Þjóðviljinn - 04.03.1978, Side 20

Þjóðviljinn - 04.03.1978, Side 20
DWÐVIUINN Laugardagur 4. mars 1978 Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. Járnblendið veldur formanni þingflokks Framsóknar áhyggjum: Dregiö verði úr verkhraða Þórarinn Þórarinsson formaður þingflokks Framsóknarf lokksins sagði á Alþingi á fimmtu- dag, að hann teldi vel koma til greina að draga úr f ramkvæmdahraða viö byggingu Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundar- tanga. Jafnframt viðurkenndi Þórar- inn að fyrirsjáanleg væri kreppa i stáliðnaðinum sem myndi standa i nokkur ár. Sagði hann að ef haldið væri áfram með fullum framkvæmdahraða þá yrði verk- smiðjan rekin með halla fyrstu árin. Járnblendiverksmiðjan kom til umræðu þegar framíialdiðj var umræðum um þingsályktunartil- lögu nokkurra þingmanna Al- Þórarinn Þórarinsson þýðubandalagsins um könnun á rekstrarhorfum járnblendiverk- smiðjunnar, en þingmenn Al- þýðubandalagsins hafa itrekað bent á fyrirsjáanlegan halla af þessari verksmiðju. Nánar verð- ur greint frá umræðum eftir helgi. Bankinn hefur tryggt sér 30 miljónir af eigum Hauks Heidars upp í væntanlega fébótakröfu Landsbanki tslands hefur Þjóðviljanum barst i gær svo- tryggt sér allt aö 32 miljónúm hljóðandi fréttatilkynning frá króna I inniendum og erlendum skuldabréfum i eigu fyrrverandi bankastarfsmanns, Hauks Heið- ars, upp i væntanlegar fébóta- kröfu bankans á hendur Hauki fyrir fjárdrátt og misferli, auk þess sem bankinn hefur undir höndum þinglýstar skuldbinding- ar frá Hauki Heiðari um að hann ráöstafi ekki fasteignum sinum í Reykjavik og i Grafningi án sam- þykkis Landsbankans. Landsbanka íslands og Sveini Snorrasyni, hrl.: „Sveinn Snorra- son, hrl., réttargæslumaður Hauks Heiðars , og Barði Arnason, forstöðumaður erlendra viðskipta Landsbanka Islands.fóru um sið- ustu helgi til Sviss til þess að sannreyna þá staðhæfingu Hauks Heiðars, að hann geymdi þar fjármuni, sem hann óskaði að rynnu til Landsbankans upp I væntanlegar kröfur bankans á Mesta niðurrif í sögu borgarinnar samþykkt Fimmtudaginn 16. febrdar s.l. var samþykkt af meirihluta borgarstjórnar Reykjavikur deiliskipulag fyrir svæöiö austan Aðalstrætis I gömiu miðbæjar- kvosinni. Þetta skipulag býöur upp á eitthvert mestaniðurrif gamalla húsa I sögu borgarinnar og gengur þvert á þau sjónarmiö aö svipmót gamla bæjarins fái aö halda sér þó aö hann sé jafnframt byggður upp. Þar sem blaöa- mannaverkfall hófst daginn eftir þennan borgarstjOrnarfund hefur hans litið veriö getið I blööum og verður Utillega bætt úr þvl hér og vonandi enn frekar seinna. Umræður um málið stóðu á 5da tima og voru gerðar Itrekaðar til- raunir til að fá málinu frestað, bæði af fulltrúum minnihluta- flokkanna og eins höfðu borist bréf frá 38 arkitektum, Torfu- samtökunum og Þór Magnússyni þjóðminnjaverði þar sem farið var fram á hið sama. Alit þessara aðila var haft að engu og málið þrýst I gegn. Vegna mótmælaöld- unnar sem risið hefur vegna þessa máls var málflutningur fulltrúa meirihlutans heldur loðinn og lögðu þeir mikla áherslu á að samþykkt þessa deiliskipu- lags þýddi ekki endilega niðurrif umræddra húsa. Samt sem áður stendur skýrum stöfum i þvi að uppbygging eigi að fara fram á