Þjóðviljinn - 29.09.1978, Page 5
Föstudagur 29. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Agúst Petersen
Kjarvalsstöðum
a
Agúst Petersen opnar sýningu á
myndum sinum að Kjarvals-
stöðum laugardaginn 30. sept. kl.
15.00. Sýningin verður opin til 15.
okt. kl. 4—10 daglega, nema á
laugardögum og sunnudögum kl.
2—10.
í sýningarskrá segir m.a. svo
um Ágúst og list hans: „Ekki
verður Agúst kallaður „teikni-
snillingur” i hefðbundinni merk
ingu þess hugtaks, enda byrjar
hann listamannsferil sinn fyrir
alvöru fulltiða maður er hann
gengur til læris hjá nokkrum
helstu listmálurum okkar — Þor-
valdi Skúlasyni til dæmis.' En
hvað sem hann hefur misst úr á
þvi sviði á lifsleiðinni, hefur Ag-
úst bætt sér margfalt með með-
fæddu litaskyni, skapandi sér-
visku og ismeygilegri kimnigáfu.
Kannski mætti halda þvi fram að
þessi skortur á lipurð i teikningu
gefi verkum hans einmitt þann
sannfærandi frumkraft sem þau
oft búa yfir.”
Sigurþór sýnir
í Norræna húsinu
Sigurþór Jakobsson opnar á
laugardaginn sýningu f Norræna
húsinu, og sýnir þar 102 myndir.
Siurþór er fæddur árið 1942.
Hann lauk námi i prentiön frá
Iðnskólanum I Reykjavfk árið
1963, en stundaði jafnhliða nám
við Myndlistaskólann 1959-63.
Siöar var hann tvö ár við nám i
frjálsri teikningu og aulýsingar-
gerö i London. Hann hefurstarfað
sem teiknari hjá augiýsinga-
stofum undanfarnin 10 ár. Fyrstu
sýningu sina hélt hann á Mokka
1971. Hann hefur átt myndir á
haustsýningum FÍMog einnig hélt
hann sýningu i vinnustofu sinni
1975.
Sýningin verður opnuð kl. 16. 00
á laugardaginn, og verður hún
siöan opin daglega kl. 14.-22.
Henni lýkur sunnudaginn 8. okt.
Þjóðleik-
húskðrinn
syngur á
Hvolsvelli
og í
Aratungu
Þjóðleikhúskórinn er nýkominn
heim úr vel heppnaðri söngför til
Færeyja, þar sem hann hélt
þrenna tónleika. Kórinn hefur nd
ákveðið að syngja um helgina
fyrir ibúa á Suðurlandi og mun
halda tónleika á Hvolsvellikl. 16 á
sunnudaginn og kl. 21 um kvöldið
I Aratungu.
Söngskráin er sú sama og i
Færeyjaferðinni en þar eru atriði
úr ýmsum þekktustu og vinsæl-
ustu söngleikjum, óperum og
óperettum, sem kórinn hefur
sungið i i Þjóðleikhúsinu. Má td.
nefna Ævintýri Hoffmanns,
Leðurblökun a, OklahomaJ
Þryhiskviðu, Sigaunabaróninn,
May Fair Lady, Fást, Rigoletto
og Carmen. Einsöngvarar með
kórnum eru Guðmundur Jónsson
og Ingveldur Hjaltested auk
nokkurra kórfélaga. Einnig eru á
efnisskránni nokkur islensk lög
eftir Þórarin Guðmundsson,
Sigfús Einarsson, Emil Thorodd-
sen, Inga T. Lárusson og Jón Lax-
dal. Stjórandi kórsins er Ragnar
Björnsson en undirleikari á
tónleikunum verður AgnesLöew.
Pípulagnir
Nylagmr, broyt-
ingar, hitaveitu-
tengingar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og l og eftir kl. 7 a
kvoldin)
^ Varahlutaverslun
Viljum ráða sem fyrst starfsmann til af-
greiðslu i varahlutaverslun.
Enskukunnátta æskileg. Umsóknir með
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra, sem gef-
ur nánari upplýsingar, fyrir 10. okt. n.k.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
Við erum aðeins
að rýma fyrir
nýjum birgðum
, STOR
RYMINGARSALA
i á gólfteppum og bútum
AFSLATTUR
Stendur i nokkra daga
TEpprlrnd j
Grensásvegi13
Símar 83577 og 8343C
Orkustofnun
vill ráða sem fyrst starfsmann til bók-
haldsstarfa. Reynsla i tölvuvinnslu æski-
leg.
Eiginhandar umsókn með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf sendist
Orkustofnun Laugavegi 116 Reykjavik
eigi siðar en 5. október n.k.
Blaðberar
óskast
Vesturborg
Kvisthagi (1. okt.)
Skjólin (1. okt)
Austurborg
Álftamýri (l.okt.;
Miklabraut (sem fyrst)
MOBMflNN :
Siðumúla 6. Simi 8 13 33