Þjóðviljinn - 22.01.1978, Side 5

Þjóðviljinn - 22.01.1978, Side 5
Sunnudagur 22. janúar 1978| ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 a/ erlendum vetivangi CIA bjó til fréttir eða i rangfærði Haföi mikinn jjölda blaöamanna og fréttastofnana á sinum snærum Mikið hefur verið skrif- að í bandarísk blöð að undanförnu um viðleitni leyniþjónustunnar CIA til að breyta almenningsáliti í heiminum Bandaríkjunum í hag með þvf að „stjórna" fréttum og búa þær til. Bæði hefur CIA haft blaðamenn á sínum snær- um, ennfremur hefur þjónustan búið til og dreift fréttum um blöð og fétta- stofur heima og erlendis, sem CIAátti, fjármagnaði eða fjarstýrði með einum eða öðrum hætti. Hópur blaðamanna frá New York Times hefur starfað að þvi um þriggja mánaða skeið, að kanna þessi mál. Hópurinn komst að þeirri niðurstöðu, að CIA hefði að visu haft tiltölulega fáa af mörg hundruð bandariskum fréttamönnum starfandi erlendis ásinum snærum,en engu að siður hafi CIA um þrjátiu ára skeið með ýmsum ráðum öðrum komið á framfæri lognum eða afbökuð- um fréttum. En afar erfitt reynist að meta það, hve viðtækar þessar fréttafalsanir hafa verið. Blöð, bækur, útvarp CIA sjálf hefur neitað að gefa itarlegri upplýsingar um sam- starf sitt við blaðamenn. En þeg- ar fyrrgreindur hópur ræddi við fyrrverandi starfsmenn CIA sem og blaðamenn og aðra kemur eftirfarandi mynd i ljós: — CIA átti eða fjármagnaði á hinum ýmsu timum 50 dagblöð', fréttastofur, útvarpsstöðvar og timarit, sum i Bandarikjunum en flest erlendis. Þessir fjölmiðlar voru notaðir til að koma á fram- færi áróðri CIA. t um tylft frétta- stofnana á erlendri grund til við- bótar voru starfandi erindrekar, launaðir af CIA. — Um það bil tylft bandariskra útgáfufyrirtækja, og njóta sum verulegs álits, hafa gefið út um 2250 bækur á ensku sem CIA lét semja og greiddi fyrir — i mörg- um tilvikum gerðist þetta án þess að útgáfufyrirtækin vissu hvað var á seyði. — Siðan heimsstyrjöldinni sið- ari lauk hafa 30-100 bandariskir blaðamenn, starfandi erlendis á vegum bandariskra fréttastofn- ana, verið um leið launaðir erind- rekar CIA. — A.m.k. átján bandariskir fréttamenn hafa neitað tilboðum CIA um að taka að sér leyniþjón- ustuverkefni. Voru þau tilboð ein- att mjög glæsileg. — Sl. 30 ár hefur CIA komið a.m.k. 12 af starfsmönnum sinum fyrir hjá bandariskum frétta- stofnunum erlendis þannig að blaðamennskan væri sá hjúpur sem raunverulegt starf þeirra fælist undir. Áróöur i Bandarikjunum Ýmsir fyrri starfsmenn CIA játuðu, að menn hefðu gert sér grein fyrir þvi, aö falsanir CIA yrðu teknar upp sem alvörufréttir I Banda- rikjunum sjálfum, en eng- inn lét i ljós áhyggjur af þessu, enda þótt i lögum um starfsemi CIA sé þjónustunni bannað að reka áróður i Bandarikjunum. Viðleitni CIA til að hafa áhrif á almenningsálit erlendis var margvisleg: söguleg skjöl voru úr lagi færð, breytt var skýrslum sem annars voru réttar, stundum var farið með hreina lygi (eins og i frásögn af þvi, að kinverskar hersveitir hafi verið sendar til að hjálpa kommúnistum i Vietnam. Krúsjof: CIA skrlfaði I hans orfta- stað um utanrikismál. CIA hafði „viðvörunarkerfi” meðal háttsettra bandariskra íembættismanna, sem varaði þá við