Þjóðviljinn - 20.05.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.05.1978, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. mal 1978 L AF GRÍNPÍS l tískuheiminum í dag eru það einkum tvö fyrirbrigði/ sem verið hafa í sviðsljósinu, nefnilega selurinn og hvalurinn. Mér er næst að halda að hinn siðmenntaði heimur hafi fyrir f ullt og allt hafnað fyrrver- andi uppáhalds gæludýrum sínum, hundinum og kettinum, til að geta í staðinn úthellt ástúð- inni og hjartagæskunni yfir þessi tvö tísku- neðansjávardýr, selinn og hvalinn. Mér datt þetta í hug með hundinn og köttinn, selinn og hvalinn, þegar englendingar komu hér um daginn færandi okkur íslendingum nokkuð sem þeir kölluðu „Grínpís", en grín- písinn eru útlendingar, sem vilja vernda náttúruna með því að fá íslendinga til að hætta að veiða hval og loðnu. Það veit sá sem allt veit að síðastur allra skal eg verða til að fara óvirðingarorðum um þá, sem vinna að náttúruvernd og friðunar- málum. Mér finnst réttast að friða allt sem lífsanda dregur, jafnvel mannskepnuna sjálfa, með vissum undantekningum, því satt að segja er ég þeirrar skoðunar að meiri hætta sé á útrýmingu manna en sela og hvala. Mað- urinn er og hefur víst alltaf verið réttdræpur, að vísu oftast í alls konar „átökum" guði til dýrðar. Maðurinn er nefnilega í þessum heimi mun ófriðhelgari en bæði selurinn og hvalurinn til samans og jafnvel þótt haförninn sé tekinn með. Víkjum nú aftur að þvi sem málið snýst um, en það er koma nokkurra manna hingað til lands um daginn, til að kynna sjónarmið sín varðandi útrýmingu á hvalnum og þann hvalalosta, sem sá maður hlyti að vera hald- inn, sem stuðlaði að hvalafullum dauðdaga hvala með hvalveiðum. Byrjað var á því að efna til blaðamanna- fundar og voru hinir friðelskandi englending- ar, sem mannkynssagan telur að hingað til haf i ekkert kvikt máttsjá án þess að stytta því aldur, harðorðir í garð íslendinga fyrir 'að stuðla að útrýmingu hvalsins. Þetta ódæði töldu þeir okkur vinna með tvennum hætti. í fyrsta lagi svelta hvali i hel með því að veiða loðnu, og svo náttúrlega með því að veiða þá hvali, sem vísast væri að lif að hefðu áfram, ef þeir hefðu ekki verið drepnir. íslensku vísindamennirnir voru ekki seinir til svars og bentu á það, að umræddir hvalir lifa nær eingöngu á Ijósátu og rauðátu, en hafa svo mikið ógeð á loðnu að þeir æla ef svosem eitt stykki eða tvö lenda fyrir slys uppi þeim. Það fer fyrir þeim eins og hundunum í Ferju- koti forðum, sem ældu ef þeir heyrðu lax nefndan. Skýrt var þó tekið fram á blaða- mannafundinum, að hvalir væru ekki mat- vandir og hefðu jafnvel lagt sér Jónas nokk- urn og Gosa til munns forðum, og meira að segja afa Gosa í deser ásamt ketti og gullfiski. Lauk svo þessum blaðamannafundi með því, eins og svooftáður, að allir voru engu nær um ekkert. Fram kom á fundinum að Filipus, eigin- maður Bretadrottningar, hefði verið upphafs- maður að hvalaverndun yfirleitt og hefði raunar kunngert heiminum í eitt skipti fyrir öll, að það væru helst málefni hvalsins, sem hann bæri f yrir brjósti í þessari hrjáðu veröld. Þetta varð til þess, að allir fyrirgáfu honum og gleymdu því að hann var farinn að halda framhjá konunni sinni, hennar hátign Breta- drottningu. Þá kom það fram, að hjartfólgn- asta ástríðumál Bítlanna væru örlög hvalsins, svo Ijóst er að hér er ekkert smámál á ferð- inni. En það er ekki aðeins hvalalosti, sem gripið hef ur um sig i skemmtanaiðnaðinum í heimin- um, heldur líka selalosti. Það skeði á dögunum að gleymd og falleruð frönsk lærajóka reis uppúr gleymskunni, kvaddi sér hljóðs og krafðist þess að selurinn yrði umsvifalaust