Þjóðviljinn - 04.02.1978, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. febrúar 1978
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis
Útgefandi: (Jtgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Pálsson
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Siðumúla 6, Simi 81333
Fréttastjóri: Einar Karl Haraidsson.
Umsjón með sunnudagsblaði: Prentun: Blaðaprent hf.
Árni Bergmann.
Velta 300 mil-
jöröum en
sleppa við skatt
Fyrr i þessari viku lagði Ragnar
Arnalds fram á Alþingi tillögu um breyt-
ingu á skattalögum. Tillaga Ragnars
miðar m.a. að þvi að tryggja, að atvinnu-
reksturinn i landinu greiði skatta af tekj-
um sinum og veltu með eðlilegum hætti en
jafnframt að létta skattbyrði lágtekju-
fólksins og lækka óbeinu skattana svo sem
söluskatt.
í greinargerð með tillögu Ragnars kem-
ur fram, að heildarvelta islenskra fyrir-
tækja er talin hafa verið um 426 miljarðar
króna á árinu 1976, þar af var velta fyrir-
tækja i félagsformi (hlutafélög,
samvinnufélög o.s.frv.) um 343 miljarðar.
Fjöldi fyrirtækja i félagsformi, sem
greiða annað hvort engan tekjuskatt eða
innan við 100 þús. krónur hvert, og ná þó
ákveðinni lágmarksstærð, reynist vera
1584 fyrirtæki á árinu 1976. Þetta er rétt
um helmingur allra fyrirtækja i félags-
formi og velta þeirra á árinu 1976 reynist
hafa verið um 160 miljarðar samkvæmt
skattskrá, eða tæpur helmingur af
heildarveltu allra slikra fyrirtækja, sem
var alls 343 miljarðar.
Greihargerðinni með tillögu Ragnars
Arnalds fylgir listi yfir öll þessi nær 1600
fyrirtæki, sem sleppa að heita má við
tekjuskatt, og er listinn unninn upp úr
upplýsingum, sem fram koma i hinni
opinberu skattskrá.
Vert er að minna sérstaklega á, að hér
eru allar tölur miðaðar við árið 1976, og
má gera ráð fyrir að væri hins vegar mið-
að við árið i ár, þá megi um það bil
tvöfalda allar upphæðir, en það þýðir að
velta hinna skattlausu, eða nær skatt-
lausu, fyrirtækja verði a.m.k. um 300
miljarðar króna.
Þetta er hvorki meira né minna en
tvöföld velta islenska rikisins.
1 greinargerð með tillögu Ragnars
Arnalds kemur einnig fram, að skatt-
greiðslur fyrirtækja i félagsformi námu
aðeins 1.6% af veltu að jafnaði, og þætti
vist flestum alþýðuheimilum i landinu,
slikt vel sloppið.
Til samanburðar bendum við á að til að
velta i ár álika upphæð og hin nær 1600
skattlausu fyrirtæki þá þarf um 100.000
heimili með 3 miljónir i árstekjur hvert
eða kr. 250 þús. á mánuði. Svo mörg
heimili eru ekki til i landinu, og slikar
tekjur eru meira en helmingi hærri en þau
lágmarkslaun, sem verkafólki er boðið
upp á.
Ætla menn svo að trúa þvi, að i allri
þessari 300 miljarða veltu fyrirtækjanna
finnist hvergi króna, sem réttlátt sé að
hirða i skatt, fremur en ráðast á launakjör
alþýðufólks?
Ragnar Arnalds segir i greinargerð
sinni: ,,Ljóst er að skýringin á þvi, að
fyrirtækin greiða almennt svo litinn tekju-
skatt, er ekki léleg afkoma, heldur eru
ástæðurnar i fyrsta lagi ivilnunarreglur
skattalaga, m.a. fyrningarreglur og vara-
sjóðsheimildir, en i öðru lagi verður að
hafa i huga, að á miklum verðhækkana-
timum koma aðeins hin neikvæðu áhrif
verðbólgunnar fram i bókhaldinu og hagn-
aðurinn telst þá að sama skapi minni, en
raunverulega er um að ræða stórfelldan
leyndan verðbólgugróða hjá flestum fyrir-
tækjum.”
Hér er einmitt komið að kjarna málsins,
sem flestir þekkja, hvernig fyrirtækin
hlaða upp stóreignum, þótt samkvæmt
bókhaldinu sé tap á rekstrinum.
1 tillögu Ragnars segir á þessa leið:
I. Fyringar atvinnutækja séu miðaðar
við eðlilegan endingartima þeirra og
ákvæði um fyrningu samkvæmt verð-
hækkunarstuðli og flýtifyrningu verði
afnumin.
