Þjóðviljinn - 04.02.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. febrúar 1978 iÞJótíVlLJINN — SIÐA 13
sjónvarp
Stundin okkar:
Læriö aö búa til
bollur og bolluvönd
Efni Stundarinnar okkar á
morgun er að mestu leyti is-
lenskt, eins og verið hefur i vet-
ur. Litið verður inn á skátafund
hjá Snjókerlingum, en þær eru
einn af fimm flokkum innan
Spætusveitarinnar. Flokksfor-
ingjarnir Guðrún ólafsdóttir og
Jónina Magnúsdóttir segja frá
starfi skátanna. Einnig er litið.
inn á æfingu hjá telpnaflokki
fimleikafélagsins Gerplu i
Kópavogi og Berglind Péturs-
dóttir segir frá þvi sem þar fer
fram, en Berglind er tslands-
meistari kvenna i fimleikum.
Hjalti Bjarnason les myndasögu
sina Tak og brúin, en Hjalti er
aðeins átta ára gamall. Sænski
teiknistrákurinn Albin verður
lika á ferðinni.
Þá er eftir að geta um tvennt,
sem er tengt næsta degi, sem er
bolludagur. Af þvi tilefni lærum
við að búa til bolluvönd — og
bollur. I bolluvöndinn þarf hólk,
t.d. úr eldhúsrúllu, dagblað,
prik, og kreppappir i tveim til
þremur litum. Einnig þarf að
hafa við höndina skæri, lim og
nál og tvinna. í bollurnar notum
við 100 grömm af smjörliki, eina
matskeið af kakó, fjórar mat-
skeiðar af sykri, þrjá desilitra
af hafragrjónum, eina matskeið
af vatni og einn desilitra af kók-
osmjöli, þvi að þetta eru kókos-
bollur, ekki þarf að setja i ofn.
Asdls Emilsdóttir, nmsjónarmaður Stundarinnar okkar.
Hjónakornin I hermannabænum, tda og Gústaf.
Fjórði þáttur sænska sjónvarpsmyndaflokks-
ins „Röskir sveinar”, sem byggður er á sögu eft-
ir Vilhelm Moberg, veröur sýndur annað kvöld,
sunnudag kl. 21.05.
f siðasta þætti giftist Gústaf Idu, vinnukonu á
Móavöllum, og þau hefja búskap i hermanna-
bænum. Lifsbaráttan er erfið, en gæfan birðist
brosa við þeim, þegar Ida eignast fyrsta barn
sitt. í þættinum i kvöld gerist það, að farandsali
heimsækir Idu, meöan Gústaf er ekki heima, og
gerist nærgöngull við hana. Henni tekst að losa
sig við hann, en kjólefni, sem hann hafði boðið
henni, verður eftir. Farandsalinn ber út óhróður
um samband þeirra Idu, og margir verða til að
trúa honum, meðalannarra Gústaf, ekki sist eft-
ir að hann finnur kjólefnið i læk, þar sem tda
hafði sökkt þvi. Matarskortur hrjáir fjölskyldu
Gústafs og veldur óbeinlinis dauða Marteins,
yngsta sonar þeirra.
Gestaleikurinn í
síðasta sinn
Attundi og siðasti þáttur
GESTALEIKS er á dagskrá
Sjónvarpsins i kvöld kl. 20.45.
Spyrjendur i þessum siðasta
þætti verða af Vesturlandi, en
þaueru: Hansina Einarsdóttir,
Asthildur Hermannsdóttir,
Helga Sveinb jarnárdóttir,
Björgvin Óskar Bjarnason og
Stefán ólafsson.
Dregið hefur verið úr réttum
svörum við spurningu þáttarins,
„Hver er maðurinn'?” I fimmta
þætti lék stjórnandi Gestaleiks,
Ólafur Stephensen á pianó, en i
sjötta þætti var það Valdimar
örnólfsson sem söng.
Vinningshafar fimmta þáttar
voru: Erla Einarsdóttir, Mark-
arflöt 12, Garðabæ. Linda Óla-
dóttir, Viðilundi 21, Akureyri.
Halla Hjörleifsdóttir, Erlu-
hrauni 11, Hafnarfirði. Birna
Guömundsdóttir, Brekkugötu 3,
Reyöarfirði og Guðmundur M.
Jónssön, Garðabraut 45, Akra-
nesi.
