta andlega
dóp fylgdi þvi bandariskri innræt-
ingu og fjárhagstengslum.
Bók þessi „Illusions” á sér
sögusvið I Bandarikjunum, þar
sem bifvélavirki nokkur og flug-
maður verður einhverskonar
Jesús eða Siddharta og tekur að
boða kenningar sinar um aö mað-
urinn sé guð, jafnframt gerir
hann ýms kraftaverk og segir
lærisveinum sinum að þeir geti
einnig iðkað þau og svo segir
spámaðurinn mönnum auðvitað
hvernig heimurinn sé, og er þetta
allt mjög auðvelt, enda flykkist
að þessum nýja messlasi fjöldi
manna.
Allt verður sjálfsagt og fyrir-
höfn engin, þroskinn kemur eins
og kallað sé á þjón á veitinga-
húsi og speki og vizka pöntuö og
sjá eftir fimm minútur er þetta
allt komið á borðið. Þeir sem
lengst hafa gengið i aðdáun á bók-
um Bach., álita að þær og þá vita-
skuld þessi, geti gjörbreytt lifi
einstaklinga þeirra, sem hafa þær
sem resept. I stuttu máli, er bók
þessi útþynntur gervispekisam-
setningur, fiflsleg munnkristni og
hún hlýtur að verka sem argasta
guðniö á kristið fólk. A stæðurnar
fyrir þvi að svona rugl er tekið
alvarlega hljóta að vera meira en
litil brotalöm i hugarheimi við-
komandi einstaklinga. Það mun
þurfa talsverð andleg þrengsli,
þekkingarleysi og andlega átta-
villu til að finna eitthvað jákvætt i
svona skrifum og auk þess vænan
skammt af sljöleika og heimótt-
arskap.
t stað þess að taka afstöðu til
ástandsins I veröldinni eins og
það er nú á dögum, og leggja á
það raunsætt mat og reyna að
berjast gegn þeim djöfullegu öfl-
um sem ógna öllu lífi, þá hyllast
ýmsir til þess að faðma að sér
dellu á borð við þá sem kynnt er i
þessari bók eða daðra við
„innhverfa ihugun” sem er nú
mikil markaðsvara vitt um heim,
ætluð sljóum neytendum afþrey-
ingarmarkaðsins.
Bókin er nokkuð sérstæð að
ytra útliti i Heinemannsútgáf-
unni, prentun vönduð og letursið-
ur smekklega settar upp, en inni-
haldið er ómerkilegt og I rauninni
mannskemmandi.
Ku Iturgeschichte der
Antike I. Griechenland.
Von einem Autorenkollektiv unt-
er Leitung von Reimar Miiller.
Veroffentlichungen des Zentral-
instituts fiir Alte Geschichte u.
Archáologie der Akademie der
Akademie der Wissenschaften
der DDR. Herausgegeben von
Joachim Herrmann. Band 6.1.
Akademie-Verlag 1976.
Hópur fræðimanna hefur unnið
þessa bók, sem er hluti safnrits
um sögu fornaldar. Höfundarnir
byggja á sögulegri efnishyggju og
verja þvi talsverðu rými I útlistun
framleiðsluaflanna og hagsögu.
Sagan spannar timabilið allt frá
upphafi mykenska timabilsins til
loka hellenismans. Hér er fjallað
um þróun framleiðsluhátta, lifn-
aðarhætti hinna ýmsu stétta og
þjóðflokka, siði þeirra og hætti,
hugmyndir þeirra um heim og
umhverfi og endurspeglun jarð-
legs kerfis i guðshugmyndum.
Höfundarnirsýna fram á þróun
heimspekihugmynda og rekja
þann bókmenntalega blóma sem
einkenndi Aþenu á vissu timabili.
Þeir rekja ástæðurnar fyrir þvi á
hvern hátt Hellenar sigruðust á
mystiskri heimsmynd frum-
stæðra trúarbragða og tóku að
beita útskýringum sem byggðu á
þvi sem nú er kallað visindaleg
aðferð til þess að gera sér grein
fyrir umhverfi og heimi.
