Þjóðviljinn - 09.03.1978, Qupperneq 1
UOÐVIIJINN
Fimmtudagur 9. mars 1978 — 43 árg. 51. tbl.
Smjörlíki: 10%
Saltfiskur: 20%
Tropicana: 10%
í bíó: 25%
Ný verdhækkanaskrida
verðlagsnefnd afgreiddi margar hœkkanir í gœr —
tugir hækkunarbeiðna liggja fyrir nefndinni
Ljóst er aö ný og hrika-
leg verðhækkanaskriða er
farin af stað. Menn hafa
heyrt um þær miklu hækk-
anir sem orðið haf a síðustu
daga á landbúnaðarvörum
og síðan fylgir allt annað í
kjölfarið. í gær afgreiddi
verðlagsnefnd fjölmargar
hækkunarbeiðnir og sendi
til ríkisstjórnarinnar, en
hún verður sem kunnugt er
að staðfesta allar slíkar
hækkanir og gerir það líka
óspart.
Það sem afgreitt var i gær frá
verðlagsnefnd var m.a. hækkun á
farmgjöldum Gimskips og mun
sú hækkun vera nálægt 15% en
Eimskip hafði áður fengið
hækkun vegna gengisfellingar-
innar á dögunum sem nam 10%,
þannig að farmgjöld Eimskips
hækka um 25%, auk þess sem
uppskipunargjald hækkar lika.
Það var afgreitt i gær og nemur
sú hækkun nálægt 30%.
Smjörlikishækkun var afgreidd i
gær og er hún i kringum 10% að
meðaltali. Tropicana hækkar um
nærri 10% og saltfiskur hækkar
um rúmlega 20%, auk þess sem
sérstök hækkun til viðbótar er á
saltfiski i neytendaumbúðum og
nemur hún rúmum 10%.
Þá hækkuðu aðgöngumðar
kvikmyndahúsanna i gær um 25%
eða úr 400 kr. i 500 kr. miðinn.
Lýsi hækkar svo og ýmsar vörur
sem ekki er hægt að kalla
nauðsynjavörur. Loks var af-
greidd hækkunarbeiðni á oliu-
flutningum innan lands.
A fundi nefndarinnar i gær var
frestað að afgreiða hækkunar-
beiðni á útseldri vinnu, vegna
þess að ekki liggur ljóst fyrir
hverjir kauptaxtar verða vegna
hinnar frægu 2. gr. kaupránslag-
anna, en allt er i óvissu með
kauptaxta vegna hennar.
Fyrir verðlagsnefnd liggja nú
tugir beiðna um verðhækkun,
sem nefndin mun taka fyrir á
næstu fundum sinum og afgreiða
til rikisstjórnarinnar til undir-
skriftar.
Georg ölafsson verðlagsstjóri
sagðist ekki geta skýrt Þjóðvilj-
anum frá þeim málum sem af-
greidd voru frá verðlagsnefnd i
gær, fyrr en rikisstjórnin væri
búin að f jalla um þær og ekki vildi
hann heldur segja frá þvi hvaða
beiðnir lægju fyrir hjá nefndinni.
Þær tegundir og hækkanir á þeim
sem skýrt er frá hér að framan,
fékk Þjóðviljinn eftir öðrum
ieiðum. —S.dór
139.267 á kjörskrá í
alþingiskosningum
Fjölgun frá siðustu alþingiskosning
um um 12.870 eða um 10%
Fari alþingiskosningar fram 25.
júni næstkomandi eins og margt
bendir til verða 139.267 á kjörskrá
i öllu landinu en sambærUeg tala
frá 1974 er 126.388. FjiUgun á kjör-
skrá er 12.879 eða um 10% milli
kosninga á þessum fjórum árum.
Þetta kemur fram i yfirliti
Hagstofú Islands um kjósenda-
fjölda á kjörskrá i sveitastjórnar-
kosningunum 28. mai 1978 og i
alþingiskosningum 25. júni 1978
sem blaðinu barst i gær.
