Þjóðviljinn - 11.02.1978, Page 14

Þjóðviljinn - 11.02.1978, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. febrúar 1978 10-eyringurinn beðinn afsökunar „Mönnum getur skjátlast þótt þeir séu I kórnum”. Þannig hljóft- ar fræg setning höfð eftir Marka- Leifa sáluga (Hjörleifi Sigfús- syni). En svo getur mönnum lfka skjátlast þótt þeir séu ekki I kórn- um. Það var nefnilega missagt hér i blaðinu i fyrradag, að „silf- ur”—peningarnir, sem dreift var fyrir framan Alþingishúsið og Landsbankann hafi verið 10 eyr- ingar, þótt þeir bæru óneitanlega nokkurt svipmót af þeirri gömlu og góðu mynt, a.m.k. hvað um- málið áhrærði. En þetta voru nú óvart þær illræmdu álkrónur, öðru nefni Nordalir, sem bæði fljóta á vatni (og þýðir þvi ekki einu sinni að henda f Peningagjá) og fjúka í minnsta andvara. Er ekki nema sjálfsagt að biðja 10-eyringinn afsökunar á því að orða hann við álkrónu. —mhg Tónleikar í Bústaðakirkju I dag, laugardag, verða haldn- ir tónleikar i BUstaðakirkju. Flytjendur eru Camilla Söd- erberg sem leikur á blokk- flautur og Snorri örn Snorrason á iútu og gitar. Flutt verður tónlist frá Renaissance og Barock-tima- bilinu og einnig verk eftir 20. ald- ar tónskáldin Eric Stokes, Hans Martin Linde og Benjamin Britt- en. Camilla Söderberg er fædd i Stokkhólmi, en stundaði tónlist- arnám i Vinarborg þar sem hún lauk burtfararprófi i blokkflautu- leik frá tónlistarháskólanum þar i borg árið 1970, en stundaði siðan íramhaldsnám hjá Hans Maria Kneihs við sama skóla. Snorri örn Snorrason lauk burtfarar- prófi frá tónlistarháskólanum i Vinarborg vorið 1976 og hafði þá stundað gitarnám i 5 ár hjá próf. Karl Scheit sem er mjög þekktur fyrir störf sin sem kennari og út- gefandi. S.l. 2 vetur hafa þau stundað framhaldsnám i Basel, Camilla við hinn þekkta skóla fyrir gamla tónlist „Schola Can- torum Basiliensis” og Snorri hjá hinum fræga gitar- og lútuleikara Konrad Ragossnig. Tónleikarnir hefjast kl. 4 og fást aðgöngumiðar við innganginn. Camilla Söderberg og Snorri örn Snorrason. Tillaga þingmanna úr öllum flokkum: Kortabók íslands verði gefin út „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórninaað hafa forgang um útgáfu kortabókar Islands” Þannig hljóðar þingsályktunar- tillaga sem þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram. Þing- mennirnir eru Sverrir Hermannsson, Ingvar Gislason, Gils Guðmundsson, Eggert G. Þorsteinsson og Karvel Pálma- son. I greinargerð með tillögunni segja flutningsmenn: „Kortabók Islands verður safn korta af Islandi, þar sem margs konar fróðleikur um land og þjóð er settur fram á myndrænan hátt. Þjóðlandaatlasar hafa verið gefnir út i velflestum Evrópu- löndum, þ.