Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 fjárhagsvandi Sundsambandsins ykist. Ég gæti enn haldiö áfram, en eitt vil ég leggja áherslu á i viöbót: Viö þurfum aö taka þátt i mun fleiri mótum en nú er, en peningar til þeirra hluta eru ekki til. Ég hef lagt fram hugmyndir aö þvi hvert starfssvið landsliös- þjálfara þarf aö vera. Eru þær á þá leiö, aö hann veröi þjálfari i fullu starfi, þjálfaöi besta sund- fólkiö i félögunum og væri félög- unum jafnframt ráögefandi. Einnig sjái hann um þjálf- aramenntun á vegum Sundsam- bandsins og drifi félögin til aö vinna aö iökun sundsins. — Þú minnist á peningaleysi. Fyrirnokkrum dögum kom fram hér i blaðinu, að fjárhagsstaða Sundsambandsins væri mjög slæm um þessar mundir. — Já, þaö er rétt. Opinberir styrkir nægja ekki lengur til aö greiða vexti af vixlum sambands- ins. Til að mæta þessum erfiö- leikum hefur Sundsambandið far- iö af stað með happdrætti. En þar sem markaðurinn er litill hér vil ég vara viö mikilli bjartsýni á út- komuna. Einnig er áætlaö aö stofna til sérstaks fjáröflunar- dags i desember, en þó aö þetta sé góðra gjalda vert er ekki nóg aö gert. Þaö mætti t.d. efna til eins konar trimmsunds meö tilheyr- andi merkjasölu. Hér synda svo margir, að upp úr þessu mætti mikið hafa. Einnnig mætti nefna firmakeppni og auglýsingasöfnun i mótaskrár, en hvorugt er borið viö. En ég vil hvetja fólk til að bregðast vel viö þessum aögerð- um Sundsambandsins, svo aö rétta megi fjárhaginn viö og efla starfsemina. — Þú talaðir áðan um, að sund- fólkiö þyrfti að komast á fleiri mót. Ef við gerum ráð fyrir að úr fjármálunum rætist og þvl verði hægt að senda fólk á mót, er þá hvetjandi að tefla þvi fram gegn sterkum þjóðum? — Æskilegast er aö taka þátt i mótum, sem eru viö okkar hæfi, en þaö þýöir ekki aö viö eigum aö hafna öllum boðum á þau sterku. Þaö er ljóst, að hin s.k. 8 landa keppni (Israel, Spánn, Sviss, Bel- gia, Wales, Skotland, Noregur, á- samt tslandi) er of strembin fyrir landsliö okkar, en ég hef ekki vilj- aö sleppa hendinni af þessari keppni, nema eitthvaö annað komi i staðinn. En það gefur auga leið, að ólikt er að búa liö undir þaö aö halda i horfinu á botn- inum, eða að búa þaö undir aö sigra. Viö höfum þurft að hafna boðum á mót, sem eru viö okkar hæfi, og þurfum jafnvel aö hafna þátttöku i Kollot-mótinu i aprii. Slik mót eru fyrst og fremst okkar vettvangur i bili, en siðan er hægt að hugsa sér aö klifa stigann. Eins og fram hefur komið þarf mikið aö breytast til aö framfarir veröi hér á landi i sundinu. Meðan aöstaðan breytist ekki til batnaö- ar hef ég augun opin fyrir þjálf- arastarfi erlendis þar sem ég get betur séð hvers ég er megnugur i starfinu. — Eru keppnisiþróttir þrosk- andi? — Þetta mál hefur tvær hliðar. Það er auðvitað þroskandi aö kenna fólki stundvisi og reglu- semi, kenna þvi að setja sér tak- mörk og vinna markvisst aö þeim. Sé hægt aö efla þetta i gegnum iþróttirnar, eru þær mannbætandi. Hins vegar er allt- af sú hætta fyrir hendi, aö iþrótta- fólk fyllist sjúklegum metnaöi og jafnvel hatri i garð andstæöing- anna og um það eru dæmi. Mér er ekki grunlaust um aö þjálfarar ýti jafnvel undir þetta, en senni- lega er það mest ómeövitaö. Þessum óæskilegu viöhorfum keppenda má að miklu leyti eyða, t.d. meö þvi aö þeir umgangist hver aöra utan keppni, taki þátt I almennum félagsstörfum. Ann- ars draga iþróttirnar auövitaö dám af þvi samkeppnisþjóö- félagi, sem við búum i. Ég er þeirrar skoðunar, aö kappiö sé of fljótt sett á oddinn i allri unglingaþjálfun og þvi er þaö mjög algengt, aö þeir sem minni hafa hæfileikana hætta iþróttaiökun snemma. Þetta er mjög alvarlegur hlutur. En þó aö þjálfari vilji sinna sem flestum, á hann óhægt um vik, þar sem aö- stæöur eru yfirleitt takmarkaöar