Þjóðviljinn - 10.03.1978, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Köstudagur 10. mars 1978
Málgagn sósíalisma,
xerkalýdshreyfingar
og þjóöfrelsis
(Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Kréttastjóri: Einar Karl Ilaraldsson.
Umsjón með sunnudagsblaði:
Árni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn
Pálsson
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Sfðumúla 6, Simi 81333
Prentun: Biaðaprent hf.
Himinhrópandi
ranglœti
Þegar kjaraskerðingarlög rikis-
stjórnarinnar voru sett beindust augu
manna auðvitað fyrst og fremst að hinni
skipulögðu verkalýðshreyfingu, Alþýðu-
sambandinu, Bandalagi starfsmanna
rikis og bæja, Bandalagi háskólamanna,
Farmanna- og fiskimannasambandi
íslands og Iðnnemasambandinu. Þessi
samtök efndu til viðtækra mótmælaað-
gerða og þátttakendur i aðgerðunum voru
yfir 30 þúsund manns. Aðgerðirnar tókust
þvi vel: ljóst varð að allt launafólk er and-
vigt kjaraskerðingu rikisstjórnarflokk-
anna.
En umræðan um kjör launafólks hefur
ekki fyrr en nú siðustu dagana beinst að
nokkru marki að þeim sem lægst laun
hafa i þjóðfélaginu, öldruðum og
öryrkjum. Þjóðviljinn hefur vakið athygli
á kjörum þessa fólks og þeirri staðreynd
að kjaraskerðingarlögin koma einnig við
viðskiptamenn trygginganna. Þar er
árásin á kjörin auðvitað þeim mun til-
finnanlegri sem launin á mánuði hverjum
eru lægri. í fréttatilkynningu sem rikis-
stjórnin gaf út i fyrradag viðurkennir heil-
brigðis- og tryggingarráðuneytið að bætur
almannatrygginga hefðu orðið að vera
hátt i einum miljarði króna hærri til þess
að tryggja sama kaupmátt og orðið hefði
án kjaraskerðingarlaganna.
Alveg sérstaklega verður óréttlætið
augljóst þegar athuguð er útkoma ein-
stæðra foreldra. Þeir verða fyrir sérstakri
skerðingu á lifeyri barna, sem greiddur er
i gegnum Tryggingastofnun rikisins og
auk þess fyrir skerðingu launa á hinum
almenna vinnumarkaði. Þarna er þvi um
eins konar tvöfalt rán að ræða.
Ellilifeyrir og tekjutrygging einstak-
lings i mars hefði að óbreyttu átt að verða
76.025 kr. á mánuði, en verður 73.136 kr. á
mánuði. Skerðingin lætur ekki mikið yfir
sér með þvi að bera saman þessar tölur i
augum þeirra sem hafa margföld laun að
lifa af á mánuði. En skerðingin er samt
ákaflega tilfinnanleg fyrir aldrað fólk og
öryrkja sem verða að velta fyrir sér
hverri einustu krónu. Og á heilu ári verður
skerðingin enn þá meiri: það er aðeins
hluti hennar sem þegar er kominn fram.
Samkvæmt áæltunum um verðlagsþróun
ætti ellilifeyrir og tekjutrygging einstak-
lings að nema að óbreyttu um 84.000 kr.
frá 1. júni, en miðað við sömu verðlagsfor-
sendur og óbreytt kjaraskerðingarlög
verður þessi upphæð aðeins um 78.000 kr.
Undir lok ársins nemur skerðingin á
launum aldraðra og öryrkja yfir 12 þúsund
krónum á mánuði. Á heilu ári, frá 1. mars
1978 til jafnlengdar 1979 nemur kjara-
skerðingin um 90.000 krónum. Það er með
öðrum orðum stolið langt yfir heilu
mánaðarkaupi af þessu fólki.