þvi að taka mark á vissum til- búnum fréttum. En Meðaljóninn bandariski gat að sjálfsögðu ekk- ert um það vitað, hvort fréttin, sem hann var að lesa yfir morgunkaffinu, var „ekta” eða hugarfóstur einhvers erindreka CIA. Aö komast inn i erlend blöð En höfuðviðfangsefni CIA var að koma sinum fréttum eða fréttaskýringum á framfæri við erlend blöð. Um tima hafði CIA um 800 slik „sambönd” — og þá aðallega við erlenda blaðamenn. Þeir sem átu úr örlátum lófa CIA áttu að koma efni á framfæri sem CIA taldi ekki nógu vel þekkt, af- baka annars réttar fregnir, og stundum lugu þeir upp fréttum að Alan Dulles: hann fékk blöð öðru hvoru til að hætta við að birta óþægilegar greinar. tilmælum CIA. Einn af fyrrver- andi starfsmönnum CIA sagði sem svo, að hann hefði ekki viljað Walter Lippmann (þekktan bandariskan fréttaskýranda). Hann hefði viljað filippinskan Walter Lippmann. M.ö.o. — mikil áhersla var lögð á að geta náð tangarhaldi á þeim útlendingum sem höfðu þann starfa að leggja út af fréttum hver i sinu heima- landi. Annar sagði að CIA hefði getað notað leigupenna sina sem störfuðu við erlendar skrifstofur hinna voldugu fréttastofnana AP og UPI til þess að skjóta fréttum sem CIA hafði smiðað inn á fjar- rita viðkomandi fréttastofu — fóru „fréttir” þessar siðan um allan heim. AP og UPI segjast núna vera lausar við agenta CIA — en hver getur i raun og veru verið viss um það? Margar adferdir Ein af þeim tilbúnu sögum sem viða fór varð til snemma á sjötta áratugnum. ClA — maður kom þvi inn i fréttakerfi stórrar frétta- stofu, að kinverskar hersveitir væru komnar um borð i skip á leið til að hjálpa kommúnistum að berjast gegn Frökkum I Vietnam. Stundum voru þessar fréttir um kjarnorkutilraunir i Sovétríkjun- um, sem aldrei áttu sér stað. í mörgum tilvikum vissu ritstjórar erlendra blaða um uppruna slikra frétta, en þeir voru þá einnig á mála hjá CIA. CIA notaði mikið blaðamanna- klúbba sem starfræktir eru i helstu höfuðborgum. CIA-menn Allende: miljónum dollara var varið til að smiða fréttir gegn honum sem jafnvel virtustu stór- blöð gleyptu við. veittu forstöðu blaðamanna- klúbbum t.d. i Mexiko og Manila og notuðu stöðu sina til að „leka” tilbúnum fréttum i blaðamenn sem héngu þar á barnum. CIA- maður sem starfaði á Filippseyj- um skýrði hópnum frá New York Times frá þvi, að hann hefði haft það verkefni að fá forystugreinar með æskilegu innihaldi inn i blöð þar i landi. Og auðvitað voru þær ekki byggðir á efni frá sendiráð- inu eða Upplýsingaþjónustunni, sagði hann, heldur á einhverju sem þekktur fréttaskýrandi á staðnum hafði sagt (m.ö.o. „hinn filippinski Lippmann”) Ýmsar sögur eru sagðar af að- ferðum CIA til skýringar. Leyniræöa Krústjofs CIA-menn voru mjög hressir yfir þvi hvernig þeir notfærðu sér leyniræðuna sem Krúsjof hélt um myrkraverk Stalins á lokuðum fundi á þingi sovéska kommúnistaflokksins 1956. CIA ákvað að ná I textaræðunn- ar hvað sem það kostaði. I mai hafði tekist að ná I texta ræðunn- ar i Póllandi. Nokkrum dögum siðar var textinn afhentur fjöl- miðlum og CIA hefur lengi talið það mikið afrek sitt að ná i skjal þetta. En CIA skýrði ekki frá þvi, að sá texti sem leyniþjónustan hafði fengið var ekki frumtextinn. I