Alþingiskosningar
eftir kjördæmum
Hér fara á eftir tölur um fjölda
kjósenda á kjörskrá eftir kjör-
dæmum 25. júni 1978, innan sviga
eru samanburðartölur firá 1974:
Reykjavik 56.312 (53.062) fjölgun
um 6%
Reykjanes 27.840 (23.011) 20%
fjölgun
Vesturland 8.473 ( 7.835) 8%
Vestfirðir 6.085 (5.596) 8%
Norðurland vestra 6.424 (6.023)
6,6%
Norðurland eystra 14.985 (13.411)
11,7%
Austurland 7.561 (6.800) 11,2%
Suðurland 11.587 (10.650) 8,8%
Tala kjósenda á kjörskrá við
alþingiskosningarnar 30. júni 1974
er hér tilgreind þannig að þeir eru
ekki taldir með sem náðu
kosningaaldri á árinu 1974 eftir
kjördag. Þeir sem verða tvitugir
eftir kjördag 1978, eru hins vegar
taldir með i ofangreindum tölum
þannig að tala kjósenda á kjör-
skrá verður aö lokum eitthvað
lægri en hér er tilgreint.
Kaupstaðir — sýslur
Yfirliti Hagstofunnar er einnig
skipt eftir kaupstöðum og sýslum.
í kaupstöðunum öllum eru alls á
kjörskrá 104.338, en voru 1974
94.886 manns. 1 sýslunum verða
34.929 en voru 31.502 á kjörskrá.
1 tölum Hagstofunnar kemur
ekki fram hversu miklu getur
hugsanlega skakkað i kjósenda-
fjölda á kjörskrá frá ofangreind-
um tölum þar sem þeir sem verða
20 ára eftir kjördag eru teknir
með i tölunum fyrir 1978.
Sveitastjórnarkosningar
28. mai 1978 verða kjósendur á
kjörskrá i kaupstöðum sam-
kvæmtyfirlitiHagstofunnar i gær
104.338, en voru 95.001. Þessir lið-
lega 104 þúsund kjósendur i
kaupstöðunum kjósa 181 fulltrúa i
borgarstjórn Reykjavikur og
bæjarstjórnir. Þennan sama dag,
28. maí munu einnig fara fram
kosningar i kauptúnahreppum.
Þar verða 15.660 á kjörskrá en
voru 13.412 1974. Þar veröa kosnir
195 hreppsnefndarmenn. Vatns-
leysustrandarhreppur og Tálkna-
fjörður bætast nú i hóp þeirra
hreppa þar sem kosið verður i
mai'mánuði þar sem minnst 3/4
ibúa eru búsettir i þéttbýli.
jSólon íslandus
Í hættir vegna leiguokurs
| Galleri Sólon lslandus, Aðal-
m stræti 8, hættir nú starfsemi
nu
| vegna okurleigu, sem sett hefur
J verið upp fyrir húsnæðið.
IAðstandendur gallerisins voru
önnum kafnir i gær að rýma
húsnæðið. Frá vinstri: Móeiður
Gunnlaugsdóttir framkvæmda- |
stjóri, Kolbrún Björgólfsdóttir, m
Örn Þorsteinsson, Magnús ■
Kjartansson og Sigurður J
örlygsson. (Mynd: eik)
Sjá bls. 3
I
Jón L. Arnason heimsmeistari unglinga i skák:
Á skákskóla í Sovét
„Ég vissi að það var veriö að
vinnaað þessu máli, en hef ekkert
frekar heyrt af þvi annað en þetta
sem þú ert að segja mér eftir
islenska ambassadornum" sagði
Jón L. Arnason heimsmeistari
unglinga i skák, er við spuröum
hann um för hans á frægasta
skákskóla Sovétrikjanna, skóla
Mikaels Botvinniks en frá þeim
skóla hafa komið flestir bestu
skákmenn Sovétrikjanna af yngri
kynslóöinni með sjálfan heims-
meistarann Anatoly Karpov i
broddi fylkingar.
