Þjóðviljinn - 09.03.1978, Side 11
Fimmtudagur 9. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
sálarlíf barna
Ljósmæðrafélag islands gengst
fyrir almennum fra&slufundi 12.
mars 1978 i Domus Medica kl.
15.30.
Umræðuefni fundarins verður
nýjungar i fæðingarhjálp og
sálarlif barna.
Framsögumenn verða Hulda
Jensdóttir, forstöðukona á
Fæðingarheimili Reykjavikur, og
Haildór Ilansen, yfirlæknir
Barnadeildar Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavikur.
Erindi sitt nefnir Hulda „Þegar
mannsbarn fæðist” einnig mun
hún sýna litskuggamyndir frá
nýafstöðnu alþjóðaþingi lækna og
ljósmæðra i Róm og segja frá
kenningum franska læknisins dr.
Frederic Leboyer. Erindi yfir-
læknisins Halldórs Hansen ber
heitir „Sálarþroski barna”.
I upphafi fundar syngja þrjár
telpur úr Garðabæ undir stjórn
Guðfinnu Dóru Olafsdóttur söng-
kennara.
Fundurinn er almennur
fræðslufundur jafnt fyrir konur
og karla.
Ljósmæður og ljósmæðranem-
ar sjáum veitingar.
Stjórn félagsins skipa nú: Magnús H. Stephensen formaöur, Sæmundur Bæringsson varaformaður,
Magnús Sigurðsson ritari, Russell J. Smith gjaldkeri og Jónmundur Gislason ritari stjórnar.
Málarafélag Reykja-
víkur 50 ára
Múrarafélag Reykjavlkur
Fordæmir kjara
skeröinguna og segir
upp kaupliöum
Málarasveinafélag Reykjavik-
ur var stofnað 4. mars 1928 i
gamla Iðnskólahúsinu við Vonar-
stræti. Stofnendur voru 16, þeir:
Hörður Jóhannesson, Georg
Vilhjálmsson, Magnús Hannes-
son, Emil Sigurjónsson, Jón
AgUstsson, Magnús Möller,
Oddur JUlius Tómasson, Sigurjón
Guðbergsson, Sveinn Tómasson,
Steingrimur Guðmundsson,
Asgeir Jakobsson, Haraldur
MagnUsson, Albert Erlingsson,
August Hákansson, Þorbjörn
Þórðarson og Óskar Jóhannsson.
I fyrstu stjórn voru kjörnir:
Albert Erlingsson formaður,
August Hákansson féhirðir og
Hörður Jóhannesson ritari.
Arið 1933 var fyrsti kaup- og
kjarasamningurinn undirritaöur
á milli Málarasveinafélags
Reykjavikurog Málarameistara-
félags Reykjavikur. Um sama
leyti var fyrst rætt um að koma á
ákvæðisvinnu. Tveimur árum
siðar tilnefnir félagið sinn fyrsta
fulltrUa i prófnefnd og var það
MagnUs Hannesson. Arið 1937 fær
félagið fulltrúa i Iðnráð og var
það Emil Sigurjónsson.
Næstu árin færir félagið mjög
út starfsemi sina; ekkna- og
minningarsjóður er stofnaður og
félagið gerist aðili að HUsfélagi
iðnaðarmanna. Það gengur i
Alþýðusamband Islands árið 1947
og stofnar vinnudeilusjóð árið
1953. Sama ár er samið um
ákvæðisvinnu og kosin verðskrár-
nefnd. Ólafur Pálsson var fyrsti
mælingafulltrúi málarafélag-
anna. Mælingastofan var rekin
sameiginlega af sveinum og
meisturum til ársins 1969ten eftir
það hefur MFR séð um rekstur
mælingastofunnar. Einnig á
þessu ári þ.e. 1953 var nafni
Rangt far-
iö með
Guðjón Agústsson kom að máli
við undirritaðan og bað um að
eftirfarandi yrði komiö á
framfæri vegna greinar i
Þjóðviljanum, „Hyllum einka-
framtakið” 17. febrúar sl.:
Hannhefur aldrei fengið úthlut-
að lóð á Eiðsgranda. Hann er á
engan hátt tengdur hlutafélaginu
Hornbjarg og hann er ekki skóla-
bróðir neinna þeirra sem
nafngreindir eru i þeirri grein.
Þvi telur hann allt það er sér
viðkemur i grein þessari vera
rangt.
