Þjóðviljinn - 09.05.1978, Side 9

Þjóðviljinn - 09.05.1978, Side 9
Þriðjudagur 9. mai 1978. ÞJÖÐVILJINN — StÐA 9 Vid eigum samleid Góðir félagar og aðrir sem mál mitt heyra. IVleð verkfallsrétti starfsmanna rikis og bæja hefur mátt sjá bandalag þeirra breytast úr máttlitlum samtökum i öflugt forystufélag, og það þó að verk- fallsréttur okkar sé vissulega takmarkaður. Þessu til sönnunar er skilyrðislaus aðild BSRB að sameiginlegu ávarpi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna og Iðnnema- sambands lsiands 1. maí 1978. Þeir eru þó enn margir, sem telja Bandalag starfsmanna rikis og bæja eiga litla samleið með verkalýðshreyfingunni vegna miklu betri kjara og meira at- vinnuöryggis. Benda menn þá gjarnan á há laun æöstu embætt- ismanna þjóðarinnar og telja fjarstæðu að samtök þeirra eigi samfylgd með láglaunafólkinu innan verkalýðshreyfingarinnar. En menn gleyma þá jafnframt öllum þorra starfsmanna rikis og bæja, sem einmitt fyllir flokk hinna lægst launuðu. Þessar raddir heyrast ekki aðeins innan verkalýðshreyfingarinnar, held- ur einnig innan BSRB. Opinberir starfsmenn hafa um langan aldur verið réttlausir til kröfugerðar og sjálfdæmis um eigin launakjör. Rikisvaldið hefur á hverjum tima skammtað okkur það sem þvi hefur þóknast, og eina von okkar um breytingu var almenn laung- hækkun i landinu fyrir baráttu verkalýðsh.reyfingarinnar. Fyrir það erum við þakklát, en nú ætl- um við ekki lengur að vera þiggj- endur, heldur ætlum við að berj- ast með verkalýðshreyfingunni, sem við erum hluti af. En erum við þá hluti af verka- lýðshreyfingunni? Ætli það ekki bara. Menn þurfa að vera meira en litið ruglaðir i hugmyndafræð- inni til að andmæla þvi, og það sýnast menn stundum vera. i Þjóðviljanum mátti fyrir tveim dögum lesa eftirfarandi frásögn af ritgerð eftir ungan háskóla- mann: ,,Skiptingu leigjenda i stéttir miðar (greinarhöfundur) við það grundvallarviðhorf að þjóðfélagsstéttirnar hverfist um tvö skaut, annars vegar sú stétt sem hefur eignarhald á fram- leiðslutækjunum, hins vegar sú stétt sem ekkert á i fyrirtækjun- um og lifir þvi af launavinnu”. Þetta má vissulega fallast á. En Rœða Guðrúnar Helgadóttur á fundi Alþýöu- bandalagsins á Hótel Borg 1. maí svo heldur greinin áfram : „Útfrá þessu viðhorfi skiptast leigjendur i þrjá hópa: Stétt 1, sem telur stærri atvinnurekendur, æöri em- bættismenn, stjórnendur fyrir- tækja og fólk sem hefur lokið há- skólaprófi”. Það var næsta furðu- legt að ekki skyldu koma sjálf- krafa asnaeyru á siðuna sem þetta stóð skrifað á. Þetta er nefnilega alrangt, sé maðurinn að skilgreina stéttir og stéttaskipt- ingu, vini og óvini. Það skiptir nefnilega engu máli hvort við höf- um lokið háskólaprófi eða ekki. Við eigum öll sama óvininn og hann ber okkur að þekkja, en það er auðvaldið i heiminum. Og lát- um ekki blekkjast. Heimsauð- valdið teygir klær sinar inn i rikisstjórn Islands eins og aðrar rikisstjórnir og við fáum ekki rönd við reist nema fólki lærist að skilja þetta. Og það er sú verka- lýðsbarátta sem við eigum að heygja. Verkalýðsbarátta i heimi nútimans er ekki einungis strið um krónur og aura i flóknum vinnulaunatöxtum, hún er miklu meira og merkilegra mál. Mönnum verður að skiljast, að