Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 6
6 StÐA — WÓÐVILJINN * Laugardagur 14. október 1978 í Aþenu á morgun ✓ Akrópólishæb og aó sjálfsögóu hundruðir annarra fornfrægra stafta lafta miljónir ferftamanna til Aþenuborgar og Grikklands ár hvert. Tónsnillingurinn og kommúnistínn Þeódórakis gæti oröiö næsti borgarstjóri í Aþenu Mikis Þeódórakis. Verftur hann næsti borgarstjóri I Aþenu? Á morgun 15. okt., verður kosið til borgarstjórnar í Aþenu, höfuðborg Grikk- lands. Þessar kosningar hafa verið talsvert í sviðs- Ijósinu fyrir þær sakir að í framboði til borgarstjóra er hinn heimsþekkti tón- listarmaður Míkis Þeódórakis, og ekki talið með öllu ólíklegt að hann geti náð kjöri, en hann er í framboði fyrir Kommún- istaflokkinn í borginni. Blaftamaftur Þjóftviljans var staddur i Aþenu I slftustu viku, en þá var kosningabaráttan aft ná hámarki. Þaö sem hér fer á eftir er byggt á þvi, sem augaft sá og eyraft nam á þessum tima og af viftræftum vift Aþenubúa. Ekki er þó sist byggt á þvi sem Sigurftur A. Magnússon, rithöfundur, haffti frá aft segja, en hann hefur dvalift i Grikklandi sumarlangt og verft- ur þar fram aft áramótum, svo og á upplýsingum frá Halldóri Briem, sem búsettur er i Aþenu og hefur búift þar síftustu fjögur árin. Aðkoman Þó landift sé bjart og hlýtt þá er aðkoman til höfuftborgarinnar sú sama og þegar komift er til Is- lands; þaö er lent á herflugvelli. A flugvellinum I Aþenu er NATÓ-herstöft. Þar sitja Kanar og eins og i Keflavikinni reka þeir sina útvarpsstöft og glymur bandariska grafthestamúsikin yf- ir Aþenubúum nætur sem daga. Þaö var auöjöfurinn Onassiss sem lét byggja fyrir sig þennan flugvöll svona privat og persónu- iega, en gaf hann siftan borginni. En þess eru menn fullvissir aft borgarstjórnin hafi séft fulla ástæöu til aft gjalda þá gjöf, þó ekki væru peningar fram reiddir. Flugbrautirnar liggja yfir auft- manna- og hótelborgina Glyfaöa og eru þvi áform uppi um aft flytja flugvöllinn. Stafturinn sem fundinn hefur verið er I viftfeömu dalverpi, þar sem er mikil vin- rækt og aft henni unnift á sam- yrkjubúi. tbúarnir eru siftur en svo sáttir viö þessa ætlan og hafa risift öndverftir gegn henni. Standa harftar deilur um rétt hins opinbera til þess aft flæma fólkift upp af búinu og óvist hvernig þeim deilum lyktar. Ný fornborg. Þótt Aþena eigi sér þúsund ára sögu er borgin þó ný. Þaft er ekki ýkja langt siftan afteins um 20 þús- und manns bjuggu í hliöum Akró- pólishæöarinnar, I þvi hverfi borgarinnar sem heitir Plaga en er mikift og fjölbreytilegt mannlif þar aö finna nætur sem daga. tbúar Aþenu eru nú um 3 milj- ónir þegar hafnarborgin Pyreus og aftrar útborgir eru taldar meft en i gömlu Aþenu búa um 1,5 milj. Flestir búa Aþenubúar i heldur ljótum sambýlishúsum þótt margir búi rikulega. Bílrikt fólk Fátækter ekki veruleg i Aþenu. Má nokkuð ráöa af þvi aft i borg- inni eru 800 þúsund bilar, og eru þeir þó ekki ódýrari þar en hér. Trúlega ræftst þetta af þvi hversu gifurlegur ferftamannastraumur er til borgarinnar