öllum þeim lóðum sem gömlu húsin standa á. Einnig er kveðiö nákvæmlega á um stærð, hæð og byggingarmagn þess sem á að koma i stað gömlu húsanna. Það kom fram bæði i máli ölafs B. Thors og Björgvins Guð- mundssonar og kaupsýslumaður- inn Ragnar i Markaðnum hefur fyrstogfremsthaft frumkvæði að þvi að þetta nýja skipulag yrði gert og verið fastagestur i viðtalstimum borgarstjóra. Margir áhorfendur voru á pöil- unum við þessa umræðu ogklöpp- uðu óspart fyrir þeim sem mæltu gegn þessu nýmæli og espaði það Sjálfstæðisflokksmenn upp. í hita umræðnanna kom i ljós fyrirlitn- ing þeirra á gömlu Reykjavik. Borgarstjóri kallaði umrætt um- hverfi hið ömurlegasta I Reykja- vik og að með nýbyggingum ætti að skapa miöbænum sál, en hún væri i réttu hlutfalli við hversu hátt nýtingarhlutfall væri leyft. Davið Oddsson nefndi gömlu timburhúsin kakkalakkahús- kumbalda og Elin Pálmadóttir, sem þykist vera áhugamanneskja um gömul hús, talaði þarna langt mál, sem fáir skildu og greiddi svo atkvæði eins og aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Meirihlutinn bar fram frávis- unartillögu gegn framkomnum frestunartillögum. og var hún samþykkt með 9 atkvæðum gegn 6. Slðan var deiliskipulagið samþykkt með sama atkvæða- hlutfalli. Þessir borgarfulltrúar greiddu atkvæði með niðurrifinu: Birgir Isleifur Gunnarsson, Elin Pálma- dóttir, Davið Oddsson, Markús örn Antonsson, Margrét Einars- dóttir, Ragnar Júliusson, Magnús Sveinsson, Albert Guðmundsson og Ölafur B. Thors. A móti voru hins vegar Sigurjón Pétursson, Þorbjörn Broddason, Sigurður Harðarson, Páll Guðmundsson, Kristján Benediktsson og Björgvin Guðmundsson. —GFr. hendur honum. Samráö var haft við Rannsóknarlögreglu rikisins og gjaldeyriseftirlit Seðlabank- ans um ferð þessa. Fjármunir þessir eru að hluta til I verðbréfum, sem enn hafa ekki verið seld vegna þeirrar ó- vissu, sem rikir á verðbréfa- markaði i svissneskum frönkum. Fjármunir þessir eru nú i sam- eiginlegri vörslu Landsbankans og Sveins Snorrasonar, hrl., og ætlaðir til ráðstöfunar til Lands- bankans þegar hann krefst þess. Verðmæti þessara fjármuna má ætla að sé liðlega 25 milljónir króna. Auk þessa hefur Haukur Heiðar þ. 8. febrúar s.l. gefið út þinglýst- ar skuldbindingar um að ráðstafa ekki fasteignum sinum i Reykja- vik og Grafningi án samþykkis Landsbankans og afhent bankan- um til vörslu hlutabréf að verð- mæti 6—7 milj. króna.” Gæsluvarðhald Hauks Heiðars rann út þann 1. mars sl. Hefur Borgardómur úrskurðað fram- hald gæsluvistar i hálfan mánuð, eða til 15. mars, að ósk rannsókn- arlögreglunnar. Réttargæslu- maður Hauks hefur kært úrskurð þennan, en um miðjan dag i gær hafði kæran þó ekki borist Hæsta- rétti, sem Urskurðar hvort álit Borgardóms skuli standa eður ei. —úþ Uppsögn á B-samnings- leikurum Dregin til baka Þjóðleikhússtjóri sagði upp öll- uni leikurum sem eru á B-samn- ingi við Þjóðleikhúsið frá og með 1. september n.k. Leikararnir sem um ræðir eru 12 talsins, en frá þvi i samningum siðasta haust er uppsagnarfrestur þeirra 6 mánuðir. Þegar Þjóðviljinn hafði sam- band við Þjóðleikhússtjóra i gær- morgun sagði hann að ekkert samband væri milli uppsagnanna og verkfallsaðgerða leikara 1. og 2. mars, en uppsagnarbréfið var stilað 