Þjóðviljinn - 04.02.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 04.02.1978, Blaðsíða 16
* DMÐVIUINN Laugardagur 4. febrúar 1978 V,. Aöalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. Geir kallar fulltrúa ASÍ á sinn fund Forsætisráöherra boöaöi aöilja vinnumarkaöarins til fundar viö sig I gær á hinum ýmsu timum. Fulltrúar Alþýðusambandsins mættu hjá ráöherra klukkan fjögur og stóð fundur þeirra með ráöherra I hálfa klukkustund. Aö sögn Snorra Jónssonar, varaforseta ASI, gaf ráöherrann ekki neinar yfirlýsingar um þær aðgerðir, sem i vændum kynnu aö vera hjá rikisstjórninni. -úþ Hafrún BA 400 í Náðist á flot í annarri tilraun Kom inn til Bíldudals í gœrmorgun Úr bréfinu „sem stungiö var undir stól” Embættis- mennirnir týnast „Mér er ekkert ánægjuefni aö þurfa aö kæra svona háttarlag fyrir boragráöi, en okkur þykja þessi vinnu- brögö svoleiöis aö þaö sé skylda okkar. Borgarráö er blekkt, fyrirmæii borgar- stjóra hundsuö, skjöl látin hverfa og embættismennirn- ir „týnast”. A meöan þetta gerist eru aö renna út mögu- leikar okkar til aö gæta hagsmuna okkar.” Þannig kemst Þorkell Valdemarsson aö oröi I bréfi til borgarráös sem hann skrif ar fh. eigenda Aöalstrætis 8—16. Mun þetta aö Hkindum vera bréf það, sem Páll Lin- dal, borgarlögmaöur fyrrv., segir aö fullt sé af ásökunum og stungið hafi verið undir stól af stjórnendum borgar- innar án þess aö vera rætt i borgarráði. Aö sögn Sigurjóns Péturs- sonar, borgarráösmanns Alþýöubandalagsins, barst þetta bréf inn á borgarráðs- fund, sem stýrt var af- Alberti GuÖmundssyni. Mun innihald bréfsins hafa veriö kynnt á fundinum, en Sigur- jón sat ekki þennan fund borgarráös. Bréfiö var ekki bókaö. Sigurjón tók fram, aö slikt væri ekki einsdæmi og gæti átt slnar eölilegu skýr- ingar. I bréfi þessu fjallar Þor- kell um frammistööu starfs- manna borgarinnar vegna gagnaöflunar hans út af skipulagi Hállærisplansins, en Þjóðviljinn skýröi frá hugmyndum Þorkels þar aö lútandi á dögunum. —úþ Vélbáturinn Hafrún BA 400 strandaöi í Arnarfiröi aöfararnótt s.l. fimmtudags. Sex manna áhöfn bátsins var bjargaö, og sólarhring eftir strandiö tókst aö ná bátnum aftur á flot. Tilkynning um strandið barst rétt fyrir kl. 4 um nóttina, en Hafrún var þá á leið i land úr róöri. Fljótlega kom varöskip á strandstaðinn, og litlu siöar björgunarsveit Slysavarna félagsins á Bildudal. Þar sem skipið tók niöri, viö Hellu i Austmannsdal, er klettótt mjög og mikiö um sker. Af þeim sökum varð geysilega mikill hávaöi þegar báturinn tók niðri, og I fyrstu héldu skipverjar að hann væri hreinlega aö liöast i sundur. En þaö fór betur en á horföist, og voru mennirnir aldrei i bráöri lifshættu. A flóöinu i fyrradag, um kl. 15.00, var reynt aö ná bátnum á flot, en þaö mistókst. Vlr, sem komið hafði veriö fyrir milli Hafrúnar og varðskipsins, slitnaöi með þeim afleiðingum að einn varðskipsmanna slasaöist svo að öruggara þótti að flytja; hann flugleiðis til Reykjavikur. i Einn af skipverjum Hafrúnar mun lika hafa marist illa þegar vírinn slitnaöi. Á seinna flóöinu um kl. 3 i. fyrrinótt tókst svo að ná bátnum á flot og var komið meö hann inn til Bildudals um áttaleytið i gær- morgun. < Nokkur leki haföi komið að bátnum og var rækjubáturinn Helgi Magnússon sendur til móts við skipin meö dælu frá slökkvi- liðinu, þar sem illahaföist undan að dæla sjó úr Hafrúnu 1 gær var unniö aö þvi aö kanna skemmdir á bátnum, og rqynt aö j þétta lekann og dæla sjó úr hbn- um. Agætt veður var á meöan björgunaraðgeröir stóðu yfir, en Framhaid á 14. siöu I Ferdaskrifstofan Útsýn: Vill mótmæla fullyrðingum formanns Norræna félagsins ERLENDAR FRÉTTIR / stuttu máfí i Andreotti stefnir að myndun