og Aþenubúar miklir snillingar i þvi aft selja ný- rikum ferftamönnum vörur sem þeir hafa fengift á spottpris fyrir ævintýralegar upphæftir. I ár er reiknað meft þvi aft a.m.k. 5 miijónir ferftamanna komi til Aþenu og þeir eru hvorki fáir né smáir pinklarnir, sem þeir halda meö þaftan. Af þvi aft minnst var á bila skal frá þvi sagt aft þrátt fyrir bil- mergftina er leigubilaskortur i Aþenu og ótrúlegustu farartæki tekin til leiguaksturs. Vegna þessa hörguls eru og i gildi þau lög I borginni, aft leigubilstjóri, sem er aft aka um meö einn efta tvo farþega á aft stöftva til að taka upp veglaust fólk og flytja það á áfángastaft. Þótt Aþenubúar séu ekki átakanlega snauftir aö veraldar- gæftum er þó meir en helftin af þessari 9 miljón manna þjóft sem lepur dauöan úr skel. Eru þaft bændurnir, en i sveitunum er mikil örbirgft. Fyrr á árum var mikil sauftfjárrækt I Grikklandi og geitarækt einnig. Nú er svo komiö aft Grikkir flytja inn mest allt kindakjot og þorri alls bú- skapar, sem rekinn er á fjölmörg- um smáum búum meft dreifftum landskikum, snýst um vinberja- rækt, ólifurækt og baftmullar- rækt. Fyrir þessar afurftir fá bændur litift verft efta svo aft þeir draga fram lifift á jarftargrófta meftan uppskeran stendur i blóma og fyrstu vikurnar á eftir, en liggur vift svelti þess á milli, og kindakjöt ekki fáanlegt á veröi sem þeir ráfta vift. Ónýt verkalýðshreyfing Þeir Ibúar Aþenu, sem ekki stunda viftskipti af einhverju tagi, hafa ekki úr miklu aft mofta. Mánaftarlaun eru frá 8-12 þúsund drökmur, 80-120 þúsund krónur, fyrir venjulegt lágstéttar- og miö- stéttarfólk eftir aft búift er aft taka skattinn af, en hann er afteins 10% af brúttólaunum. Verftlag i ferfta- mannahverfum er yfirleitt ekki mikift undir þvi sem gerist hér heima, en þar sem heimamenn versia er þaft fjórfalt lægra. Skráft verftbóiga er 13% en skrán- ing er fölsk, og segir ekki nema litift brot af verftbólgusögunni. Atvinnuleysi er 10-12% i landinu og atvinnuöryggi ekkert þvi verkalýöshreyfingin er ónýt. Vilj- iröu t.d. afteins vinna þina 8 tima á dag og halda heim aft þeim loknum en mikift aö gera á vinnu- staftnum verfturöu einfaldlega rekinn ef þú lætur þaft eftir þér aö fara, og vissara fyrir þig aft vinna nokkrar klukkustundir kauplaust ef þú villt halda vinnunni. Fari vinnuhópur i verkfall er kailað til annaft fólk aft halda verkinu gangandi og hin ónýta verkalýfts- hreyfing getur ekkert aöhafst. Almannatryggingakerfi er ekk- ert og getur þaft gjörsamlega sett þokkalega stæftar millistéttafjöl- skyldur á hausinn ef einhver tek- ur upp á þvi aft veikjast og þurfa á læknismeftferð og sjúkrahúsvist að halda. Læknar eru hin nýrika stétt Aþenu. Myndir og texti: Úlfar Þormóðsson Bókabrennur Skólaskylda hefur aðeins verift i Grikklandi um 20 ára skeift. Fyrst var hún 9 ár, en eftir herforingja- byltinguna 1966varhún lækkuft i 6 ár. Almenningsskóiar eru iélegar menntastofnanir sem búa vift þröngan kost. Viljirftu mennta börnin þin vei þarftu aft senda þau i einkaskóla sem eru