Þjóðviljinn - 24.01.1978, Page 16

Þjóðviljinn - 24.01.1978, Page 16
MOOVIUINN Þriðjudagur 24. janúar 1978. Loðnuveiðarnar: Engin veiði sl. þrjá sólar- hringa Ekki blæs byrlega hjá loðnu- veiðiflotanum okkar um þessar mundir. Mjög slæmt veður á mið- unum hefur hamlað veiðum i rúma þrjá sólarhringa og að sögn Andrésar Finnbogasonar hjá Loðnunefnd, hefur ekkert skip til- kynnt um veiði siðan aðfaranótt sl. föstudags. i gær var meira en bræla á miðunum, þar geysaði hávaða rok og öll skipin þurftu i var. Heildaraflinn er ekki orðinn nema rösk 30 þúsund tonn, sem er um 40 þúsund lestum minna en var á sama tima i fyrra. Það er fyrst og fremst slæmt tiöarfar, sem veldur þessu, bátarnir hafa sáralitið getað verið aö veiðum sl. tvær vikur vegna veðurs. —S.dór. Eggert fer ekki austur Eggert Þorsteinsson Austfjarðakratar eru I vand- ræðum með aö fá frambjóðendur á lista flokksins i næstu kosning- um, en vegna fylgisleysis flokks- ins eystra er það hálfgerð refsi- vist að sitja þar i öndvegi á fram- boðslistanum til alþingis. Þvi var það að Austfjarðakrat- ar komu að máli við fyrrv. for- mann flokksins, Gylfa Þ. Gisla- son, og báðu hann aö taka efsta sæti listans á sinar her&ar. Þvi neitaði Gylfi. Næst leituöu þeir á náðir Egg- ert G. Þorsteinssonar.sem kunn- ugt er fékk ekki nægjanlegt fylgi i prófkjöri flokksins I Reykjavik til þess aö verða á alþingi næsta kjörtimabil, og báöu hann að taka sæti á listanum. Eggert hefur ekki formlega svarað þeim félögum sinum eystra, en afstaða hans mun vera ráöin, hann fer ekki I framboð á Austurlandi. t gær, 23. janúar, voru liðin fimm ár frá þvi að gos hófst i Heimaey. Af þvi tilefni var haldin þakkargjörð I Landa- kirkju i Vestmannaeyjum i gær- kvöld, en slik þakkargjörð hefur verið haldin 23. jan. á hverju ári eftir eldgosið. Séra Kjartan örn Sigur- björnsson stjórnaði þakkar- gjörðinni, fulltrúar kristnu safnaðanna i Eyjum fluttu hug- leiðingar og kirkjukórinn söng. Reynir Guðsteinsson, Þórhildur óskarsdóttir og Geir Jón Þóris- son sungu einsöng og frumflutt var tónverk eftir Maríu Thor- steinsson. Haraldur Guðnason bókavörður flutti hugvekju. Páll Zóphóniasson bæjarstjóri i Vestmannaeyjum sagði 1 stuttu spjalli við Þjóðviljann i gær, aö veðrið væri óvenjulegt I Eyjum nú, þvi að það væri logn, og væri þetta þriðji logndagur- inn i röð. ,,Þetta er afar sjald- gæft hé;r,” sagði Páll, ,,og veðr- ið er mjbg gott og fallegt.’ 1 þessu sambandi minnast menn þess, aö á gosnóttina fyrir fimm árum var einmitt logn og kyrrt veður, en þá hafði verið slæmt veður frarh að þvi og bátaflotinn lá i höfn. Páll sagöi, að nú væri sá timi ársins, þegar fólki fjölgaði mest i Eyjum. „Vetrarvertiðin er að hefjast og þá kemur hingað mikið af aðkomufólki. Allt hús- næði hér er fullnýtt á vertiðinni og alltaf verður eitthvað af þessu fólki eftir. Búferlaflutn- ingar fjölskyldufólks eiga sér hins vegar einkum stað á sumr- in, vegna stárfstima skólanna fyrst og fremst.” ■ I ■ I ■ I ■ „Fólksfjölgun hér á siðasta I ári var ekki mjög mikil”, sagði ■ Páll. „Hingað fluttist hátt á | fjórða hundrað manns, en rúm- ■ lega tvö hundruð fluttu héðan. ■ En mest af þvi fólki sem flutti J burt, var með aðsetur hér að i nafninu til og var e .t.v. ekki