friðaður. Hún komst fyrir tiltækið strax aftur uppá toppinn, ekki eins og áður útá kroppinn, heldur selinn. islendingar vita sennilega meira um selinn en Brisjí Bardó. Selurinn kom hér að sögn fyrst frá Frakklandi og var þá andskotinn sjálfur í selslíki og með það á bakinu, sem nú er á (slandi kallað „afætur þjóðfélagsins", nefnilega fræðimann. Síðan hefur selurinn haldið sig við strendur landsins og gætt sér á nytjafiski landsmanna og er sagður éta 100.000 tonn á ári (hundrað þúsund tonn), en það er þriðjungur af öllu því sem allur floti landsmanna aflar á ári. Selur- inn er sem sagt á góðum vegi með að útrýma þorskinum og þar með íslendingum (í tvenn- um skilningi). Þess vegna er sama, hvað söngprump- hænsni, drottningarmenn og fatafellur á sölu- skrá skemmtanaiðnaðarins segja og gera til að auka við f rægð sína. Það er ekki um annað að gera fyrir íslendinga en útrýma selnum, svo selurinn útrými ekki íslendingum Þó er gát alltaf best með forsjá, eða eins og gamla konan sagði forðum: Góðir menn þess gæta vel að gera ei hvalnum miska. En þeim verður ekki um s e I, ef hann drepur fiska. Flosi. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið og nokkrar ógangfærar bifreiðar þar á meðal ’ Pick-up bifreið með framhjóladrifi, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju- daginn 23. mai kl. 12-3. Tilboðin verða opn- uð i skrifstofu vorri kl. 5. SALA VARNARLIÐSEIGNA Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. T résmíöaverkst æðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613 Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garðabæ önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Leikfangasafnið að Sæbraut 1 Aö Sæbraut 1, (Kjarvalshúsi) Seltjarnarnesi, er rekin marg- háttub þjálfunar- og athugunar- sterfsemi. Þar er rekin athugunar- og greiningardeild i tengslum vi6 öskjuhliöarskóla. Deildin veitir þjónustu nú sem stendur for- skólabörnum, sem þarfnast at- hugunar vegna frávika i þroska. Aö Sæbraut 1 er einnig starf- rækt leikfangasafn (útláns- og leiöbeiningarstarfsemi) er lánar valin leikföng og bækur heim til barna meö frávik frá eölilegum þroska. Félagar úr Lionsklúbbnum Tý hafa á undanförnum árum stutt þessa starfsemi á margvislegan hátt. Þeir hafa lagt vinnu i frágang og viöhald á leikvelli. Gefiö pen- ingagjafir til kaupa á þjálfunar- tækjum og góöum leikföngum. Ennfremur hafa þeir gefiö kvik- myndatökuvél og kvikmyndasýn- ingarvél. A s.l. ári sýndu þeir félagar enn stórhug sinn, er þeir afhentu deildinni kr. 500.000.00 er variö skyldi til kaupa á kennslu og Úr leikfangasafninu þjálfunartækjum, m.a. sérhæfö málörvunarverkefni, tæki til sjúkraþjálfunar, segulband o.fi. Styrkjum kosningasókn Alþýðubandalagsins! Kosningahappdrætti Sala miða í kosningahappdrætti Al- þýðubandalagsins er hafin á kosn- ingaskrifstofum flokksins um allt land. f Reykjavík að Grettisgötu 3. Sími: 17 500. Verð hvers miða er kr. 1000. Dregið verður 30. júní. Alþýðu- bandalagsfélög um allt land munu senda út miða til félagsmanna næstu daga. Stuðningsfólk Alþýðubanda- lagsins er beðið um að gera skil sem allra fyrst og efla kosningastarfið með framlögum. Vinningar. 1. Ferð til Kína. Kr. 400.000 2. Orlofsferð fyrir tvo til Búlgaríu kr. 300.000 3. 14 daga ferð um (rland kr. 130.000 5. Sólarlandaferð fyrir tvo kr. 300.000 6. Orlofsferð fyrir tvo til Júgóslavíu kr. 300.000 7. Skáldverk Halldórs Laxness: kr. 160.000 8. Ritverk Þórbergs Þórðarsonar kr. 60.0000 9. Skútuöldin eftir Gils Guðmundsson. kr. 40.000 10. Ritverk að eigin vali kr. 40000 EFLUM KOSNINGASJÓÐINN!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.