bráðabirgðastjórnar RÓM 3/2 Reuter — Haft er eft- ir heimildum i Róm aö Giulio Andreotti, fráfarandi for- sætisráðherra, sem reynir nú að mynda nýja stjórn, hafi lagt fram tillögu um bráða- birgðarikisstjórn, sem verði að visu eingöngu skipuð kristi- legum demókrötum sem frá- farandi stjórn, en hinsvegar fái kommúnistar miklu meiri hlutdeild á ákvörðunum um stefnu stjórnarinnar en fyrr. Að sögn er gert ráð fyrir þvi I tillögum Andreottis að sex flokkar veiti þessari stjórn stuðning. Samkvæmt tillögunum fá kommúnistar og aðrir fyrir- hugaðir stuðningsflokkar bráðabirgðastjórnarinnar meðal annars hlutdeild i mót- un utanrikisstefnu Itallu, og veröi þetta aö samkomulagi, verður það i fyrsta sinn slöan 1947, þegar kommúnistar hurfu úr rikisstjórn ítala, aö þeir fá aöstööu til áhrifa á utanrikismál landsins. Ambassador Vietnams hjá SÞ vísað ár landi i Bandaríkjunum WASHINGTON 3/2 Reuter — Bandarikjastjórn visaöi I dag úr landi ambassador Vietnams hjá Sameinuöu þjóðunum, og er þetta I fyrsta sinn að Bandarikjamenn vísa aðalfulltrúa nokkurs aöildar- rikis S.þ. úr landi. Ber stjórnin ambassadornum á brýn að hann sé viðriðinn njósnamál, sem nú er á döfinni i Banda- rikjunum. Eru vietnamskur hagfræðingur og starfsmaöur Upplýsingaþjónustu Banda- rlkjanna sakaðir um njósnir fyrir Vletnam. Sá slöarnefndi er bandariskur. Gagnsókn Eþíópía að hejjast? MOGADISHU 3/2 Reuter — Vestrænir sendiráðsmenn I Mogadishu, höfuðborg Sómalílands, telja að her Eþlópíustjórnar sé að hefja gagnsókn gegn Sómölum i Ogaden-striðinu. Að sögn Sómala gerir eþlópiski flugherinn nú harðar árásir með sprengjukasti og vélbyssuskothriö á stöövar Sómala austur af Harar og langt suöur eftir Ogaden-eyði- mörk. Beita Eþlópar I árásun- um bæði flugvélum af gerðun- Leber farinn frá BONN 3/2 Reuter — Helmut Schmidt, sambandskanslari Vestur-Þýskalands, skipaði I dag Hans Apel, fyrrum fjár- málaráöherra, varnarmála- ráðherra I staö Georgs Leber, sem sagöi af sér vegna hlerun- arhneykslisins svonefnda, um Mig-21 og Mig-23, sem þeir hafa nýlega fengið frá Sovét- mönnum, og þotum af gerö- inni F-5, sem þeir fengu frá Bandarikjunum meöan allt lék I lyndi milli Bandarikj- anna og Eþlóplustjórnar. Eþíóplski landherinn hefur einnig að sögn hafiö sókn austur eftir meðfram veginum frá Harar og þegar sótt fram um fimm kilómetra. Sókn Sómala stöðvaöist loks viö Harar, eftir aö þeir höföu unn- iö Ogaden og fleiri svæöi I Eþfóplu sunnanverðri. sem leyniþjónusta hersins og þar með varnarmálaráöu- neytiö er flækt I. Jafnframt létu þrlr aðrir ráðherrar úr flokki sósialdemókrata af em- bætti, og hefur Schmidt skipað yngri menn i þeirra stað. Vegna viðtals, sem birtist I Þjóðviljanum við Hjálmar ólafs- son, formann Norræna félagsins, þar sem það kom fram, að félagið hyggist hætta viðskiptum við Ferðaskrifstofuna Útsýn.sem séö hefur um Norðurlandaferðir féiagsins um árabii, og ætli Norrænafélagiö sjálft að annast þessar ferðir, boðaði Ingólfur Guðbrandsson til blaðamanna- fundar þar sem hann mótmælir m.a. þeirri fullyrðingu formanns NF að félagið geti boðið hagstæð- ari fargjöld en Otsýn gat útvegað félagsmönnum NF.Oghann benti á að félagið hefði ekki ferðaskrif- stofulcyfi, og gæti þvi ekki boðiö jafn hagstæð fargjöld og útsýn. Og Ingólfur sagði m.a.: „Égfékk þaö staöfesthjá Flug- leiöum i dag, aö engir sérsamn- ingar hafa veriö geröir viö Norræna félagiö um fargjöld, og á Norr.fél. ekki kostá neinum öör- um fargjöldum en þeim, sem standa hvers konar félagssam- tökum til boöa, sé vissum skilyrö- um fúllnægt. Fréttir af feröaþjónustu Norræna félagsins i fjölmiölum aö undanförnu eru þess eölis, aö Feröaskrifstofan Útsýn hlýtur aö mótmæla þeim á opinberum