Vegna athugasemda Guöjóns,
sem undirritaður sér enga ástæðu
til að rengja, fylgir hér með
afsökunarbeiðni til hans. — úþ.
félagsins breytt og heitir það
siðan Málarafélag Reykjavikur.
Sjúkrasjóður var stofnaður innan
félagsins árið 1955 og árið 1958
varð samkomulag um að semja
eina verðskrá fyrir alla málara-
vinnu. Sett var á stofn mælinga-
stofa sem var til húsa að Freyju-
götu 27 um nokkurra ára skeið.
Arið 1962 keypti félagið húsnæði
á Laugavegi 18. Þetta stóra átak
sem gert var i húsnæðismálum
félagsins efldi mjög alla starf-
semi þess og hefur félagið búið að
þvi til þessa dags.
Arið 1963 er gengið frá stofnun
Lifeyrissjóðs sem var sjálfs-
eignarstofnun án þátttöku
atvinnurekenda.
Árið 1964 gerist félagið aðili að
stofnun Sambands bygginga-
manna. Aður hafði félagið verið i
tveimur samböndum. Árið 1931
var stofnað Iðnsamband
byggingamanna sem var blandað
samband meistara ogsveina, það
starfaði i fá ár. En árið 1937
gerðist félagið aðili að Sveina-
sambandi byggingamanna sem
starfaði um fárra ára skeið. Að
afloknum samningum i mai 1969
var ákveðið að innan Sambands
byggingamanna og með atvinnu-
rekendum i viðkomandi iðn-
greinum yrði stofnaður sameigin-
legur lifeyrissjóður með skyldu-
aðiid allra meðlima launþega-
félaganna. Málarafélagiö er aðili
að Lifeyrissjóði byggingamanna
og Lifeyrissjóður málara frá
árinu 1963 var sameinaður hinum
nýja sjóði. Það er svo árið 1972
sem verður að teljast eitt hið
merkasta i sögu félagsins, þvi að
þá er þann 1. mai samið um hóp-
tryggingu, sjúkra- og slysa-
tryggingu fyrir alla félagsmenn
undir 65 ára aldri. Hóptryggingin
tekur viö greiðslum þegar
greiðslum atvinnurekenda og
sjúkrasjóðs lýkur og greiðir mán-
aöarlega bætur i allt að þrjú ár og
munu þvi málarar vera i farar-
broddi i tryggingarmálum.
Þann 26. júni sama ár er sam-
þykkt að kaupa jörðina Vog i
Hraunhreppi í Mýrasýslu. Fyót-
lega var hafist handa um fram-
kvæmdir á jörðinni. Sjávarlandið
girt og hús sem var knapplega
fokhelt var fullbyggt vorið 1976;
var rafmagn tekið i húsið þegar,
en það var verið að leggja það um
sveitina um þetta leyti. I sam-
bandi við framkvæmdir i Vogi
hafa margir félagar lagt fram
mikla sjálfboðavinnu og kon-
urnar stofnuðu um þetta leyti
Klúbbinn Vog sem meðal annars
hefur lagt mikið starf til þess að
gera húsið i Vogi sem best úr
garði og sem vistlegast. Það
hefur nú i tvö sumur verið leigt út
til félagsmanna sem orlofshús við
mikiar og vaxandi vinsældir.
í MálarafélagiReykjavikur eru
nú um 155 félagar. Félagið rekur
mælingastofú að Laugavegi 18 og
þar er skrifstofa þess staösett. A
mælingastofunni starfa að staö-
aldri tveir menn þeir Róbert
Gestsson og Hjálmar Jónsson,
hafa þeir starfað þar allt frá
stofnun hennar. Albert Rúnar
Agústsson er þriðji starfsmaður
félagsins. Hann annast ýmis
félagsleg verkefni.
Félagið minnist þessara tima-
móta á ýmsan hátt, meðal annars
með afmælishófi að Hótel Borg
11. mars, og fyrirhugaö er að
halda hátið i Vogi næsta sumar.
Stjórn félagsins skipa nú:
Magnús H. Stephensen formaður,
Sæmundur Bæringsson varafor-
maður, MagnúsSigurðsson ritari,
Russell J. Smith gjaldkeri og Jón-
mundur Gislason ritari stjórnar.