búið I að gera upp hug sinn. Núna eru Jj tæplega 4.700 á ibúaskrá i Vest- 1 mannaeyjum,” sagði Páll ■ Zóphóniasson bæjarstjóri að | lokum. ■ I —eös ■ B Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans I sima- skrá. Skáksambandið getur ekki boðið í HM-einvígið Þar verður ríkið og fyrirtœki að koma tii ef menn óska þess að einvigið fari fram hér á landi, sagði Einar S. Einarsson forseti SSÍ ,/Það er alveg Ijóst, að til þess að fá heimsmeistara- einvígið i skák til Islands, þarf að bjóða slíka upphæð í verðlaun, að útilokað er að Skáksamband Islands ráði við þá upphæð. Ef það er hinsvegar eindreginn vilji Islendinga að bjóða í og fá einvígið hingað næsta sumar, þá þarf að koma til aðstoð ríkisins og stærstu fyrirtækja hér á landi" sagði Einar S. Einarsson í gær er við spurðum hann hvernig þessi mál stæðu. Þegar Einar ræddi þessi mál viö heimsmeistarann Karpov á siðasta ári taldi Karpov að 250 þúsund dollarar væri lægsta hugsanlega tala I verölaun fyrir einvigið. En nú er ljóst að 500 þús- und dollarar er lágmarks upp- hæð, sagöi Einar, sem þýðir að verðlaun og kostnaður við einvig- ið verður vel á annað hundrað miljónir kr. Einar sagði að jafn- vel heföu heyrst tölur eins og ein miljón dollarar,eða á 3ja hundraö miljónir króna. „Það er alveg sama hvort held- ur er hálf eða ein miljón dollarar eða einhver upphæð þar i milli, að Skáksambandiö ræður ekki við aö bjóða slika upphæð” sagði Einar. Þá er enn eitt sem er okkur mótstætt i þessu máli, en það er einkaréttur á sjónvarpssending- um frá einviginu. Hér er engin jarðstöð, þannig að fréttamyndir frá einviginu yröu sólarhrings gamlar þegar þær yrðu sýndar út iheimi.Einarbentiá að það væri ekki vist að sjónvarpsstöövar vildu borga þá upphæð sem þyrfti fyrir sjónvarpseinkaréttinn, þeg- ar svona væri ástatt. Einar S. Einarsson Aftur á móti kæmi það okkur til góöa að Islendingar eru taldir framúrskarandi skipuleggjendur á svona einvigi og sagði Einar að það myndi eflaust veröa mjög þungt á metunum, einkum hjá So- vétmönnum, sem gerðu strangar kröfurtil framkvæmdaaðila. Það orð sem fer af Islendingum sem skipuleggjendum skákeinvigja, gæti þvi vegið nokkuð uppá móti peningahliðinni. — S.dór. Telex skákdeilan: Urskurðar er ekki að vænta strax Austur Þjóðverjar hafa óskað eftir að keppt verði 4. mars „Ég á ekki von á þvi, að úr- skuröur I kærumáli okkar vegna svika A-Þjóðverja aö tefla Tel- exskákirnar sl. laugard. eins og ákveðið hafði verið, sé væntan- lcgur fyrr en i fyrsta Iagi eftir tvær vikur” sagði Einar S. Einarsson er við spurðum hann um gang mála I þessu kæru- máli, cn sem kunnugt er kærði islenska Skáksambandið fram- komu A-Þjóðverja til FIDE og vill SSt að lslendingurn verði clemdur sigurinn. Einar sagði að það væri Dr. Max Ewe, forseti FIDE og for- seti Bréfaskáksambandsins, ICCF, sem myndu i sameiningu dæma I þessu máli. Óskað hefur verið eftir ákveðnum gögnum varðandi málið og sagði Einar að verið væri aö taka þau saman og senda utan. Einar gat þess ennfremur að A-Þjóðverjar hefðu óskað eftir þvi að tefltyrði 4. mars n.k. sem er laugardagur, en SSI er ekki til viðræðu um það mál fyrr en kæruúrskurðurinn liggur fyrir. — S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.