Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 16.09.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 16. september 19781 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Fundur, fundur.. Aðalfundur Bridgesambandsins t lögum Bridgesambands islands segir svo, aö á tveggja ára fresti skuli haldinn aöal- fundur sambandsins, i septem- ber mánuði. Til hans skuii boöaö meö minnst sex vikna fyrir- vara, og skuli fundurinn standa yfir tvo daga. Rétt til þingsetu eiga öll félög innan BSt, og fer hlutur fulltrúa eftir félagatölu innan viökomandi félags. begar þetta er skrifað, er september hálfur og enn örlar ekki á tilkynningu til félaganna um fund þennan. bó verð ég að játa, aö „heyrst” hefur úr her- búðum sambandsins, aö aöal- fundurinn - verði haldinn i næsta mánuði. bó svo væri, vil ég áminna stjórn sam- bandsins, aö halda settum reglum og boöa til þessa fundar á réttan hátt. Útséð er um þaö, að fundurinn verði haldinn i þessum mánuði, en burtséð frá þvi, ætti stjórnin að leitast við aö halda fundinn sem fyrst. bað er út i hött, að vera meö svona fundi seint á árinu, og þyrfti að flýta þessum ákvæðum þannig, að framvegis skuli þingað i ágústmánuði, svo stjórn BSl geti hafist handa strax um haustið, er félögin byrja sina starfsemi. Allur silaháttur hlýtur að koma niðri á skipulagi i starf- semi, hvort sem á i hlut sérsam- band eða félag. Ég tek undir þá hugmynd að lokum, að halda fund þennan i Munaðarnesi, viö fyrsta tæki- færi. bó mætti kanna viðhorf utanbæjarfélaganna til þessa, en séu þau neikvæð skal leitast við að halda þing i Reykjavik, eða á öðrum aðgengilegri stað. Frá bikarkeppni BSÍ Nú standa yfir leikir i 3. umferð mótsins (8 liða úrslitum). Sveit Guðmundar Páls Arnar- sonar sigraði Jóhannes Sigurðs- son úr Keflavik, nokkuð örugg- lega. Sveit Guðmundar hefur þvi tryggt sér sæti i undan- úrslitum. Og siðan áttust við sveitir Jóns Ásbjörnssonar og Vigfúsar Pálssonar. Sveit Jóns sigraði mjög örugglega, og hefur tekiö sæti i undanúrslitum. A morgun eigast við sveitir bórarins Sigþórssonar og Stein- bergs Rikharðssonar. bá er ólokið leik milli sveita Hjalta Eliassonar og Guðmundar T. Gislasonar. r Frá Asunum bá er keppni lokið i sumar- bridge 1978. Sigurvegari varð Esther Jakobsdóttir. Hún er margreynd keppniskona, enda landsliðsmaður i greininni. Félagið óskar henni hjartanlega til hamingju, með sigurinn. Hún sigraði einnig 1976, er félagið hóf sumarbridge. úrslit sl. mánudags: A-riðill: stig: 1. Hrólfur Hjaltason — JónPállSigurjónsson 126 2-3. Jón Pálsson — Kristin bórðardóttir 118 2-3. Runólfur Pálsson — Vigfús Pálsson 118 4. Georg Sverrisson — Kristján Blöndal 113 5-6. Helgi ölafsson — Jónas P. Erlingsson 107 5-6. Baldur Bjartmarsson — Jón Oddsson 107 B-riðill: 1. Sigurður Sverrisson — Guðmundur Pétursson 221 2. Björn Eysteinsson — Magnús Jóhannsson 198 3. Óli Már Guðmundsson — bórarinn Sigþórsson 197 4. Guðmundur Páll Arnarson Sverrir Armannsson 193 5. Halla Bergþórsdóttir — Esther Jakobsdóttir 174 6. Aibert borsteinsson — Sigurður Emilsson 170 Alls tóku 22 pör þátt i keppni sl. mánudag. Meðalskor var 108 st. i A, en 165 stig i B-riðli. Alls hafa 239 pör spilaö i sumar hjá Asunum. bessir uröu efstir i stiga- keppni i sumarbridge: Esther Jakobsdóttir nst. borlákur Jónsson 10,5 st. Guðm. Páll Arnarson ’ 10 st. Guömundur Pétursson 9 st. Sævar borbjörnsson 8st. Baldur Bjartmarsson 8st. Jón Oddsson 8 st. Næsta keppni félagsins er 3 kvölda haust-tvimennings keppni. Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson. 1 fyrra báru Einar borfinnsson og Sigtryggur Sigurösson sigur úr býtum. — Hvað gerðist nú? Keppni hefst kl. 20.00. Frá BR Regluleg vetrarstarfsemi félagsins hefst nk. miðvikudag, bridge % W" ■ ,/.Á Wlfy * d Umsjón: ÉfeijL f Ólafur Hl, .. Lárusson 20. sept. Spilað verður i Domus Medica. Keppni hefst með eins kvölds upphitunartvimenning. Að sjálfsögöu eru allir hjartanlega velkomnir og gamlir félagar hvattir til að taka með sér nýja félaga. Keppnisstjóri verður Olafur Lárusson. Sú nýjung hefur verið tekin upp, að keppni he'st kl. 19.30. Skorað er á væntanlega spilara að mæta timanlega til skráningar, svo keppni geti hafist á settum tima. Stjórn félagsins skipa: Baldur Kristjánsson formaður, borfinnur Karlsson, Páll Bergs- son, Sigmundur Stefánsson og Sævar borbjörnsson. Sérstakur framkvæmdastjóri hefur verið ráöinn aö félaginu i vetur, er það ólafur Lárusson. Nánar siðar. Keppnisyfirlit BR sept.