Þjóðviljinn - 18.03.1978, Page 15
Laugardagur 18. mars 1918 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Úr iögum nr. 39 frá 1943:
,,í Reykjavík (og í bæjarfélögum og þorpum, á nokk-
urn veginn samskonar hátt, aths. Þjv.) skal skipa
þriggja manna húsaleigunefnd. Tveir af þeim skulu
skipaðir af ríkisstjórninni, annar eftir tilnefningu Leigj-
endafélags Reykjavíkur og hinn eftir tilnefningu Fast-
eignaeigendafélags Reykjavíkur, en hæstiréttur skipar
þann þriðja, og er hann formaður nefndarinnar. Þrír
varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Formaður og
varaformaður nef ndarinnar skulu vera lögf ræðingar. —
Húsaleigunefnd úrskurðar um gildi uppsagnar og önnur
atriði, er greinir í lögum þessum, og framkvæmir mat á
húsaleigu og staðfestingu á leigumálum (leigusamning-
um, aths. Þjv.) samkvæmt lögunum."
Ein af trúarsetningum islensks
efnahagslifshljóðar svo: Þú skalt
hið fyrsta eignast þak yfir höfuð-
ið. Að sjálfsögðu samræmis raun-
veruleikinn þessari trú á sinn
bjagaða hátt. öruggasta leiðin til
að vernda sparifé gegn verðbólgu
hefur löngum verið fjárfesting i
húsnæði. Á hinn bóginn þýðir slik
fjárfesting að efnaminni fjöl-
skyldur skuldbinda sig til ein-
hvers strangasta sparnaðarpró-
grams i veröldinni. Fæstir lifa i
vellystingum praktuglega á með-
an þeir slita sér út við að koma
þaki yfir höfuðið.
Hér er ætlunin að fjalla um hinn
kostinn, þeas. þessa ofurhuga
sem nefnast leigjendur. Tilefnið
er almennt séð það bága ástand
sem islendingar búa við i þessum
efnum samanborið við öll ná-
grannalönd okkar, en sérstaklega
hefur þó viðtal við Jón frá Pálm-
Ungt fólk á tslandi á um það að velja aö steypa sér út i botnlausar
skuldir við að koma yfir sig húsnæði eða búa við algert öryggis- og rétt-
indaleysi leigjandans. Aö komast óskaddaður á sál og Iikama út úr öng-
þveiti húsnæðismálanna er erfiöara heldur en fyrir úlfaldann að kom-
ast gegnum nálarauga.
Húsaleiguhneykslíd
Jón Asgeir Sigurðsson
holti i nýútkomnu hefti ,”,Vinnunn-
ar” (sem Alþýðusamband Is-
lands gefur út) orðið tilefni þess-
ara skrifa.
Uppsögn óheimil
Jón bendir réttilega á að fram
til 1968 hafi verið til húsaleigulög
hér á landi, en það ár voru þau af-
numin. Þar var um að ræða lög
nr. 39 frá 1943, sem myndu — ef
þau væru i gildi i dag — jafnast á
við framsæknustu húsaleigulög i
nágrannalöndum okkar. Skoðum
þessi afnumdu lög nánar.
,,l.gr. Leigusala er óheimilt að
segja upp leigusamningum um
húsnæði....” Frá þessu skýra
ákvæði fyrirfundust þrennskonar
undantekningar. Leigusali, þeas.
eigandi húsnæðisins, gat slitið
leigusamningnum ef leigjandinn
stóð ekki i skilum með greiðslur á
húsaleigu, eða ef leigjandinn hag-
aði sér þannig að hann að dómi
húsaleigunefndar þótti óhæfur fil
að búa i húsinu. Loks átti leigusali
rétt á að segja upp leigusamn-
ingnum, ef honum að dómi húsa-
leigunefndar var brýn þörf á hús-
næðinu fyrir sjálfan sig eða nán-
ustu ættmenni.
I Sviþjóð er bannað að segja
leigjendum upp nema til þess
liggi alveg sérstakar aðstæður
svo sem misferli, eða að rifa eigi
húsið, endurbyggja eða nota til
annars en ibúðar, eða alveg sér-
stakar ástæður séu fyrir hendi.