ám. Norðurlöndum, en auk þess i mörgum löndum i öðr- um heimsálfum. Fyrsta korta- bók, sem út var gefin af þessu tagi, var Finnlandsatlas, sem gefinn var út 1899, en hefur verið gefinn út þrisvar sinnum siöan. Hefur slik útgáfa hvarvetna verið talin hin mesta nauðsyn, til að auka þekkingu á iandsháttum. Arið 1976 kom út kortabók yfir öll Norðurlönd (Norden i textoch kartor). Að undanskildum nokkrum þáttum náttúrufars eru nær engarupplýsingar um ísland i kortabókinni. Oftast er einungis ein stærð eða tala yfir allt landið, þar sem upplýsingar eru birtar eftir umdæmum i hinum löndun- um. Kortabókini er ætlað að að vera upplýsinga- og heimildarrit i þágustjórnvalda, stofnana, fyrir- tækja og einstaklinga, sem fást við margs konar áætlanagerð varðandi byggð, atvinnulif og landnýtingu. Er þar átt við nýt- ingu lands til búskapar, ýmiss konar verklegra framkvæmda, samgangna, almenningsnota og náttúruverndar. Kortabókin verður gagnlegt heimildarrit fyrir innlenda og erlenda fræðimenn sem stunda rannsóknir á ýmsum fræöasvið- um. Enn fremur yrði bókin mikil- væg fyrir fjölmarga aðra, sem vilja kanna útbreiðslu ýmiss konar fyrirbæra til lands og sjáv- ar og athuga samhengi þeirra á milli. Síðast en ekki sist er ótalið menntunargildi bókar af þessu tagi. Hún yrði notuð af kennurum og nemendum í framhaldsskólum og á háskólastigi og yrði handbók eða uppsláttarritfyrirkennara og nemendur I efstu bekkjum á grunnskólastigi. Til þess að ná þeim árangri, sem að framan er getið, er fyrir- hugað að setja fram á kortum og á annan myndrænan hátt ýmis einkenni lands og þjóðar. Þar á meðalmá nefna náttúrufar, sögu, atvinnulif, félagsmál og menningarmál.” ' Hann er glaðlegur, hópurinn sá. Anægjuleg heimsókn Síöastliðinn fim mtudagsmorg- un fengu Þjóðvilj amenn skemmtilega heimsókn i Siðu- múlann. Voruþar á ferð nemend- ur úr Vighólaskóla i Kópavogi, ásamt einum kennara sinum, Helgu Sigurjónsdóttur. Gengu þeir hér um garða góða stund, skoðuðu húsakynnin og létu spurningum rigna yfir blaða- menn. Nemendur höfðu meðferö- is skólablað sitt Kóp, hið myndar legasta að efni og allri gerð. Segir svo I formálsorðum ritnefndar: „Nú er komið út skólablað Vig hólaskóla, Kópur, baráttutæki okkar nemenda á andlega svið- inu. I blaðinu er vonandi efni við þitt hæfi og er þá stefnumarkmiði þess að nokkru náð. Ritnefnd hefur skrifað þvi sem næst allt efni blaðsins utan nokkurra greina. Ritnefnd þakkar öllum þeim, sem hönd lögðu á plóginn við að koma þessu blaði út, hvort sem hjálpin kom i efni sendu blaðinu eða aðstoð við setningu þess. Blaðið hefði tæplega komið út án þess framlags. Sérstakar þakkir fær Hörður óskarsson fyrir söfnun auglýsinga i blaðið en þær námuum 200 þús. kr., sem er hreint ótrúlegur árangur. Þau bera Kóp á höndum sér. Ritnefnd Kóps skipa: Gunn- steinn Ólafsson, Björn Harðar- son, Ólafur Þ. Gunnarsson, Arn- hildur Þórhallsdóttir, Einar T. Finnsson og Sigrún Andradóttir. Ljósmyndir: Sigurður Jónsson. Auglýsingar: Hörður óskarsson. Forsiða: Halldór Gunnarsson. Abyrgðarmaður: JUlius Haf- steinsson. —mhg Tvær einkasýnmgar á Kjarvalsstöðum Þetta er síöasta sýning- arhelgi Guöbergs Auöuns- sonar og ómars Skúlason- ar á Kjarvalsstöðum, en opnar eru sýningarnar fram á þriðjudagskvöld. Þetta eru fyrstu einkasýningar þeirra beggja. Það gerist nú i dag Uaugardag) kl. 16.00, að Sigurður Karlsson trommuleikari heldur „trommukonsert” á sýningu