verkalýðsbarátta okkar daga er margfalt flóknari en á árum áður, og þess vegna er auðveldara að láta blekkjast. í upphafi islenskr- ar verkalýðsbaráttu fundu menn þörfina til að berjast á sjálfum sér, menn höfðu ekki neitt til neins. Þá stóðu menn saman i verkfalii þar til yfir lauk, enda höfðu þeir engu að tapa. Haust- maturinn og fiskurinn héldu i mönnum tórunni og menn skiptu með sér eftir föngum, en það biðu engar afborganir af ibúðum, bil- um eða heimilistækjum. Menn áttu ekki neitt. Svona er þetta ekki lengur. Nú búum við i vel- ferðarþjóðfélagi svonefndu, við burðumst með skuldaklafann á bakinu og höldum að þetta sé bara harla gott, og svoleiðis fólk fer ekki i verkfall i tvo daga til þess eins að missa stóran hluta launa, sem þegar er búið að ráð- stafa áður en þau koma. Afborg- anakerfið færi i öngþveiti marga mánuði fram i timann. Og há- skólafólkið hefur ekki aðeins þennan klafa, heldur einnig af- borganir af lánum frá Lánasjóði námsmanna svo miljónum skipt- ir, kyrfilega verðtryggðum, til að fá að stunda háskólanám. Var það þetta sem frumherja verkalýðsbaráttunnar og sósia- lismans dreymdi um? Nei, ætli það nokkuð. Enda er ekki aö sjá að mönnum liði tiltakanlega miklubetur i velmeguninni, segja þeir sem lengi hafa lifað. Frumherjana dreymdi um vald yfir framleiðslutækjunum, vald til að deila með sér afrakstri vinnu sinnar til gagns öllum jarðarinnar börnum, svo að þau gætu lifað við farsæld, svo að þau þyrftu ekki að liða skort, svo að þau gætu menntast og lifað sem upprétt fólk. Þetta takmark nálg- ast óhugnanlega hægt og ef til vill er engin hreyfing á þvi. Valdið er ekki i okkar höndum, en það er erfiðara að þekkja óvininn nú en áður. Valdið er ekki heldur i höndum stjórnmálamannanna, hvort sem þeim er það ljóst eða ekki. Hlutirnir gerast ekki fyrir þeirra tilstilli, heldur fyrir verkn- að annarra afla. Nærtækt dæmi er fyrirhugað samnorrænt gervi- hnattakerfi til miðlunar sjón- varps- og útvarpsdagskráa allra norðurlandanna. Áætlað verð 2 miljarðar dollara eða sama upp- hæð og allur sá áburður, sem van- þróaðar þjóðir kaupa til að rækta jörðina. Þetta fyrirtæki kallast NORDSAT.Eftir að það er komið upp á himinbogann, getum við horft á sama sjónvarpsefnið og allir eru að glápa á á þvi sama augnabliki, en þurfum ekki að biða eftir póstinum. Islenskir þingmenn og ráðherrar sitja langa fundi um þetta merka fyr- irtæki og þegar er búið að eyða miljónahundruðum i kannanir á þvi. Hvern langar svo að fá þetta? Ekki mig, ekki ykkur, ekki stjórnmálamennina né embættis- mennina, sem eru að fjalla um þetta. Nú en hvern þá? Jú, auð- hringana sem framleiða tækja- búnaðinn i þetta langar i NORDSAT og þeir munu fá það. Þetta er framtiðin, var það eina sem forsætisráðherra okkar hafði að segja um málið. Þetta er það sem koma skal. Og þessu trúir hann sjálfsagt. Og nú á lika að byggja jarðstöð fyrir fjarskipta- starfsemi og hefja rekstur hennar árið 1979. Einn aðili, samsteypan INTELSAT, rekur gervihnetti til almennra fjarskipta hér á okkar svæði. Stærstu hluthafar þess eru t.d. þokkafyrirtækin sem steyptu Allende af stóli i Chile og myrtu hann siðan, og sama leikinn leika slikir hvar og hvenær sem veldi þeirra er ógnað. Þessar