Þjóðviljinn - 22.01.1978, Blaðsíða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. janúar 1978
Krossgáta
nr. 110
Stafirnir mynda islensk- orö
eöa mjög kunnugleg erlend
heiti, hvort sem lesiö er lárétt
eöa lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer
og galdurinn viö lausn gátunnar
er sá að finna staflykilinn. Eitt
orö er gefiö, og á þvi aö vera
næg hjálp, þvi aö meö þvi eru
gefnir stafir i allmörgum öörum
oröum. Þaö eru þvi eöliiegustu
vinnubrögöin aö setja þessa
stafi hvern i sinn reit eftir þvi
sem tölurnar segja til um.
Einnig er rétt aö taka fram, aö i
þessari krossgátu er geröur
skýr greinarmunur á grönnum
sérhljóöa og breiöum, t.d. getur
a aldrei komiö i staö á og öfugt.
ORGEL
SMIÐJAN
VERÐLAUNAKROSSGÁTAN |
/ T- 3 J5 (p SP 7 8 7 H- 3 V 10 1/ 12 ?
13 ¥ V 7 (p 2 )sr H !(r 15 V jr 17 3 )8 18 SP
V 1? ? (e> )(t> V 20 21 7 18 5~ V 20 22 23 <7 15' V
2if /5T )8 20 (o 22 .9? 25 )2 V 25 2 3 2<o V )b' 7 ¥
27 V 28 v\ 22 27 19 18 9? 11 2 II H s? 27 22 Kff 7-
2Z %o z ■ 2 *) h' H 1 SP iS H 25 20 9? > R
15 V H- 27 20 7 22 V 27 12 Vc 1 9? % M s? T~
)9 25 V 22 25 0? 2(r // 2o lp 82 V /3 2(r 22 (p z 5?
V 19 ii V 2 r /f !2 V 22 $0 )3 1? V 13 3) 22
II 20 20 (o 22 SP (o 2 V /3 IF 2' | 9? 30 il 18 7
II H S2. II 22 S2. 10 22 II a b 2? 12 7 22 3 I?
1 A
2 A
3 B
4 D
5 Ð
6 E
7 É
8 F
9 G
10 H
11 I
12 I
13 J
14 K
15 L
16 M
17 N
18 O
19 O
20 P
21 II
22 S
23 T
24 U
25 Ú
26 V
27 X
28 Y
29 Ý
30 Þ
31 Æ
32 O
\7 ZZ °) 3 21
Setjið rétta stafi i reitina
neðan við krossgátuna. Þeir
mynda þá nafn á gyðju nor-
rænna manna að fornu. Sendií
þetta nafn sem lausn á kross-
gátunni til Þjóðviijans, Siðu-
múla 6, Reykjavik, merkt:
„Krossgáta nr. 110”. Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaun
verða send til vinningshafa.
Verðlaun eru skáldsagan
Orgelsmiðjan eftir Jón frá
Pálmholti. Sagan segir frá
ungum manni sem lögreglan
tekur fastan og færir á lögreglu-
stöðina. Hann er ákærður fyrir
hirðuleysi á almannafæri og
jafnframt ásakaður fyrir að
vera skáld, ,,en það er þjóð-
hættulegtnú á timum”. Hann er
látinn laus en lögreglunni
skipað að hafa eftirlit með
honum framvegis. Sagan gerist
á hinum óliklegustu stöðum,
m.a. i hóruhúsi i ónefndri borg,
einn kaflinn i sjálfu Helviti, þar
sem húsbóndinn skýrir frá
hvernig hann eignaðist allan
heiminn. I sögunni er fjallað af
dirfsku og iþrótt um dýpstu
vandamál mannfélags á okkar
dögum.
Verölaun fyrir
krossgátu nr. 106
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
106 hlaut Elás Valgeirsson,
Efstasundi 55, Reykjavik.
Verðlaunin eru skáldsagan
Náttfari eftir Theódór Frið-
riksson.
Lausnarorðið var VONAR-
BLÓM.
Þekkir þú
svipbrigðin?