og þvi hneigjst hann fremur til að beina athyglinni aö þeim sem virðast efnilegastir. ASP Stórmót framundan Reykjavikur- mótin í bridge Astæöa þykir til, aö félögin I bænum fari aö vekja thygli fé- laga sinna á undanrásum I R.vikurmóti, sem er aö hefjast. Stefnt er aö, aö hefja keppni I undanrás fyrir tvimenning siö- ast I þessum mánuöi eöa byrjun nóv. tJrslit veröa aö venju spiluö I byrjun des. Ekki liggur enn fyrir „kvóti” sá, er sambandið fær til tslandsmóts, en liklegt þykir i ár, aö hann veröi alls um 15 pör. Nokkrar breytingar veröa aö öllum likindum geröar á undan- rás i sveitakeppni, og reynt aö koma þessari iþrótt meir út á meöal fólksins, en gert hefur veriö hingaö til i Reykjavikur- mótum, allra siöustu ár. Er þá hugsanlega stefnt aö lokaupp- gjöri 2-4 sveita, er sýnt veröur á ,,rama”-sýningartöflu, þar sem fólk getur upplifaö sömu spennu og keppendur veröa fyrir, viö græna boröiö. ✓ Frá Asunum Sl. sunnudag var haldinn I As- unum aöalfundur félagsins. Kjörin var ný stjórn. Er hún þannig skipuö: Jón Baldursson formaður, Jón Páll Sigurjóns- son gjaldkeri, ólafur Lárusson ritari, Siguröur Sigurjónsson v-- formaöur og Erla Sigurjóns- dóttir m.stj. Fulltrúar á þing BSI voru kjörnir: Jón Baldursson, Ólafur Lárusson. Til vara: Jón Hilm- arsson og Guöbrandur Sigur- bergsson. t stjórn Reykjaness-- umdæmis var kjörin Erla Sigur- jónsdóttir. Aö venju voru fáir mættir á fundinn, en talsvert fjör var, og allir höföu eitthvað til málanna aö leggja. Akveöiö var, aö hækka félagsgjald úr kr. 1000.00 I kr. 2.500.00, til aö mæta þeim hækkunum sem orönar eru ansi margar sl. 2 ár. Keppnisgjald pr. kvöld er kr. 800.00, en dýrara fyrir utanfélagsmenn, eöa kr. 1.000.00 á kvöldi. Aö sjálfsögöu er veittur hjóna og skóla-af- sláttur, svo og nýliöa undir tvi- tugu. A mánudaginn hófst svo „Butler”- tvimenningskeppni meö þátttöku alls 24 para. Spil- aö er 1 einum riöli, allir v/ alla. Staöa efstu para, eftir 8 lot- ur (af 23): 1. Páll Valdimarsson— Vigfús Pálsson 50stig. 2. Asmundur Pálsson— Þórarinn Sigþórsson 42 stig. 3. Guðmundur Páll Arnarson— Egill Guöjohnsen 37 stig. 4. Kristmann Guðmundsson— Þóröur Sigurösson 32 stig. 5. Jón Pall Sigurjónsson— Hrólfur Hjaltason 31stig. 6. Siguröur Sverrisson— Valur Sigurösson 22stig. 7. Jón Baldursson— Sverrir Armannsson 22 stig. 8. Jón Hilmarsson— Oddur Hjaltason 18stig. Sökum timaleysis, i keppni, var ákveðiö aö hefja keppni kl. 19.30 nk. mánudag. Keppnisstjóri er Hermann Lárusson. bridge 1 Umsjón: ólafur Lárusson 5. tsak Sigurösson— Arni Bjarnason 227stig. 6. Viöar Guömundsson— Haukur Zophoniasson >227 stig. 7. Þórarinn Arnason— Finnbogi Finnbogason 227 stig. 8. Pétur Sigurösson— Hermann Samúelsson 225stig. Eftir l.umferö voru efstir: 1. Pétur—Hermann 141 stig. 2. Gunnlaugur—Stefán 130stig. 3. Ari—Diana 124 stig. Frá Göflurum Eftir 1. umferð i aöaltvimenn- ing BH, er röö efstu manna þessi: meöalskor 210 stig. 1. Bjarni Jóhannsson— Þorgeir Eyjólfsson 263 stig. 2. Albert Þorsteinsson— Siguröur Emilsson 230stig. 3. Kjartan Markússon— Óskar Karlsson 228stig. 4. Runólfur Sigurösson— Þorsteinn Þorsteinsson 223 stig. 5. Björn Eysteinsson— Magnús Jóhannsson 218stig. 6-7.Arni Þorvaldsson— Sævar Magnússon 217 stig. 6-7.Guðni Þorsteinsson— Siguröur B.Þorsteinsson 217 stig. 8. Bjarnar Ingimarsson— Þórarinn Sófusson 214 stig. Sannarlega eru þarna tveir á öllu útopnu. önnur umferö veröur spiluö n.k. mánudag. GÞ. Frá Bridgefélagi kvenna Eftir 6 umferðir (2 kvöld) I Barometer-keppni félagsins er staöa para þessi: 1. Gunnþórunn Erlingsdóttir— Ingunn Bernburg 174 stig. 2. Aðalheiöur Magnúsdóttir— Kristin Karlsdóttir 165 stig. 3. Halla Bergþórsdóttir— Kristjana Steingr .d. 159 stig. 4. Júliana Isebarn— Margrét Margeirsdóttir 153 stig. 5. Kristin Þóröardóttir— Guöriöur Guömundsd. 