1. mars. Ástæðan væri einungis of lang- ur uppsagnarfrestur og bjóst Þjóðleikhússtjóri við að flestir leikaranna yrðu endurráðnir inn- an skamms. Það er ekki hægt að ákveða með hálfs árs fyrirvara hvaða leikarar verða kvaddir til starfa næsta árið þar sem verkefni og leikstjórar hafa ekki verið valdir, sagði Sveinn Einarsson. Sendinefnd frá BSRB, Leikara- félaginu ásamt trúnaðarmanni fór á fund Þjóðleikhússtjóra i gærmorgun til að ganga úr skugga um það hvort samband væri milli uppsagnanna og verk- fallsaðgerða leikara. Eftir hádegi i gær var uppsögnin dregin til baka, þar sem á henni reyndist lagalegur formgalli. Gunnar Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Starfsmannafélags rikisins sagði i gær að uppsögnina hefði áttaðsendaút fyrirl. mars, en ékki 1. mars. Eftir að gengið hafði verið úr skugga um þetta atriði, var uppsögnin dregin til baka, leikararnir 12 þvi endur- ráðnir leikárið 1978-1979. VL-prófessorar gegn Þjóðviljanum: Fengu ekki tildæmdan mákkostnað í hæsta- réttí ! Hæstiréttur sýknaði Svavar Gestsson, ritstjóra Þjóðviljans, að öllum - refsikröfum þriggja VL-prófessora. Örskurð sinn felldi hæstiréttur strax I gær, en málflutningur fór fram I fyrra- dag. Þetta er fjórða málið sem dæmt er á ritstjóra Þjóðviljans. Einu málanna er enn ólokið I undirrétti, málinu gegn Hjalta Kristgeirssyni og Svavari. Það voru þrir prófessorar sem stefndu ritstjóra Þjóðviljans fyrir ein ummæli um þá félaga. Hér var um að ræða Ragnar Ingimarsson og tvo prófessora i lagadeild Háskólans: Jónatan Þórmundsson prófessor I refsi- rétti og Þór Vilhjálmsson, þáverandi prófessor I réttarfari, núverandi hæstaréttardómara. I undirrétti dæmdi héraðsdómar- inn ummæli Þjóðviljans dauð og ómerk og að auki málskostnað, en sýknaðvaraf refsikröfum. Þessu undu þeir prófessorar lagadeildar háskólans ekki og áfrýjuðu til hæstaréttar. Hæstiréttur sýknaði enn af refsikröfum og staðfesti dóm undirréttar, en felldi niður málskostnað fyrirhæstarétti. Má það teljast athyglisvert — að ekki sá fastar að orði kveðið — að málatilbúnaður tveggja laga- prófessora skulifá slikar viðtökur i hæstarétti. Jónatan Þórmundsson Þór Vilhjálmsson Harösvírud meðöl hjá Reykjavíkurborg Sennilega hafa stjórnvöld Reykjavikurborgar gengið einna harðast fram I þvi að hræða og þvinga fólk frá þátttöku I alls- herjarverkfallinu 1. og 2. mars. Hefur það vafalaust haft tilætluð áhrif, en samt sem áöur lagði fjöldi manns niöur vinnu. Þegar þetta fólk ætlaði að fá laun sln úborguð i byrjun mánaö- arins var þvi tilkynnt að Magnús Öskarsson, titlaður launamála- fulltrúi borgarinnar, hefði fyrir- skipað að þeir sem ekki mættu til vinnu fengju ekki útborgað. Skipti hér engu máli hvort um var að ræða laun fyrir unna vinnu eða ekki. Urðu margir til að hringja i hann og mælti hann þá ýmist i blíðum tón að viðkomandi skyldi bara mæta til vinnu þá fengi hann útborgað, eða æsti sig upp og kvað Reykjavikurborg hafa fullan rétt til að halda ólöglega launum þar sem um óiögleg verk- föll væri að ræða. Þó fór svo að lokum að Magnús þorði ekki ann- að en að draga tilskipun sina til baka og fengu borgarstarfsmenn i verkfalli laun sin greidd daginn eftir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.