Þjóðviljinn - 22.01.1978, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. jandar 1*78 ÞJÓDVILJINN — StÐA 1
Hiö Ijúfa lif á sér margar hliöar
Nú á að banna mútur
en hvað eru mútur?
— Þetta lítur Ijómandi
vel út. Nú fáum við okkur
alminnilegt að éta. Svo
förum við á næturklúbb.
Fyrirtækið borgar. Við
skrifum svo undir samn-
inginn á morgun.
Þetta er ímyndað sam-
tal milli kaupanda og selj-
anda sem eru að velta á
milli sín sæmilega stórum
upphæðum. En ekki f jarri
lagi í mörgum löndum.
Nema hvaö Sviar hafa sett lög
sem eiga aö banna mútur af þessu
tagi.
Slikt bann hefur áöur veriö viö
lýöi i Sviþjóö. En nú er reynt aö
ná inn á „einkamálasviö” viö-
skiptalifsins ef svo mætti aö oröi
komast. Lögin reyna aö koma i
veg fyrir aö jólagjafir, risna, af-
sláttur og boösferöir séu notuö
sem mútur i viöskiptum.
Lögin ná bæöi til þess sem múta
og þess, sem tekur viö mútum.
Og mútur þurfa ekki einu sinni aö
vera gefnar og þegnar til aö þær
veröi refsiveröar. Þaö er nóg aö
gefa fyrirheit um „óeölilega
þóknun” til aö um lagabrot sé aö
ræöa.
Thorsten Cars i Stokkhólmi hef-
ur skrifaö heila bók til aö útskýra
lögin fyrir mönnum.
Þar fá menn til dæmis aö vita,
aö ef aö tannlæknir sem vinnur á
vegum opinberrar heilsugæslu
lofar náunga fljótri og ódýrari
meöferö ef hann i staöinn fær t.d.
afgreiddan sportbát meö hraöi,
þá er um mútur aö ræöa.
Matur og drykkur
Risna er aö sönnu leyfö. En
varaö er viö þvi, aö þaö veröi aö
vera „eölilegur liöur” i viöskipt-
um aö menn boröi saman — ekki
er leyft aö bjóöa fjölskyldu viö-
skiptavinar eöa efna til kráa-
flandurs.
Þaö hafa veriö settar reglur
um þaö hve miklu má eyöa á
hvern gest i risnu til aö skatta-
yfirvöldin taka risnuna til greina
viö skattafrádrátt. Hver maöur
má éta fyrir mest 3000 krónur við
dögurö og éta og drekka fyrir sem
svarar 7200 Isl. kr. sé boöiö til
kvöldverðar. Aö visu eru reglurn-
ar rýmri ef gestirnir eru Utlendir.
En ekki má þetta gerast of oft.
Þaö er til dæmis taliö viö hæfi aö
fundir séu haldnir á þeim tima
kerfisbundið, aö þeim hlýtur aö
fylgja máltiö sem annarhvor aöil-
inn býöur til, segir i fyrrnefndri
bók.
Gleðikonur
1 skilgreiningu á „mútum”
skiptir þaö mestu hvort um efna-
hagsleg verömæti er aö ræöa.
Þetta á bæöi viö um hluti og þjón-
ustu. Til dæmis segir Thorsten
Cars:
Tækifæri til aö njóta þjónustu
vændiskonu telst hafa efnahags-
legt gildi og skoöast þvi sem mút-
ur.
En ef eitthvaö þaö er um aö
ræöa sem „fellur innan ramma
venjulegrar kurteisi og alúöar”
þá er ekki um mútur aö ræöa.
Þjónusta vændiskvenna telst til
„efnahagslegra verömæta.”
Þetta á viö um blóm, ávexti
eöa sælgæti, sem menn fá send i
sambandi viö tyJlidaga eöa veik-
indi. Almanök, pennar, lykla-
hringar og annað smálegt er
einnig löglegt aö gefa.
En ef aö vin, gæsalifur, lax og
kaviar er i jóiakörfu til viöskipta-
vinar, þá er hætt viö aö sendandi
og viötakandi séu báöir sekir um
lagabrot.
Fyrirtæki sem efnir til nám-
skeiða og ráöstefna þarf helst aö
sýna fram á, aö þessar samkom-
ur séu alvarlegs eölis og til gagns
þeim sem boðnir eru. Þátttakend-
ur mega ekki hafa fjölskylduna
með án tilkosnaðar — þá er til-
tækiö oröiö aö mútum.
Margt óljóst.
Brot á mútulöggjöfinni getur
leitt til þess aö menn séu dæmdir
i sektir eöa allt aö tveggja ára
fangelsi. Jafnvel sex ára fangelsi
ef um stórmútur er aö ræöa. En
höfundur fyrrgreinds leiöarvisis
játar, aö oft geti um vafaatriöi
veriöaö ræöa. Almenn ráölegging
hans er aö menn fari varlega meö
greiðasemi i viöskiptalifi.
(Byggt á DN
MILLILANDS OG EYJA
á ódýrari, öruggan og þœgilegan hátt
Það er fátt einfaldara heldur en að
taka bifreiðina með á milli lands og
eyja, eftir að Herjólfur kom til sög-
unnar. Við bjóðum farþegum upp á
þægindi og þjónustu, ódýrt fargjald
og litinn aukakostnað, ef billinn á að
fljóta með.
*
Helgarferð milli lands
og Eyja er bæði sjálfsögð
og skemmtileg.
Alla daga nema miðvikudaga er siglt
frá Vestmannaeyjum kl. 9.30 að
morgni og frá Þorlákshöfn kl. 13.45
eftir hádegi. Á sunnudögum er þó lagt
af stað kl. 14.00 frá Vestmannaeyjum
og siðan kl. 18.00 frá Þorlákshöfn
Flytjum auk farþega og bifreiða alls
kyns varning ef þess er óskað.
HERIÓLFUR HF
Vestmannaeyjum, sími 98-1838, 98-1792
Matkaupshúsinu, Vatnagörðum, Reykjavík, sími 86464