Guðbergs og túlkar á sinn hátt nútimann i verkum Guðbergs. En um myndir sinar, 23 talsins, segir Guðbergur sjálfur: „Ys og þys stórborga, gömul og ný skilaboð og sitthvað fleira er kveikjan að þessum myndum”. Fimm myndir seldust fyrsta hálftiinann sem sýning Guðbergs var opin. Listasafn Islands keypti mynd sem heitir Nútiminn og Listasafn SIS aðra. Guðbergur hefur numið við Listiðnskólann i Kaupmannahöfn og málaradeild Myndlista- og handiðaskólans. ómar Skúlason hefur einnig numið við Myndlista- og handiða- skólann, tekið þátt i samsýning- um á Sólon Islandus og hjá FIM. Hann sýnir teikningar, blandaða tækni, myndir („Tilbreytingar”) gerðar með sprautu og skapalóni — alls 56 myndir. Ómar hefur (á fimmtudegi) selt fjórar myndir, eina til Listasafnsins. I dag og á morgun eru sýningar þeirra Guðbergs og Ómars opnar kl. 2-10. Guöbergur Auðunsson og Nútfminn. Flóa- markaður Zonta- klúbbsins A morgun sunnudaginn 12. febrúar klukkan 14 verður flóa- markaður á Hallveigarstöðum. Félagar Zpntaklúbbs Reykjavik- ur hafa opnað hirslur á heimilum sinum og fundið þar marga nýti- lega hluti, sem þeir gátu ánverið og ætla nú að selja við hagstæðu verði. Arið 1944 stofnaði klUbburinn sjóð til minningar um starf Mar- grétar Bjarnadóttur Rasmus, sem þáhafði lokið starfsferli sin- um við stjórn Heyrnleysingja- skólans. Hún barðistfyrir að bæta hag nemenda sinna og þekkti flestum betur hve höllum fæti þeir stóðu i lifsbaráttunni. Sjóðurinn, sem nefndur er Mar- grétarsjóður, notar fé sitt jafnóð- um og þess er aflað. Hann hefur styrkt kennara, fóstrur og aðra sem stunda framhaldsnám með það takmark i huga að efla heil- brigði og þroska mál- og heyrnar- skertra. Einnig hefur fé verið varið til tækjakaupa. Zontaklúbbur Reykjavikur hef- ur nU á prjónunum áætlun um að vekja hreyfingu i þá átt að koma upp aðstöðu, þar sem börn innan skólaaldurs gætu fengið hjálp sérmenntaðra kennara til þess að lagfæra málhelti. Sérfræðingar telja mikilvægt að slik hjálp sé veitt i tima. Starfsmanna- félagiö Sókn: Advörun Fimmtudaginn 9. febrUar 1978 boðaði stjórn Starfsmannafélags- ins Sóknar til fundar með trúnað- arráði og trúnaðarmönnum á vinnustöðum. A fundinum var eftirfarandi tillaga einróma sam- þykkt: „Fundurinn varar Alþingi og rikisstjórn við að skerða slðustu kjarasamninga og stofna til ófrið- ar á vinnumarkaðinum. Fundur- inn visar þvi algjörlega á bug að sú leiðrétting á launum sem náð- ist I samningunum sl. vor eigi sök á vanda atvinnuveganna. Sú sök liggur fyrst og fremst hjá rikis- stjórn og löggjafarvaldi.” Spurt um risnu fyrirtækja Ragnar Arnalds hefur beint eft- irfarandi fyrirspurn um risnu fyrirtækja til fjármálaráðherra: ,,1) Hvaða reglur giltu um frá- drátt frá tekjum fyrirtækja vegna risnu við álagningu skatta árið 1977? 2) Hve mikilli fjárhæð nam þessi frádráttur hjá skattskyld- um félögum við álagningu skatta árið 1977, upphæðin samanlögð eftir framtölum eða áætluð sam- kvæmt hæfilegu úrtaki?” Ein af myndum ómars Skúlasonar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.