Þjóðviljinn - 11.02.1978, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. febrúar 1978
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraidsson.
Umsjón með sunnudagsblaði:
Árni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn
Pálsson
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Siðumúla 6, Simi 81333
Prentun: Blaðaprent hf.
Alþingi göt-
unnar” taki í
taumana
Að kvöldi 9. febrúar hófust umræður á
alþingi að frumkvæði Gylfa Þ. Gislasonar,
formanns þingflokks Alþýðuflokksins og
Ellerts B. Schram, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, um laun alþingismanna.
Þessar umræður snerust um það hverjir
ættu að ákveða kaup alþingismanna, en
þeir munu nú hafa milli 3 og 4 hundruð
þúsund krónur á mánuði. Þegar liðið var
að miðnætti og menn höfðu látið gamminn
geysa um kaupið sitt var lagt á borð þing-
manna nýtt frumvarp um kaup annarra i
þjóðfélaginu. Þetta frumvarp fól það i sér
að lækka allt almennt kaup að raungildi
um 10-12%.
Þessi aðdragandi frumvarpsins um
allsherjarkauplækkun láglaunafólks er
einkar vel við hæfi: alþingi íslendinga er
breytt i leikhús, og þeir sem hafa þróað
kimnigáfu sina með þvi að lesa f jarstæðu-
höfunda,kunna ef til vill að hafa gaman af
þeim verkum sem flutt eru i leikhúsinu við
Austurvöll. Almenningur telur hins vegar
að þessi framkoma sé til marks um sið-
leysi.
Frumvarp rikisstjórnarinnar um efna-
hagsráðstafanir er flutt i kjölfar gengis-
lækkunarinnar um 13% i einu lagi auk
gengissigs frá áramótum. Með gengis-
lækkuninni var svindlurunum sem eiga
miljónatugi erlendis gefið stórfé: þannig
mun sá maður sem þekktastur er um
þessar mundir fyrir tugthúsvist hafa
grætt á einni nóttu a.m.k. 3 miljónir
króna, en hann bauð sem kunnugt er 20
miljónir króna — fyrir gengisfellingu — úr
svissneskum banka. Allir aðrir sem eiga
eignir erlendis, hafa grætt stórfé með einu
pennastriki, til dæmis vaxa eignir Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna i Banda-
rikjunum um hundruð miljóna um leið og
gengið er fellt á íslandi. Jafnframt hefur
gengisfellingin þau áhrif að allt verðlag i
landinu hækkar og verðbólgan magnast,
en þessar verðhækkanir á almenningur að
bera bótalaust, og meira til: Það er ætl-
unin að stela 10-12% af kaupinu. Meira en
tiundu hverri krónu á að stela frá launa-
fólki, þvert á alla kjarasamninga, þeir
margbrotnir þrátt fyrir alvarleg mótmæli
allra verkalýðssamtakanna. Með gengis-
fellingunni, verðbólgunni og kauplækkun-
inni er rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar
og Ólafs Jóhannessonar ber að þvi að
þverbrjóta allar eðlilegar samskipta-
reglur stjórnarvalda og verkalýðshreyf-
ingarinnar. Það gerir hún ekki af mann-
vonsku einstakra ráðherra, heldur vegna
þess að rikisstjórnin stendur vörð um rán-
fuglana, hagsmuni þeirra og gróða af
gjaldeyrisreikningum og ódýru vinnuafli.
Niðurstaða allra launamanna eftir
árásarfrumvarp rikisstjórnarinnar hlýtur
að verða krafa um að húnviki vegna þess
að stefna hennar beinist gegn hagsmunum
mikils meirihluta landsmanna. Eftir þá
reynslu sem fengist hefur af rikisstjórn
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins ætti hverjum launamanni að
vera Ijóst að hvert einasta atkvæði sem
þessir flokkar fá i kosningunum á næsta
vori felur i sér svik við málstað verkalýðs-
ins. Stuðningur við þessa flokka felur i sér
yfirlýsingu um að þeir eigi að halda áfram
að lækka kaupið, lækka gengið, lækka
skuldirnar i bönkunum, til þess að hækka
gjaldeyrisinneignirnar erlendis, hækka
verðbólgufjárfestinguna hér á landi i
verði og til þess að geta haldið áfram að
magna verðbólguna sem aðalgróðatæki
auðstéttarinnar. Verkalýðshreyfingin
mun mótmæla kaupráninu af fyllsta
þunga eins og mun koma i ljós þessa dag-
ana. 1 rauninni væri eðlilegasta svar
verkalýðssamtakanna i tengslum við mót-
mælin að skora um leið á allt launafólk að
snúa baki við kaupránsflokkum Geirs
Hallgrimssonar og ólafs Jóhannessonar.
