Þjóðviljinn - 17.09.1978, Síða 5
Sunnudagur 17. september 1978 ,ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
,UPPREISN MEÐIUMANNA’
1 Norræna
húsinu á
mánudag
Meö grein eftir Ejvind Larsen I
Informalion um siöustu helgi
þar sem hann fjallar um hvort
..Oprör fra midten” 'sé til ein-
hvers nýtilegt fylgir þessi
teikning sem á aö sýna þann
ofvöxt sem hiaupið hefur I hefö-
bundna málnotknun vinstri
nianna. Flestir áhangendur
vinstri hreyfingarinnar hafi
uppgötvaö frá þvi ,68. aö engu
skipti, hvaöa afstööu þeir taki,
þvi aö ávallt sé hægt aö gera
hana tortryggilega meö ein-
hverju skammaryrði ár orö-
gnóttarsafni marxieninismans.
Krefjist einhver byltingar skil-
yröisiaust er hann einangrunar-
sinni. Tækifærissinnar eru þeir
nefndir sem telja aö bylting sé
timafrek þjóöféiagsbrey ting
sem þurfi sinn aölögunartima.
Staiinislar eru þeir kallaöir sem
vilja halda saman andstæöum
tilhneigingum og hreyfingum
undir einum og sama flokks-
hattinum. Endurbótasinnaöir
valtinkollar eru þeir sagöir vera
scm sinna vilja dægurþörfum og
gagnrýnisröddum fólks.
!>aö er meitntamannaafstaöa að
telja aö endurbætur séu til-
gangslausar á kapitalisku þjóö-
félagi, og óforbetranlegt
alþyöusnobb aö taka þátt i at-
höfnum og umbótatilraunum
andófs— hverfa— og framfara-
samtaka hverskonar, ef þau
hafa ekki titeinkað sér rétta
marxisk-leniniska grundvallar-
L(\ppesKgm»ÉRÍ7)
sýn á afstæöum f kapitalisku
hagkerfi.
Taki maöur miö af eigin þörfum
fyrir bættar samvistir viö fólk
og mannbætandi atvinnu er
,maöur óalandi einstaklings-
hyggjumaðurog hughyggjuflón.
Krefjist menn á hinn bóginn aga
og hlýöni viö flokkslinu eöa
stefnu verkalýösfélags eru menn
gerræöislegir og haldnir per-
sönulegri valdafikn,- Og svo
framvegis eftir þörfum úr oröa-
safni marx—leninismans.
„Opror fra midten” (Uppreisn
miömanna) eftir þá Niels I.
Meyer, K.Helveg Petersen og
Villy Sorensen kom út i Dan-
mörku i febrúar á þessu ári. Nú,
aðeins sjö mánuöum seinna hefur
þessi bók veriö prentuö i 117.000
eintökum, og kemur næst á eftir
bibliu og sálmabók hvaö út-
breiðslu snertir.
I bókinni reyna höfundar að
skilgreina þjóðfélag sem geti full-
nægt rríannlegum þörfum. Þeir
benda á að lýðræði sé ekki nema
dauður bókstafur fyrr en allir
borgarar taki þátt i þvi sem fer
fram i þjóðfélaginu og hafi þvi
áhrif á gang mála, sem varðar
það sjálft ekki siður en aðra. Nú
lætur 90% fólks sér nægja að setja
kross við bókstaf á fjögurra ára
fresti og lætur einhverjum nafn-
leusum yfirvöldum um fram-
kvæmd og stefnu mála.
Höfundarnir gagnrýna öfga-
stefnur til hægri og vinstri og
reyna að þræða hinn gullna
meðalveg. Þeir gagnrýna frjáls-
hyggju, þ.e. hömlulaust einka-
framtak, sem krefst þess að allar
manneskjur séu jafn sterkarEkki
ENGINN ER FULLKOMINN
f byggingariðnaði eru gerðar miklar kröfur, enda eru
byggingaraðilar stöðugt á höttunum eftir betri tækjum, meiri
afköstum og hagkvæmari útkomu.
Framleiðendur byggingakrana og steypumóta eiga í harðri
samkeppni um heim allan. Þess vegna verður val
byggingaraðila undantekningarlaust þau tækf, sem hafa
sannað kosti sína og yfirburði í reynd.
BPR byggingakranarnir, eru stolt franska byggingariðnað-
arins vegna afburða hæfileika, og útbreiðslu þeirra um alian
heim.
HUNNEBECK steypumótin hafa valdið tímamótum, ekki bara
í Þýzkalandi, hetdur víðast hvar annarsstaðar.