vett- vangi. Formaöur félagsins, Hjálmar ólafsson, lætur hafa eftir sér i Þjóöviljanum hinn 29. jan sl. aö meö þvi aö skipta ekki við férðaskrifstofu hyggist Norr. fél. halda fargjöldum eins lágum og unnt sé og aö feröir þeirra séu ódýrustu Noröurlandaferðir, sem völ er á. Fargjald þaö, sem til- greint er i frétt þessarVer ekki i gildi og er löngu úrelt. Hér er þvi miölaö villandi upplýsingum, hvort sem um er aö kenna fá- kunnáttu eöa visvitandi blekking- um. Hins vegar er I gildi svo- nefn t Topp-fargjald, sem er iægra en hópferöagjald Norræna félags- ins og auk þess hagstætt ein- staklingsfargjald, sem gildir I 8-21 dag og er einnig mun lægra, þegar hjón eða fjölskylda feröast saman. Feröaskrifstofan ÚTSÝN hefur árum saman annast þjónustu viö farþega til Noröurlanda, bæöi einstaklingaog hópa ogm.a. fyrir félagsmenn Norræna félagsins. Vegna þessarar þjónustu, sem að öllu leyti var kostuö af Feröa- skrifstofunni Útsýn, en fram fór aöverulegu leyti i nafni Norræna 1 félagsins, viö miklar vinsældir, má fullyröa að félagatala Norr.fél. hafi aukist verulega á siðari árum. Jafnframt innheimti útsýn aukagjald af farþegum Norr.félagsins, sem runniö hefur óskert til félagsins og veriö þvi dr júgt búsllag, þvi aö sú upphæö nemur mörgum miljónum króna á undanförnum árum. Feröaskéifstofan Útsýn mun eftir sem áöur hafa á boöstólum fjölbreytt úrval feröa til Norður- landanna á lægstu fargjöldum, sem I gildi eru á hverjum tima. Verða fargjöld þessi hlutfallslega lægri en áöur, þar eö umrætt gjald til Norræna félagsins fellur niöur. Steinunn Sæmundsd. í 29. Steinunn Sæmundsdóttir keppti I svigi I Þýskalandi i gær og varð I 29. sæti sem verður að teljast ágætur árangur. Keppendur voru á milli 70 og 80. Má geta þess að besta ame- rlska stúlkan, Cindy Nelson, varö næst á eftir Seinunni, en næstar á undan henni uröu 2 norskar stúlkur. Frakkar flœktir í tvö Afrikustríð PARÍS 3/2 — Frolinat, upp- reisnarhreyfing landsmanna i norður-hluta Miö-Afrikurikis-' ins Sjad, hefur hertekið helsta flugvöllinn I norðurhluta landsins. Segja talsmenn i Parls að skæruliðar hreyfingarinnar, sem eru um 1000 talsins, séu nú hvarvetna I sókn og hafi fellt um 100 manns af stjórnarher Sjad sið- ustu tvo dagana. FÝolinat tilkynnti einnig aö þrlr franskir hernaöarráö- gjafar á vegum Sjad-stjórnar heföu farist, er skæruliöar skutu niöur eina af fhitninga- flugvélum stjórnarinnar. Þá er hermt að skæruliöar hafi handtekiö tvo unga Evrópu- menn, Frakka og Sviss- lending, og krefjist mikillar fjárfúlgu i skiptum fyrir þá. Jafnframt kváöu skæruliöar gera þaö aö skilyrði fyrir þvi aö mönnunum sé sleppt aö Frakkar kalli heim alla hern- aðarráögjafa sina I Sjad, en þeir eru sagðir vera um 300 talsins. Borgarastrlöiö i Sjad hefur staöið yfir i mörg ár. Land þetta er mjög strjálbýlt, eink- um norðurhlutinn sem liggur i Sahara. íbúar þar norður frá eru Múhameöstrúarmenn, og eruþeir óánægöir meö yfirráö. sunnlendinga, sem eru ýmist kristnir eöa heiðnir blökku- menn. Frakkar studdu Sjad- stjórn lengi meö beinni þátt- töku í ófriönum og höföu þar til fyrir fáum árum um 6000 manna her I landinu. Þessir siöustu atburöir i Sjad hafa oröiö til þess aö beina athyglinni að Itökum Frakka I hinum ýmsu Afriku- rikjum, sem áöur voru fransk- ar nýlendur og eru enn mjög háð Frökkum efnahagslega. Frakkar hafa eins og stendur herstöðvar i Djibúti, Gabon, Filabeinsströnd og Senegal. Þeir taka þegar beinan þátt I skærustriöi Máritaniu og Marokkó gegn skæruliöum Polisario I Vestur-Sahara, og fara franskar Jaguarflugvélar daglega I árásarferöir Æegn skæruliöunum frá bækistöð Frakka viö Dakar i Senegal.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.