Þjóðviljinn - 11.02.1978, Side 16

Þjóðviljinn - 11.02.1978, Side 16
1« SIÐA — ÞJÖÐVILJINN iLaugardagur 11. febrúar 1978 Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613 Auglýsing um skoðun bifreiða í lög- sagnarumdæmi Kópavogs Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, að aðalskoðun bifreiða 1978 hefst mánudaginn 20. febrúar og verða skoð- aðar eftirtaldar bifreiðir i febrúarmánuði og marsmánuði 1978: Mánudagur 20. febrúar Y-1 til Y-200 Þriðjudagur 21. febrúar Y-201 til Y -400 Miðvikudagur 22. febrúar Y-401 til Y-600 Fimmtudagur 23. febrúar Y-601 til Y -800 Mánudagur 27. febrúar Y-801 til Y-1000 Þriðjudagur 28. febrúar Y-1001 til Y-1200 Miðvikudagur 1. mars Y-1201 til Y-1400 Fimmtudagur 2. mars Y-1401 til Y-1600 Mánudagur 6. mars Y-1601 til Y-1800 Þriðjudagur 7. mars Y-1801 til Y-2000 Miðvikudagur 8. mars Y-2001 til Y-2200 Fimmtudagur 9. mars Y-2201 til Y -2400 Mánudagur 13. mars Y-2401 til Y-2600 Þriðjudagur 14. mars Y-2601 til Y-2800 Miðvikudagur 15. mars Y-2801 til Y-3000 Fimnitudagur 16. mars Y-3001 til Y -3200 Mánudagur 20. tnars Y -3201 til Y-3400 Þriöjudagur 21. mars Y-3401 til Y-3600 Miðvikudagur 22. mars Y-3601 til Y-3800 Þriðjudagur 28. mars Y -3801 til Y-4000 Miðvikudagur 29. mars Y -4001 til Y-4200 Fimm tudagur 30. mars Y-4201 til Y-4400 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðir sinar að Áhaldahúsi Kópavogs við Kársnesbraut og verður skoðun fram- kvæmd þar mánudaga — fimmtudaga kl. 8.45 til 12.00 og 13.00 til 16.30. Ekki verður skoðað á föstudögum. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld fyrir árið 1978 séu greidd, og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og lögum um bifreiðaskatt og bif- reiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. Skoðun bifreiða með hærri skráningarnúmerum verður auglýst siðar. Bæjarfógetinn i Kópavogi, 8. febrúar 1978 Sigurgeir Jónsson • Blikkiðjan ^ ™ Ásgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 Hrlsey I vetrarklæbum. Frá Hrísey: Leikæfingar, tungumála- nám og holdanaut Enn berast hér fregnir frá fréttaritara Þjóöviijans i Hrisey, Guðjóni Björnssyni: Félagslíf Um miöjan janúar var hald- inn aðalfundur ungmennafél- agsins Narfa i Hrisey. Félögum hafði nokkuð fækkað á siðast- liðnu ári og félagslif verið i dálitilli lægö, miðað við það, sem oft hefur verið. En á eftir logni kemur stormur, varð ein- um fundargesta að orði og af fundinum fóru menn fullir áhuga og sigurvissir. — í stjórn félagsins voru kosnir ungir og áhugasamir menn i stað hinna gömlu og mosagrónu. Formaö- ur er Jóhannes Áslaugsson. Leikfélagið starfar af miklum krafti. Verið er að æfa gaman- leikinn „Áfbrýðissöm eigin- kona”. Leikstjóri er Kristján Jónsson. Einnig er Kristján með leiklistarnámskeið á vegum fél- agsins og eru þátttakendur 10, bæði innan- og utanfélagsfólk. Er mikill áhugi rikjandi á þess- ari nýbreyttni. Leikstjórinn lætur afar vel af samstarfsfólki sinu i leiknum og segir að það sýni frábæran dugnað. Eins og segir hann und- irtektir á námskeiðinu sérstak- lega skemmtilegar, þetta séu allt góðir starfskraftar. Ætlunin er að sýna leikinn hér heima og i nágrannabyggðunum. Kristján leikstýröi hér „Hrepp- stjóranum á Hraunhamri fyrir 13 árum. Talað tungum Slðustu verkefni Lionsmanna voru ókeypis ljósaskreytingar við kirkjuna og ókeypis bingo fyrir börn, milli hátiða. Einnig höfðu þeir þá bingo fyrir full- orðna, til fjáröflunar. Þá starfa enn af fullum krafti námsflokkar þeir, sem kvenfél- agið hteypti af stokkunum i