1 upphafi var minnst á þann sirkus sem
átti sér stað á alþingi i fyrrakvöld að
frumkvæði Gylfa Þ. Gislasonar og Ellerts
Schram. Það er augljóst af þessum sirkus
og öðrum vinnubrögðum alþingis að
undanförnu og af stefnu rikisstjórn-
arinnar að það er kominn timi til að fólkið
sjálft taki i taumana og það þegar i stað.
Nú þarf að kveðja til „alþingi götunnar”
fólkið sjálft, til þess að sýna fram á þá
pólitisku staðreynd að íslandi á ekki að
vera unnt að stjórna með kaupkúgunar-
lögum i andstöðu við verkalýðs-
hreyfinguna. „Alþingi götunnar” þarf að
sýna hrokagikkjum valdsins við Austur-
völl hver það er sem ræður úrslitum um
allt efnahagslif þessa þjóðfélags: Þeir
sem framleiða, þeir sem vinna, þeir eru
meirihluti þessarar þjóðar.
Þjóðviljinn heitir á allt launafólk að
beita öllum ráðum til þess að hrinda árás
rikisvaldsins. Með samstöðunni er unnt að
stöðva kaupránið.
—s.
Mikilvœgur
ketfisleki
NU væri ástæöa til að gefa Vil-
mundi Gylfasyni (h)rós í
hnappagatið eins og Alþýðu-
blaöið gerði án aðstoðar frá er-
lendum krötum hér áður fyrr.
Greinar hans f Dagblaðinu hafa
verið eins og Utspiluð plata i
vetur, eintómar endurtekningar
Vilmundur
á fullyrðingum um spillingu i
kerfinu, án þess að þeim fylgdu
harðar staöreyndir sem styddu
mál hans. Slik skrif veröa svæf-
andi og verka öfugt ef ekki tekst
að sanna þau með dæmum.
Eftir þennan tómagang tekst
Vilmundi nú að hagnýta sér
mikilvægan kerfisleka og séu
upplýsingar hans um banka-
innistæður Jóns Sólnes, alþing-
ismanns, og fjöiskyldu hans i
Danmörku, réttar, er framlag
hans afar lofsvert.
Ekki getur hann þó stillt sig
um að nota tækifærið til þess aö
skjóta inn i afhjúpunina á þing-
manninum, fúkyrðaflaumi um
Þjóðviljann. Engin ástæða er til
þess að elta ólar við þau um-
mæli, enda stafa þau svo aug-
ljóslega af geðvonsku yfir þvi að
það var Þjóðviljinn sem fyrstur
birti fréttina um að Jón Sólnes
væri á „danska” listanum og
vakti athygli á þvi að hann neit-
aði þvi ekki.
Það sem máli skiptir er að
kerfislekinn til Vilmundar er
mikilvægur vegna þess að nú
geta embættismenn, bankakerf-
ið og rikisstjórnin ekki lengur
staðið gegn þvi að „danski list-
inn” verði birtur. Það er órétt-
látt að Jón Sólnes þurfi einn að
sitja uppi með skömmina, ef|
upplýsingar Vilmundar eru<
réttar. Það er einnig ástæða tilf
þess að taka undir þá kröfu að
mál þingmannsins verði tekið til
sérstakrar opinberrar rann-
sóknar, þar sem svara verði
leitað við þeirri spurningu hvað-
an geymslufé hans i Danmörku
sé runnið.