Takmarkaðar
hækkanir
Jón frá Pálmholti leggur til að
stofnuð verði samtök leigjenda,
og telur þetta ve “ulega brýnt
verkefni, þar eð ,,um þriðjungur
launa venjulegs verkr manns fer i
að greiða leigu fyrir húsnæði sem
hann nýtur engra réttinda i og
gæti þess vegna verið visað út
með dagsfyrirvara, ef húeigand-
anum þóknaðist að hringja i hann
og reka hann.”
Litum þá á grein i okkar af-
numdu húsaleigulögum:
„6. gr. óheimilt er að hækka
húsaleigu eftir húsnæöi frá þvi,
sem goldið og umsamið var hinn
14. mai 1940 (þea.s þrem árum
fyrir gildistöku laganna, aths.
Þjv,)...” Auðvitað fylgja ákvæði
um heimild til húsaleiguhækk-
ana, en þær eru bundnar tvenns-
konar skilyrðum. Annarsvegar
átti félagsmálaráðherra að
ákveða hlutfallið milli húsaleigu
og viðhaldskostnaðar (sem kaup-
lagsnefnd skyldi reikna út að
staðaldri) og skyldi svo húsa-
leiguvisitala byggjast á þessum
ákvörðunum félagsmálaráð-
herra. Heimilt var að hækka
húsaleigu i samræmi við visitöl-
una.
Hinsvegar var eftir mati húsa-
leigunefndar heimilt að hækka
leigu sökum verðhækkunar á elds-
neyti eða lýsingu sem innifalið
var i leigunni, eða sökum vaxta-
hækkunar af fasteignum og ann-
ars þess háttar. Loks gat húsa-
leigunefnd heimilað leiguhækkun
á húsnæði sem leigt hafði veriö
lægra en sambærilegt húsnæöi á
sama stað (kaupstað, kauptúni
eða sveit).
En húsaleigulögin gáfu ekki
einungis kost á leiguhækkunum.
Leigjendur gátu krafist þess að
húsaleigunefnd legöi mat á leigu
með lækkun fyrir augum, ef eig-
andinn vanrækti viðhaldsskyldu
sina eða húsnæðið taldist af öðr-
um ástæðum leigt óhæfilega hátt
vegna ásigkomulags þess.
Mat á húsaleigu átti húsaleigu-
nefnd m.a. að miða við verð hús-
næðisins, viðhald þess, ásig-
komulag og legu, og taka jafn-
framt tillit til húsaleigu almennt i
sambærilegu húsnæði á þeim
stað.
1 Sv'þjóð hefur verið litið á það
S’im mjög mikilsvert atriði i hús-
neðis máluin að halda húsaleig-
unni niðri þannig að hún verði
laegri en 20% af venjulegum
launatekjum, og sjá auk þess svo
um að nýjir bústaðir séu nægilega
stóri og vel búnir fyrir fjölskyldur
með meðaltekjur.
^ramhald á 18. siðu
„Það glóði
á hreinar
gersemar”
Fyrir nokkru var greint frá þvi
hér I blaðinu að Menningar- og
fræðslusamband alþýðu heföi ný-
verið efnt til samkeppni um gerð
ieikþátta, sem henta vel til sýn-
inga á vinnustööum, á fundum
verkalýðsfélaga og á öðrum sam-
komum verkalýðshreyfingarinn-
ar. Sýningartimi er miðaður við
15-20 minútur, 2-3 leikendur og
einfaldan leikbúnað.
Verðlaun verða veitt fyrir leik-
þátt sem að mati dómnefndar
telst verðlaunahæfur og skulu
þátttakendur senda efni sitt til
skrifstofu MFA Grensásvegi 16,
fyrir 1. júni n.k.
Meira starf
aukin fjölbreytni
„Þetta kom upp hjá stjórn
MFA, þ.e.a.s. að efna til þessarar
samkeppni, fyrstog fremst vegna
þess að okkur þótti skorta á efni
af þessu tagi og vildum gjarna
reyna að auka á fjölbreytni i
starfi verkalýðsfélaganna, og um
leið auka áhuga fólks á fræðslu.og
menningarstarfi þess sjálfs”,
sagði Stefán ögmundsson, starfs-
maður MFA, þegar Þjóðviljinn
leitaði til hans til að fræðast frek-
ar um samkeppnina.