nóvember s.l. Eitthvertlát er þó á nemendum i Spænskunni, (kannski þvi valdi fréttirnar af eitrun Miðjaröarhafsins), en enskan heldur velli nema þar sem aðrar skyldur hafa kallað einn og einn úr hópnum. Snjór er litill á eynni. Börn hafa þó notað hann allvel til skiða-iökana. Kennslu hafa þau enga fengið I vetur en á s.l. vetri var hér kennari frá ísafirði, Snorri Grimsson, og veitti hann nemendum skólans nokkra leið- sögn. Hinn daglegi mjólkur- dropi Elsti kálfurinn i Einangrun- arstöð holdanauta er nú orðinn sex og hálfs-mánaöa gamall, hinn stæðilegasti gripur og stolt feðranna skosku svo og allra annara aðstandenda. Hefur hann nú verið settur i einangrun i stöðinni ásamt fleiri vænum törfum, þar sem náttúra þeirra gæti farið að valda óæskilegum usla. Þeir fá þó daglega aö heimsækja mæður sinar og þiggja af þeim mjólkursopa. Heilsufar og útlit gripanna er i mjög þokkalegu ástandi. Það mundi sjálfsagt koma mörgum all nýstárlega fyrirsjónir að sjá kálfa sjúga mæður sinar, ekki sist þegar þeir eru komnir á kynþroskaaldurinn og farnir að slaga upp i fullorðna að stærð. Fyrsta húsið frá Húsein- ingum Nú er búið að flytja hingað fyrsta húsið frá Húseiningum á Siglufiröi, en þau eiga að verða þrjú. Byrjaö var að reisa húsiö 24. janúar og tók það tæpa viku. Lengstaf hefur skýjafar byrgt hér sólarsýn það sem af er ár- inu. Þó hefur þaö hent að við höfum séö sólina birtast yfir- brún Vaðlaheiðar og skiptir þá umhverfið allt um svip. gb/mhg GísM Gudmufidsson: Fundur Alþýdubandakgsíns á Sudureyri t gær, sunnudag 5. febr., mættu hér til fundarhalds tveir mætir menn, Kjartan óiafsson, frambjóðandi hér á Vestfjörö- um i næstu aiþingiskosningum og Stefán Jónsson, þingmaöur Norðuriands eystra. Báöir voru þeir á vegum Alþýðubandalags- ins. Fundurinn var settur I félags- heimili Suðureyrar kl. 16.30. Mestur fjöldi fundarmanna var um 60. Voru það menn og konur úr öllum flokkum og af öllum stéttum, mest þó karlmenn. Fundurinn fór i alla staði vel fram. Gott hljóö og engin framl- köll. Fundarstjóri var Einar Guðnason, skipstjóri á Sigur- von. Hann er lika formaður Al- þýðubandalagsins hér. Fyrstur talaði Kjartan Ólafs- son I a.m.k. klukkutíma. Hann skýrði margt bæöi hvað snertir þjóðmál og mannlif okkar Is- lendinga. Næstur stóö upp Stefán Jóns- son, alþm. Hann lofaöi þvi I upp- hafi að halda ekki langa ræðu og stóð viö það. Brá fyrir „humor” i hans málflutningi, sem átti vel við umræðuefnið. Eftir ræðu Stefáns var orðið gefið frjálst. Ólafur Þórðarson stóð fyrstur upp af fundarmönn- um. Hann er framsóknarmaöur, oddviti hér og skólastjóri með meiru. Hann beindi orðum sln- um að frummælendum og þó einkum Kjartani sem svaraði aftur af rökvlsi og hörku og ýtti höndum sinum út og suður og siðast til himins, til staðfesting- ar orðum sinum. Einnig svaraði Stefán ýmsu á móti Ólafi. Fáir töluðu aörir á þessum fundi. Sveitarstjóri stóð upp meö fyrirspurn og Pétur Sigurðsson, stýrimaður á Ellnu Þorbjarnar- dóttur, gaf skýringu. Hallbjörn Guðmundsson fór fram á upp- lýsingar um hvað ráöherra hefði I laun og fékk upplýst aö þau væru um 500 þús kr. á mán- uöi. Fundurinn stóð til kl. 20.10, enda sumir orðnir svangir og sumir hefðu ekki þolað að sitja lengur vegna kulda. Og vatns- glasið, sem Stefán varð aö hafa fyrir öskubakka, var orðið fullt af ösku úr pipu hans. — Ég álit af félagsheimiliö sé ekki staður til fundahalda, a.m.k. alls ekki fyrir hálf lasna menn. Suðureyri, 6. febr., Gisli Guðmundsson. Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.