fokdýrir. Einkaskólarnir hafa yfirboftiö bestu kennarana frá almennings- skólunum og þvi getur fólk ekki vænst mikils af þeim. Þaft er þvi ekki hlaupift aö þvi fyrir aimenn- ing aft afla sér menntunnar af eig- in rammleik, en þaft sem riftur baggamuninn og opnaft hefur mörgum leift til mennta eru sterk fjölskyldubönd. Hjálpast margir aö þótt fjarskyldir séu ef fátækur ættingi vill sækja til mennta. Fyrir rúmum 100 árum var bú- ið til bókmál, sem var mjög fjar- skylt þvi, sem fóik talafti, og varö til þess aft allur þorri almennings var ólæs á bækur og blöft og meft þvi haldift i fáfræfti. Aö sjálfsögftu liffti alþýftumáliö af þessar þrengingar, og áfram var haldift við aft semja sögur og ljóö á þvi. Þetta tilbúna tungumál, sem búift var til ún kirkjumáli og forngrisku og nefnd finngriska, var svo af- lagt sem ritmál nokkru fyrir daga herforingjastjórnarinnar. En þegar herforingjarnir höfftu rænt völdunum létu þeir þaft verfta eitt sitt fyrsta verk aö innleiöa hiö gelda mál finngriskuna á nýjan leik og létu safna saman bókum og blöftum, sem rituft höfftu verift á alþýftumáli, og héldu þeir mikl- ar bókabrennur i landinu. Nú eru tvö ár siöan alþýftumál var lög- leitt á nýjan leik, og mun þaft heyra til undantekninga aft finn- griskan sé notuð. Hvers vegna Þeódórakis? 1 þessu umhverfi býftur hinn mikli meistari tónlistarinnar, Mikis Þeódórakis, sig fram sem borgarstjóra fyrir Kommúnista- flokkinn. En hvers vegna býftur hann sig i pólitikina? Margir vilja halda þvi fram aö þessi tugthúsaði andstæftingur herforingjastjórnarinnar og land- flóttamaftur, sé peft i tafli flokks sins, sem vilji nýta sér frægft hans flokknum til framdráttar. Þeir fara trúlega villur vega. Þeódórakis er fæddur og uppal- inn i Pyreus, hafnarborg Aþenu. Pyreus hefur löngum verift nefnt raufta svæftift, en þar er mikill pólitiskur áhugi og meiri en nokkur staftar annars staftar i Grikklandi, og þykir vist mörgum nóg um hitann sem færist i menn i öftrum landshlutum i pólitiskri umræöu, svo ekki sé talaft um þann loga sem brennur i mönnum i Pyreus. Fyrir vaidarán herforingjanna var Þeódórakis þingmaftur fyrir Kommúnistaflokkinn i Pyreus. 1 fyrstu kosningunum eftir aö her- foringjunum haffti verift hrint, bauft hann sig fram fyrir flokk sinn á nýjan leik. 1 þeim kosning- um féll hann og vitaö er aft flokks- menn hans sviku hann og ráku áróöur fyrir öörum kandidat þrátt fyrir opinbera stuöningsyf- irlýsingu vift Þeódórakis. Þess mun hann vilja hefna. Af þeim tveimur ástæftum, log- andi pólitisku umhverfi og hefndarlöngun, mun Þeódórakis hafa ákveöiö aft bjófta sig fram sem borgarstjóra i sjálfri höfuft- borginni. Og möguleikar hans til sigurs eru þónokkrir. Ríki komminn Borgarstjórinn i Aþenu er kos- inn sérstaklega, og borgarstjórn þessutan. Kannski þess vegna er þaö ærift kostnaðarsamt aft leggja út I kosningabaráttu i Aþenu. En Þeódórakis er vellauftugur. Þaft finna lika margir andstæftingar hans honum til foráttu, þó svo aft sá áróftur þeirra, aft svo rikur kommúnisti sé alls enginn