Á íslandi munu vera um 25.000 aldraðir
og öryrkjar, fólk sem verður að lifa af
þeim lágu launum sem getið var um hér
á undan. Árás rikisstjórnarinnar á gamla
fólkið og öryrkjana er gerð i trausti þess
að viðskiptamenn trygginganna hafi ekki
afl til þess að risa upp til þess að krefjast
réttar sins. Þetta fólk á erfitt með að fara i
verkfall — það er rétt. En þá reynir ekki
sist á siðferðisþrek annarra i þjóð-
félaginu, þeirra sem hafa aðstöðu til þess
að beita faglegum og pólitiskum samtaka-
mætti sinum til þess að tryggja öldruðum
og öryrkjum viðunandi kjör.
Kjör aldraða og öryrkja eru nú eftir
kjaraskerðingu rikisstjórnarinnar himin-
hrópandi um siðleysið sem einnkennir
vinnubrögð rikisstjórnar Geirs Hall-
grimssonar og Ólafs Jóhannessonar.
-s.
Efkaupið væri
allur vandinn...
Það er von að Matthias
Bjarnason, sjávarútvegsráð-
herra telji það ,,fráleitt”að loka
frystihúsunum i Vestamnnaeyj-
um vegna 12 miljóna króna
skuldar við Rafmagnsveitur
rikisins. Málin eru orðin svört
þegar miljarðafyrirtæki þurfa
að stöðvast vegna slikra vasa-
peninga. Sérstaklega þegar
þess er gætt að af hálfu fyrsti-
iðnaðarins i landinu er talið að
reksturinn stefni i 12 miljarða
króna tap á árinu.
Annars er það undarleg
tilviljun að áætlað tap i þessari
atvinnugrein nemur næstum þvi
upp á krónu heiidarlaunakostn-
aðifyrirtækja i frystiiðnaði eins
og hann er talinn verða á árinu.
Ef allt verkafólk i frystiiðnaði
inni kauplaust á þessu ári gerðu
atvinnufyrirtækin ekki meira en
að standa á sléttu. Flest bendir
þó til að þau yrðu samt rekin
með halla, þvi launakostnaður-
inn gæti farið upp i 14 miljarða.
Það þarf haldgóða hagfræði-
menntun til þess að botna i
rekstri sem ekki getur borið sig
þótt verkafólkið sé kauplaust.
Óðinn kom að ómerktu
rússnesku njósnaskipi
Áhöfnin vopnuð hríðskotarifflum á
þilfari - Gerðist í júní 1977 - Dóms-
málaráðuneytið fyrirskipaði þögn
VA Dóniom'ir '"'mað I en þess í stað var dreginn
- Tj|j^y^ssneski íáninn og
Tr nafni skipsins. | r-
VPlrT"i 1 tb Z—■ ''sláttarritinu
tí .•* 4
* *
erðinni „Okean“, en samkvæmi
i 1975—76 heíur sovézk
í sinni þjónustu.
Mmsmál
^rirskjpað
ankyldu vetr„a lSe'staka þagn
sa£ði fiaJdur að „r,-
*ann vissi bezt ft,r f,ví
d*mi be«o zt v*ru
rti .
Itlti fvriw a
í«.ndheJ«- 4
I Ekki á vonarvöl
Forstjórar frystihúsanna
; gætu ef til vill komið hér til
i hjálpar. Nóg hafa þeir kaupið i
I lausum aurum og friðindum.
Ætli miljónin i mánaðarkaup
| komi þeim spánskt fyrir sjónir
■ úr þvi að verkstjóri i stóru
| frystihúsi fær kr. 700 þúsund i
a fastar mánaðartekjur auk alls-
■ kyns friðinda.
Það væri skemmtilegur fróö-
I leikur ef visir menn tækju sig til
I og reiknuðu út hvað mikla fjár-
■ muni hægt er að mjólka út úr
| þessum dæmalausu tapfyrir-
■ tækjum i launum, friðindum og
I risnu til yfirstjórnar forstjóra
, og eiganda þeirra á ári.