II. Reglur um skattfrjálsan söluhagnað
og varasjóð félaga, svo og aðrar óeðlileg-
ar heimildir til ivilnunar verði endurskoð-
aðar.
III. Álagning tekjuskatts á fyrirtæki og
hvers konar rekstur verði greinilega að-
greind frá skáttgreiðslum þeirra, sem
eiga reksturinn. Tekjur, sem einstakling-
ar hafa úr öðrum áttum, skerðist ekki við
skattálagningu, þótt rekstur i eigu þeirra
skili bókhaldslegu tapi.
IV. Til að tryggja, að þegar á þessu ári
greiði atvinnureksturinn hæfileg framlög
til samneyslu i þjóðfélaginu, verði lagður
á sérstakur veltuskattur.
V. Álagning tekjuskatts á launatekjur
verði verulega einfölduð, og að þvi stefnt,
að tekjur verði skattlagðar jafnóðum og
þær verða til, að hjón verði skattlögð hvort
fyrir sig, að tekjur láglaunamanna verði
undanþegnar tekjuskatti, að takmörk
verði sett fyrir þvi, hve mikla vexti megi
draga frá tekjum, þannig að hámark
vaxtafrádráttar sé ákveðið árlega með
hliðsjón af meðalvöxtum, ibúðarverði og
fjölskyldustærð.
VI. Sjúkartryggingagjald verði afnum-
ið.
VII. Skapað verði sem mest svigrúm til
lækkunar óbeinna skatta til að draga úr
verðbólgu. Söluskattur verði lækkaður
verulega og innheimta söluskatts verði
hert, m.a. með þvi að nota heimildir
gildandi laga um innsiglaða peninga-
kassa.
— öll þau atriði, sem hér hafa verið
rakin koma fram i tillögu Ragnars
Arnalds. Trúlega þarf að hrinda
núverandi rikisstjórn af stóli til að fá þau
samþykkt, svo sjálfsögð sem þau þó eru.
k.
Prófkjör trujlar
ríkisstjórn
Um helgina fer fram prófkjör
Sjálfstæöisflokksins i Reykja-
neskjördæmi. Átök eru mjög
hörö og hafa þau meöal annars
komið greinilega niöur á störf-
um rikisstjórnarinnar, þar sem
fjármálaráöherrann, Matthias
A. Mathiesen, á mjög i vök aö
verjast. Hefur prófkjöriö i
Reykjaneskjördæmi meöal ann-
ars verið notaö sem viöbára fyr-
ir þvi aö rikisstjórnin geti ekki
gengiö frá ákvöröunum um
efnahagsráöstafanir: þær veröi
svo óvinsælar aö fjármálaráö-
herrann megi ekki viö þvi aö
sýna á spilin meöan prófkjöriö
stendur.
Hreppapólitík
Sá sem haröast sækir aö
Matthiasi á heimavigstöðvum
er Árni Grétar Finnsson fast-
eignasali, einn margra slikra i
Hafnarfiröi, en óviöa mun vald
fasteignasala I einu bæjarfélagi
vera jafnmikiö og I Hafnarfiröi.
Arni Grétar sækir beint aö
Matthiasi og leggur aö fólki aö
kjósa sig einan og sleppa fjár-
málaráöherranum. Báöir
leggja þeir Matthias og Arni
áherslu á að kjósendur I Hafn-
arfiröi kjósi engan utan Hafnar-
fjaröar. Samskonar niöurstaöa
mun vera á Suöurnesj-
um. Þar beita flokksmenn Sjálf-
stæöisflokksins sér fyrir þvi aö
menn kjósi aöeins Odd Ólafsson
og Eirik Alexandersson. 1 Kópa-
vogi er sama sagan uppi á ten-
ingnum: þar leggja menn
áherslu á aö þátttakendur i
prófkjörinu kjósi þá menn eina
sem eru heimilisfastir I Kópa-
vogi. Og enn mun sömu aðferð-
um beitt i Mosfellssveit og i
Garðahreppi. Taliö er liklegt aö
Oddur Ólafsson, læknir, sem
siöast skipaði 2. sætiö á íista i-
haldsins komist mjög langt I
prófkjöri þessu, verði jafnvel
efstur, en um alla aöra er mikil
óvissa. Þannig þorir enginn aö
segja fyrir um þaö meö vissu
hvor veröur ofar Matthias A.
Mathiesen eöa Arni Grétar
Finnsson og er vandséö fyrir
andstæöing Sjálfstæöisflokksins
hvor þeirra tveggja er ákjósan-
legri andstæöingur.