Betri tausn er varla til!
Allar frekari upplýsingar fúslega veittar á skrifstofunni.
ARMANNSFELL HF.
Leigu- sölu- og varahlutaþjónusta.
Funahöfða19, Sími 83307.
B0 Hunnebeck
siður gagnrýna þeir
marxismann,' sem þeir telja yfir-
náttúrulega trú á hrun kapi-
talismans sem greini ekki frá
hvað gerist eftir að alræði öreig-
anna sé orðið að veruleika. I þvi
sambandi benda þeir á austan-
tjaldslöndin i dag. Þeir eru á
þeirri skoðun að jörðin og stór-
fyrirtæki eigi að vera eign allra,
og trúa þvi að menn geti skipt
verkum með sér eftir þörfum og
að allir fái sömu timalaun. Eins
og einn gagnrýnandi komst að
oröi: Allir fái 35 (danskar )
krónur i timalaun, allir vinni 35
tima á viku, allir fái 35 daga
sumarleyfi og allir fái 35
(danska) aura i verðlagsuppbót.
Bókinni hefur verið tekið
harkalega af hægri mönnum og
gera þeir allt þeir geta til að
rakka bókina niður. Vinstri menn
telja bókina okkuð barnalega, en
hafa þó tekið gagnrýni hennar til
umfjöllunar. Geysilega mikið
hefur verið skrifað um bókina i
dönskum blöðum og umræöúr
sprottið út frá innihaldi hennar.
Almennir borgarar hafa tekið
henni mjög vel. Höfundarnir
þrír hafa fengið meira en 4000
bréf frá fólki sem ekki hefur átt
kost á að koma skoðunum sinum
á framfæri i fjölmiðlum. Þeir
hafa ákveðið að hefja útgáfu
blaðs i nóvember sem mun heita
,,PA VEJ — til et humant lige-
vægtssamfund (A leið — til
mannlegs jafnvægisþjóðfélgas).
Eins og útbreiðsla bokarinnar
bendir óneitanlega til hefur gróði
orðið af henni. Þremenningarnir
hafa stofnað sjóð sem styrkja á
útgáfu fyrrnefnds blaðs, sem
þegar hefur fengið meiraenþrjú
þúsund áskrifendur. Bókin
„Opror fra midten” er nú notuð i
mörgum umræðuhópum, lýð-
háskólum og jafnvel háskólum. A
næstúnni kemur bókin út i Noregi,
Sviþjoð og VesturÞýskalandi.
Hér á landi er staddur einn
höfundanna, Niels I. Meyer. Hann
er eðlisfræðingur að mennt og
hefur m.a. verið forseti Akadem-
iet for de tekniske videnskapber.
Hann er mikill áhugamaður um
nánari samstarf visindamanna
og stjórnmálamanna. I mörg ár
hefur hann verið félagi i Selskab
for samfundsdebat (Félag fyrir
þjóðfélagsumræöur) en það eru
Petersen og Sorensen einnig. Sl.
fimm ár hafa þeir unnið aö
þessari bók, og hefur hver bók-
stafur farið i gegnum margar
hendur. K.Helveg Petersen er
fyrrverandi menntamála-
ráðherra Dana og lýkur senn
störfum sem formaður stjórn-
málaflokksins Radikale Venstre.
Bókin hefur mætt mikilli and-
stöðu meðal eldri flokksbræðra
hans, en hinir yngri hafa tekið
heni vel. Villy Sorensen ei
þekktur rithöfundur og hefui
verið nefndur i sambandi vit
veitingu Nóvels-verðlaunanna
Hann er einnig heiöursdoktor vií
háskólann i Kaupmannahöfn.
Niels I.Meyer er hér i boð
Norræna Hússins og mun flytjs
þar erindi n.k. mánudag, 18
september kl. 20.30. Þar mui
hann fjalla um bókina og efna ti
umræðna um innihald hennar
Vonast hann til að fólk serr
hingað til hefur látið þjóðfélags
mál sig litlu skipta mæti á mánu
daginn.
Álsuðu -
handbókin
er komin út
Álsuðuhandbókin er gefin út af
samtökum norræna áliðnaðarins
sem kennslu- og handbók fyrir
málmiðnaðarmenn.
Álsuðuhandbókin fæst hjá
íslenzka Álfélaginu Straumsvík
sími 52365 og kostar aðeins 600
krónur. ^
™“s^ndkum. skon^\luminium
NORDISK ORGAN FOR ALUMINIUMINDUSTRIEN
NORRÆN SAMTÖK ÁLIÐNAÐARINS