Þá munar amk. ekki um að
i skella á borðið 12 miljónum
! króna þótt fyrirtækin geti ekki
| borgaö rafmagnsreikning upp á
■ slika upphæð. Margir frysti-
I húsastjórar eiga ibúðir i
■ Reykjavik, sem þeir nýta i
I______________________________
sláttuferðum til höfuöborgar-
innar, eða eins og annað fólk
notar sumarbústaði. Reyndar
er það mjög algengt að efna-
menn búsettir úti á landi eigi
ibúðir i Reykjavik.
Okkur hefur t.d. verið bent á,
að söluverð þokkalegrar ibúðar,
sem Eyjólfur Martinsson hjá
Isfélaginu i Vestmannaeyjum á
við Háaleitisbraut i Reykjavik
muni örugglega nægja til að
borg alla skuld Vestmannaey-
inga við RARIK, en vegna
þeirrar skuldar hefur sem
kunnugt er staðið til að taka raf-
magnið af öllum Vestmannaey-
ingum og loka fyrir orkusölu úr
landi til Eyjanna.
Einhverjum finnst það máske
huggun harmi gegn, að frysti-
húsastjórarnir skuli þó ekki
vera á vonarvöl, þótt fyrirtæki
þeirra sýni slikan taprekstur, aö
ekki dugi aö lækka kaupiö til
starfsfólksins,. heldur veröi að
afnema kaupgreiðslur með öllu
svo aö fyrirtækin geti boriö sig.
Heimsmyndin
á hvolfi
Alltaf er Morgunblaðið að
koma manni á óvart. Siðast
sneri það á hvolf þeirri heims-
mynd sem það hefur innprentað
manni á siðustu árum. Klippari
þeSsa þáttar hefur trúað þvi
statt og stöðugt að umhverfis
landið úöi og grúði af sovéskum
njósnaskipum, merktum og
ómerktum njósnatogurum, kaf-
bátum og njósnaflugvélum all-
an ársins hring. Sérstaklega
hafa Sovétmenn gert sér far um
að sögn Morgunblaðsins aö efla
allt sitt njósnalið við Island fyrir
hverjar kosningar. Liklega til
þess að hjálpa áróðursmaskinu
Sjálfstæðisflokksins við að efla
Rússagrýlu.
Nú kemur það upp úr dúrnum
að Pétur Sigurðsson, land-
helgisgæsluforstjóri, heldur þvi
fram i Morgunblaðinu að gæsl-
an hafi einungis orðið var viö
eitt sovéskt njósnaskip á öllu sl.
ári hér við land, og það utan
okkar landhelgi á alþjóðlegri
siglingaleið. Morgunblaðið er að
sönnu ákaflega áreiðanlegt blað
i hvivetna en það er hart að
þurfa að trúa þvi að Sovétmenn
séu hættir að sýna Ísíandi
áhuga.
Sníkjulíf
Sósialistar og vinstri menn
halda gjarnan upp á merkis-
daga. 1-mai, 1-des., 8. mars og
30. mars, eru dæmi um slika
daga og er þá efnt til samkoma.
Yfirleitt sameinast fleiri en ein
samtök um samkomuhaldið og
er þá tiundað hverjir að þvi
standa. Hvimleiður er sá siður
samtaka sem nefnast EIK-ml
og fleiri slikra að lifa snikjulifi á
dögum sem þessum. Háttur
þeirra er sá að samfylkja með
sjálfum sér og efna til hátiða-
halda undir ýmsum fallegum
nöfnum: Baráttueining,l-des, 8-
mars hreyfingin o.s.frv.
Engum ætti að verða meint af
þvi að villast inn á samkomur
þessa ágæta fólks fremur heldur
en á samkomur Hjálpræðis-
hersins. En áróðursmáti þeirra
minnir á tregðu islenskra mat-
vælaframleiðenda til þess aö
gefa upplýsingar um innihald
vöru sinnar á umbúðunum.
—ekh