A félagsfundi i Múrarafélagi
Reykjavikur, þriðjudaginn 28.
febrúar 1978, var samþykkt að
segja upp öllum kaupliðum gild-
andi kjarasamnings við Múrara-
meistarafélag Reykjavikur
vegna verulegra breytinga á
gengi islensku krónunnar og
vegna setningar laga, sem breyta
ákvæðum samningsins um
greiðslu verðlagsuppbóta á laun.
Kaupliðum samningsins er sagt
upp frá og með 1. mars 1978 með
eins mánaðar uppsagnarfresti
miðað við að uppsögnin taki gildi
á miðnætti 1. april n.k.
Jafnframt var samþykkt á
fundinum eftirfarandi ályktun:
„Félagsfundur haldinn i Múr-
arafélagi Reykjavikur, þriðju-
daginn 28. febrúar s.l., mótmælir
harðlega afskiptum rikisvaldsins
af gildandi kjarasamningum
verkalýðsfélaga og vinnuveit-
enda, þar sem með lagasetningu
um ráðstafanir i efnahagsmálum
frá 17. febr. s.l. eru ógiltir nýlega
gerðir kjarasamningar. Fundur-
inn fordæmir vinnubrögö sem
þessi og skorar á stjórnvöld að
nota timann vel fram til 1. april
n.k., og leita nýrra leiða til lausn-
ar efnahagsvandanum svo komist
verði hjá frekari aðgerðum laun-
þega.”
Sambandið flytur inn nýjungfrá Bandaríkjunum
Glæsivagn með dísil-
vél af bestu tegund
Leigubifreiða-
stjórar sýna nýja
Oldsmobile
bílnum mikinn
áhuga
Véladeild Sambandsins kynnir
um þessar mundir Oldsmobile
bifreið, sem öðru fremur hefur
það sér til ágætis að vera knúin
áfram af disilvél, sem þykir af
fullkomnustu gerð. Er tilkoma
vélarinnar ma. afleiðing oliu-
kreppunnar undanfarin ár og
hækkandi verðs á bensini, en til
þessa hafa Bandaríkjamenn ein-
göngu framleitt fólksbila með
bensinvélum, sem margar hverj-
ar hafa orðið frægar fyrir geysi-
lega eyðslu.
En það eru Bandarikjamenn
sem nú hafa sent frá sér þennan
vagn með 8 strokka disilvél, en að
öðru leyti er bifreiöin með svip-
uðu sniði og við eigum að venjast
af bandariskum fólksbílum. I
reynsluakstri eyddi þessi stóra
bifreið að jafnaði tiu litrum á 100
km og á lengri ferðum yfir þver-
Bandarikin komst eyðslan niður i
8 litra. Kraftinn á þó ekki að
vanta þvi viðbragðið reyndist 0-
Fyrsti disilbillinn sem framleiddur er i Bandarlkjunum lltur ekki ein-
ungis veglega út heldur þykir vélin góð og þægileg viðureignar. SÍS
hefur þegar pantað hingað til lands nálægt eitt hundrað blla af þessari
gerð, en þessi mynd er af þeim eina sem ennþá er kominn.
100 km/klst. á 16,3 sekúndum,
sem ekki þykir ónýtt.
Það eru vélfræðingar General
Motors sem eiga heiðurinn af
þessari vél og þeim tókst að kæfa
dísilhljóðið með þvi að hafa
brennsluhólfið af sérstakri gerð,
setja hljóðhlif á lofthreinsistútinn
og þykka einangrun á eldvarnar-
plötu. Vélina má ræsa á sama
hátt og aðrar nýjar disilvélar og
tekur það um hálfa minútu að fá
vélina i gang ef hitinn er um tiu
stig, en skemmri tima ef heitara
er i veðri. Vélfræðingar halda þvi
fram að enda þótt disilolia þykkni
i frosti séu engir erfiðleikar á
ræsa vélina fari frostið ekki nið
fýrir 25 gráður á Celsius.
Vegna ýmissa byrjunarörði
leika hefur afgreiðsla á þessc
bilum til Evrópulanda dreg
nokkuð og er billinn sem hing
er kominn einn af tiu fyrs
bilunum sem sendir eru y
Atlantshafið. SÍS hefur þeg
pantað upp undir 100 bila
landsins og er von á þeim i ap
og maí. Verð þessa disilbils
leigubilstjóra ásamt öllum fyl|
hlutum er á núverandi gengi u
4,4 miljönir króna.
Ljósmœðrafélag íslands
með frœðslufund um
Fæðingarhjálp og