Þjóðviljinn - 16.09.1978, Síða 20

Þjóðviljinn - 16.09.1978, Síða 20
PJOQVUJINN Laugardagur 16. september 1978 Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaös- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. I BÚÐIIM sfmi 29800, (5 lfnurN-^ , Verslið í sérverslun með litasjónvörp og hljómtœki Biðstaða í máli SGK og ríkisvaldsins FiskiöjuVer BÚH hefur veriö lokaö í hálfan mánud Tekur á ný til starfa á mánudag Fiskiðjuver Bæjarútgeröar Hafnarfjaröar hefur veriö lokaö það sem af er þessum mánuöi vegna f járhagsöröugleika og starfsfólk þess á enn laun inni frá þvi i ágústmánuöi sem þaö hefur lánað fyrirtækinu. Bragi V. Björnsson, sem situr i útgerðarráöi, sagöi i samtali viö Þjóöviljann i gær aö unnið hefði verið aö þvi að fá fyrirgreiöslu frá hinu opinbera og væri þaö nú svo langt komiö að fiskiðjuverið tekur til starfa á mánudag. Togararnir hafa landað erlendis en á mánu- dag verður landað i Hafnarfirði. —GFr Ein hrúga f einu er tekin og sléttuö, — Laufey Þóröardóttir, Guörún Reynis og Dóra Guöjónsdóttir viö vinnu sina hjá strætó. Ljósm. Leifur. Straudeild SVR að störfum: Miljón á dag lnni á Kirkjusandi þar sem höfuöstöövar SVR eru til húsa sitja 5-6 konur daglangt aö slétta hundraökalla. A hverjum degi kemur rúmlega 1 miljón króna I hundraököllum upp úr brúsum vagnstjóranna, og á mánudags- morgnum eru taldar meira en 2 miljónir upp úr þeim.'Brúsarnir eru ekki hannaöir fyrir seöla, og siöan fargjaldiö hækkaöi i 100 krónur i mai s.l. hefur fjöldi hundraökallanna fariö vaxandi meö degi hverjum. Þeir eru krumpaöir og samankuðlaöir og þá er ekki um annað aö ræöa en aö slétta þá og pressa áður en vél- in tekur til viö aö telja þá. Ljósmyndari og blaðamaöur litu inn á Kirkjusandi i gær og ræddu m.a. viö gjaldkera SVR Jóhönnu Bjarnadóttur og for- stjóra SVR, Eirik Asgeirsson. Jó- hanna sagði að smámyntin heföi farið siminnkandi i kössunum undanfarið og nú kæmi aðeins inn um hálf miljón daglega i mynt. Hún er flokkuð i þar til gerðum vélum og stræt(ímiðarnir skiljast frá i e.k. samblandi af ryksugu og skilvindu. Eirikur sagði að far- gjaldið kostaði ekki nema 78 krónur ef það væri greitt með far- miða, en engu að siður greiðir hélmingur farþega beint með peningum og þá frekar með seðl- um en smámynt eins og kemur fram hér að framan. Það verður vist ekki fyrr en um áramótin 1979-80 að ný og verð- mætari mynt verður tekin upp, sagði Eirikur og þangað til verð- um við bara að halda áfram að slétta hundraðkallana og reyna að fá fólk til að nota fimmtiukall- ana og aðra smámynt meira en nú er gert. —AI — Eins og er, er biðstaða í þessu máli, sagði Valgeir Gestsson formaður Sam- bands grunnskólakennara, er við inntum hann eftir gangi deílu sambandsins við ráðuneytin. — Eðli málsins er það að þessi staða getur ekki varað lengi, vegna kennaranemanna. Valgeir kvaðst vilja leggja rfka áherslu á að það væri ekki þeirra vilji að þessar aðgeröir bitnuöu eingöngu á kennaranemunum. — Þetta er ekki neinn leikaraskapur, en með þessum aðgerðum viljum viö sýna hve þunga áherslu við leggjum á þetta mál. — Ef staöan breytist ekkert á næstu dögum munum við kalla saman fulltrúaráðsfund og ræöa stöðuna og hugsanlegar aðgerðir, sagði Valgeir að lokum. —Knb Valgeir Gestsson formaöur Sam- bands grunnskólakcnnara. Hlutabréf í Flugleidum: NYTT HAPPDRÆTTI Jafnframt hluta- bréf í Air Bahama F'lugleiöir auglýsa nú mjög sölu á hlutabréfum og birta myndir af flugvélum meöþremur merkjum, F'lugfélags lslands, Loftleiöa og Air Bahama. Hafa sumir veriö aö velta fyrir sér hvort menn væru t.d. orönir hluthafar I Air Bahama meö þvi aö kaupa þessi bréf. Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi sagöi i samtalið viö blaðið i gær að Flugleiðir ættu nú þessi 3 félög að fullu og væru búnir að innkalla hlutabréf i þeim svo að þau væru nú einungis pappirs- blutafélög. Þeir sem keyptu þvi hlutabréf i Flugleiðum væru jafn- framt hluthafar i þremur fyrr- greindum félögum. —GFr nú geturðu fengið þér Ef þú færð þér lukkumiða og nuddar húðina af punktinum á miðanum geturðu strax séð, hvort þú hefur unnið sjónvarp, úr eða sælgæti. Freistaðu gæfunnar og fáðu þér miða.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.