fyrirætl- anir vekja enga umræðu eða nær enga, svona lagað gerist bara. Auglýsingaslúðrið verður að hell- ast yfir allan heiminn i einu, hve- nær sem auðhringarnir ákveða að nú skulum við kaupa eitt eða ann- að. Þetta er framtiðin. En þetta er engin sjálfgefin framtið nema við viljum hana, Við getum stöðvað þennan leik með okkur. Það ger- um við ekki með þvi að hiaupa með budduna á lofti tugþúsundum saman og borga okkur inn i bilaauglýsingar, hve- nær sem auðhringar úti i heimi ákveða að nú skuli Islendingar kaupa nýjan bil. Af hverju skilj- um við ekki, á hverju þetta vald þessara manna byggist? Þetta vald yfir okkur byggist á arð- rændum, fáfróðum og kúguðum verkalýð — ódýru vinnuafli eins og það er kallað — um allan heim, sem er miskunnarlaust brytjaður niður, ef hann reynir að risa á fætur. Þessir herrar vita, að veldi þeirra er hrunið, ef verkalýðurinn ris upp. Og þetta á verkalýðs- hreyfing allra landa að skilja. Hagsmunir þessara kúguðu bræðra og systra eru hagsmunir okkar sjálfra. Þá fyrst, þegar þetta fólk getur risið upp, ákveð- um við sjálf, hvort við sendum upp sjónvarpshnetti eða gerum eitthvað annað við peningana okkar, eignumst kannski nægilegt sjúkrarými fyrir hina öldruðu, græðum upp landið eða annað þess háttar. Guðrún Helgadóttir. Svo eru menn að skipta islensk- um verkalýð i hópa og halda þvi fram, að þeir eigi ekkert sam- eiginlegt. Fyrir baráttu frum- herjanna fengu fátækir krakkar úr islenskum sjávarþorpum að fara i skóla, eins og Karl Marx, Engels og Lenin höfðu gert, eins og Bynjólfur Bjarnason, Arsæll Sigurðsson, Einar Olgeirsson og Sigfús Sigurhjartarson höfðu gert á undan okkur. Þeir væru allir i Bandalagi háskólamanna nú. Áttu þeir ekkert sameiginlegt með verkalýðshreyfingunni? Þvi svarar hver fyrir sjálfan sig. Menntun þessara manna hjálpaði þeim til að greina þjóðfélagið sem þeir lifðu i eins og menntun af öllu tagi hlýtur ævinlega að gera. En aflið á bak við þá er falið i verka- lýðshreyfingunni. Án þess verður engu breytt. Með flóknari heimi verður sifellt meiri þörf á há- skólamenntuðu fólki. og ekkert nema samstaða meðvitaðrar verkalýðshreyfingar og mennta- fólki um heim allan getur bjargað jarðkúlunni frá tortimingu. Þetta er sú eina verkalýðsbarátta sem skiptir raunverulegu máli. Ég er hreykin af að standa hér i dag sem fufltrúi BSRB. sem skrifaði mótatkvæðalaust undir ávarp dagsins um frelsi. jafnrétti og bræðralag. Við eigum samleið. látum engan segja okkur annað. Tónlistarhátíö á Akureyri Dagana 12,— 14. mai næstkom- andi halda Passiukórinn á Akureyri, Lúðrasveit Akureyrar og Tónlistarfélag Akureyrar þriggja daga tónlistarhátið i tþróttaskemmunni á Akureyri-. Hátiðin hefur hlotið nafnið Tön listardagari mai 1978. Þetta er i annað sinn sem haldnir eru Tón- listardagar með þessu sniði. I mai' i fyrra efndi Passiukórinn til samvinnu við Tónlistarfélag Akureyrar. Það var þriggja daga hátið sem hófst með einsögnvara- tónleikum. Þvi næst voru tónleik- ar Sinfóniuhljómsveitar islands, sem ekki hafði komið til Akureyr- ar um árabil. Hátiðinni lauk með tónleikum Passiukórsins og var þar flutt óratorian Messias eftir G.F. Handel. Þetta var i' fyrsta sinn — og mo eina tu þessa — sem þetta stórvirki