Þjóðviljinn - 09.05.1978, Síða 2

Þjóðviljinn - 09.05.1978, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. mal 1978. Slíkum stjórnarháttum eiga Reykvíkingar að hafna. Sigurjón Pétursson, borgatfulltrúi: Almennt kallaöur Auðvitað er þetta rétt. Það sem er látið ósagt er að þeir sem alltaf „verða útundan” eru þeir sem ekki hafa aðgang að kerfinu. bað sem þarf að gera er að setja reglur um lóðaúthlutun, sem tryggir jafnan rétt almenn- ings og útilokar áhrif pólitikus- anna. Það mætti hugsa sér að koma upp punktakerfi þar sem t.d. væri tekið tillit til þessara þátta fyrirutanhin almennu skilyrði: 1. Fjölskyldustærðár 2. Hversu lengi viðkomandi hefur átt umsókn um lóð. 3. Ástand núverandi íbúðar. 4. Byggingarmöguleikar, þ.e. fjárhagur, lánamöguleikar, tekjur o.fl. Hugsanlega ættu fleiri atriði að vera með í punktagjöfinni en þetta gefur visbendingu um hvernig hægt væri að byggja upp réttlátt kerfi. Þeir, sem væru með flesta punktana fengju siðan lóðirnar og ef ein- hverjir væru siðan jafnir, þá væri einfaldlega dregið um hverjir fengju lóðirnar og hverj- ir ekki. Það er einfalt að koma við réttlæti ef vilji er til þess. Þaðer liins vegar enginn vilji lil þess lijá borgarstjórnar- meirihlutanum. Hann vill fá að halda áfram að hygla sinum mönnum og hegna hinum, sem ekki skriða. Slikum stjórnarháttum eiga Heykvikingar aö hafna. Sigurjón Fétursson. Skákmótið á Kanarí: klíkuskapur Til að fá lóð i Reykjavik verða umsækjendur að uppfylla nokk- ur skilvrði. sem hvorki eru margbrotin eða flókin. Hin helstu eru; að vera fjár- ráða, vera islenskur rikisborg- ari hafa ekki fengið úthlutun á raðhúsa, tvibýlishúsa-, eða ein- býlishúsalóð siðustu 10 árin, eða aðild að fjölbýlishúsi siðastliðin 5 ár og að vera i skilum viö gjaldheimtuna. Flestir sem ætla að reyna að fálóðogfái hendur umsóknar- eyðublaðið, fyllast bjartsýni og ánægju þegar þeir sjá þessiskil- yrði þvi allflestir umsækjendur uppfylla þau að fullu. Vonbrigðin verða þvi oft sár þegar umsóknum sumra er hafnað ár eftir ár, þrátt fyrir að öllum skilyrðum sé fullnægt, en aðrir fá lóð um leið og þeir sækja. Það sem ræður úrslitum um það bvort umsókn er tekin til greina eða ekki er nefnilega ekkert af þvi sem stendur á um- sóknareyðublaðinu beldur það sem almennt er kallaður kliku- skapur. Lóðir eru notaðar sem dúsurtilað hygla flokksgæðing um og afla alkvæða og vin- sælda. Sá sem engan ,,þekkir” á litla möguleika á að hljóta úthlutun Sigurjón Pétursson. a.m.k. á meðan munur á fram- boði lóða og eftirspurn er jafn mikill og verið hefur siðustu ár. Sé á þetta minnst er viðkvæð- ið hjá meirihlutanum jafnan; Ja, — þegar umsóknir eru margar en lóðir fáar og þegar flestir uppfylla öll skilyrði þá hljóta einhverjir að verða út- undan. Friðrik viö top Með sigri sinum yfir Sovét- Panchenko vann Padron, Sax manninum Panchenko hefur Friðrik ólafsson stórmeistari aftur blandað sér i toppbaráttuna á alþjóðaskákmótinu i Las Palmas á Kanarieyjum, Friðrik vann Sovétmanninn mjög örugglega og ætti að eiga góða möguleika á efstu sætunum þvi hann hefur til þessa teflt við mjög sterka andstæðinga, ólikt sterkari en t.d. forystusauðurinn Miles. Úrslit i 5. umferð mótsins urðu sem hér segir; Mariotti vann Padron, Tukmakov vann Stean, Dominquez vann Sanz. Jafntefli gerðu Medina og Miles, Csom og Rodriquez, Del Corral og Sax, Vesterinen og Larsen. Eins og áður sagði vann Friðrik Panchenko. 