Þegar dregið var úr réttum
svörum við spurningu sjötta
þáttar, komu eftirtalin nöfn
upp: SigriðurErla Bjarnadóttir,
Yrsufelli 7, Reykjavik. Eyjólfur
Guðbrandsson, Viðihvammi 5,
Kópavogi. Þuriður Björnsdóttir,
Vitabraut 9, Hólmavik. Anna
Birna Ragnarsdóttir, Austur-
götu 4, Stykkishólmi. Sigrún
Thorarensen, Freyvangi 16
Hellu,-
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfími kl. 7.15 og
8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Tilkynningar kl. 9.00. Létt
lög milli atriða. óskalög
sjúklinga kl. 9.15: Kristín
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
Barnatimi kl. 11.10: Mar-
grét Erlendsdóttir stjórnar
timanum. Sagt frá norska
landkönnuðinum og mann-
vininum Friðþjófi Nansen
og lesið úr bókum hans.
Lesarar með umsjónar-
manni, Iðunn Steinsdóttir
og Gunnar Stefánsson.
15.00 Miðdegistónleikar Gér-
ard Souzay syngur lög úr
„Vetrarf erðinni” eftir
Schubert. Dalton Baldwin
leikur á pianó.
15.40 Islenskt mál Dr. Jakob
Benediktsson flytur þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Enskukennsla (On We
Go) Leiðbeinandi: Bjarni
Gunnarsson.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Antilópu-
söngvarinn” Ingebright Da-
vik samdi eftir sögu Rutar
Underhill. Þýð.: Siguröur
Gunnarsson. Leikstjóri:
Þórhallur Sigurösson. Þriðji
þáttur: Indiánarnir koma.
Persónur og leikendur:
Ebeneser/ Steindór Hjör-
leifsson, Sara/ Kristbjörg
Kjeld, Toddi/ Stefán Jóns-
son, Malla/ Þóra Guörún
Þórsdóttir, Emma/ Jónina
H. Jónsdóttir, Nummi/ Arni
Benediktsswi. Aðrir leik-
endur: Kuregei Alexandra
og Ása Ragnarsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Ný vakning I æskulýös-
starfi.Ingi Karl Jóhanness.
ræðir við séra Halldór S.
Gröndal.
20.00 Tónlist eftir Richard
Wagner a. Forleikur að
þriðja þætti óperunnar
„Meistarasöngvararnir i
Nurnberg”. b. Þættir úr
óperunni „Tristranog Isól”.
c. Hljómsveitarþáttur um
stefúr óperunni „Siegfried”
(Sigfried-Idyll). NBC Sin-
fóniuhljómsveitin leikur,
Arturo Toscanini stjórnar.
20.45 TeboðSigmar B. Hauks-
son fær tvo menn til umræöu
um ættjaröarást og þjóö-
erniskennd, Erni Snorrason
og Heimi Pálsson.
21.40 Svita nr. 1 op. 5 eftir
Rakhmaninoff Katia og
Marielle Labeque leika fjór-
hent á pianó.
22.00 tJr dagbók Högna Jón-
inundar Knútur R. Magnús-
son les úr bókinni „Holdið er
veikt” eftir Harald A.
Sigurðsson.
22.20 Lestur Passiusálma
Sigurður Arni Þóröarson
nemi i guðfræöideild les
(11).
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
16.30 IþróttirUmsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
18.15 On We Go. Ensku-
kennsla. Fjórtándi þáttur
endursýndur.
18.30 Saltkrákan (L). Sænskur
sjónvarpsmyndaflokkur. 5.
þáttur. Þýðandi Hinrik
Bjarnason. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Alþjóðlegt skákmót i
Reykjavik, Ingvar As-
mundsson og Jón Þorsteins-
son skýra skákir úr mótinu.
20.45 Gestaleikur (L)
Spurningaleikur.
Umsjónarmaður Ólafur
Stephensen. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
21.25 Dave Allen lætur móðan
mása (L). Breskur gaman-
þáttur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
22.10 Elskendur og aðrir
vandalausir (Lovers and
Other StrangersXBandarisk
gamanmynd frá árinu 1970,
byggð á leikriti eftir Joseph
Bologna og Renee Taylor.
Aðalhlutverk Beatrice Art-
hur, Bonnie Bedelia,
Michael Brandon og Gig
Young. Söguhetjurnar eru
hjónaleysin Mike og Susan.
Senn liöur aö brúðkaupi
þeirra, og Mike er farinn að
efast um, að hjónabandið
muni eiga viö hann.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
23.50 Dagskrárlok,
Málfrelsissjóöur
minnir á heimsenda giróseðla sem greiða
má i hverri bankastofnun og pósthúsi.
Póstgirónúmer Málfrelsissjóðs er 31800.
Málfrelsissjóður
Laugavegi 31, simi 29490