hann vantaði 34 málsgreinar um sovéska utanrikisstefnu, vegna þess að leyniræða Krúsjofs var lesin upp i misjafnlega itarlegum útgáfum, og sá texti sem starfs- menn kommúnistaflokka i Austur-Evrópu áttu að heyra var án fyrrgreindra málsgreina. Þess i stað bjuggu sérfræðingar CIA til nýjar 34 málsgreinar og komu á framfæri viða um lönd — og er það innskot sagt hafa valdið mik- illi skelfingu i Moskvu. Sovét- menn áttu erfitt með að gera athugasemdir, þvi þeir birtu aldrei neitt af ræðu Krúsjofs opin- berlega. Herferö gegn Allende En mestu og áhrifarikustu á- róðursherferð sem CIA skipu- lagði var stefnt gegn forseta Chile, sósialistanum Allende, og alþýðustjórn hans. Herferöin hófst áður en hann næði kjöri 1970 og hélt áfram þar til Allende var steypt og hann myrtur 1973. Samkvæmt vitnaleiðslum fyrir þingnefndum eyddi CIA miljón- um dollara til að búa til fréttir ■gegn Allende i ýmsum löndum Suður-Ameriku og dreifa þeim um heimsbyggðina. Og ekki að- eins fre'ttir heldur og forystu- greinar og útvarpserindi. Einmitt i þvi dæmi kom það greinilega fram, að CIA reyndi að æsa bandariskt almenningsálit 'upp gegn Allende (og þar með undirbúa jarðveginn fyrir að valdaráni hersins yrði vel tekið). Þegar eftir að Allende var kosinn forseti 1970 var tekið að „spila upp aftur og aftur” Chilefréttir i höfuðborgum Rómönsku Ameriku, sem virt bandarisk stórblöð eins og New York Times og Washington Post tóku siðan upp. Ritskoöun CIA reyndi einnig að koma á ritskoðun heima fyrir,mest um hluti sem vörðuðu starfsemi leyniþjónustunnar. CIA tókst til dæmis að fá David Kraslow blaðamann við Miami Herald, til að hætta við að birta grein um þjálfun kúbanskra útlaga á Flor- ida fyrir Svinaflóainnrásina á Kúbu 1961. Dulles, yfirmaður CIA, hafði hóað i ritstjórana og sagt, að það væri „ekki i þjóðar- hag” að birta slíka grein. 1954 fékk Allen Dulles Times til að halda vissum blaðamanni frá Guatemala. Times varð við þeim óskum, en þessi blaðamaður, Sydney Gruson, hafði þá nokkra nasasjón af þvi, að það var ein- mitt CIA sem var að undirbúa að vinstrisinnuðum forseta Guate- mala, Jacobo Arbenz, yrði steypt af stóli með aðstoð málaliða. Reynt að sverta Che Guevara CIA hefur látið gefa út um það bil þúsund bækur. I þeim eru margskonar áróðursbrellur allt frá smávægilegum uppspuna til stórlyga. Til dæmis gaf CIA út árið 1965 bók sem hét „Penkov- ski-skjölin” (Gott ef Morgunblað- ið lét ekki þýða hana). Þessi bók átti að vera dagbók sovéska njósnarans Penkovski, sem vann fyrir tvo húsbændur, var hand- tekinn i Moskvu og tekinn af lifi. Þessi bók var fölsuð, Penkovski hafði ekki haldið dagbækur. En hún var að sönnu að mestu byggð á samtölum CIA-manna við Penkovski. Eina blekkingarherferð skipu- lagði CIA til að sverta minningu kúbanska byltingarmannsins Che Guevara. Þýsk kona að nafni Tamara Bunke hafði um skeið verið með skæruliðasveit Che i Boliviu áður en hann var felldur. CIA kom á framfæri við útgef- anda minnisbóka Che frá Boliviu „upplýsingum” um að Tamara, sem kallaði sig Tanja i skæruliða- flokknum, hafði verið njósnari sovésku leyniþjónustunnar KGB. (ABbyggðiá International Her- ald Tribune)

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.