í viðtali sem fréttamaður
sovésku fréttastofunnar APN átti
við Hannes Jónsson ambassador
Islands i Sovétrikjunum segir
Hannes ma.
„Við erum hreyknir af skák-
mönnum okkar. Nýjasta stjarnan
á þvi sviði, Jón L. Arnason,
heimsmeistari unglinga i skák,
gerir sér reyndar vonir um að
farabrátt til Moskvu i framhalds-
Reglugerð stjórnarinnar um verðbótaviðauka til láglaunafólks:
Skerðing umfram
lagaskerðinguna
— segir i frétt frá ASÍ
Forsætisráðuneytið sendi i gær
frá sér reglugerö um verðbóta-
ákvæði samkvæmt 2. gr. kjara-
skerðingarlaganna, en fulltrúar
samtaka launafólks og deildar-
stjóri launamáiadeildar fjár-
málaráðuneytisins hafa áður
margtekið fram að þessi grein
laganna sé óframkvæmanleg.
ASl itrekaði þá skoðun sina i gær
meöfrétt þar sem sýnt er fram á
með dæmi að i rcglugerðinni felst
skerðing umfram lagaskerðingu
sem nemur 800 kr. á mánuöi.
Tilgangur reglugerðarinnar er
sagður vera að tryggja láglauna-
fólki auknar verðbætur, og i 2. gr.
hennar segir: „Nái veröbætur á
heildarlaunlaunþega i fullu starfi
ekki sem svarar 880 kr. á mánuði
fyrir hvert 1% sem öll hækkun
verðbótavisitölu að meðtöldum
verðbótaauka hefur numið hverju
sinni skal til viðbótar greiða verð-
bótaviðauka sem nemur þvi sem
á vantar að 880 kr. markinu sé
náð”. Vandinn er sá að verðbóta-
viðaukann skal ekki reikna út af
föstu mánaðarkaupi, eða kaup-
taxta, heldur af heildarlaunum
þar með töldum yfirvinnugreiösl-
um, bónusgreiðslum og hvers
konar kaupauka. Þvi þarf að
reikna hverjum og einum starfs-
manni út verðbótaviðaukann eft-
irá.
1 frétt ASl um máliö segir svo :
„Regiugerð sú um verðbótaviö-
auka, sem verið hefur i smiðum
undanfarnar vikur og forsætis-
ráðuneytið sendi frá sér i dag,
Framhald á 14. siðu
nám við frægan skákskóla sem
fyrrverandi heimsmeistari
Mikael Botvinnik, veitir forstöðu.
Við væntum þess aö sú ferð verði
eitt dæmið af mörgum um fram-
kvæmd þessa samkomulags”...
Samkomulagið sem Hannes
vitnar þarna i er að undirritað
var i Moskvu fyrir nokkru sam-
komulag milli Islands og Sovét-
rikjanna um samstarf á sviði
iþrótta.
Þótt Hannes segi það ekki ber-
um orðum þarna, þá gefur hann
þaö i skyn aö búið sé að ganga frá
þvi eystra að Jónkomistá þennan
fræga skóla, sem eflaust yrði hon-
um til mikils gagns.
Verð ekki með
Við spurðum Jón L. Arnason
hvorthann ynni að einhverju sér-
stöku i skákinni og hvað væri
framundan á þvi sviði hjáhonum.
Jón sagðist nú stunda mennta-
skólanámið af kappi, en alltaf
hafa skákina með. Hann sagðist
ekki búast við þvi að verða með á
Skákþingi íslands sem hefst inn-
an tlðar, vegna þess að þar ættu
að gilda sömu timareglur og á
Reykjavikurskákmótinu á dögun-
um.
„Mér lfkaði alveg sérstaklega
illa við þau timamörk, sem þar
voru, þau eru tóm della. Maður er
aö tefla hraðskák allan timann og
slikt likar mérekki”, sagði Jón L.
Arnason. —S.dór