6. umferð: Úrslit i 6. umferð sem tefld var á laugardaginn urðu sem her segir: Marioiti vann Medina, vann Vesterinen, Larsen vann Dominqez, og Stean vann Sanz. Jafntefli gerðu Tukmakov og Friðrik, Miles og Csom og Rodriquez og Del Corral. Staðan að loknum 6 umferðum: 1-2. Miles og Tukmakov 4,5 v. 3-5. Larsen, Sax og Stean 4 v. 6-8. Friðrik,Mariotti og Ðel Corral 3,5 v. 9. Sanz 3 v. 10-12. Vesterinen, Csom og Rodriquez 2,5 v. 13-14. Panchenko og Dominquez 2 v. 15. Padron 1,5 v. 16. Medina 1 v. t gærkvöldi var tefld 7. umferö. Þá tefldi Friðrik við Stean og hafði hvitt. Greint er frá úrslitum umferðarinnar á öðrum stað i blaðinu. —hól r rioriK oiaisson er nu auur ao færast I aukana á Kanarleyjum. Kaupsvikin halda áfram o Verðbótaviðauki ekki heldur greiddur um þessi mánaðamót Hinn svonefndi verðbótaauki sem greiða átti á lægstu laun samkvæmt 2. grein kaupránslaga rikisstjórnarinnar hefur enn ekki sést i launaumslögum hinna lægstlaunuðu. Ekki sist bitnar þetta á Sóknarkonum sem vinna hjá riki og borg. Ástæðan er sú að enn hefur ekki verið unnt að búa til forskrift fyrir tölvur Skýrslu- véla rikisins sem meðtaka ekki fyrirmæli löggjafans um útreikn- ing vcrðbótaviðaukans. Tvenn mánaðarlaun hafa nú verið greidd út án þess að verðbótavið- aukinn til hinna lægstlaunuðu hafi verið reiknaður út hvað þá greiddur. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Starfsstúlknafélagsins Sóknar sagði i gær, að mikil óá- nægja rikti meðal félagsmanna vegna þessara kaupsvika. Sagði hún að haft hefði verið samband við ASl i máli þessu og væru væntanlegar aðgerðir gegn kaup- svikunum i höndum þess. Steinþór Sigurðsson, starfs- maður ASÍ, tjáði blaðinu að málin væru i athugun en engar ákvarð- anir hefðu verið teknar enn. —IM lsL listmunir í ísl. heimilisiðnaði islenskur heimilisiðnaður mun á næstu mánuðum kynna sérstak- lega Isienskt listafóik, sem versl- unin hefir verið i samvinnu við. Kynning þessi verður i verslun- inni i Hafnarstræti 3, og verða væntanlega tveir til þrir lista- menn kynntir hverju sinni. Það listafólk, sem kynnt er sérstak- lega nú, er Haukur Dór, leirkera- smiður og hjónin Kartrin Ágústs- dóttir og Stefán Haldórsson. Katrin og Stefán ,,KOS” sýna Batik kjóla og mussur. Þau hafa starfrækt vinnustofu i 12 ár, fyrst sem hliðargrein með kennslu, en núna sem aðalstarf. Þau hafa lagt megináherslu á þjóðlifsmyndir, en eru nú jafnframt farin að vinna Batikfatnað, eins og kjóla, mussur o.fl. Katrin stundaði nám i Danmörku og hefur haldið nokkrar einkasýningar og einnig tekið þátt i samsýningum. Hauk- ur Dór hefir starfrækt vinnustofu i 10 ár, en hafði áður stundað list- nám i Skotlandi og Danmörku. Haukur er lika listmálari og hefir haldið einkasýningu og tekið þátt i samsýningum. A þessari sýningu eru bæði búshlutir og skúlptúr, en aðal viðfangsefni Hauks er núskúlptúr i steinleir. „KOS”, kjólar verða sérstaklega kynntir og sýndir i Skálafelli n.k. fimmtudagskvöld. Listkynning þessi stendur vfir til 26. mai. Bókasafnið Út er komið nýtt hefti af timaritinu Bókasafnið, sem embætti bókafulltrúa rikis- ins og bókaverðir standa að. Meðal efnis má nefna viðtal við Harald Guðnason, bókavörð i Vestmannaeyj- um, grein um ráðstefnu þá um uppslýsingamál, sem haldin var i Reykjavik á veg- um Rannsóknarráðs rikisins á nýliðnum vetri, og grein um norrænan sumarskóla fyrir bókaverði. Sagt er frá nýbreytni i flokkunar- og skráningarmálum i Háskólabókasafni. Þá eru i ritinu ritgerðir um skóla- söfn, skipasöfn og list- bókasöfn. Timaritið er 48 siður að stærð, prentað i Prentstofu G. Benediktssonar. Oil eldri hefti Bókasafnsins eru enn fáanleg. Heimilisfang ritsins er: Bókasafnið, pósthólf 7050, 107 Reykjavik. Fyrirlestur um impress j ónista Guðbjörg Kristjá nsdóttir listfræðingur heldur fyrirlestur um frönsku impressjónistana á vegum Alliance Francaise i Franska bókasafninu, Laufásvegi 12, I kvöld kl. 20.30 (9. mai). Nokkrir málarar i Frakklandi mótuðu þessa stefnu á árunum eftir 1870 og verða að ýmsu leyti frumherjar nútimamálaralistar. Guðbjörg Kristjánsdóttir stundaði nám i listasögu i Paris og lauk þar magisterprófi i þeirri grein. Sýndar verða litskyggnur með fyrirlestrinum og er öllum heimill aðgangur. Stjón Alliance Francaise.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.