Eins og allir vita er ekki
allur boðskapur settur
fram í orðum — svipbrigði
eru merkilegt tungumál án
orða ef svo mætti
segja.hitt geta menn svo
deilt um, í hvaða mæli
svipbrigði eru einstak-
lingsbundin og í hve ríkum
mæli þau eru algild og öll-
um skiljanleg.
Við leggjum hér fram smápróf-
un á þessu atriöi. Myndirnar niu
eiga að sýna eftirfarandi geðs-
hræringar: fyrirlitning
feimni skelfing
heift harmur
undrun viðbjóður
ánægja áhugi.
Reynið að finna hvað á við efst til vinstri sé númer eitt og svo
hverja mynd — þannig að myndin áfram.
Svar er á blaðsíðu 19.
Sjö metra há terta á
alþjóðlegri samkeppni
Á alþjóðlegri samkeppni
tertumeistara í Frankfurt
am Main var meðal annars
þessi terta sem heitir
„Kastalinn" og er smjö
metrar á hæð.
Fulltrúar 32 landa kepptu sin
milli. Eiginlega ekkí um það hver
bakar ætilegasta köku heldur um
byggingarlist úr matvælum.
Kökumeistararnir mega aöeins
nota hráefni sem „hægt væri að
éta”. Þeir mega þvi nota t.d.
hráar kartöflur og grjóthart
brauö, en þeir mega ekki nota
vfravirki i uppistöður.
Finnar
sameinast
í andstöðu
við Andrés
Önd
Andrés önd er of borgaralegur,
hann kemur röngum hugmyndum
inn hjá börnum. Andrésarblöðin
segja frá allsberum öndum og
ófullkomnum fjölskyldum þar
sem mæður vantar alveg.
A þessum og öðrum forsendum
hefur æskulýðsnefndin I Helsinki
ákveðiö aö kaupa ekki Andrésar-
blöð nú i ár fyrir barna- og ung-
lingastofnanir borgarinnar.
Nefiidin felldi úrskurð sinn sam-
hljóða.
Akvörðun þessi var tekin að
frumkvæði eins nefndarmanns,
sem var óhress yfir þvi, að
Andrés önd hefur um langan
aldur haft náiö samband við And-
résinu önd án þess að kvænast
henni.
Æskulýösnefndin hafði þá um
margra ára skeið deilt um kosti
og galla Andrésar Andar.
Skiptust þá fulltrúar borgara-
flokkanna og sósíallsku flokkanna
i tvær fylkingar. En nú hafa allir
sameinast um að endurnýja ekki
innkaup á þessu umdeilda blaði.
Undarlegasta nafnið?
Einn er maður ógæfusamur
sem heitir hvorki meira né minna
en Hero Zzyzzx (frmb. ziz-iks).
Hann á heima i borginni Madison
I Wisconsin I Bandarikjunum og
er aftast i simaskránni á þeim
stað. Eins og að likum lætur er
hann mikið eftirlæti þeirra sem
skemmta sér við að lesa sima-
skrár.
Hero Zzyzzx fær reyndar upp-
hringingar á öllum stundum
sóiarhringsins — frá fylliröftum,
krökkum eða þeim sem ekki geta
sofiðá næturnar. Herra Zzyzzx er
af finnskum, litháiskum, rússn-
eskum, frönskum og þýskum
uppruna. Faðir hans var
sjómaður, Xerxex Zzyzzx, og
kaliaðisonsinn Hero (Hetju) eftir
náunga sem sjá mátti á Players
slgarettupökkum.
Mekkanóið gerði gagn
Englendingurinn Frank Horn-
by fann upp hinn fræga leik
„mekkanó” árið 1901. Fékk hann
einkaleyfi á þessari hugmynd:
safn hluta með samskonar götum
með jöfnu millibili.
Leikur þessi hefur verið sigur-
sæll, að minnsta kosti allt fram á
daga Legókubba. 1 75 löndum
hafa menn framleitt allt að tveim
þúsundum mismunandi hluta
fyrir mekkanó. Hitt vita færri, að
ýmsar hugmyndir aö nýjum
vélum, sem siðan urðu að veru-
leika, hafa orðiö til og fyrst verið
prófaöir með mekkanói.