Heimspekikenningar Platons
og Aristotelesar og fleiri eru
ræddar og sýnt fram á upphaf
humanismans i griskri heim-
speki, sem er eitt þeirrar arfleifð-
ar sem höfundar telja að hafi þok-
'að mannkyninu fram á við. Höf-
undarnir eru eins og áöur segir
fylgjendur sögulegrar efnis-
hyggju i sögulegum útlistunum og
Knud Jespersen — i þingræðum
voru fáir beinskeyttari en hann.
ingar, eru sammála um að hann
hafi verið maður hjartanlega
hrifandi, alþýðlegur i bestu
merkingu þess orðs, glaðvær og
viðmótshlýr. Vinsældir hans fóru
sivaxandi, ekki sist eftir að hann
komst á þing, og kann að vera að
nokkru hafi valdið þar um að
hann reyndist vera mikill sjón-
varpssjarmör, eftir að sá sérstaki
fjölmiðill kom verulega til skjal-
anna. Hann var framan af kallað-
ur Knútur svarti (Sorte Knud),
enda þá svartur á hár og gjarnan
i svörtum jakka, samlitri skyrtu
og með silfurlitt bindi við. Siðar,
þegar hann var orðinn grá-
hærður, fór alþýða að kalla hann
Röde Knud.
Hlynntur vestrænum
kommúnisma
Rætur Knúts svarta og hins
rauða voru i verkalýðshreyf-
ingunni og hann þekkti sitt fólk
þar. Hann einbeitti sér lengstum
að innanlandsmálum, en gaf
utanrikismálum minni gaum og
mun að miklu leyti hafa látið aðra
framámenn I flokknum um að
ráða ferðinni þar. Kommúnista-
flokkur Danmerkur hefur löngum
verið mjög sovétsinnaður og er
það I meginatriðum enn. Hins-
vegar er ljóst að Knud Jespersen
var langt I frá fyllilega ánægður
með það og talið er að hann hafi
verið sá af forustumönnum
flokksins, sem hlynntastur var
Evrópukommúnismanum. Hann
tók afstöðu gegn innrás Sovét-
manna og bandamanna þeirra i
Tékkóslóvakiu og sömuleiðis
gegn ofsóknum tékkóslóvaskra
stjórnarvalda á hendur 77-mann-
réttindasamtökunum. Hann fór
að visu i báðum tilfellum heldur
tekst mjög vel að skýra ýmis fyr-
irbrigði á grundvelli þeirrar
söguskoðunar. Einkum á þetta
við hagsöguna og stéttarátök, en
þeir kaflar eru mjög svo skýrir og
vel framsettir.
Verslunarpólitik Aþeninga er
útlistuð á skilgóðan hátt og tengd
viðari skilningi á gerð hins forna
hagkerfis.
Rit þetta er mjög vandað, vel
unnið og skilmerkilegt á allan
hátt og auk þess er það skemmti-
legt aflestrar, án þess að tapa
nokkru um fræðilegt gildi. Það
má mæla mjög ákveðið með
þessu bindi menningarsögunnar.
Myndaval er hnitmiðað og i bók-
arlok eru bókaskrár og index.
Ritið er 534 blaðsiður i stóru broti.
The Psychology of Place.
David Canter. The Architectural
Press, London. St. Martins Press,
N.Y. 1977.
Sérhver staður, borg, bær,
þorp, bær og sveit hafði og hefur
viða sin séreinkenni, sem mótar
hverjum stað sina „sál”. 1 þess-
ari bók er f jallað um rannsóknir á
varlega í sakirnar, að likindum til
að styggja ekki um of sovétsinn-
ana, sem ennþá ráða mestu I
flokknum. Hann lét einnig i ljós,
að flokkurinn ætti að varpa fyrir
borð þvi gamla og fræga vfgorði
um alræði öreiganna, sem hann
taldi úrelt. En þar hafa flokks-
bræður hans ekki farið að vilja
hans.
