Þjóðviljinn - 01.04.1978, Qupperneq 5
Laugardagur 1. april 1978 ÞJÓDVILJINN — StÐA 5
Umsjón:
iDagný K.risT|ansaoTTir
Elísabet Gunnarsdóttir
Helga ólafsdóttir / /
Helga Sigurjónsdóttir /
Silia Aðalsteinsdóttir /
Þagað um kj ör alþýðu
í kennslubókum
r
Arsfjórðungsfundur Rauðsokka á mánudaginn
Á mánudaginn kemur,
3. apríl verður haldinn 1.
ársf jórðungsf undur
Rauðsokkahreyf ingar-
innar á þessu ári. Hann
verður í Sokkholti, Skóla-
vörðustíg 12 og hefst kl.
20.30. Á fundinum verða
tveir kosnir í miðstöð, en
samkvæmt skipulagsskrá
hreyf ingarinnar skulu
tveir ganga úr miðstöð á
hverjum ársf jórðungs-
fundi og aðrir valdir í
staðinn. Þannig situr eng-
inn lengur en eitt ár sam-
fellt í miðstöð og með
þessu fyrirkomulagi eru
meiri möguleikar á að
virkja fleiri félaga til
starfs en venjulegast er í
félögum eða hreyfingum
af ýmsu tagi. Hef ur þetta
lika gefist vel hingað til.
Nú eru virkir félagar i Rauð-
sokkahreyfingunni milli 50 og
60, þ.e. þeir sem eru i starfshóp-
um. Þess utan eru fjölmargir
styrktarfélagar (hátt i 200), sem
leggja málstaðnum ' lið með
fjárframlögum og eins eru þeir
reiðubúnir til að gripa i verk
þegar mikið liggur við, þó að
þeir séu ekki starfandi i hópum.
Nú eru starfandi sex hópar i
hreyfingunni.
Ætla að gefa út efnið
Eins og komiö hefur fram i
fréttum hér i blaðinu tókst dag-
skrá Rauðsokka, MFIK og
Kvenfélags sósialista 8. mars
fágæta vel, enda var vel til dag-
skrárinnar vandað og geysi
mikil vinna lá að baki henni og
var það verkalýðsmálahópurinn
sem þar var að verki. Nú hefur
hópurinn ákveðið að gefa út allt
efniö sem þá var flutt, auk ljós-
mynda sem teknar voru á fund-
inum. Er þetta hið þarfasta
verk, þvi að þarna er að finna
mjög mikilsverðar heimildir
um lif og kjör verkafólks, eink-
um verkakvenna, bæði fyrr og
nú. Ekki mun af veita að halda
saman og koma á framfæri
þeirri vitneskju, ekki er um svo
auðugan garð að gresja i þeim
efnum. 1 kennslubókum sem
börnum og unglingum eru
fengnar i hendur i skólunum er
af eðlilegum ástæðum þagað
sem fastast um kjör alþýðunnar
ilandinu og grimmilega baráttu
hennar við auðvaldið. bess i
stað haldið að ungmennunum
glansmynd af „frjálsræðishetj-
unum góðu” og „athafnamönn-
unum” sem eru svo miklir
velgerðamenn þjóöarinnar.
Væri vonandi að útgáfa þessa
efnis yrði notuð sem viðast,
bæði i skólum, verkalýðsfélög-
um og annars staðar þar sem
menn vilja fræðast um kjör
verkafólks.
Fjölskyldan og hjóna-
bandið
16. mars var annar fjölmenn-
ur fundur haldinn á vegum
Rauðsokkahreyfingarinnar.
Hann var haldinn i Sokkholti og
troðfylltist húsið svo að standa
varð og sitja á hverjum lófa-
stórum bletti. Ræðumaður
kvöldsins var Inga Huld Hákon-
ardóttir og flutti hún bráð-
skemmtilegt og fróðlegt erindi
um hjónabandiö og fjölskylduna
og hvernig yfirvöld bæði andleg
og veraldleg móta og stýra
einkalifi manna og hafa gert
gegnum aldirnar.
Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á nýjum starfshópi
hreyfingarinnar, en það er svo-
kallaður Ráðgjafarhópur. Það
virðist furðu algengt að fólk
bæði konur og karlar viti ekki
nógu mikið um réttindi sin eða
réttleysi i þjóðfélaginu, Oft
vakna menn upp við vondan
draum þegar erfiðleikar af
ýmsu tagi steðja að og vita þá
ekki hvert vænlegast er að snúa
sér til að afla sér upplýsinga.
Afleiðingarnar þessa geta verið
býsna afdrifarikar og hefur
fólk, aðallega konur leitað nokk-
uð til Rauösokkahreyfingarinn-
ar eftir leiðbeiningum og upp-
lýsingum um ýmis mál. Helst er
þaö varðandi hjónaskilnað og
óæskilega þungun.
