Þjóðviljinn - 14.10.1978, Side 14

Þjóðviljinn - 14.10.1978, Side 14
1*4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. október 1978 Umsjón: Ásmundur Sverrir Pálsson Guðmundur Harðarson er fæddur í Reykjavík 10. febrúar árið 1946. Guðmundur er einn af okk- ar lærðustu mönnum í iþróttum og síðan 1969 hefur hann verið þjálfari islenska landsliðsins í sundi að undanskildum fá- einum árum, sem hann var við nám í Bandaríkjunum. Einnig hefur hann starfað sem þjálfari hjá Sund- félaginu Ægj og er einn þeirra f jölmörgu, sem lagt hafa af mörkum mjög ó- eigingjarnt starf, í þágu íþróttanna i landinu. Skipulag sundmála í ólestri Ljósmyndir: Leifur hefur verið einn af þjálfurum bandariska ólympiuliðsins i ára- raöir. Það sem kom mér einna mest á óvart var það, hvað vega- lengdirnar voru miklar, sem hann lét sundfólkið synda. Einnig var allt skipulag æfinga framandi fyrir mér. — Hvað dvaldistu lengi i Bandarikjunum? — Að þessu sinni dvaldist ég ekki nema sumarlangt. En haustiö ’67 fór ég svo aftur vestur og þá til náms við Kaliforniuhá- skðla á Langasandi. Don Gambril þess skóla. Þarna starfaði ég sem aðstoðarþjálfari hans með fullu námi i skólanum og árið 1975 lauk ég BS-prófi i iþróttum. Að þvi loknu kom ég hingað heim og tók aftur við landsliðsþjálfarastarf- inu, en i þvi hafði ég verið frá ’69 að undanskildum þessum tveim- ur námsárum minum. — Er einhver munur á íslensku sundfólki nú og þegar þú byrjaðir sem landsliðsþjálfari? — Já, það er vissulega munur og það sýna Islandsmetin, sem eru töluvert betri nú en áður. Hins og þarf þvi að bæta til muna. Til dæmis hefur ekkert sundfélag nægan tima né nóg pláss i laugun- um. Samstarf félaganna þarf að vera meira en nú er, en það er i rauninni ekkert. Þjálfari hjá einu sundfélagi gæti t.a.m. þjálfaó sundfólk hjá öðru, þar sem félag- arnir eru fáir. Með þessu móti mundu sparast talsverðir pening- ar. Menntun þjálfara er einnig mjög ábótavant, en námskeiða- gjöld og styrkur fræðslunefndar 1S1 mundu standa undir kostnaði við námskeiðin, en hvorugt fæst „En ég vil hvetja fóik til að bregðast vel við þessum aðgerðum Sund- sambandsins, svo rétta megi f járhaginn við og efia starfsemina” — Flestir þekkja þig vegna starfs þfns sem landsliðsþjálfari I sundi, en hefurðu sjálfur æft sund með keppni I huga? — Já, ég byrjaöi að æfa sund hjá Ægi, þegar ég var 9 ára og 11 ára keppti ég á minu fyrsta móti. Þetta var sundmót, sem Ægir hélt og jafnframt fyrsta mótið sem keppt var I aldursflokki 12 ára og yngri. Þarna reyndi ég mig I 50 metra bringusundi. Ég held siðan áfram að æfa og sú keppni, sem er mér minnisstæðust, er lands- keppni við Ira i Belfast árið 1968. Hún er minnisstæð i tvennum skilningi: Þetta var fyrsta lands- keppni tslendinga með fullu landsliði i nær 20 ár, eöa frá þvi Norðmenn komu hingað 1949. Hins vegar er hún mér i huga vegna þess, hve móttökur Iranna voru til mikillar fyrirmyndar og andinn i landsliðinu góður, en við vorum næstum öll byrjendur. Þessi keppni var upphaf mik- illar landskeppnaskriðu, en á ár- unum 1968—73 voru eigi færri en 1—2 landskeppnir á ári. Keppnin við Irana endaði með sigri okkar. — Attu eitthvert nám að baki I Iþróttum? — Ég fór i tþróttakennaraskóla Islands og útskrifaðist þaðan árið 1965. Sumarið 1966 fór ég svo vestur til Kaliforniu til að kynna mér sundþjálfun. Þar naut ég til- sagnar Dons Gambril, en hann var þá þjálfari skólaliösins þar. Ég hafði hvflt mig á sundæfingum sumarið 1966, en tók nú aftur til við æfingar og keppti meö skóla- „Hins vegar er alltaf sú hætta fyrir hendi, að íþróttafólk fyliist sjúklegum metnaði og jafnvel hatri í garð andstæð- inganna...” liðinu. Með þessu liði synti ég sennilega mitt besta sund um æv- ina. Það var á eins konar svæða- móti (conference championship) þó svo keppendur væru úr skólum viðs vegar i Bandarikjunum. A mótinu fengu átta fyrstu kepp- endur i hverri grein stig og ég var fjóröi i 400 yarda fjórsundi og krækti þvi i stig fyrir minn skóla. Arið 1973 fer ég siðan aftur til háskólanáms i Bandarikjunum og i þetta skipti til Alabama. Ég fór fyrir milligöngu Gambrils, sem þá hafði tekið við þjálfun á liði vegar sitjum við eftir i þróuninni. Þaö hefur t.d. ekki gerst siðan 1973, að við höfum hlotið verðlaun á Noröurlandamóti, en fyrir þann tima áttum við nær alltaf fólk á verðlaunapalli, bæði i flokki full- orðinna og unglinga. Erlendis hefur átt sér stað hröð þróun varðandi skipulagsmál og verk- efni handa sundfólki. Fjöldi alþjóðlegra móta er haldinn á hverju ári þar sem hert er i bestu og efnilegustu sundmönnunum. A árunum 1972—’76 var þróunin svo ör, að nokkrir sigurvegarar á Ölympiuleikunum i MBnchen hefðu ekki einu sinni komist i úr- slit i Montreal skv. árangrinum, og aðeins einn hefði komist á verðlaunapall. Þar á ég viö Mark Spitz, en árangur hans i 100 m. skriðsundi og 100 m. flugsundi hefði nægt honum til verðlauna i Montreal. Af þessu sést, aö fram- farirnar eru talsvert meiri i sundi en i flestum öðrum greinum iþrótta. — Hverju er ábótavant hjá okk- ur? — Þaö er ansi margt. Allt skipulag sundmálanna er i ólestri „Meðan aðstaðan breytist ekki til batn- aðar hef ég augun opin fyrir þjálfara- starfi erlendis...” meðan þau eru ekki haldin. Vanda þarf meira til fram- kvæmdar sundmóta, en flest mót Sundsambandsins hafa ekki ver- iö haldin skv. lögum og reglu- gerðum, sérstaklega nú tvö s.l. ár, og er þetta sambandinu til há- borinnar skammar. Sama fram- taksleysið gildir lika um dóm- aranámskeið og allt unglinga- starf, en i þessu hefur stjórn Sundsambandsins fátt eða ekkert aðhafst undanfarin ár. Sundregl- ur hafa ekki verið gefnar út siöan 1968, en siðan þá hefur margt breyst. Slíka útgáfu greiðir út- gáfunefnd ISI. tJr öllu þessu væri semsagt hægt að bæta án þess að

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.