komm- únisti, eigi ekki mikinn hljóm- grunn meftal kjósenda sem vita aft auftur hans stafar ekki af arft- ráni, þá mun þaft frækorn efans sem meft svo grunnhyggnislegu hugarfari er sáft, þó geta riftift baggamuninn, þegar upp úr kjör- kössunum verftur talið. Frambjóðendur eru fjölmargir. Til þess aft ná kjöri þarf fram- bjóðandi aft fá 50% atkvæfta. Hörðustu stuftningsmenn Þeódórakisar eru óhræddir vift aft spá honum svo miklu fylgi, en raunsæismennirnir telja þó aft hann verfti afteins meö þriftju hæstu atkvæftatölu i þessari fyrstu lotu, en þrir þeir atkvæfta- mestu halda i aftra lotu, en kosn- ingu lýkur ekki fyrr en einhver hlýtur meirihluta. Það er frambjóftandi Sósial- istaflokksins, Beis, sem talinn er sigurstranglegastur. Sigurður A. Magnússon spáfti svo um úrslit borgarstjórnarkosninganna, að eftir að Beis heföi sigraft bæfti i fyrstu og annarri umferft mundi Þeódórakis draga sig til baka og biftja stuftningsmenn sina aft kjósa Beis, nema.... Og nú er bara aft sjá hversu spámannlega Sig- urftur er vaxinn! Það er rétt aft skjóta þvi hér inn aft eftir ár verfta þingkosningar i Grikklandi. Allt er talift benda til þess aft sameiginlega munu Sósialistar, Kommúnistar og vinstriróttæklingar úr ýmsum flokkum ná meirihluta á þinginu. Og þá vakna spurningar. Hvaft gerir sá her sem nú er á iandi þar syftra þegar and- stæftingar Nató-aftilar og Efna- hagsbandalags eru komnir til valda? Sá sami her og rændi völd- um i landinu vift svipaðar kring- umstæftur 1966, þvi þaft voru aö- eins nokkrir æðstu menn hers og lögreglu sem settir voru af, en allur meginþorri heraflans er sá sami og þá. En Grikkir eru hvergi smeykir og ljúka upp einum munni um aö sagan frá 1966 muni ekki endur- taka sig. Ennþá má þvi finna hjá fólki trú á manngildi. Vonandi bregst hún ekki I þetta sinn ef og ef til þess kemur að vinstrimenn vinni umræddan sigur. Fjárvana borg Þótt borgarstjórinn i Aþenu sé valdamikill maður, ráfti til dæmis þvi hverjir séu i embættum hjá borginni meftan hann rikir, ráfti þvi hvar byggt er yfir fólk og hversu mikift og svona áfram og áfram, þá situr hann I tekjulausu riki i þessari fornu háborg menn- ingarinnar. Þaft greiöir nefnilega enginn útsvar I Aþenu! Vegna frægftar Þeóddrakisar er talift liklegt aö honum muni tak- ast betur en nokkrum öörum aft verfta borginni úti um rekstrarfé. Rekstrarféft er fengift úr sjóöum rikisins, sem aft visu eru harla illa leiknir eftir valdatima herfor- ingjanna en eitthvaft farnir aft hjarna vift, en ékki sist til ýmissa stóreignamanna.sem hann vegna frægftar sinnar og frama er i nán- um kunningsskap vift. Þessu halda amk. stuftningsmenn hans fram. En þaft ljúka þó allir upp einum munni um þaft aft ekki verfti þaft auftvelt aft öngla saman fjármun- um i borgarsjóft. Nefna menn til, aö auftmennirnir grisku, sem eru meftal mestu auömanna verald- ar, og greifta aft sjálfsögftu ekki 10% tekjuskattinn til rikissjófts af þvi aft þeir hafa engin laun hjá Framhald á 18. siftu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.