tónlistarinnar var flutt i fullri lengd hér á landi. Aðsókn að öllum tónleikunum var afar góð og undirtektir með slikum ágætum að ákveðið var að freista þess að gera Tónlistar- dagaað reglulegum árlegum við- burði. I þetta sinn hefur Lúðrasveit Akureyrar bæst i hóp aðstand- enda Tónlistardaga og auk þess munu félagar úr öllum söngkór- um á Akureyri taka þátt i flutningi eins verkanna á Tón- listardögum nú. Dagskrá Tónlistardaga er sem hér segir: Föstudagur 12. maí: Sinfóni'uhjómsveit Islands leikur undir stjórn Páls P. Pálssonar. Einleikariá lágfiðlu verður Unn- ur Sveinbjörnsdóttir A efnisskrá verða meðal ann- ars: Béla Bartók: Konsert fyrir lágfiðlu og hljómsveit. Ottorino Respighi: Furutré Rómaborgar Laugardagur 13. mai: Lúðrasveit Akureyrar ásamt blásurum úr Sinfóniuhljómsveit Islands og u.þ.b. 160 manna kór undir stjórn Roars Kvam. Efnisskrá: F. Mendelsohn: Overture fiir Harmoniemusik op. 24. A. Reed: Rahoon, Rhapsody for Clarinet and Band. H. van Lijnschooten: Nederlandse suite fiir Harmonie. H. Berlioz: Syphonie Funebreet Triomphale. Þessa tónleika verður að telja merkan viðburð. 011 verkin á efnisskránni verða hér frumflutt á Islandi. Auk þess kemur fram i lokaverkinu, Sorgar- og sigursin- fóniu Berlioz, kórþar sem félagar úr ölium kórum á Akureyri sam- eina krafta sina. Þetta munu verða hátt á annað hundrað manna. Sunnudagur 14. mai: Passiukórinn á Akureyri syngur ásamt kammersveit og einsögnv- urum undir stjórn Roars Kvam. Efnisskrá: J.S.Bach: Kantata B.W.V. 21, „Ich hatte viel Bekiimmernis. W.A. Mozart: Requiem K.V. 626. Meðkórnum mun leika kamm- ersveit skipuð hljóðfæraleikurum úr Sinfóniuhljómsveit tslands. Einsögvarar verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Ruth Magnússon, Jón Þorsteinsson og Halldór Vil- helmsson. • Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garöabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö SIMI 53468 Æft i Akureyrarkirkju. Ný frímerki Tvö ný frimerki hafa verið gef- in út. Þau eru að verðgildi 80 krónur, með mynd af Viðeyjar- stofu, og 120 krónur með mynd af Ilúsa vikurkirkju. Þröstur Magnússon hefur teiknað merkin, en útgáfudagur var 2. mai. 1 frétt frá Póst og simamálastjórn segir: Viðeyjar- stofa var byggð á árunum 1752—54. Hún var byggð að frum- kvæði Skúla fógeta sem bústað- ur landfógeta. Arkitekt hússins var danskur maður Nicolai Eigtved. Hann var þekktur arkitekt á sinum tima og meðal verka hans má nefna kon- ungshöllina Amalienborg. Nú er unnið að breytingum á húsinu, þar sem það er fært nær sinu upprunalega útliti. Bygging Viðeyjarstofu brýtur blað i sögu húsagerðar á Islandi. Hún er fyrsta steinhúsið og jafn- framt þvi lang stærsta iveruhús þeirra daga. Af þessum ástæðum má telja Viðeyjarstofu meðal merkisbygginga, sé miðað við að- stæður þess tima. Húsavfkurkirkja var byggð ár- ið 1906. Kirkjuna teiknaði Rögn- valdur Ólafsson. en hann var fyrsti islenski húsameistarinn og er kirkjan hans fyrsta verk. sem reist var. Húsavikurkirkja er svo kölluð krosskirkja. bvggð úr timbri. Hún var ein af merkisbyggingum þjóðarinnar á timburhúsaöld. sem stendur frá þvi skömmu fyr- ir aldamótin 1800 til 1918 að talið er.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.