- des. Domus Medica kl. 19.30 á miövikudögum, nema 10. okt. og 7. nóv., en það eru þriðjudagar. 20. sept., miðvikudagur: Tvimenningskeppni. 27. sept.j miðvikudagur: Tvimenningskeppni. 4-18. okt., miðvd.-þriðjud,- miövikd., Hraðsveitakeppni. 25. okt.-15. nóv., miðv.-miðv,- þriöjud.-miðv. Butler-keppni. 22. nóv.-6. des., allt miðvd. Board-a-match sveitak. 13. des., miðvd., Sveitakeppni „Swiss movement”. Framkvæmdastjóri félagsins er Ólafur Lárusson, i sima 41507. Nauðsynlegt er, að til- kynna þátttöku i öll lengri mót með viku fyrirvara til fram- kvæmdastjóra eða stjórnar- meðlims. Formaöur félagsins er Baldur Kristjánsson. Félagar eru hvattir til að vera með frá byrjun. Nýtt félag innan BSÍ 1 sumar, gengu Vopnfirðingar inn i BSt. Formaöur félagsins (talsmaöur) er borsteinn Ölafsson. bátturinn býöur þá hjart- anlega velkomna, um leiö og hann fer fram á samvinnu á vetri komanda. Gaman væri að fá nánari upplýsingar um stærð félagsins og umsvif, keppnistilhögun og stefnumál. Vopnfiröingar, látið heyrast i ykkur. Frá TBK Keppnisyfirlit félagsins fram að áramótum er hér: Spila- staður Domus Medica. Keppnis- stjóri Agnar Jörgenson: 14. sept. sl. Tvimenningur. 21. sept.-19. okt. Aðaitvi- menningur félagsins 5 kv. 26. okt.-23. nóv. Hraðsveita- keppni. 5 kvöld. 30. nóv.-14. des. Jóla- tvimenningur. 3. kvöld. Væntanlegir þátttakendur geta látið skrá sig hjá Eiriki Helgasyni form., i sima 7-6174. Félagar eru hvattir til að vera með frá byrjun. Spilaö er á fimmtudögum, og hefst keppni kl. 20.00. FlM-félagar virða fyrir sér nokkur verkanna á haustsýningunni. — Ljósm.: Leifur Haustsýning FÍM með nýju sniði i dag kl. 15:00 opnar Félag ísl. myndlistar- manna hina árlegu haust- sýningu sína í sýningar- sal félagsins að Laugar- nesvegi 112. 25 félagsmenn sýna verk sín á sýningunni, sem verður með nýju sniði í ár. Hér er um að ræða fyrirkomulag sem norskir myndlistarmenn hafa tekið upp og nefna mini-utstilling. Stærð myndanna eru ákveðin takmörk sett, og verði þeirra er i hóf stillt. Hámarksstærð mynda á haustsýningu FlM er 50x50 cm og miðað er við að engin myndanna verði dýrari en 100.000 krónur. 1 Noregi hefur raunin oröiö sú, að ungt fólk hefur sótt þessar sýningar mikið og þá gjarnan keypt þar sinar fyrstu myndir. Ungir listamenn senda þangaö myndir, og einnig eldri og þekktari listamenn, sem senda þangað smærri og ódýrari myndir sinar. Hálft annað ár er nú liðið siðan FIM festi kaup á sýningarsalnum að Laugarnes- vegi 112. Hann er um 150 ferm að stærð, og auk þess er geymslurými i kjallara. begar blaðamann bjv. bar þar að i fyrradag sem FIM- félagar voru i óöa önn að hengja upp myndir sinar, var svo að heyra sem talsverður urgur væri i þeim vegna verðhækkana á vörum til myndlistariðkunar. Sem dæmi nefndu þeir, að rúlla af striga hefði hækkað um 130% á einu ári, nú siðast vegna gengislækkunarinnar og væri þó ekki um 30% vörugjald að ræða. Vörúgjald er hinsvegar hækkað á flest annað sem listamenn þurfa að nota. Listin er lúxus, skilst manni — sögðu þessir reiðu menn. Reyndar hefur hún alltaf verið það — þessar vörur hafa alltaf verið i sama toll- flokki og t.d. ilmvötn. En kannski hafa menn átt von á að vinstri stjórn myndi breyta þvi, fremur en hitt. Haustsýning FIM verður opin virka daga kl. 15-19 og kl. 15-22 um helgar, og lýkur sunnu- daginn 24. sept. ih Útboð Tilboð óskast i að gera verknámsbyggingu Iðnskólans á Selfossi fokhelda og fullfrá- gengna að utan með gleri. Lokið er við að steypa undirstöður, fylla i grunn og leggja holræsalagnir. Skila skal húsinu fokheldu 1. febr. 1979 en ljúka verkinu eigi siðar en 1. rhai 1979. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjartæknifræðings Eyrarvegi 8 Selfossi frá og með mánudeginum 18. sept gegn 20. þús. kr. skilatryggingu. Til- boðin verða opnuð á sama stað mánudag- inn 2. okt. kl. 14 að viðstöddum þeim bjóð- endum, er þess óska. Bæjartæknifræðingur Selfoss Félag jámiðnaðarmaitna Félagsfundur Verður haldinn mánudaginn 18. sept. 1978 kl. 8.30 e.h. i Domus Medica við Egilsgötu. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Kjaramál 3. önnur mál Mætið vel og stundvislega Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Auglýsingasíminn er 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.