Upplýsingar tiltækar i
Sokkholti
Ráðgjafahópurinn tekur þó
alls ekki að sér hlutverk félags-
ráðgjafa, salfræöinga eða lög-
fræðinga. heldur er hlutverk
Er\ dtk<in rwin/ \
þú, htíma : l'
Ic(Cji jx. éq hÆec-t \
louu.n- oq { öðttu. /
lagi h'e-fu.e fní /
Vmik/u. bvt&x la$ )
/g. keókkutyí ' íy/
hans að hafa tiltækar margs
lags upplýsingar um það hvað
, unnt sé og æskilegast að gera i
hverju tilviki og til hvaða aðila
réttast er aö leita og hvar i
„kerfinu” þá er að finna. Hefur
hópurinn nú safnað saman upp-
lýsingum um þetta og eru þær
tiltækar i Sokkholti á venjuleg-
um opnunartima þar kl. 5-6.30
daglega.
Dagvistarmálin eru stöðugt á
dagskrá hjá Rauðsokkahreyf-
ingunni og hafa verið frá upp-
hafi. Sérstakur hópur um þau
mál starfaði mjög kröftulega i
fyrra og það var fyrir atbeina
hans að verkalýðshreyfingin tók
kröfuna um dagvistun fyrir öll
börn upp i kröfur sinar á sl. vori.
Sá hópur lauk störfum upp úr
áramótum í fyrra en nú hefur
nýr hópur verið myndaður og
starfar hann af krafti. Hann er
þó fremur mannfár eins og er og
veitir ekki af liðsauka. Þessum
málaflokki þarf stöðugt að
fylgja eftir, ráðamönnum ætlar
seint að skiljast að öll börn eiga
að hafa þau sjálfsögðu mann-
réttindi að eiga kost á góðri dag-
vistun um lengri eða skemmri
tima, annaö er ekki sæmandi i
nútimaþjóðfélagi.
Hópurinn byrjaði á að safna
gögnum um skólaheimilis- og
dagheimilismál og sendi auk
þess frá sér pistil i dagskrána 8.
mars. Upp á siðkastið hefur
hópurinn hins vegar meira fjall-
að um innri gerö barnaheimila
og hélt nýlega opinn fund meö
Guðnýju Guðbjörnsdóttur upp-
eldisfræðingi og nokkrum fóstr-
um til að ræða þau mál.
Nýir hópar — nýtt fólk
A hinum stóru fundum Rauð-
sokkahreyfingarinnar undan-
farið hafa margir sýnt starf-
seminni mikinn áhuga og marg-
ir nýir komið til starfa. Er það
venja að nýju fólki sé leiðbeint
sérstaklega og frætt um hreyf-
inguna i sérstökum hópum sem
nefnast nýliðahópar. Einn slik-
ur er nú nýtekinn til starfa undir
• leiðsögn Guðrúnar Agústsdótt-
ur.
A ársfjórðungsfundinum á
mánudaginn munu eflaust
verða myndaðir enn fleiri hóp-
ar. Vitað er t.d. að áhugi er fyrir
að koma af stað leshring um
kvennabaráttuna og hvaða
hræringar eru efst á baugi i
heiminum. Einnig að reyna að
fá þýddar á islensku bækur um
þau mál, á þvi er geysimikil
þörf vegna þess að nánast ekk-
ert er til um efnið á islensku. Og
þó margir lesi amk. Noröur-
landamálin þokkalega er sá
hópur þó fjölmennur sem getur
ekki lesið sér til gagns neitt á
erlendum málum. Þann hóp má
ekki vænrækja.
Framhald á 18. siðu.
Skjaldhamrar á Bíldudal
Leikfélagið Baldur á Bildudal
frumsýndi Skjaldhamra Jónasar
Árnasonar fyrir skömmu fyrir
fullu húsi og komust færri að en
vildu. Leikendum og leikstjóra,
Kristinu önnu Þórarinsdóttur var
mjög vel fagnaö I leikslok og virt-
ust áhorfendur hafa skemmt sér
hið besta.
Hlutverkin skipa: Hannes Frið-
riksson, Margrét Friðriksdóttir,
örn Gislason, Eyjólfur Ellerts-
son, Sævar Guöjónsson og Ása
Garðarsdóttir. öll skiluöu þau
hlutverkum sinum með hinni
mestu prýði, enda flest með all-
langan feril að baki sem áhuga-
leikarar. Búninga saumaði Helga
Sveinbjörnsdóttir af hinni mestu
natni og gerði það ágæta hand-
verk sitt til að setja skemmtileg-
an svip á sýninguna. Undirritaður
málaði leiktjöld ásamt Viktoriu
Jónsdóttur kennara, en fjölda-
margir lögðu hönd á plóginn til að
gera sýninguna sem best úr
garði. Formaður leikfélagsins
Baldurs er Jón Ingimarsson.
Sýnt hefir veriö tvisvar á Bildu-
dal og áformað er að fara með
leikritið á Patreksfjörö og Barða-
strönd um páskana. Siðan mun
vera meiningin að brjótast ein-
hvernveginn norðureftir og sýna á
hinum Vestfjörðunum.
Hafi hin ágæta listakona
Kristin Anna, höfundur og áhuga-
leikarar i leikfélaginu Baldri
þökk fyrir skemmtilega sýningu.
Hún var þeim öllum til sóma.
Bildudal, 22. mars 1978
Hafliði Magnússon
Frá vinstri: Hannes Friðriksson, Margrét Friðriksdóttir, Asa Garðars-
dóttir, örn Gislason og Eyjólfur Ellertsson.