Fyrir nokkrum árum héldum
við vinnustaðafundi á nokkrum
stöðum og höfðum þá m.a. til sýn-
ingar leikþátt, sem við höfðum
fengið Véstein Lúðviksson til að
skrifa fyrir okkur, sagði Stefán.
Það tókst mjög vel i alla staði, og
jafnframt vorum við með listsýn-
ingu úr Listasafni ASI ásamt
kynningu á fræðslustarfinu. A eft-
ir voru svo frjálsar umræður eftir
þvi sem timi vannst til, en þetta
fór fram i framlengdum kaffitim-
um verkafólks.
Við vildum gjarna halda þessu
starfi áfram en það sem einkum
hamlar þvi er skortur á heppilegu
efni til flutnings. Þvi vaknaði
þessi hugmynd, að efna til sam-
keppninnar og við vonum að sem
flestir bregðist vel við og sendi
okkur efni.
Tengist baráttunni
Hefur verið skipuð dómnefnd til
að skera úr um ágæti þess efnis
sem væntanleg berst?
Nei, það hefur reyndar ekki
verið gert enn. En ég á von á þvi
að þegar dæmt er um slika hluti
Stefán ögmundsson
sem þessa þá verði ráðandi þau
sjónarmið sem hafa mest félags-
legt og listrænt gildi og tengjast
sókn launafólks fyrir betri og
mannsæmandi lifskjörum.
Rithöfundar og ekki
rithöfundar
Búist þið við mikilli þátttöku
rithöfunda?
Það veit maður ekki enn, það er
ekki svo um langt liðið siðan sam-
keppnin var auglýst. En aftur á
móti tel ég það mjög æskilegt að
starfandi rithöfundar þjóðarinnar
leggi hér hönd að verki og það er
að minu viti engum þeirra ósam-
boðið að fást við þetta verkefni,
nema siður s^.
Það er reyndar óskandi að sem
flestir láti eitthvað af mörkum og
við sem höfum starfað að
frsiðslumálum I verkalýðshreýf-
ingunni á undanförnum árum,
bæði i fræðsluhópunum, á nám-
skeiðum og i félagsmálaskóla al-
þýðu upplifað það sem flestir
raunar vita, að fólk i röðum is-
lenskrar alþýðu býr margt yfir
snjöllum hugmyndum og hæfni til
að setja þær vel fram. Og til
dæmis á siðasta félagsmálaskóla,
sem lauk nú i byrjun mars samdi
hver nemandi 5 minútna minn-
ingu frá bernskuárum og flutti og
þar glóði á hreinar gersemar á
köflum.
Viötal við Stefán
Ögmundsson um
leikþáttasam-
keppni
Menningar- og
frϚslusam-
bands alþýöu
Hæfileikar alþýðunnar
Og það má eiginlega segja að
samkeppnin sem við höfum efnt
til sé ekki sist ætluð til þess að
laða fram og nýta fyrir fjöldann
þessa hæfileika hins óbreytta al-
þýðumanns. Þess vegna væntum
við þátttöku bæði rithöfunda og
annarra.
Enn hafa okkur ekki borist
neinir leikþættir enda varla von
svo stuttu eftir að samkeppnin
var auglýst, en þó nokkuð hefur
verið um að fólk hringdi til okkar
og-óskaði frekari upplýsinga, sem
fúslega eru veittar.
Þá má einnig geta þess að i
þessum þáttum væru söngvar vel
þegnir. Þeir eru bæði áhrifarikir
og lifga upp stuttan þátt.
Verkefni fyrir unga leikara
Og hverjir, hafið þið hugsað
ykkur að myndu svo flytja efnið?
Að sjálfsögðu gerum við ráð
fyrir að fólk úr verkalýðshreyf-
ingunni taki sjálft þátt i flutning-
um, en við gerum okkur lika vonir
um, að hinir fjölmörgu ungu leik-
arar, sem litil eða engin verkefni
hafa geti lagt okkur lið við flutn-
inginn.
Og þá er bara að setja niður og
koma hugmyndum sinum á blað
og senda þær til MFA, i pósthólf
5281, fyrir 1. júni n.k.
■IGG