Tæpastur þeirra þriggja
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
i Reykjaneskjördæmi sem nú
gefa kost á sér til endurkjörs er
þó áreiöanlega Ólafur G. Ein-
arsson, sveitarstjóri, Garöa-
hreppi. Hann hefur tiltölulega
minnst hérað viö aö styöjast, og
þriöjá sætiö, sem hann skipaöi
siðast er vafasamt þingsæti I
næstu kosningum.
Prófkjörsbarátta Sjálfstæöis-
flokksins um þessa helgi snýst
eins og öll önnur prófkjör flokk-
anna um menn og hreppasjón-
armið, ekki um málefni á lands- *
visu. Þessi prófkjör eru þvi i
rauninni stórháskaleg sem for-
senda starfa alþingismanna
sem eiga auövitaöað starfa sem
þingmenn alls landsins en ekki
sem kjördæmispotarar. A þvi
hefur mjög borið i störfum Al-
þingis undanfarin ár, eöa allt
frá 1959, aö þingmenn kjör-
dæma mynduðu i raun sérstaka
þingflokka fyrir viökomandi
kjördæmi. Hreppapólitikin I
prófkjörunum leiöir menn enn
lengra á þessari braut.
Lagasetning
um prófkjör
Prófkjör Sjálfstæöisflokksins
I Reykjanesi er siöasta próf-
kjöriö sem sætir meiri háttar
tiöindum. Hver sem niöurstaöa
þess veröur er ljóst aö eftir
næstu kosningar munu allir
prófkjörsflokkarnir draga á-
lyktanir af reynslunni. Veröi út-
koma prófkjörsflokkanna betri
en ella heföi mátt gera ráð fyrir
veröur vafalaust tilhneiging til
þess aö þakka þaö prófkjörs-
slagnum. Þá eru minni likur til
þess aö hróflað veröi viö þessum
vinnubrögöum og haldiö veröi
áfram á sömu braut. Veröi út-
koman aftur á móti almennt
lakari en ella heföi mátt búast
viö eöa veröi útkoman ekki nein
visbending I þessum efnum
munu vafalaust koma upp kröf-
ur um aö marka prófkjörunum
básmeö almennri lagasetningu.
Þaö er eölilegt og ætti aö vera
samhliöa heildarlagasetningu
um störf stjórnmálaflokka þar
sem rammi þeirra er markaöur
I heild i þvi skyni að koma I veg
fyrir aö þeir stefni lýöræðinu I
hættu meö starfsemi sinni og
beitingu fjármagns i þágu ein-
stakra frambjóðenda.
Ekki sama
hver er fullur
Noröurland, málgagn Alþýöu-
bandalagsins I Noröurlands-
kjördæmi eystra, tekur til meö-
feröar I grein nýlega undarleg-
an fréttaflutning annarra Akur-
eyrarblaöa i sambandi viö
komu loönusjómanna á staðinn.
Noröurland segir: „Þó þótti
tveimur Akureyrarblöðum þaö
fréttaefni aö þeir (loönusjó-
menn) heföu ekki veriö fullir og
málaö bæinn rauðan. Islending-
ur sagöi aö þeir heföu fengiö
„bestu meðmæli hjá lögregl-
unni” og Dagur haföi þetta aö
segja:
„Frá þvi seinni part siöustu
viku gistu aöeins ellefu menn
„steininn” og þykir þaö ekki
mikiö. Bjuggust flestir viö ööru
þar sem loönuveiðiflotinn lá i
höfn á Akureyri fram á helgi, en
sjómenn voru hinir prúöustu.”
Viö lestur svona frétta (eöa
„anti-frétta”) flýgur manni i
hug hvort blöðum þessum heföi
ekki jafnvel þótt skárra aö sjó-
mennirnir hefðu deleraö og ak-
ureyrskir góöborgarar boriö
eftir þá glóöaraugu og sprungn-
ar varir. Þá heföi minna plássi
þurft aö verja I aö skýra frá
ástæöunni fyrir þvi hvers vegna
loönudráparar böröu ekki sjó.
En „sjómenn voru hinir prúö-
ustu” og mættu allir á fundi þar
sem kaupskeröingunni var
harölega mótmælt en enginn
var teljandi fullur.
En setjum nú upp annað dæmi
vegna þessarar fréttamennsku.
Segjum sem svo aö fleiri
hundruö félagar I Junior
Chamber „þjónustuklúbbnum”
heföu komiö hingaö til Akureyr-
ar og haldiö þing yfir eina helgi.
Getið þiö Imyndaö ykkur aö þá
heföi veriö sagt svo frá þeirri
heimsókn I Islendingi: „Fimm-
hundruð félagar i Junior
Chamber þinguöu á Akureyri,
en fangageymslur lögreglunnar
voru þó ekki fullar”? Varla.”
•~s.