Mannskaði
Þvi er spáð að ekki liði á löngu
áður en veruleg átök hefjist um
það i danska kommúnista-
flokknum, hvort hann eigi að vera
áfram hliðhollur Sovétrikjunum
eða taka afstöðu með vestrænum
kommúnistum. Staða þeirra
sovétsinnuðu er allsterk, þar eð
tengsli flokksins við austur-
evrópsku kommúnistaflokkanna
eru allnáin og margháttuð, ekki
sist við þann austurþýska. Náin
sambönd danskra og þýskra
kommúnista standa vitaskuld á
gömlum merg, svo sem eðlilegt
er þegar svo menningarlega
nákomnar þjóðir eiga I hlut. Þar
að auki nýtur blað danska
kommúnistaflokksins, Land og
Folk, riflegs fjárstuðnings frá
lesendum, sem þó eru áreiðan-
lega flestir ekki meðal þeirra
tekjuhærri i þjóðfe'laginu. Og ein-
mitt þeir stuðningsmenn eru ekki
liklegir til þess að taka Evrópu-i
kommúnismanum eða öðru álika
með neinum bllðskap.
Þvi er spáð að Knud Jespersen,
með sitt breiða bros og alþýðlegu
kimnigáfu, hefði verið öllum
betur tjl þess fallinn að koma
flokknum klakklaust út úr hvers-
konar reipdrætti milli sovétsinna
og Evrópukommúnista. Og sá
mannskaði, sem flokkurinn hefur
orðið fyrir við fráfall Knuds,
liggur I fleiru en þvi. Persónu-
legar vinsældir hans náðu langt út
fyrir raðir flokksins og i þvi
kemst enginn af núverandi
forustumönnum flokksins þar til
jafns við hann.
Jörgen Jensen
Talið er vist að eftirmaður
Jespersens verði Jörgen Jensen,
þingmaður og formaður lands-
sambands bifvélavirkja. Hann er
eins og Knud úr verkamanna-
stétt, hefur eins og hann starfað
mestan hluta ævinnar i verka-
lýðshreyfingunni og var i and-
spyrnuhreyfingunni á hernáms-
árunum eins og hann. Eftir stríðið
vann hann um hrið fyrir sér sem
visnasöngvari i sænskum
skemmtigörðum. Engu að siður
er taliö að i augum almennings
verði hann ekki eins skemmti-
legur, aðsópsmikill og hrifandi og
Knud Jespersen var. Um dugnað
hans og þekkingu á verkalýðs-
málum efast enginn. Jörgen
Jensen er talinn hafa svipuð
viðhorf i aiþjóðamálum og Jesp-
ersen, en óliklegt er talið að hann
fari geyst i þaö að breyta
flokknum I átt til vestræns
kommúnisma, eins og viðhorfin
eru I þeim flokki.
dþ
mismunandi umhverfi til þess að
finna i hverju staðarsálin liggur,
hvað gerir hvern stað sérlegan,
eða einstakan. Sumir staðir bera
ekki i sér nein sérstök einkenni,
að þvi er mörgum finnst, nema þá
ömurleikann. Baráttan við að
skapa „manneskjulegt” um-
hverfi hefur reynst mörgum erfið
og I þessari bók eru þeim gefin
mörg góð ráð, sem ástunda þá
iðju. Höfundurinn hefur uppi mik-
ið orðskrúð, sem stundum verður
hálfgert moldviðri, en manninum
gengur gott til. Höfundurinn styð-
ur sig við texta bækur i sálfræði,
og fléttar ýmsar sálfræðikenning-
ar hugmyndum sinum um sköpun
„staðarsálna”. Bók þessa ættu
höfundar „grænu bylting-
arinnar” hér i borg að
kynna sér og myndu þá afla
sér nokkurrar frekari vitn-
eskju um á hvern hátt er hægt að
koma upp manneskjulegu um-
hverfi án mjög mikils tilkostnað-
ar og án þess að ganga i berhögg
við hagsmuni lóðaeigenda og
verktaka og arkitekta, Höfundur-
inn er starfandi við háskólann i
Surrey, en hefur dvalið langdvöl-
um i Japan og Bandarikjunum.