Skoðanakúgun
hjá borginni
Það er alkunna að flestir hátt-
settir menn i störfum á vegum
borgarinnar eru flokksbundnir
Sjálfstæöismenn. Borgarstjóri
og meirihluti borgarstjórnar
hafa á siðustu áratugum byggt
upp lævisleg skoöanakúgunar
kerfi i stofnunum á vegum borg-
arinnar. Fyrir kosningar beita
margir af deildarstjórum og
forstööumönnum stofnana
Birgir tsleifur: Lævlsleg skoft-
anakúgun
áhrifum sinum á starfefólk i
þágu Sjálfstæðisflokksins.
Starfsfólkið óttastum stöðu sina
og f rama, ef það gerist ekki viö-
hlægjendur sinna yfirmanna.
Þess utan hefur borgarstjóri á
sinum snærum sérstaka trún-
aðarmenn á stórum vinnustöö-
um — sem ganga undir nafninu
„snuörarar”, og virðast ekki
hafa ýkja umfangsmikil störf
önnur en aö þefa upp pólitfekar
skoðanir fólksins sem hjá borg-
inni vinnur.
Þetta er rifjað upp hér vegna
þessað um helgina veröur kosið
til stjórnar i Starfsmannafélagi
Reykjavikurborgar. I „Nýrri
hreyfingu” er fólk úr öllum
flokkum sem með framboði sinu
vill mótmæla vinnubrögöum nú-
verandi stjórnar. Meö aðferðum
sem aö ofan er lýst verður reynt
að bregða fæti fyrir þetta fólk.
Kristján ögmundsson.einn liös-
manna „Nýrrar hreyfingar”
lýsir vandanum við mótfram-
boðið á þennan hátt i Þjóðvilj-
anum i gær:
„Já, fólk hefur tekið þessu vel
og margir hétu okkur stuðningi i
kosningunum, þótt þeir væru
ekki reiðubúnir til að gerast
meömælendur. Sá hugsunar-
háttur verðist enn við lýði, eink-
um meðal eldri borgarstarfs-
manna, aðþeirvilja ekki blanda
sér i neitt sem getur orðið þeim
til trafala i starfi, þora það bók-
staflega ekki.”
Mikill er máttur ihaldsins.
Fagleg samstaða gegn pólitisku
taki þess i félagi borgarstarfe-
manna verður þó sterkara að
lokum, þóttstriðið vinnistekki
i fyrstu lotu.
Guðmundur G.
vill flokksvélina
líka
Þrátt fyrir vikulanga smölun
tókst aðeins að fá um 80 manns
á aðalfund Félags ungra Fram-
sóknarmanna i Reykjavik, sem
haldinn var i húsnæði Kjötsog
fisks i Breiðholti i fyrradag til
þess að styrkja stöðu Alfreðs
Þorsteinssonar og fráfarandi
stjórnar i hörðum stjórnarkosn-
ingum. Alfreð og Co varð undir
og tapaöi formannskjörinu fyrir
Eríki Tómassyni og frambjóö-
anda hans og mági, Birni Lin-
dal, háskólanema, með 52 gegn
32. Stjórnin var siðan öll hreins-
uö út en Alfreö og Sveinn Jóns-
son, sonur Jóns Aðalsteins,
kaupmanns, fengu fyrir náð að
fljóta inn i fulltrúaráð Fram-
sóknarfélaganna á vegum FUF.
Þar sem kvenfélag Fram-
sóknarmanna er undir handar-
væng Gerðar Steinþórsdóttur
þykjist nú sá armurinn sem
Guðmundur G. Þórarinsson
stjórnar i Framsókn i Reykja-
vik vera vel i stakk búinn til
þess að velta Kristni Finnboga-
syni úr valdastóli á aðalfundi
Framsóknarfélagsins á næst-
unni og Jóni Aðalsteini Jónssyni
úr formennsku i fulltrúaráðinu i.
komandi kosningum i þessum
„apparötum” á næstunni og ná
undir sig flokksvélinni. Hylli
Guðmundur G.
lika.
vill Bokksvélina
flokksforystunnar snýst á sveif
með þeim sem nú berjast til
valda. Enkraftaverkamaðurinn
hefur ýmis tromp á sinni hendi
og verður þungt fyrir að lyfta
honum úr stóli. -ekh