114 stig. 6. Gróa Pétursdóttir— Valgeröur Eiriksd. lOlstig. 7. Steinunn Snorradóttir— Þorgeröur Þórarinsd. 92stig. 8. Hugborg Hjartardóttir— Vigdis Guöjónsdóttir 92 stig. Keppni verður framhaldiö aö venju nk. mánudag I Domus Medica, og hefst keppni kl. 19.30. Frá BR Frá Barð- strendingafé- laginu i Rvik Orslit úr 2 umferö tvimenn- ingskeppninnar: 1. Gunnlaugur Þorsteinsson— Stefán Eyfjörö 262 stig. 2. Ari Þóröarson— Diana Kristjánsdóttir 243stig. 3. Helgi Einarsson— Erla Lorange 243 stig. 4. Ragnar Þorsteinsson— Eggert Kjartansson 239 stig. Sl. þriöjudag var keppni framhaldiö I BR. Eftir 4 um- feröir I Monrad- hraökeppni sveita, meö þátttöku alls 16 sveita, er staöa efstu liöa þessi: Stig. 1. Sv. Þórarins Sigþórss. 64 2. Sv. Björns Eysteinss. 56 3. Sv. Magnúsar Aspelund 50 4. Sv. Óöals 45 5. Sv. Helga Jónssonar 45 6. Sv. Guöbrands Sigurb ,s. 45 7. Sv. Estherar Jakobsd. 45 8. Sv. Hermanns Láruss. 42 Keppni lýkur næsta miöviku- dag. Þá veröa spilaöar 5 og 6 umferð mótsins. Næsta keppni félagsins, er Butler tvimenn- ingskeppni, riölakeppni. Nánar siöar. Frá Bridgefélagi Suðurnesja Þættinum hefur borist dag- skrá félagsins fram aö ára- mótum 1978—79. Fer hún hér á eftir: Danivalsmótiö hófst 3/10 sl. og stendur yfir 4 kvöld. Arshátið félagsins veröur I dag, laugardag 14,okt. og veröa þar afhent verölaun, vegna móta veturinn 1977—78. Þeir er hug hafa á þátttöku, eru beönir um aö hafa samband viö stjórn- armeölimi, hiö fyrsta. Síöast á dagskrá félagsins, er síöan J.G.P.—mótiö sem er sveitakeppni. Hefst mótiö hinn 31/10 78 og lýkur um áramót. Bridgefélag Suöurnesja var stofnaö 26.sept.1948. Er þaö þvi 30 ára um þessar mundir. Haldiö var veglegt afmælismót I Stapa, um daginn meö 30 pörum viösvegar aö. Nv. stjórn er þannig skipuö: Haraldur Bryn- jólfsson formaöur, Gunnar Sigurjónsson v-formaöur, Þóröur Kristjánsson gjaldkeri, Alfreö G.Alfreösson ritari, Logi Þormóösson m.stj. og meistara- stigaritari er Gisli Isleifsson. Féiagiö spilar á þriöjudögum i Stapa, minni sal og hefst spila- mennska kl. 20.00. Leiðrétting t slðasta þætti var fjallaö um frægustu spilara á tslandi fyrr og nú, og var þar minnst á Guðmund frá „Reykjum”, en þaö rétta er, aö Guömundur var frá Reykholti. Var faöir hins kunna landsliösmanns Gunnars Guömundssonar. Eitthvaö haföi bæjarnafniö skolast til I huga mér, og biöst ég afsökunar á þvi. Einnig er ónefndur Steinn Steinsen, er Magnús „Stormur” minntist sem eins fremsta spil- ara á sinum tima. Gaman væri ef einhver lumaöi nú á sögum eöa frásögnum af köppum fyrri tima, og nennti aö hafa fyrir þvi aö senda þaö til þáttarins. Jafn- vel spil eöa „local” brandari geröi sama gagn. Hvernig væri aö sýna lit. Innskrift - V élritun Blaðaprent hf óskar eftir starfskrafti við innskriftarborð. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Vaktavinna. Uppl. i sima 85233. Blaðaprent hf. SOFASETT Vegna flutninga er til sölu mjög vel með farið c.a. tveggja ára enskt sófasett. Áklæði er pluss i brúnum litum. Upplýs- ingar i sima 4 13 88 Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið og pikup bifreið, ennfremur nokkrar ógang- færar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju- daginn 17. október kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. SALA VARNARLIÐSEIGNA l' Félagsráðgjafi Félagsráðgjafa vantar til starfa á Félags- málastofnun Hafnarfjarðar. Fjölbreytt og skemmtilegt starfssvið sem að hluta teng- ist heilsugæslu ásamt almennu félagslegu sviði á félagsmálastofnun. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember n.k. Nánari upplýsingar veitir félagsmála- stjóri i sima 53444. Félagsmálastjórinn i Hafnarfirði Auglýsingasíminn er 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.